Tíminn - 30.06.1992, Side 1
Þriðjudagur
30. júní 1992
117. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Skilaboð ríkisstjórnar til kjaradóms:
Takið dóminn
til endurmats
Rfldsstjórnin beinir því til kjaradóms að hann taki úrskurð sinn til
endurmats eða kveði upp nýjan úrskurð. Þetta kemur fram í bréfi
sem forsætisráðherra sendi Jóni Finnssyni, formanni kjaradóms, í
gær.
það er mat ríkisstjórnarinnar að
hinn nýfallni kjaradómur sé til þess
fallinn að skapa mikinn óróa í þjóð-
félaginu og geti hæglega rofið þá
samstöðu sem náðst hefur um að
þjóðin vinni sig sameiginlega út úr
þeim efnahagslegu þrengingum
sem nú er við að glíma.
Þá telur ríkisstjórnin að niðurstaða
kjaradóms stangist í veigamiklum
atriðum á við þá þróun sem orðið
hefur á hinum almenna launamark-
aði og að hann sé ekki í takt við
framvindu íslensks efnahagslífs um
þessar mundir.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokks, segir að
kominn hafi verið tími til að endur-
skoða kjör tekjuhæstu manna ríkis-
ins. Hins vegar komi dómur kjara-
dóms á óheppilegum tíma. Stein-
grímur segist ekki geta metið hvort
þessi leiðrétting kjaradóms sé sann-
gjörn eða ekki. Hins vegar hafi hann
aldrei heyrt þess dæmi að dómstóll
endurskoði sjálfan sig, þá væri
kjaradómur orðinn nánast mark-
leysa.
Miðstjórn Alþýðusambandsins hef-
ur lýst furðu á fráleitri niðurstöðu
kjaradóms sem nú hefur úrskurðað
æðstu embættismönnum hins opin-
bera tugprósenta launahækkun.
Miðstjómin bendir ríkisstjórninni á
að við þessar aðstæður séu aðeins
tveir kostir. Annars vegar að allir
launamenn fái tilsvarandi kaup-
hækkanir og hins vegar að ákvörðun
kjaradóms gangi til baka.
Á miðstjórnarfundi Alþýðubanda-
lagsins um helgina var samþykkt
harðorð ályktun um dóm kjara-
dóms. Þar segir: Miðstjórn Alþýðu-
bandalagsins fordæmir þá siðlausu
ákvörðun kjaradóms að hækka laun
æðstu embættismanna ríkis og
kirkju og kjörinna fulltrúa þjóðar-
innar um tugi prósenta. Þorri
launafólks varð fyrir skemmstu að
ganga að samningum um 1,7%
launahækkun og kjaradómur sýnir
því fólki megna fyrirlitningu með
þessari niðurstöðu sinni.
f ályktuninni segir að fulltrúar í
kjaradómi hafi berlega sýnt að þeir
eru ekki í neinum tengslum við dag-
legt líf þjóðarinnar og því augljóst
að taka verður tilgang og verksvið
kjaradóms til rækilegrar endurskoð-
unar. -BS
Norðmenn hefja
hvalveiðar á ný
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra lýsti yfir fögnuði í gær yfir
þeirrí ákvörðun Norðmanna að hefja
hrefnuveiðar strax á næsta ári. Þor-
Háskólarektor við brautskráningu kandidata:
Hugsanleg fjölda-
takmörkun stúdenta
í Háskóla íslands
„Ef stúdentum, sem sækja til Háskóla íslands, fjölgar enn en
fjárveitingar standa í stað eða lækka, hlýtur lögum að verða
breytt svo að Háskólinn fái vald á þeim fjölda sem hann tekur til
náms,“ sagði Sveinbjörn Björnsson háskólarektor í ræðu sinni
við brautskráningu kandidata á laugardaginn var.
Alls hafa 783 kandidatar útskrif-
ast frá Háskóla íslands á þessu
ári og er það met í sögu skólans.
Rektor varð tíðrætt um þær
efnahagslegu þrengingar sem
Háskólinn á við að stríða um
þessar mundir og sagði m.a. að
sú heimild sem Háskólinn hefði
til takmörkunar á fjölda sam-
kvæmt gildandi lögum nái að-
eins til námsgreina þar sem að-
staða til verklegrar þjálfunar eða
starfsþjálfunar er takmarkandi.
