Tíminn - 23.04.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 23. apríl 1992
Atvinnulausir karlar á höfuðborgarsvæðinu þrisvar sinnum fleiri nú í mars en í fyrra:
Störfum fækkar í Reykjavík
en fjölgar á landsbyggðinni
Skráðir atvinnuiausir í mars voru fleiri en dæmi eru til um áður í
marsmánuði. Eftir nokkra fækkun í febrúar voru atvinnulausir aft-
ur orðnir álíka margir og í janúar, eða sem svarar rösklega 3.800
manns (3,1%) án vinnu allan mánuðinn. Sú er hins vegar breyting-
in að á sama tíma og atvinnulausum fækkaði um rösklega 900 á
landsbyggðinni þá fjölgaöi þeim um rösklega 700 á höfuðborgar-
svæðinu. Atvinnulausir í mars voru nú rúmlega tvöfalt fleiri en í
mars í fyrra og þar af hefur fjöldi atvinnulausra karla á höfuðborg-
arsvæði nær þrefaldast (úr 420 í 1.210). Sérstaka athygli vekur
fjölgun atvinnulausra milli tvítugs og fertugs.
Um þriðjungur allra atvinnulausra
í mars voru karlar á Reykjavíkur-
svæðinu. Atvinnulausum í þessum
hópi fjölgaði yfir 50% þessa tvo
mánuði og konunum þó ennþá
meira.
Á landsbyggðinni í heild fækkaði
hins vegar atvinnulausum körlum
um rúmlega fjórðung og konum
nærri 40% sömu tvo mánuði. Töl-
urnar sýna þróunina frá áramót-
um:
Án vinnu á Reykjavíkursvœði:
Karlar: Konur: Alls:
Janúar 790 430 = 1.220
Febrúar 1.010 560 = 1.570
Mars 1.210 720 = 1.930
Fjölgun: 53% 68% 58%
Karlar á Reykjavíkursvæðinu eru
sá hópur sem á undanförnum ár-
um hefur jafnan sloppið hvað létt-
ast frá atvinnuleysinu. En þar hef-
ur nú orðið afgerandi breyting.
Núna í mars voru atvinnulausir
karlar á þessu svæði kringum tvö-
falt fleiri en í sama mánuði 1989 og
1990 og nær þrisvar sinnum fleiri
en í mars 1991. Atvinnulausum
konum hefur einnig fjölgað um-
talsvert þessi ár en þó mun minna
en körlunum.
Án vinnu á landsbyggðinni:
Karlar: Konur: Alls:
Janúar 1.340 1.480 = 2.820
Febrúar 950 950 = 1.900
Mars 980 910 = 1.890
Fækkun: -27% -39% - 33%
Þessi fækkun milli janúar og
mars varð í öllum kjördæmum
landsins, hvað mest þó á Suður-
landi og Suðurnesjum. Þegar litið
er til lengri tíma kemur í ljós að
atvinnulausar konur á lands-
byggðinni voru ekkert fleiri núna í
mars en í sama mánuði 1989 og
1990, en karlarnir eru nú um 40%
fleiri en þá. Fjölgunin er hins veg-
ar mikil frá mars í fyrra, um 70% í
báðum hópum.
í yfirliti vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins kemur fram
að 245 þúsund atvinnuleysisdagar
voru skráðir á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs. Það jafngildir að um
3.800 manns hafi að meðaltali ver-
ið án vinnu alla þessa þrjá mánuði,
eða 3 af hverjum 100 mönnum á
vinnumarkaði. Fátt þykir benda til
breytinga á þessari þróun. Þannig
voru ennþá 3.800 manns á atvinu-
leysisskrá síðasta virka dag mars-
mánaðar, sem ekki þykir spá góðu
um atvinnumál skólafólks.
- HEI
Hjálparstofnunin biður
ríkisstjórnina um aðtoð:
2,5 milljónir
króna
vantar
Hjálparstofnanir kirkjanna á Norð-
urlöndum senda skip með 10.000
tonn af komi til Afríku strax eftir
mánaðamót.
