Tíminn - 01.04.1992, Qupperneq 9

Tíminn - 01.04.1992, Qupperneq 9
Miðvikudagur 1. apríl 1992 Tíminn 9 Frank og Julio taka höndum saman á góðgerða- tónleikum Julio Iglesias er önnum kafinn maður og er um þessar mundir að vinna að nýrri hljómplötu. Góðvin- ur hans og átrúnaðargoð, Frank Sinatra, þurfti þó ekki að biðja hann tvisvar um að syngja fyrir sig, og með sér, á góðgerðatónleikum í Palm Springs fyrir eftirlætisverkefni Barböru, konu Franks, þó að fyrir- varinn væri stuttur. Allur hagnaður rennur til Barbara Sinatra-bama- spítalans við Eisenhower Medical Center, svo og Desert Hospital. Á hverju ári veita Sinatrahjónin forstöðu heljarmikilli golfkeppni, sem boðið er til þeim sem verðugir eru. Keppnin stendur í þrjá daga og þátttakendumir greiða sem svarar 170.000 ísl. kr. fyrir að fá að vera með. Síðan eyða þeir tímanum í að leika golf og taka þátt í endalausum kokkteilboðum og hádegisverðum, sem skipulögð hafa verið. En há- punkturinn á góðgerðasamkom- unni er án efa stórmóttakan á loka- kvöldinu. í ár var þar engin undantekning á. Stórsöngvaramir, sem alkunna er að bera gagnkvæma virðingu og að- dáun hvor til annars, sungu í hálf- tíma hvor og gestimir 1200 fengu að heyra Frankie Boy hylla konu sína með ballöðunni Barbara. Julio lét sitt ekki eftir liggja með lokalag- inu, lagi EIvis Presley Can’t Help Falling In Love With You, og athygíi viðstaddra beindist að fylgikonu hans það kvöldið, hollensku fyrir- sætunni Miranda. Sem sagt ágætis samkoma og skemmtun til stuðnings góðu mál- efni. Julio var stoltur af nýjustu vinkonu sinni, hollensku fyrirsætunni Mir- anda. Frank Sinatra þurfti ekki aö ganga á eftir Julio Iglesias um að syngja á góðgerðatónleikum fyrir Barbara Sinatra-barnaspítalann. Kjötkveðjuhátíð í Feneyjum Kjötkveðjuhátíð er haldin árlega í Feneyjum, eins og svo víða annars staðar í kaþólskum löndum, rétt áður en langafasta gengur í garð. Þá er auðvitað mikið um dýrðir í þessari fornfrægu og fögru borg. Aldrei áður hafa búningamir ver- ið eins skrautlegir og í ár. Af- bragðsfögru andlitsgrímurnar í þúsundum afbrigða lögunar og lita gáfu öllum færi á að taka á sig hina fegurstu mynd. Feneyingar gripu tækifærið fegins hendi og um helmingur borgarbúa spásseraði um göturnar eins og verur úr heimi hugarflugsins, en hinn helmingurinn fylgdi þeim eftir vopnaðir myndavélum. Fölnuð fegurð bygginganna, hinn full- komni glæsibragur búninganna, í Fallegir búningar og fríöar and- litsgrímur: kjötkveðjuhátíðin í Feneyjum ge fur borgarbúum til- efni til að sýna sína bestu htiö. bland við vetrarsólina og mistrið var áhrifamikil sjón.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.