Tíminn - 22.04.1992, Page 12
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýrl 18D * Mosfellsbœ
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
Öðruvisi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR • VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 679225
varahlutir
Haœarsböföa I - s. 67-6744.
HOGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
TVÓFALDUR1. vinningur
Tíininn
APRlL 1992
VSÍ efast um að verkfall mjólkurfræðinga sé löglega boðað og hefur vísað málinu til félagsdóms:
Mjólk skortir víða
á höfuðborgarsvæðinu
Horfur eru á að mjólk muni skorta í verslunum á höfuðborgar-
svæðinu meira og minna alia þessa viku og þá næstu. Mjólkur-
fræðingar hafa boðað þriggja daga verkfall sem hefst í dag. Verk-
fallið er boðað hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og Mjólkur-
samlagi KEA á Akureyri. Undanfarna daga hefur verið yfirvinnu-
bann hjá öllum mjólkurfræðingum á landinu. Engin ákvörðun
hefur verið tekin um hvenær því lýkur.
í þessum mánuði eru margir
helgidagar og því verða áhrif þessa
verkfalls meiri en annars hefði
orðið. Vegna yfirvinnubannsins
gat Mjólkursamsalan einungis
pakkað og dreift um 90 þúsund
lítrum í gær. í dag er hins vegar
verkfall og því verður engri mjólk
dreift í verslanir. Á morgun, sum-
ardaginn fyrsta, verður 90 þúsund
lítrum af mjólk pakkað, en í samn-
ingum afurðastöðva við mjólkur-
fræðinga er ákvæði sem heimilar
afurðastöðvum að kalla mjólkur-
fræðinga til vinnu á helgidögum.
Þessari mjólk verður dreift á
föstudaginn. Þann dag verður
hins vegar verkfall og því verður
engri mjólk pakkað. Á laugardag
verður aftur móti um 90 þúsund
lítrum af mjólk pakkað og dreift. í
þessari viku verður því pakkað um
270 þúsund lítrum af mjólk, en
eðlileg sala ætti að vera um 500
þúsund lítrar.
Á sunnudaginn verður 90 þús-
und lítrum af mjólk pakkað og
henni verður dreift á mánudag-
inn. Á mánudaginn verður hins
vegar verkfall. Á þriðjudaginn
verður síðan mjólk pakkað og
dreift. Óvissa er um framhaldið,
en ekki er annað vitað en að yfir-
vinnubannið gildi alla næstu viku.
Föstudagurinn í næstu viku er 1.
maí, frídagur verkamanna.
Það eru einungis mjólkurfræð-
ingar sem vinna hjá Mjólkursam-
sölunni í Reykjavík og Mjólkur-
samlagi KEA á Akureyri sem eru í
verkfalli. Allir mjólkurfræðingar á
landinu eru hins vegar í yfirvinnu-
banni. Höfuðborgarbúum sem
sárlega vantar mjólk geta því
keypt mjólk á Selfossi, Akranesi
og í Borgarnesi. Ekki er reiknað
með að skortur verði á unnum
mjólkurvörum á höfuðborgar-
svæðinu nema í mjög litlum
mæli.
Litlar horfur eru á að samkomu-
lag takist í kjaradeilunni alveg á
næstunni. Auk deilu um sjálft
kaupið er deilt um hagræðingu í
mjólkurbúum. Framundan eru
breytingar á rekstri mjólkurbúa.
Ekki er reyndar ljóst hverjar þær
verða eða hversu umfangsmiklar.
Reiknað er með að þessar breyt-
ingar leiði til fækkunar starfa.
Mjólkurfræðingar hafa sett fram
kröfu um að fá að hafa áhrif á þá
þróun sem framundan er.
Vinnuveitendasamband íslands
ákvað síðdegis í gær að leita til fé-
lagsdóms vegna þessa máls, en
VSÍ efast um að til verkfallsins
hafi verið boðað með löglegum
hætti. VSÍ óskaði í síðustu viku
eftir upplýsingum frá Mjólkur-
fræðingafélaginu um hvernig
hefði verið staðið að ákvarðana-
töku varðandi boðun verkfallsins.
Mjólkurfræðingar höfnuðu því að
gefa umbeðnar upplýsingar.
6 tonna bátur strand-
aði við Eyrarbakka:
Þrír menn
grunaðir
umöivun
Sigurveig ÁR 195, 6 tonna bát-
ur, strandaði í skerjagarðlnum
austan við Eyrarbakka á sk£r-
dagskvöld.
Tilkynning um að báturinn væri
vélarvana barst kl. 22. Björgun-
arsveitir Slysavamafélagsins í
Þorlákshöfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri voru kallaðar át og
fór bjðrgunarbáturinn Draupnir
frá Þorlákshöfn um leið úttiiað-
stoðar.