Ef takmarka ætti fjölda við Há-
skóla íslands hefði það djúptæk
áhrif á framhaldsskóla sem búa
nemendur undir háskólanám og
sagði Sveinbjörn hana verða að
eiga sér nokkurra ára aðdrag-
anda. Ef Háskólinn tæki aðeins
1000 bestu nemendurna (2000
skrá sig á hverju hausti) ættu
hinir ekki kost á skólavist annars
staðar og gætu jafnvel átt í erfið-
leikum með að fá skólavist er-
lendis, sem yrði ekki aðeins þeim
dýrari heldur einnig Lánasjóði
íslenskra námsmanna.
Ýmsar hugmyndir hafa komið
fram um hvernig mætti tak-
marka fjölda nemenda og m.a. sú
að gefa öllum sem sækja um
skólavist kost á könnunarprófi
sem athugaði almenna náms-
hæfni, rökvísi og gagnrýna hugs-
un, skilning og framsögn ritaðs
og talaðs máls. Auk þess hefur sú
hugmynd komið fram að gefa
öllum kost á að hefja nám og
leyfa þeim sem bestan árangur
sýndu á fyrstu misserisprófum
að halda áfram námi.
Þær viðamiklu breytingar sem
eru að verða í Evrópu um þessar
mundir urðu rektor að umtals-
efni og sagði að með nánari sam-
skiptum Vestur- Evrópuþjóða
sem og samkeppni, sem ekki tak-
markast lengur við landamæri,
ykjust líka kröfur til þekkingar
starfsmanna: „Auk verkfærni
þurfa þeir að kunna skil á tungu-
málum, menningu og háttum
þeirra þjóða sem þeir skipta við.
Evrópa er að verða einn vinnu-
markaður og þar munu færni og
hagkvæmni skipta meiru en
þjóðerni í samkeppni um verk-
efni,“ sagði Sveinbjörn.
—GKG.
steinn sagði að þetta yki líkur á að ís-
lendingar hæfu hrefnuveiðar lika.
Á fundi Alþjóðahvalveiðráðsins í gær
gegnu íslendingar formlega úr ráðinu
og í lokaávarpi til ráðsins sagði Guð-
mundur Eiríksson, formaður ís-
lensku sendinefnarinnar, að ákveðnir
grundvallarmisbrestir hafi komið upp
í starfsemi ráðsins og að það hafi snú-
ið baki við vísindalegri ráðgjöf. Guð-
mundur vildi í gær ekkert fullyrða
um hver yrði afstaða nýrra samtaka,
Norður-Atlantshafs sjávarspendýra-
ráðsins, til hvalveiða en stofnun
þeirra samtaka vakti nokkra athygli
þeirra sem fylgdust með fundinum í
Glasgow.
Sú ákvörðun Norðmanna að hefja
hvalveiðar að nýju á næsta ári er
möguleg vegna þess að þeir mót-
mæltu hvalveiðibanninu á sínum
tíma og lýsti formaður íslensku sendi-
nefndarinnar yfir skilningi á þessari
niðurstöðu Norðmanna sem hefðu
lög og rétt sín megin. Hvalfriðunar-
sinnar hótuðu hins vegar öllu illu.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra lýsti því yfir í gær að þessi
ákvörðun Norðmanna myndi verða til
þess að styrkja samstöðu hvalveiði-
þjóða og flýta fyrir því að hvalveiðar
yrðu teknar upp að nýju. Hann sagð-
ist vonast til að geta fundið lagalegan
grundvöll til að geta hafið hrefnuveið-
ar hið fyrsta, helst strax á næsta ári.
Sjá einnig blaðsíðu 6
Erilsöm helgi hjá lögreglunni í Reykjavík:
Tekinn á 153 km
hraða í Reykjavík
Tveir mótorhjólamenn voru teknir
á ofsahraða um helgina í Reykjavík.
Annar þeirra var á 153 km hraða á
Bústaðavegi en hinn á 151 km
hraða á Reykjanesbrautinni.
Mikill erill var hjá lögreglunni
þessa helgi og voru 416 útköll frá
föstudegi til sunnudagsmorguns.
Umferðarslys varð á laugardaginn á
gatnamótum Kjartansgötu og Rauð-
arárstígs þegar mótorhjól og fólks-
bíll lentu saman. Flytja þurfti öku-
mann mótorhjólsins á slysadeild.
Slys varð á mótum Laugavegs og
Barónsstígs og einnig þar lentu
mótorhjól og fólksbíll saman. Flytja
þurfti báða ökumenn á slysadeild.
—GKG.
Hollendingur slapp með skrekkinn:
Bíll valt á Skeiðum
Hollenskur ferðamaður velti bfla-
leigubfl sínum á Skálholtsvegi á
Skeiðum í gær.
Engin slys urðu á manninum og er
talið að reynsluleysi hans hvað ís-
lenska malarvegi varðar hafi orsakað
óhappið.
—GKG.