Tíminn - 22.04.1992, Síða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 22. apríl 1992
Fundur Mubaraks og Gaddafi:
Mubarak eygir lausn
Lockerbie-deilunnar
Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti sagði á þriðjudag að örlítil von
væri um að sættir næðust í deilu
Libýu og Vesturlanda vegna
tveggja flugvéla er hryðjuverka-
menn grönduðu. Mubarak lýsti
þessu yfir eftir fund með Muamm-
er Gaddafi í gær, en fundurinn fór
fram í egypskri flugstöð. „Það er
vonarglæta, en það þarf að vinna
að málinu," sagði forsetinn.
Gaddafi hélt akandi til fundarins,
þar sem ekki gat orðið um flug að
ræða vegna flugbannsins á land
hans, sem sett var þann 15. apríl.
„Við ákváðum að hittast aftur og
reyna að losa um þá klemmu sem
flugbannið veldur samgöngum í
Libýu,“ sagði Mubarak enn. „Við
munum ræða við fjölmarga aðila
og reyna að koma á eðlilegu
ástandi aftur.“ Öryggisráð S.Þ.
reynir nú að þvinga Libýumenn til
samvinnu við Breta, Frakka og
Bandaríkjamenn varðandi rann-
sókn á flugslysunum tveimur.
Önnur vélin var frá Pan American
og fórst yfir Lockerby í Skotlandi
1988, en hin var frönsk vél sem
fórst yfir Niger 1989. Alls fórst 441
maður.
Skrautlegt fylgdarlið
Fundur Mubaraks og Gaddafi fór
fram í egypsku borginni Sidi Bar-
ani og kom Gaddafi þangað með
fríðu föruneyti í hvítum Cadillac.
Hann var klæddur hvítum kyrtli
yfir brúnni skyrtu og buxum og
með dökkrauðan vefjarhött á
höfði. Á eftir bifreið Gaddafi komu
lífverðir hans, bæði karlar og kon-
ur, í BMW og Mercedes bifreiðum.
Viðræður leiðtoganna stóðu í 30
mínútur í herskálum í Sidi Barani,
en borgin er um 75 km austur af
landamærabænum Salloum. Sér-
stakt viðhafnartjald hafði verið
reist fyrir Gaddafi og var það í
rauðgulum, rauðum og grænum
lit. Þar snæddu þeir saman, en síð-
an gekk Mubarak afsíðis er Gaddafi
tók sér stund til bænahalds.
Mubarak var spurður hvort hann
teldi að friðsamleg Iausn mætti
nást í deilunni. Svaraði hann að
með því að nota orðin „friðsamleg
Mubarak
lausn“ væri gert ráð fyrir þeim
möguleika að til vopnaviðskipta
kæmi. Hann taldi þann möguleika
fjarlægan, enda mundu vopnavið-
skipti ekki verða til annars en að
margfalda vandræðin í þessum
heimshluta. Áður hafa Egyptar þó
látið að því liggja að vegna milli-
Gaddafi
göngu þeirra hafi tekist að afstýra
að Bretar og Bandaríkjamenn
sendu her á hendur Lýbíu.
Að fundi loknum flaug Mubarak
til Kairó, en Gaddafi ók um Sallo-
um aftur til Tripoli.
Nú er páskahátíðin liðin og eins
og vænta mátti, þegar tekið er mið
af lífsstíl hins leikandi íslands-
manns — Homo ludens — þá
urðu nokkrar uppákomur vegna
þess að sumir gengu ekki mjög
hægt utn gleðínnar dyr.
MitóU fjöldi fólks var á faralds-
fætí um páskana bæði heima og
erlendis og í skíðalöndum syðra,
nyrðra, eystra og vestra nutu tug-
þúsundir fólks hollrar íþróttar,
útiveru og samvista.
Mjög margir og sjálfsagt velflest-
ir hafa því nú um páskahelglna
haldið skemmtan sinni og lífs-
gleði innan skynsamlegra marka
og af slíku fara eðli málsins sam-
kvæmt litlar sögur. Slík skemmt-
an þykir vart eða ektó fréttnæm.
Skemmtan er ektó fréttnæm nema
að hún gangi út í öfgar og hafl
miklar afleiðingar og stórar í för
með sér.
