Tíminn - 23.04.1992, Side 1

Tíminn - 23.04.1992, Side 1
Fimmtudagur 23. apríl 1992 78. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Stríðið í Afghanistan heimtar blóðfórn frá lina þjáningar fórnarlamba þeim sem freista þess að átakanna: Islenskur starfsmaður Rauða krossins myrtur Jón Karlsson, hjúkrunarfræðingur Rauða krossins í Kabúl í Afg- hanistan, var skotinn til bana í gær. Jón var við störf sín við að koma særðum til aðstoðar þegar skotið var á hann. Jón mun hafa látist samstundis. Jón heitinn starfaði við sjúkrahús alþjóða Rauða krossins í Kabúl og samkvæmt frétt Reuter fréttastof- unnar af atburðinum hafði hann, ásamt tveim öðrum starfsmönnum spítalans; svissneskum lækni og - starfsmanni ekið til bæjarins May- den Shar, um 30 km suður af Kabúl til þess að sækja slasað og sært fólk. Hópur fólks safnaðist saman í kring- um Jón heitinn og félaga hans þegar þeir voru að flytja hina særðu úr bíl sem þeir voru í og inn í sjúkrabílinn þegar maður í hópnum hóf skyndi- lega skothríð á Jón. Hann mun hafa látist samstundis. Félaga Jóns sak- aði ekki. Að sögn Sigríðar Guðmundsdóttur, deildarstjóra hjá Rauða krossi ís- lands, er ekkert vitað um hver til- ræðismaðurinn er eða hvort eða hvaða skæruliðahópi hann kann að hafa tilheyrt. Hann hafi verið tekinn fastur strax eftir tilræðið en ekki var í gærkvöldi vitað hverjir hefðu hann í haldi. Jón Karlsson var fæddur 14. maí 1953 og var því tæpra 39 ára gamall, ættaður frá Dvergsstöðum í Eyja- firði. Hann var hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla íslands og hefur starfað á vegum Rauða krossins meira og minna síðan árið 1985 og var nú í þriðja sinn í Afghanistan en auk þess hefur hann starfað í Thai- landi, Pakistan og Suður-Súdan. Hann var nýlega kvæntur en barn- laus. Eftirlifandi kona hans er bresk og hefur starfað fyrir alþjóða Rauða krossinn, m.a. í Sómalíu. Hingað til hefur verið talið að ör- yggi starfsmanna Rauða krossins og annarra hjálparstofnana væri tryggt í Afghanistan. Sigríður Guðmunds- dóttir var spurð hver yrðu viðbrögð Rauða krossins við þessum atburði: GÆSIN ER KOMIN tíl landsins og er óvenju snemma á ferðinni. Þessi mynd var tekin á túnum gras- kögglaverksmiðjunnar í Vallhólma í Skagafirði fyrir nokkrum dögum, þar sem svanir, helsingjar og heiðargæs voru saman á beit. Að sögn kunnugra fyrir norðan er gæsin tíu dögum til hálfum mánuði fyrr á ferðinni í ár en venja er til. Hvað veldur því er ekki Ijóst, en vera kann að þar spili inn í óvenju mildur vetur i Skotlandi þar sem þær hafa vetrarsetu. -ÁG. Tímamynd PJetur Samneysla aldrei orðið meiri „Áætlun um samneyslu bendir til að hún hafi numið 74 milljörðum króna á árinu 1991. Sem hlutfall af landsframleiðslu nam sam- neyslan 19,3% og hefur ekki áður verið varið jafnstórum hluta framleiðslunnar til samneyslu. Reiknað á föstu verðlagi mælist aukning samneyslunnar 4,5%, á meðan landsframleiðslan jókst um ríflega 1,5%. Þessa aukningu má fyrst og fremst rekja til sam- neyslu á vegum ríkissjóðs, en hún jókst um 7% árið 1991 saman- borið við 2% vöxt samneyslu sveitarfélaga." Þessar upplýsingar um stórlega hækkandi rekstrarkostnað hins opin- bera í fyrra og á þessu ári er að finna í nýrri skýrslu Þjóðhagsstofnunar um þjóðarbúskapinn. Á árunum 1981-87 fóru að meðaltali 17,1% landsfram- Ieiðslunnar í samneyslu (minnst 16,1% árið 1984). Þetta hlutfall hækkaði árið 1988 og var um 18,6% á ári til ársins 1990. í