Tíminn - 22.04.1992, Side 1
Varla hótelskortur í Reykjavík:
Hótelnýtingin
versnað um 20%
Nýting hefur aldrei orðið eins lé-
leg á hótelum í Reykjavík og á síð-
asta ári, þegar herbergjanýting fór
niður í 59% yfir árið, samkvæmt
upplýsingum í fréttabréfi Sam-
bands veitinga- og gistihúsa. Um
miðjan níunda áratuginn var nýt-
ingin 73% og komst hæst í tæp
74% árið 1986. Síðan hefur hlut-
fallið lækkað jafnt og þétt, ár frá
ári, niður í 59% í fyrra, sem fyrr
segir. Þetta þýðir að nýtingin hef-
ur versnað um 20% á hálfum ára-
tug.
Skýringin getur tæpast falist í
fækkun ferðamanna því þeim hefur
fjölgað verulega á þessum árum.
Hennar má hins vegar leita í sí-
auknu framboði gistiherbergja.
Síðan í júní 1990 hefur gistirúmum
í Reykjavík t.d. fjölgað um 372, að
sögn fréttabréfsins, og er þá gisting
á einkaheimilum ekki talin með.
- HEI
Kjaraviðræðurnar:
Sest á ný að
samningaborði
Samninganefndir ASÍ, BSRB og
KÍ ákváðu í gær að hefja samn-
ingaviðræður við atvinnurekendur
og ríkisvaldið að nýju. Fyrsti
samningafundur verður haldinn í
dag. Fyrirfram ríkir ekki mikil
bjartsýni um árangur í viðræðun-
um, en fátt nýtt hefur komið fram
síðan upp úr viðræðum slitnaði
um síðustu mánaðamót. Hugsan-
legt er talið að Dagsbrún dragi sig
út úr viðræðum ef fundurinn í dag
verður árangurslaus.
Eftir hádegið í gær hittist samn-
inganefnd Alþýðusambandsins á
fundi í húsakynnum ríkissátta-
semjara við Borgartún. Á sama
tíma komu samninganefndir
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Kennarasambands íslands
saman í Borgartúni 6. Síðar um
daginn hittust forystumenn samn-
inganefndanna þriggja til samráðs.
Niðurstaða fundarins varð að reyna
til þrautar að ná samningum við
vinnuveitendur. Samningsaðilar
munu setjast niður við samninga-
borðið í dag.
Fyrirfram er ekki mikil bjartsýni
ríkjandi um árangur af fundinum í
Greiðslur til Sykur-
molanna kannaðar:
Efast um
dagpeninga
Ríkisskattanefnd rannsakar nú dag-
peningagreiðslur sem hljómsveitin
Sykurmolarnir fékk þegar hún var á
hljómleikaferðum erlendis á síðasta
ári.
Vafi leikur á hvort raunverulega sé
um dagpeninga að ræða og er því
ríkisskattanefnd að kanna flest sem
við kemur umræddum hljómleika-
ferðum. Niðurstöðu er að vænta
fljótlega.
—GKG.
dag. Á aðalfundi Dagsbrúnar sem
haldinn var fyrir páska kom fram
mikil andstaða við þær hugmyndir
sem ræddar voru við samninga-
borðið þegar slitnaði upp úr samn-
ingum um síðustu mánaðamót.
Innan Dagsbrúnar eru margir sem
telja best að félagið dragi sig út úr
samningaviðræðum. Gerist það
getur það sett allar frekari samn-
ingaviðræður í hættu.
- EÓ
Skagfirska geiflan
Hann er ekki beint snoppufríður
á þessari mynd hann Stjóri frá
Hólum í Hjaltadal, þar sem hann
geiflar sig framan í Pjetur Sig-
urðsson ljósmyndara yfir tún-
girðinguna á Hólum. Stjóri dreg-
ur ef til vill nafn sitt af eigandan-
um, Jóni Bjarnasyni, skólastjóra
Bændaskólans á Hólum. Eða
kannski var Stjóri skírður nafni
sem rímaði við föðurnafn hans,
en Stjóri er undan Ljóra frá
Kirkjubæ og Skífu frá Bjarna-
höfn.
-ÁG.
