Tíminn - 23.04.1992, Blaðsíða 10

Tíminn - 23.04.1992, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 23. apríl 1992 Kaupfélag Eyfirðinga 1991: 54 mily. kr. hagnaður og 280 mil|j. í fjárfestingar Kaupfélag Eyfiröinga skilaöi um 54 milljóna króna hagnaði á síöasta ári, en það er umtalsvert verri afkoma en árið 1990 þegar hagnaður af rekstri féiagsins nam um 262 milljónum króna. Á aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga sem 280 fulltrúar sátu, kom m.a. fram að samdráttinn má að stærstum hluta rekja til þess að afkoma verslunar var mun lakari á síðasta ári, og hið sama má segja um mjólkuriðnaðinn en þar hækkaði velta um 7% án þess að tæk- ist að lækka rekstrarkostnað í sam- ræmi við það. Þá töpuðust talsverðir Qármunir vegna skuldatapa, fjár- magnskostnaður jókst og óreglulegar tekjur félagsins lækkuðu úr 65 millj- ónum í 22, m.a. vegna gjaldþrota stórra viðskiptaaðila. Á móti kemur að afkoma iðnfyrirtækja og og þjónustu- fyrirtækja batnaði verulega milli ára. Ymsar breytingar og tillögur voru samþykktar á fundinum, m.a. að stofha svonefndan „b-deildar stofn- sjóð“ sem vinni að sölu samvinnu- hlutabréfa fyrir 50-200 milljónir. Þá urðu tvær breytingar á stjóm félags- ins, og komu Valdimar Bragason, framkvæmdastóri á Dalvík, og Pétur Þórarinsson sóknarprestur inn í stjóm í stað Amsteins Stefánssonar bónda og Valgerðar Sverrisdóttur al- þingismanns sem ekki gáfu kost á sér til áframhaldandi setu. í skýrslu stjómar kom fram að velta KEA og samstarfsfyrirtækja þess nam um 10,5 milljörðum króna 1991, jókst um 5% milli ára. Laun og launa- tengd gjöld hækkuðu um 13%, námu 1265 milljónum króna. Fjármagns- gjöld að frádregnum fjármagnstekj- um voru um 280 milljónir króna. Það Aðalstöövar Kaupfélags Eyfirðinga er veruleg hækkun frá árinu á undan er fjármagnsgjöldin voru um 196 milljónir króna. í skýrslunni segir að helstu ástæðumar séu lækkun tekju- færslna, óhagstæðari gengisþróun, aukning skulda og sér í lagi hátt vaxtastig á síðari hluta ársins 1991. Eiginfjárhlutfall félagsins var hið sama í árslok 1991 sem 1990, eða 37%. Eigið fé og sjóðir vom í árslok 2.845 milljónir króna og höfðu hækk- að um 9% milli ára. Lögð var áhersla á að fjármagnskostnaður félagsins verði að lækka umtalsvert. Þó vextir hafi lækkað að undanfömu, þarf að vinna að því að lækka skuldir félagsins veru- lega. Auk þess þarf að lækka fjárbind- ingu íbirgðum og útistandandi skuld- um en þessir liðir hækkuðu mikið á milli ára. Einnig er bent á að áfram- haldandi sala vannýttra eigna og hlutabréfa muni styrkja rekstur og fjárstöðu félagsins. Stefnt að sölu sam- vinnuhlutabréfa Á fundinum lagði stjóm KEA til að stofnaður yrði b-deildar stofnsjóður, sem hefði að markmiði sölu á sam- vinnuhlutabréfum. Jafnframt var lagt til að lágmarksupphæð í sjóðnum yrði 50 milljónir, en hámark 200 milljónir. Stefnt er að því að hefja sölu á sam- vinnuhlutabréfum á þessu ári, og með því telur stjómin að unnt sé að fá inn áhættufé og styrkja eiginfjárstöðu fé- lagsins. Þannig sitji samvinnufélög við sama borð og hlutafélög hvað áhættufé varðar. Fram kom að skatta- afsláttur myndi fylgja bréfum þessum sem