Tíminn - 17.03.1992, Qupperneq 1
Þriðjudagur
17. mars 1992
54. tbl. 76. árg.
VERÐiLAUSASÖLU
KR. 110.-
Birgðir af saltfiski safnast fyrir í landinu. Kaupendur halda að sér hönd-
um og bíða eftir verðlækkun. SÍF telur orsökina augljósa:
Sérleyfi Jóns Bald
spilla saltfisksölu
Stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda (SÍP) telur að ut-
anríkisráðherra hafi skaðað saltfiskmarkaði í Evrópu með því að
veita takmörkuðum hópi útvalinna aðila útflutningsleyfi. Stjórn SÍP
segir að þetta valdi því að saltfiskkaupendur haldi að sér höndum við
kaup á fiski þar sem þeir vonist eftir verðlækkun. Afleiðingin sé um-
talsverð birgðasöfnun hjá framleiðendum.
í apríl í fyrra féllst utanríkisráð- leiðingar þessara afskipta ráðuneyt-
herra á sjónarmið saltfiskframleið-
enda og setti reglur sem bönnuðu
öðrum en SÍF útflutning á saltfiski
til Evrópulanda. Reglurnar voru
settar eftir umræður í 2-3 ár um
hvort afnema beri einkaleyfi SÍF til
að flytja út saltfisk. Stjórn SÍF seg-
ir að á því ári sem liðið er frá því
reglurnar voru settar hafi ráðu-
neytið veitt takmörkuðum fjölda
útvaldra aðila útflutningsleyfi og
þannig brotið eigin reglur um út-
flutning á saltfiski. SÍF telur að af-
isins séu nú að koma í ljós á helstu
saltfiskmörkuðum íslendinga.
Sigurður Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, sagði að saltfisk-
markaðirnir í Evrópu séu þröngir,
fáir stórir kaupendur séu ráðandi á
markaðinum. Hann sagði að þegar
þessir kaupendur urðu varir við
nýja útflytjendur á saltfiskmarkað-
inum hafi þeir greinilega ákveðið
að halda að sér höndum í von um
verðlækkun.
Neyslutími saltfisks á meginlandi
Evrópu er frá september fram til
páska. Aðalframleiðslutíminn hér
heima er hins vegar mars til maí.
Hingað til hafa saltfiskskaupendur
keypt vöruna strax og hún hefur
verið tilbúin. Þeir hafa þannig séð
um að geyma saltfiskinn og greitt
geymslukostnað. „Núna, þegar það
eru mjög óskýrar reglur um það
hvaða leikreglur koma til með að
gilda í þessum viðskiptum, eru
kaupendur ekki tilbúnir til að taka
áhættu og eru mjög tregir til að
birgja sig upp.
Þetta þýðir að áhættan af birgða-
söfnuninni flyst yfir á íslenska
framleiðendur. Það þýðir aftur stór-
kostlegan samdrátt í framleiðsl-
unni og væntanlega samdrátt í
sjávarplássum sem fyrst og fremst
treysta á saltfiskframleiðslu. Þegar
íslenskir framleiðendur geta ekki
verið vissir um að losna við vöruna
þá leiðir það óhjákvæmilega til þess
að framleiðsla dregst saman," sagði
Sigurður.
Stjórn SÍF samþykkti einnig að
leggja til við félagsfund SÍF að fé-
lagið endurskoði afstöðu sína til
sérleyfisins, sem það hefur haft í
sextíu ár á útflutningi saltfiskaf-
urða. Sigurður sagði að framleið-
endur innan SÍF verði að ákveða
hvort þeir vilja að SÍF haldi sérleyfi
sínu eða ekki. Vilji menn óbreytt
skipulag þessara mála verði menn
að standa saman um það. Tvöfeldni
gangi ekki upp.
Félagsfundur SÍF hefur fimm
sinnum á fjórum árum samþykkt
að SÍF haldi sérleyfí sínu.