Skipið kemur að landi í Durban í
Suður-Afríku og verður korninu
dreift í löndunum þar í kring, s.s.
Zimbabwe og Mósambík, þar sem
mikil þörf er á matvælaaðstoð. Ekki
hefur verið ákveðið hvaðan skipið
leggur úr höfn en kornið verður
keypt í Suður-Evrópu.
Að sögn Jóhannesar Tómassonar,
fjölmiðlafulltrúa Hjálparstofnunar
kirkjunnar, er talað um að nokkur
hundruð þúsund tonn af korni þurfi
á þetta svæði. Hjálparstofnunin gef-
ur 2,5 milljónir til verkefnisins og
hefur ríkisstjórn íslands verið beðin
um jafnháa upphæð. Vonast er eftir
svari frá henni í næstu viku. Tæp-
lega ein milljón hefur nú þegar safn-
ast hjá Hjálparstofnuninni en söfn-
unin hefur farið hægt af stað.
Að auki ætla Norðmenn að senda
eina sendingu af korni til Austur-
Afríku þ.á m. Eþíópíu. —GKG.
Skipt er um gólf Ölfusárbrúar. Það gamla er sagað í burtu og nýtt úr forsteyptum einingum sett í staö-
inn. Myndin er tekin þegar verið var að byrja á endurbótunum Mynd: gs, Seifossi
Ölfusárbrúin:
Framkvæmdir hafnar aftur
Starfsmenn Vegagerðarinnar við
Ölfusárbrú hófu aftur störf á
þríðjudagsmorgni, en allar fram-
kvæmdir og endurbætur lágu
niðri yfir páskana.
Fyrir páska voru um 10 starfs-
menn við framkvæmdir en nú hef-
ur þeim verið fjölgað og aukinn
kraftur kemst í verkið. Áætlað er að
því verði lokið í kringum 25. maí
og þá kemst bætt og betri brú í
gagnið.
Brúin er nú alfarið lokuð fyrir
umferð annarri en gangandi, en
fyrir páska gátu iéttir bflar farið yf-
ir að deginum. Selfossbúar og aðr-
ir þeir sem eiga leið akandi til
dæmis til Reykjavíkur þurfa nú að
fara um Óseyrarbrú og svo verður
fram í endaðan maí.
—SBS, Selfossi.
Akranes:
llla slasaður eft-
ir vélhjólaslys
Ungur maður slasaðist illa og var
fluttur á Borgarspítalann í Reykja-
vík eftir að hann hafði fallið af hjóli
sínu og lent í sjónum á páskadag.
Maðurinn kom akandi eftir Faxa-
braut til vesturs og var rétt kom-
inn að Akraborgarbryggjunni þeg-
ar hann féll í beygju og ók á steypt-
an kant. Við það féll hann af hjól-
inu og hentist niður í fjöru og það-
an í sjóinn. Sjónavottar að slysinu
voru fljótir til og björguðu mann-
inum frá drukknun, en hann var
fluttur með þyrlu landhelgisgæsi-
unnar á slysadeild Borgarspítalans,
en hann mun hafa fótbrotnað illa,
auk handleggsbrots og mjaðma-
grindarbrots. -PS
Samtök um óháð ísland vara við fljótræði
í ákvarðanatöku um EES:
Stangast samningurinn
á við stjórnarskrána?
Stjóm Samtaka um óháð ísland
mælist til þess að hlutlaus athugun
fari fram á því hvort EES- samn-
ingurinn stangist á við íslensku
stiómarskrána.
Ástæðan er m.a. sú að röddum hef-
ur fjölgað í EFTA-ríkjunum sem
telja að samningurinn brjóti í bága
við stjórnarskrár landanna.
Samtökin telja innihald hans lítið
hafa verið kynnt almenningi og jafn-
vel stjórnmálamönnum vart gefist
tími til að fara í gegnum hann.