Skiptar skoöanir eru um vinnubrögð við umfjöllun Alþingis um EES- samninginn
Verður utanríkismála
nefnd sett til hli
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur viðrað þá hugmynd að Al-
þingi kjósi sérstaka nefnd til að
fjalia um samninginn um evrópskt
efnahagssvæði þegar hann kemur
til umfjöilunar á Alþingi. Ef þessi
hugmynd verður að veruleika verð-
ur utanríldsmálanefnd sett til hlið-
ar en hún hefur fjallað tun samn-
inginn á meðan verið var aö semja
um hann. Eyjólfur Konráð Jóns-
son, formaður utanríkismála-
nefndar, er hugmyndinni algeríega
andsnúinn. Sama á viö um stjóm-
arandstöðuna. Búist er við hörð-
um átökum um þetta mál þegarAl-
þingi kemur saman f næstu viku
eftir páskafrí.
Eyjólfur Konráð sagði að frá stn-
um bæjardyrum séð sé málið em-
fah. Samkvæmt lögum beri ríkis-
stjóm að hafa samráð vlð utanrík-
ismáianefnd um ðli meiriháttar ut-
anríldsmál. Eyjólfur Konráð sagði
engan vafa leika á að sanutingur-
inn um evrópskt efnahagssvæði sé
meiriháttar utanríkismál, hugsan-
lega það stærsta sem íslendingar
hafí staðið frammi fyrir. Því sé það
skýlaust lögbrot ef EES-samning-
urinn verði ekki borlnn undir
nefndina. Eyjólfur Konráð sagði
að breyta verði lögum ef komast
eigi þjá því að bera samninginn
undir utanríkismálanefnd. Hann
sagðist ekki trúa því að svo langt
verði gengið. Hann myndi berjast
hart gegn því að utanríidsmála-
nefndin verði sett til hliðar í þessu
máll.
Bjöm Bjamason, starfandi þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagðist ekki telja að um lög-
brot værí að neða þó ákvörðun
verði tekfri um að kjósa sérstaka
nefnd sem fjalli um EES- samn-
inginn. Hann sagði að í þingskap-
ariögum væri ákvæði sem heimil-
aði þinginu að kjósa nefnd tíl að
fjalla um einstök þingmál.
Björa sagðl að engin ákvörðun
hefði verið tekin um hvaða vinnu-
biögð veiði viðhöfð þegar EES-
samningurinn kemur tfl meðferð-
ar á Alþingi. Hann sagði að þessa
dagana væri verið að ræða þessi
mál á öllum þjóðþingum þeirra 19
ríkja sem standa að EES-samn-
ingnum. Hann sagði að víða væri
sú hugmynd ofariega á blaði að
kjósa sérstaka nefnd til að fjalla
um samninginn. Svíar hefðu t.d,
þegar ákveðið að fara þá leið.
Það er skoðun margra að sú hug-
mynd að skipa sérstaka nefnd til
að fjalla um EES-samninginn sé
tilkomin vegna óánægju forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra með
yfiriýsingar Eyjólfs Konráðs á Al-
þingi i siðustu viku. Þá lýsti hann
því yfir að hann teldi að EES-
samningurinn bryti í bága við
stjómarskrána. Hann sagðist
cinnig vilja að Alþfrtgi sjálft kysi
nefnd til að skoða hvort svo væri,
en utanríldsráóherra hefur sjálfur
sldpað nefnd til að skoða hvort
samningur brýtur gegn ísienskri
stjóraskipun.
Afgreiða þarf fjölda frumvarpa
áður'en EES-samningurinn tekur
gildi. Tálað hefúr veriö um 73
fmmvörp í því sambandL Eltt
þeirra er frumvarp um aððd ís-
lands að EES. Ekki er fjóst hvort
hugsanieg EES- nefnd muni fjalla
um öli fmmvörpin sem varða aðiid
íslands að EES, eða hvort nefndin
fái eitthvað færri frumvörp til
meðferðar. Björa Bjamason sagði
að þetta yrði aö ræða f tengslum
við aörar hliðar þessa máls.
Stjómarandstaðan hefur lýst yfir
andstöðu við hugmynd ríkisstjóni-
arinnar um að kjósa sérstaka
nefnd til að fialla ura EES- samn-
lnginn. Stjóraarandstaðan vill að
fastanefndir þingstos fialÖ um
frumvörpin sem varða EES-samn-
inginn. Stjómarandstaðan vifl ekki
að utanríkismálanefnd verði snið-
gengin í þessu máli.
Ekki er búist við að þetta mál
komist á hreint fyrr en Alþingi
kemur saman í næstu viku. Það
hefur ekki verið rætt í þingflokk-
unum.