Tíminn - 23.04.1992, Qupperneq 5

Tíminn - 23.04.1992, Qupperneq 5
Fimmtudagur 23. april 1992 Tíminn 5 Lóan Þegar komið er frammá einmánuð og tekið að leingja dag, þá förum við hér í holtinu að vonast eft- ir lóunni. Þegar ég var lítill hérna í holtinu gekk ég út með pabba mínum einn morgun, og það var kom- in lóa í móleitri kápu, svört á bríngunni, og hafði þennan viðkvæma innilega blæ á röddinni og skoð- andi hlustandi svip í auganu. Ég hljóp í áttina til hennar og ætlaði að ná henni, en hún fór undan. Af hverju vill hún ekki lofa mér að taka sig, spurði ég. Hún er jafngóður vinur okkar fyrir því, sagði pabbi minn. Mér fanst leiðinlegt að hún skyldi ekki treysta mér, en hún hefur líklega þekt mig betur en ég sjálf- ur. Nú geing ég útí holtið með Siggu og Dunu og þær hlaupa á stað og reyna að handsama lóuna eins- og ég gerði, en lóan fer undan einsog forðum. Hún fer undan en er jafngóður vinur okkar samt. Undireins og hún er komin í holtið og farin að virða okkur fyrir sér með þessu svarta athyglisauga sem hún snýr að okkur, þá finnum við að hún kann- ast við okkur aftur, já hún þekkir okkur einsog hún hefði verið kjur hjá okkur allan tímann. En hvað vit- um við um hana? Hún er lík skáldinu sem við ekki skiljum, nema okkur finst jafnsjálfsagt að hún sé þama einsog blómin. Það er einkennilegt að fugl sem er okkur eins A sumar- daginn fyrsta Haildór Laxness er níræður í dag, sumardaginn fyrsta. Af því tilefni fékk Tíminn góðfúslegt ieyfi til að birta litla grein, sem skáldið skrifaði 1958 fyrir barnablað sem þá kom út og var kallað „Sumardagurinn fyrsti“. Margt og mikið skrifaði skáldið stórbrotnara en greinarkomið um lóuna. En það lýsir ást Halldórs á íslenskri náttúru og eftirvæntingu sveitadrengsins þegar fyrsti vorboðinn kveður í mó. Það sýnir líka að honum var lagið að skirfa fyrir börn þótt hann legði slík ritstörf ekki fyrir sig. Gleðilegt sumar! nákominn og hann væri partur af okkur sjálfum skuli samt ekki eiga heima hjá okkur, heldur vera okkur ókunnur; útlendíngur; ferðalángur, — og vera bráðum farinn aftur og ekki orðinn annað en minn- ing. Ó var ekki yndislegt þessa stuttu stund sem þú stóðst við! Ég hef aldrei hitt neinn sem hafi séð ló- una eftir að hún kveður okkur í sumarlok. Hvert fer lóan? Hvar er hún mestalt árið? í landinu þángað sem hún flýgur, — er líka beðið eftir henni þar í holti? Er einhver lítill sem ætlar að reyna að ná henni? Er líka sumar þar? Hríngir Steini til blaðsins til að segja að lóan sé komin? Og yrkja þjóðskáldin um hana fallegu kvæðin sín þar? Stundum á haustin sitja lóurnar í hópum á tún- um, grundum og eyrum. Þær eru eitthvað hnípnar, dálítið einsog þær sjái eftir einhverju. Er það kanski af því þær verða að fara; fljúga burt á þessum veiku vængjum yfir þessi stóru höf — hvert? Er kanski förinni heitið hinumegin á túnglið, þeim megin á túnglið sem snýr frá okkur og þar sem altaf er myrk- ur? Nei það getur ekki verið satt. Ætli lóan mundi þekkja aftur íslenskan dreing eða íslenska stúlku ef þau færu útí heim að leita hennar og fyndu hana í staðnum þar sem hún á heima þegar hún er ekki hjá okkur? Við vitum það ekki. Kanski. Það hefur ekki verið reynt. Ég held það nú samt. Við vitum bara með vissu að lóan er sumar- fugl íslenskra barna og í dag er sumardagurinn fyrsti og hún er komin. (Ritað handa „Sumardeginum fyrsta" 1958) Halldór Kiljan Laxness:

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.