öðrum hlutabréfum, en atkvæð- isréttur fylgir bréfunum ekki nema menn séu félagsmenn í KEA. Fjárfest fyrir 150 miUj- ónir 1992 Á yfirstandandi ári er fyrirhugað að fjárfesta fyrir um 150 milljónir króna. Er það umtalsvert minna en á síðasta ári en þá var fjárfest fyrir um 280 milljónir. Sú stefna hefur hins vegar verið mörkuð að lækka skuldir félags- ins verulega og er þetta einn þáttur í þeim aðgerðum. Þegar er búið að veita heimild til að kaupa nýjar vatns- áfyllingarvélar og verða þær settar upp í Mjólkursamlaginu fljótlega. Einnig hefur verið ákveðið að vetja meira fé í markaðssetningu, sér í lagi á vatni. Þá verður fljótlega opnuð ný og stærri Netto-verslun. Hún leysir af hólmi Netto-verslun við Höfðahlíð, og jafnframt verður verslunarútibúi í miðbænum lokað. Þá verða sjóðsvélar endumýjaðar í öllum matvöruversl- unum félgsins. Auk þessa er fyrirsjá- anlegur kostnaður vegna endumýj- unar. Hlutabréf keypt í 14 fyrirtælgum Kaupfélag Eyfirðinga keypti hluta- bréf í nýjum og eldri fyrirtækjum fyrir um 45 milljónir króna á síðasta ári. Mestu var varið til hlutafjárkaupa í ís- lenskum sjávarafurðum, eða tæpum 29 milljónum króna. Önnur fyrirtæki sem fjárfest var í voru: Folda hf, Goði hf, Kaupþing Norðurlands, ísstöðin á Dalvík, íslenskur skinnaiðnaður, Jöt- unn, Landflutningar hf á Akureyri, Laxá hf, Laxós, Mikligarður, Samskip og Útgerðarfélag Akureyringa. Alls námu fjárfestingar félagsins um 279 milljónum á árinu. Þar má nefha ostagerðartæki og önnur tæki í Mjólk- ursamlagið fyrir 88 milljónir króna, gerðar vom endurbætur á lóð og tækjakosti Frystihússins á Dalvík, endurbætur vom unnar á Frystihús- inu í Hrísey og togaranum Súlnafelli, auk áðurtaldra hlutafjárkaupa. Á móti vom seldar eignir fyrir liðlega 271 milljón króna. Þar vom stærstu lið- imir sala á aflaheimildum til Útgerð- arfélags Dalvíkinga fyrir 192 milljónir króna, sala á eignum í ,J,istagili“ fyrir 28 milljónir króna og sala á landflutn- ingabfium fyrir 14 milljónir króna. Úthlutanir úr Menning- arsjóði KEA Tólf aðilar hlutu styrk úr Menningar- sjóði KEA að þessu sinni, en alls bár- ust 27 umsóknir. Til ráðstöfunar vom 800 þúsund krónur sem em arður af eignum sjóðsins. Eftirtaldir aðilar hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni: -Rauðakrossdeild Siglufjarðar til kaupa á nýrri sjúkrabifreið, 80 þúsund krónur. -Styrkur til uppbyggingar aðstöðu fyrir sjúkraþjálfa á Dalvík, 80 þúsund krónur. -Karlakórinn Gamlir Geysismenn, 80 þúsund krónur vegna kóramóts. -Mánakórinn 80 þúsund krónur. -Skíðafélag Dalvíkur, 80 þúsund krónur vegna uppbyggingar aðstöðu í Böggvisstaðafjalli. -Bamaleikhúsið Norðurljósin, 80 þúsund krónur vegna Týrklandsferð- ar. -Bjami Guðleifsson, 60 þúsund krón- ur til loftmyndatöku fyrir ömefna- skrá. -Aðalsteinn Einarsson, 60 þúsund krónur vegna söngnáms. -Vigfús Bjömsson rithöfúndur, 60 þúsund krónur. -Þómnn Ósk Marinósdóttir Akureyri, 60 þúsund krónur vegna fiðlukaupa. -Sundfélagið Óðinn, 40 þúsund krón- ur vegna mótshalds. -Freyr Gauti Sigmundsson júdó- kappi, 40 þúsund króna ferðastyrkur vegna móta erlendis. hiá-akureyri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.