Þau vilja vara við samningurinn
verði „keyrður í gegnum þjóðþing
landanna með of miklum hraða,"
eins og segir í fréttatilkynningu, því
í honum felist mikið valdaafsal og
stórt skref inn í Evrópubandalagið.
—GKG.
Erlendar
fréttir
Sarajevo
Stórskotalið lét eldi og eimyrju
rigna úr sprengjuvörpum og vél-
byssum yfir Sarajevo og aðra
hluta Bosnlu-Herzegóvlnu í gær.
Er þar með stefnt í hættu erind-
um friðarnefndar Evrópuráðsins
sem hóf störf á fimmtudag.
Sendimaður Erópuráðsins, sem
skipuleggja átti virðæðumar,
varð að leita skjóls fyrir skothrlð
leyniskytta meðan hann ræddi
við blaðamenn á hóteli sínu í
Sarajevo.
París
Franski utanríkisráðherrann Ro-
land Dumas hefur óskað eftir að
S.Þ. hlutist þegar til um fram-
vindu mála í Bosniu-Herzegó-
vínu og hindri að átökin fari end-
anlega úr böndunum.
Kabúl
Skæruliðaforinginn Ahmad Shah
Masood hefur reynst valdamest-
ur skæruliðaleiðtoganna í
Afghanistan, þar sem klofningur
varð í röðum keppinautar hans.
Sendimaður S.Þ. Benon Sevan,
sem reynir að afstýra að barist
verði um Kabúl, hitti Masood I
fyrsta skipti í gær og fékk loforö
um að liðssveitir hans mundu
ekki gera árás á borgina.
Isalamabad
Afganskir skæruliðar sem bíða
eftir aö taka völdin í Kabúl hafa
sett verjendum borgarinnar ný
tímamörk. Þeir neita orðrómi um
að foringjar þeirra hafi setið að
samningaviðræðum við stjórn-
ina.
Moskva
Fáir Rússar hirtu um að vitja
grafhýsis Leníns, stofnanda Sov-
étríkjanna, á 122. afmælisdegi
hans í gær. Hið nýfrjálsa Rúss-
land, sem reynir að breiða yfir
fortið sína sem Sovétlýðveldis,
hefur nú i fyrsta sinn afmáð af-
mælisdag hans af dagatalinu
sem hátíðisdag.
Kiev
Þau fjögur fyrrum Sovétlýðveld-
anna sem ráða yfir kjarnavopn-
um munu brátt undirrita samning
um lágmarksfjölda langdrægra
kjarnaflauga að sögn Leonids
Kravchuk, forseta Ukraínu. Meö
þessu vilja ríkin lægja ótta
manna á Vesturlöndum við öng-
þveiti í kjarnorkumálum I sam-
bandslýðveldinu. Sagði hann aö
samningurinn, sem Rússland,
Belarus og Kazakhstan verða
aðilar að auk Úkraínu verði und-
irritaður fyrr en varir.
Peking
Deng Xiaoping hefur nú látiö
Pekingháskóla taka upp baráttu
sina gegn marxískum harðlínu-
mönnum, að sögn kínverskra
heimildamanna. Deng hyggst
fara frjálslegar en var með ýms-
ar kennisetningar marxismans í
því skyni að hraða efnahgsum-
bótum.
London
Hin fyrrum sovésku lýðveldi vilja
sem fyrst fá aðild að helstu efna-
hagsstofnunum hins vestræna
heims, þrátt fyrir að vafi leiki á
hve vel hæf þau eru til að semja
sig að reglum þeirra. Á fundi sjö
helstu iðnrikja heims mun brátt
verða fjallað um aðildarumsóknir
fjórtán af fimmtán fyrrum Sovét-
lýðveldunum, þar á meöal um-
sóknir baltnesku ríkjanna.
Alsír
Islamska frelsisfylkingin I Alsír,
sem bönnuð var fyrir skemmstu,
hefur hvatt landsmenn til að taka
upp vopn gegn stjórnvöldum,
sem hún kallar ólöglega „herfor-
ingjakliku."