Miklar og stórar afleiðingar hafði
hún skemmtunin mannanna
þriggja sem datt það í hug f gleði
sinni að fara á sjó á triUu til þess
að skjóta sér fugl í soðið.
Þótt afleiðingamar yrðu ektó þær
að mannskaði yrði eins og um
tíma ieit út fyrir eða þú stórkost-
legt eignatjón, þá tÓkst þremenn-
ingunum með athæfi sfnu að sjá
til þess að þyrla var kÖUuð út til að
bjarga þeim og eitthvað um 50
manna lið var f viðbragðsstöðu á
landi og sjó. Eins og siður er hug-
umstórra manna og hetja þá voru
þessir menn ekkert að hafa sér-
statóega fyrir þvf að gá til veðurs
og lögðu í hann þótt veður væri
hið versta og sjór mjög úfinn fyrir
Suðurlandi. Og eins og mitólla
veiöimanna er siður þá höfðu þeir
með sér hunda til fuglaveiðanna
sem þeir að vísu gleymdu f bílnum
á bryggjunni f Þorlákshöfn og
fengu þeir að dúsa þar meðal hefj-
umar sigldu í strand í brimgarðin-
um undan Eyrarbakka þaðan sem
þeim var bjargað upp í þyrlu Land-
helgisgæslunnar og síðan lokaðir
inni í sólaihring í fangageymslum
lögrcglu.
En það eru víðar hetjur en á sjó
og um hveija helgi, eldd hvað síst
rnBBB
um langar helgar eins og um
páska, þá ríða hetjur um hémð á
snjósleðum og alls kyns trylli-
tækjum sem hetjumar hafa trölla-
trú á, ekki síður en eigin mætti og
megni.
Að þessu sinni
heyrðist að vísu
venju fremur
minna af hrak-
fömm véla-
manna á hálend-
inu, kannsld
vegna þess að yf-
irvöld og lögregla höfðu talsverð-
an viðbúnaö vegna ferða þeirra. Sá
viðbúnaður var hafður í og með f
þeim tilgangi að fylgjast með
hvort vélamenn dýrkuðu vínguð-
inn um leið og þeir þeystu um á
tryllitækjunum.
Það hefur nefnilega iengi tíðkast
hjá stómm hópi manna sem leik-
ur sér um hálendið á vélsleðum og
sérbúnum fjallabflum, að um leiö
og komið er Út fyrir alfaraleiðir er
skrúfaður tappi úr brennivíns-
bokku og upp frá því er þeyst og
þvælst um með óminnishegrann á
öxlunum um óbyggðimar á dým
og fínu leiktækjunum.
Þetta með ölvunina hefur lengst
af farið hljótt og einhverra hluta
vegna ekki komið að ráöi fram í
fjölmiðlum nema þá helst f sam-
bandi við að ein-
hverjir edrú hafa
eitthvað verið að
„ólundast", til
að mynda vegna
einhverra sauð-
drukkinna
manna sem sett-
ust upp í sæluhúsum f óbyggðum.
Frétta- og blaðamenn ero dug-
legir við að skýra frá óhöppum,
slysum eða válegum atburðum
sem verða í óbyggðum. Þeir hafa
líka greint samviskusamlega frá
slysum og óhöppum sem beinlínis
hafa orðið vegna ölvunar og fyllir-
ís en þagað yflr sjálfri megínor-
sökinni sem var ölvun en ektó ein-
ungis meðfæddur dómgrelndar-
skortur, vankunnátta og heimska.
Fyllirflð og afleiðingar þess era
gjaman í frásögnum Qölmiðla
umvaflð hetjuljóma. Slartóð og
vitleysisgangurinn eru allt í einu
orðin að hetjuskap og ævintýram
hraustra og göfugra drengja og
björgunarfólk og þyrluflugmenn
hljóta lof og aðdáun fyrir að koma
til hjálpar vitleysingunum og
draga þá upp úr foraðinu, gilinu,
brimgarðinum eða ánni eins og
einmitt gerðist út í skeijagarðin-
um utan við Eyrarbakka.