Aðstæður voru slæmar á
strandstað svo haft var samband
við Landhelgisgaesluna og kom
þyrlan TF- SIF bátnum til bjarg-
ar. Þá voru björgunarsveitar-
menn komnir út í bátinn á
slöngubáti úr landi.
Báturínn er lítið skemmdur og
var honum bjargað snemma á
fostudagsmorgun af björgunar-
sveitinni á Eyrarbakka.
Þrír menn voru um borð 1 Sig-
urveigu og eru þeir grunaðir um
ölvun. Veður var ágætt og sjólrt-
ið. —GKG,
Vesturlandsvegur:
Harður árekstur
við Blikastaði
Fimm manns slösuðust í hörðum
árekstri tveggja fólksbfla á Vestur-
landsvegi við Blikastaði um kl. 16 í
gær. Vesturlandsvegur lokaðist um
tíma vegna slyssins og var umferð
beint um Úlfarsfellsveg á meðan.
Slysið varð með þeim hætti að
Ladabíll á leið til Reykjavíkur virðist
hafa sveigt í veg fyrir Subaru sem
kom úr gagnstæðri átt. Skyggni var
gott og vegurinn þurr þegar árekst-
urinn varð. Bílarnir eru báðir ónýtir.
í Subarubflnum voru tvær konur
og tvö börn sem sátu í bflstólum í
aftursæti. Börnin meiddust ekki
mikið að því talið var í gærkvöld en
hinir fullorðnu í báðum bflunum
hins vegar talsvert, þar af ökumaður
Lödunnar alvarlega. Allt fólkið var
flutt á slysadeild Borgarspítala Öku-
maður var einn í Lödunni.
Frá árekstursstað við Blika-
staði í gær. Timamynd: Pjet-
Banaslys eystra
Maður á fimmtugsaldri lést
og sex ára sonur hans slasaðist
illa er þeir óku á vélsleða fram
af gilbarmi í fjallshlíðinni fyrir
ofan Fáskrúðsfjörð síðari hluta
páskadags. Talið er að faðirinn
hafi látist samstundis, en son-
urinn hafi legið lærbrotinn á
þriðja tíma hjá föður sínum.
Feðgarnir höfðu farið á vél-
sleðanum upp í fjallið fyrr um
daginn, en þegar þeir höfðu
ekki skilað sér aftur um um
kvöldið var farið að leita að
þeim á vélsleðum. Þeir fundust
um kvöldmatarleytið og var fað-
irinn þá látinn. Engin vitni voru
að slysinu. Hinn látni hét Sævar
Sigurðsson, 48 ára gamall, og
lætur eftir sig eiginkonu og
þrjú börn.
-PS
Smábátur með
bilaða vél
Lítill vélbátur, Sær úr Kópavogi,
með einum manni um borð, varð
vélarvana í gær um 20 mílur úti á
Faxaflóa. Vélbátur sem var að ljúka
veiðum í grenndinni tók Sæ í tog
en skildi eftir út af Gróttu þar sem
hann var á leið til Reykjavíkur.
Annar smábátur úr Kópavogi fór
síðan út að Gróttu og tók Sæ í tog
þar og dró til hafnar í Kópavogi.
Dagsbrún gegn
innflutningi
erlendra búvara
Verkamannafélagið Dagsbrún lýsir
yfir stuðningi við bændur í and-
stöðu þeirra við þær hugmyndir
sem uppi eru í tengslum við GATT
samninga um aukinn innflutnig á
landbúnaðarafurðum, í samþykkt
sem gerð var á aðalfundi félagsins í
síðustu viku. Að sögn Jóhannesar
Guðnasonar, flutningsmanns til-
lögunnar, er ástæða fyrir verka-
menn um land allt til að láta þessi
mál til sín taka því fjölmörg verka-
mannastörf tengjast landbúnaðin-
um og úrvinnslu landbúnaðaraf-
urða. Því þurfi að huga að þeim
hagsmunum sem þar liggi auk þess
sem menn þurfi að spyrja sig al-
mennt að því hvort þeir vilji að er-
lendar hormónaafurðir ryðji ís-
Ienskum landbúnaðarafurðum
burt í krafti óheilbrigðarar sam-
keppni.
Vlnningstölur jg. april 1992
laugardaginn ---------
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ A HVERN
VINNINGSHAFA
1.
2.919.705
2.4 ziœ
196.922
167
5.244
4.
5.072
402
Heildarvínningsupphæð þessa viku:
kr. 6.819.007
l UPPLYSINGAR SlMSVARI 91-681511 LUKKULINA 991002