fyrra var svo sett nýtt íslandsmet í samneyslu sem fyrr segir, 19,3%, eða 74 milijarðar af samtals 382 milljarða króna landsframleiðslu. Það met verður þó væntanlega slegið aftur á þessu ári, þar sem áætlað er að nær 77 milljarðar af 385 milljarða kr. landsffamleiðslu fari til samneyslu, eða 19,9% landsframleiðslunnar. Hækkunin á tveim árum samsvarar um 5 milljörðum króna sé borið sam- an við hlutfallið 18,6% árið 1990. Á hinn bóginn er áætlað að það hlut- fall landsframleiðslunnar sem þjóðin ver til einkaneyslu verði hið sama í ár og í fyrra, 62,4% bæði árin. En það er svipað hlutfall og árið 1985 og árið 1987, en þá komst einkaneyslan hæst á síðasta áratug, í 62,9% landsffam- leiðslunnar. Tvisvar á áratugnum fór þetta hlutfall niður fyrir 60%, árin 1981 og 1983. Samkvæmt bráðabirgðatölum Þjóð- hagsstofnunar óx einkaneysla lands- manna um rúmlega 25 milljarða, eða tæplega 12% milli áranna 1990 og 1991. Reiknað í raungildi var þetta vöxtur upp á 5,6% og neyslan þá aftur orðin svipuð að magni til og hún var árið 1988. í Ijósi kreppusöngs og barlóms vegna bágra kjara á síðasta ári vekur nokkra athygli að það skuli samt sem áður vera eitt mesta neysluár þjóðar- innar, þ.e. ef hið makalausa (skatt- lausa) ár 1987 er undanskilið. Þjóðin varði stærri hluta landsframleiðls- unnar í einkaneyslu í fyrra en oftast áður og búist er við að það hlutfall verði svipað á þessu ári. Sá samdrátt- ur í neyslu sem Þjóðhagsstofnun spárir á þessu ári er eingöngu í hlut- falli við það sem landsframleiðslan minnkar nú að raungildi milli ára. Eina ráðið til að eyða meiru virðist því að landsmenn framleiði meira og selji úr landi. Þá miklu aukningu sem varð á einkaneyslunni segir Þjóðhagsstofn- un fyrst og fremst hafa átt sér stað frá miðju ári 1990 og fram yfir mitt árið 1991. Þetta megi m.a. ráða af veltu- breytingu í smásöluverslun, sem ásamt veltu krítarkorta gefi gagnlega vísbendingu um þróun neyslu. - HEI GLEÐILEGT SUMARl Jón Karlsson aö störfum í Afghanistan í mars 1990 hjúkrunarfræðingar starfandi í Afg- hanistan en þeir starfa við aðrar að- stæður. Hjúkrunarfræðingarnir, þær Elín Guðmundsdóttir og Mari- anna Chillack, starfa á sjúkrahúsum inni í Kabúl en Jón starfaði hins veg- ar sem vettvangshjúkrunarfræðing- ur og fór m.a. út á vígvellina og sótti slasað fólk. Það var búið að fá leyfi allra skæru- liðahópa í landinu til hjálparstarfa og vilyrði fyrir griðum til handa starfsmönnum Rauða krossins. Því er litið mjög alvarlega á þennan at- burð. Rauði krossinn hefur fengið að vinna undir vernd Genfarsátt- málanum og sáttmálinn verið virtur hvað þetta varðar og starfsfólki hans tryggt öryggi. Þegar svona atburður gerist þarf Rauði krossinn að hugsa sig um hvort og hvernig hann bregst við, hvort hann sendi sitt fólk heim eða ekki,“ sagði Sigríður. Rauði kross íslands hafði í gær samband við þær Elínu og Mar- íönnu í Kabúl til að athuga hvort þær óskuðu að komast frá Afghan- istan eftir atburðinn í gær. Þær tóku sér umhugsunarfrest og í gærkvöld var ekki vitað ffekar um íyrirætlanir þeirra. —sá Jón Karlsson hjúkrunarfræð- ingur var einn reyndasti starfs- maður alþjóða Rauða krossins á vettvangi styrjalda og átaka víða um heim. „Reynt verður að efla öryggið eins og hægt er. Það eru tveir íslenskir Aldrei áður jafnstór hluti landsframleiðslunnar farið til samneyslu og 1991 og hækkar þó enn á þessu ári:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.