í Ijósi reynslunnar undanfarin ár
þá er spuming hvort hún er bara
etód eftir allt saman skynsamleg
tillagan hans Eiðs og hinna krat-
anna um að skella Kvískerjum í
öræfum bara inn á miðhálendið
og loka því síðan öllu saman og
krefja þá sem vilja fara þangað inn
um stórfé í aðgangseyri og enn
meir ef þeir hyggjast skjóta fúgla í
leiðinni. Jafnframt verði þeir sem
hafl efni á að borga Eiðl og hinum
krötunum fyrir aðganginn og
veiðileyfln, krafðir um stórfé í
tryggingu gagnvart hugsaniegri
leit eða aðstoð, lendi þeir í ógöng-
tun sem þeir geta ektó sjálflr kom-
ið sér úr. Garri leggur til að við öll
athugum málið.
Kabul — Settur forseti Afg-
hanistan segir að stjóm hans
sé reiðubúin að afhenda völd
sín eða það sem eftir er af
þeim i hendur mujaheddin-
skæruliða, sem hafa umkringt
höfuðborgina Kabul. En Abdul
Rahim Hatif sagði að skræru-
liðarnir yrðu fyrst að koma sér
saman um hvers konar stjóm
þeir vildu koma á fót. Virtist
sér sem höfuðfylkingamar
tvær ættu langt í land hvað
það varðaði.
Islamabad — Pakistanskur
ráðherra hefur átt viðræður
við leiðtoga skæruliðafýlking-
anna tveggja í Afghanistan í
því skyni að koma í veg fyrir
að valdatogstreita þeirra leiði
til blóðsúthellinga.
San Fransisco — Kalifom-
íuríki iét í gær taka af lífi tvö-
faldan morðingja, Robert Al-
ton Harris. Þetta er fyrsta af-
takan í ríkinu í 25 ár. Harris
var líflátinn í gasklefa San
Quentin fangelsisins eftir sex
stunda töf og eina „órnarks"-
byrjun sem kom til af írafári
sem straumur náðunarbeiðna
olli.
Sarajevo — Serbneskt her-
lið skaut á Sarajevo i gær
með sprengjuvörpum og
skiptist á skotum við vopnað-
ar sveitir múslíma í höfuðborg
Bosníu- Herzegovinu. Átökin
auka líkur á stríði í fymim
júgóslavneska lýðveldinu og á
einangrun Serbíu á alþjóða-
vettvangi.
Moskva — Boris Jeltsín
Rússlandsforseti sneri aftur til
funda í fulltrúaráðinu í gær og
var það í fyrsta sinn frá því er
uppreisnarsinnaðir íhalds-
menn reyndu að bregða fæti
fyrir efnhagsumbóta áætlanir
hans fyrir tíu dögum.
Moskva — Rússneski
fjöldamorðinginn og mannæt-
an Andrei Chikatilo lýsti sjálf-
um sér fyrir rétti í gærdag
sem „vitfirrtri skepnu.” Hann
kvaðst hafa verið rekinn
áfram af óeðlishvöt til nauðg-
ana og morða.
Búkarest — Rúmensk yfir-
völd hafa tilkynnt að Mikael,
fyrrum Rúmeníukonungur,
sem steypt var af stóli fyrir 45
árum og gerður útlægur, megi
snúa heim fyrir páskana. í
Rúmeníu verða páskar haldn-
ir hátíðlegir um næstu helgi.
Sikiley — Víðar gjár hafa
myndast í Etnu, sem nú spýr
eldi og eimyrju. Gjámar opn-
uðust um það leyti sem her-
menn bjuggust til að stífla
neðanjarðarfarveg rennandi
hrauns.
Jóhannesarborg — Fimm
hvítir þingmenn á þingi S-Afr-
íku hafa nú lýst sig talmenn
Afríska þjóðarráðsins, sem
Nelson Mandela er leiðtogi
fyrir. Þetta eru fyrstu fulltrú-
arnir sem ráðið eignast á
þinginu.
Ankara — Douglas Hurd,
utanríkisráðherra Breta, sagði
forseta Tyrklands, Turgut Oz-
al, í gær að samfylkingin sem
mynduð var gegn írökum í
Persaflóastríðinu mætti ekki
riðlast. Lagði hann áherslu á
að flugvélar bandamanna
ættu sér vísar bækistöðvar í
Tyrklandi.