Tíminn - 02.04.1992, Page 9

Tíminn - 02.04.1992, Page 9
Fimmtudagur 2. apríl 1992 Tlminn 9 Meöal ótal frægra gesta mátti líta nýbökuöu hjónin Richard Gere og Cindy Crawford. Elizabeth Taylor naut lífsins I sextugsafmælinu og sleppti varla hendinni af Larry Fortensky. Þeir, sem sáu hana, segja hana líta út fyrir aö vera þrítug! Börn súper- stjarna Það eru því miður Iitlar líkur á að böm súperstjarnanna í Hollywood eigi minnstu möguleika á að eiga eðlileg uppvaxtarár. Varla líður svo mánuður að sonur eða dóttir ein- hverrar stórstjömunnar opinberi ekki bernskuminningar sem oftar en ekki varpa skugga á dýrkað eft- irlæti bíófara. Ljósmyndarinn Phil Stern hefur fylgst með frama þeirra ríku og frægu í Hollywood. Hann á stórt safn dýrgripa af myndum úr fortíð- inni í Vestur-Hollywood. Þar gefur m.a. að líta stjörnurnar frægu, þegar þær vom upp á sitt besta og sinntu börnunum sínum eins og best mátti verða, fyrir framan ljós- myndarann a.m.k. Síðan hefur því Liza Minnelli bar mikinn svip af móöur sinni, Judy Garland, strax sem barn. miður komið í ljós að ekki var allt- af allt sem sýndist á þessum mynd- um. Börnin orðin fullorðin, beisk og bitur, leysa frá skjóðunni og myndin af foreldmnum ekki alltaf falleg. Mickey Rooney leit svona út 1949 þegar hann var á ströndinni með Timmy syni sínum. Ethan Wayne vildi strax veröa eins og pabbi hans, John Wayne. Elizabeth Taylor fannst ekki seinna vænna að verða barn á ný, þegar hún varð sextug á dögunum. Hún hélt heljarinnar mikla afmæl- isveislu í Disneyland í Kaliforníu fyrir 1000 gesti, sem allir skemmtu sér konunglega í hinum ýmsu leik- tækjum, þó að ekki sé víst að allir hafi hitt afmælisbarnið. Lífverðir sáu nefnilega um þá hlið mála og það vom aðeins þeir alfrægustu og nánustu, sem komust nálægt til- efni veislunnar. Michael Jackson sást ekki, en einhver orðrómur var á kreiki um að hann kynni að vera nærstaddur, í gervi einhverrar Disneyfígúm! Það er reyndar allsendis óvíst að þetta verði síðasta stórafmælis- veislan sem Liz heldur. Hún segir langlífi í ættinni og hún eigi móð- urbróður, sem sé nýorðinn 100 ára, og mamma hennar sé 95. Hún á þess vegna helst von á því að ná sjálf hundrað ára aldrinum og gott betur. Gestunum hafði verið uppálagt að klæðast óformlega og það er svolít- ið misjafnt hvaða merkingu þeir lögðu í það. Gallabuxur voru þó áberandi, svo og leðurfatnaður. En Esther Williams, sundstjama frá sjötta áratugnum, lét sig hafa það að mæta í Hermes-blússu sem Carrie Fisher var eitt sinn stjúpdóttir Elizabeth. Hún mætti til veisl- unnar háólétt meö umboösmanninum Bryan Lord. kostaði 70.000 ísl. kr. (jafnvel fötin utan á fræga fólkinu em verðlögð í svona selskapi), en því miður varð henni kalt og hún varð að smeygja sér í háskólabol með mynd af Mikka mús utan yfir, og hann kost- aði bara 500 kr.l Veislan fór hið besta fram og El- izabeth lýsti því sjálf yfir að hún hefði verið miklu skemmtilegri en formlega veislan í Búdapest þegar hún varð fertug. „Þessi var miklu afslappaðri og svoleiðis vil ég hafa það,“ sagði hún, þegar hún var bú- in að leysa gesti sína út með gjöf- um. Elizabeth Taylor sextug — og unglegri en eiginmaöurinn ungi!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.