-EÓ
Tíminn
75ára
ídag
I dageru liðin nákvæmlega 75 ár frá
þvi að Tíminn hóf gösgu sína, en
blaðiö kom fyrst út þann 17. mars ár-
iö 1917.1 tikfni dagsins verður opið
hús eftir hádegi fyrir gesti og velunn-
ara Tímans í húsakynnuna blaðsins að
Lynghálsi 9. Einar Einarsson, fyrrver-
andi trésmiður í Reykjavík, er eini nú-
lifandi íslendingurinn, sem er jafn-
aldri blaðsins, fæddur sama dag og
fyrsta blað Tímans kom út Á niýnd-
inni sjáum við unga blómarós, lörist-
bjögu Fjólu Hrólfsdóttur, feera Einari
blómvönd í tilefni dagsins, en hann
fékk um leið gjafabréf, árs áskrift að
Tímanum. -ÁG. Tímamynd Ámi Bjarna
Samningaviðræður atvinnurekenda, ríkisvaldsins, ASÍ, BSRB og KÍ fara hægt af stað og
Guðmundur J. er svartsýnn:
„Skrautsýning með ávörpum“
í gær fór ffam fyrsti sameiginiegi
samningafundur aðila vinnumarkað-
arins síðan BSRB, KÍ og ríkisvaldið
komu að samningaborðinu. Ráðgert
hafði veríð að halda fundinn síðastlið-
inn fimmtudag, en honum var frestað
í tvígang vegna kröfu BSRB og KÍ um
að fá að vita um hvort ríkisvaldið
áformaði að skerða réttindi opinberra
starfsmanna.
Eftir óformleg fundarhöld um
helgina tókst loks í gær að halda
áðurboðaðan fund með öllum
samningsaðilum. Fyrir fundinn
töldu KÍ og BSRB sig hafa fengið
fullvissu um að ekki stæði til að
skerða réttindi opinberra starfs-
manna.
Fátt gerðist á fundinum í gær, en
hann stóð í um tvær klukkustund-
ir. „Þetta var svona skrautsýning
með tilheyrandi ávörpum," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, eftir fundinn.
Guðmundur er afar svartsýnn á að
viðræðurnar leiði til jákvæðrar
niðurstöðu. Hann sagði að vinnu-
veitendur og ríkisvaldið stæðu fast
saman gegn öllum launabótum í
einu eða öðru formi. Meðan engin
breyting yrði á þeirri afstöðu yrði
ekki samið.
Síðdegis í gær ræddu samnings-
aðilar saman um fyrirkomulag við-
ræðnanna og ákveðið var að ræða
það nánar snemma í dag. Samn-
ingamenn ætla síðan að koma
saman við stóra samningaborðið
eftir hádegið í dag.
Guðmundur J. Guðmundsson
Ósoneyðandi halonefní látín
streyma út í andrúmsloftið
úr ratsjárstöðvum. Utanrík-
isráðuneytið segir:
Reglur
óbrotnar
J hverri ratsjárstöð má ætla að
sleppt hafi verið út um 450 kfió-
tim af haloni af slökkvikerfum,
eða samtals um 1,8 tonnum á
Öllum stöðvunum. 111 saman-
burðar er talið að í íslenska
skipaflotanum séu um 30-40
tonn af haloni, auk þess sem aU-
mörg fyrírtæki nota efuið á
slökkvikerfi sín.“
Svo segir í tilkynningu frá ut-
anríkisráðuneytinu um það þeg-
ar ósoneyðandi efnum var sleppt
út í loftið þegar eldvamakerfi
ratsjárstöðvanna á Gunnólfsvík-
urfialli, Bolafjalli, Miðnesheiði
og Stokksnesi voru prófuð.
Haloninu var sleppt út þegar
slökkvikerfi stöðvanna voru
prófuft á tímabiUnu nóvember
1988-febrúar 1990 en sam-
kvæmt fslenskum lögum og
reglugerðum og reglum Banda-
ríkjahers var það ekki óheimUt
að því er segir í tUkynningu ut-
anríkisráðuneytisins. —sá
Lá við slysi í
Grindavík:
BÁTUR
LAGÐIST
ÁHLIÐ
Um miðjan dag í gær var lögregl-
unni í Grindavík tilkynnt um að tíu
tonna bátur væri í vandræðum í
innsiglingunni í Grindavík. Hafði
báturinn lagst á hliðina í innsigling-
unni, en ekki kom til afskipta björg-
unarsveita því báturinn komst af
sjálfsdáðum að bryggju í Grindavík-
urhöfn. Það var aðeins um að ræða
fimm mínútna óvissu, því skammur
tími leið frá því tilkynningin kom
þar til önnur tilkynning kom þess
efnis að allt væri í lagi. -PS