Tíminn - 30.06.1992, Side 7
Þriöjudagur 30. júní 1992
Tíminn 7
Ungmennafélagið Staðarsveit:
Vígir nýjan
íþróttavöll
Ungmennafélagið Staðarsveit hefur
tekið fyrir skömmu nýjan íþrótta-
völl í notkun á Lísuhóli á Snæfells-
nesi.
Gerð hans hefur tekið 12 ár og er
hann að mestu unninn í sjálfboða-
vinnu. Hann kostaði um 7 milljónir
króna en félagið heldur tvo dansleiki
á hverju sumri sem hjálpað hafa við
fjármögnunina.
Margrét Björnsdóttir, formaður
Ungmennafélagsins, hefur fylgst
með framvindu verksins ailan tím-
ann en hún tók við formennsku fé-
lagsins fyrir 8 árum.
„Við erum 55 búsett hér í sveit-
inni en ég reikna nú með að fleiri
komi til með að reyna að nýta sér
völlinn", segir Margrét. „Við höfum
þegar fengið fyrirspurnir frá ung-
mennafélögunum úr sveitinni hvort
þau megi koma og æfa.“
Þar eð hinn nýi íþróttavöllur var
þökuiagður í fyrra er hann mjög við-
kvæmur og verður hann því ekki
mikið notaður í sumar. En óhætt er
að stunda langstökk, hlaup og kast.
Þegar fram líða stundir verður einn-
ig mögulegt að stunda hástökk þar
líka. —GKG.
Skrúðgangan á vellinum. Rúnar Gunnarsson heldur á íslenska fánanum. Þormóður Garðar Símonar-
son, Helga María Magnúsdóttir og Arndís Sveinsdóttir báru ungmennafélagsfánann.
Kristján Þórðarson, gjaldgeri UMF-Staðarsveit, flytur ávarp í gjall-
arhorn með dyggrí aöstoð Margrétar Bjömsdóttur formanns.
Þórður Gíslason á Ölkeldu klippir á borðann
íþróttahúsiö Kaplakrika:
Voru- og solusynmg
áætluð 21 .-23. ágúst
Það er sfjóm handknattleiksdeild-
ar FH setn sér utn og vinnur að
undirhúningi sýningarinnar og
gefur fyrirtækjum og einstaklíng-
um í rekstri tækifæri á að kynna
og sejja vöru sína.
Sýning af þessu tagi hefur aldr-
ei áður verið haldin í Hafnarfirði,
en stjóm FH bendir á að Kapla-
krikasvæðið sé miðpunktur höf-
uðborgarsvæðisins. Sýnlngar-
svæði innandyra verður 700 til
900 fermetrar að stærð og einnig
er möguleiki á að vera utandyra
með stærri og þyngri vörur, t.d.
bíla, báta, tjaldvagna og fleira.
Stjóm FH hefur fengið Guðna
Sigfússon til að sjá um sýningar-
kerfl en hann hefur séð um flestar
stórsýningar hér á landi undanfar-
in ár. Óskað er eftir jákvæðu svari
fyrirtækja og einstaklinga sem
fyrst, þar sem sýning af þessu tagi
krefst mikils undirbúnings.
Svæðisstjóra-
skipti hjá
Flugleiðum
Svæðisstjóraskipti verða hjá Flug-
leiðum í Skandínavíu og á Bret-
landseyjum í þessum mánuði. Sím-
on Pálsson tekur við svæðisstjóm á
Bretlandseyjum af Steini Lámssyni
en Símon starfaði áður við svæðis-
stjóm á í Skandinavíu.
Steinn tekur aftur á móti við for-
stöðu innanlandsdeildar félagsins,
sem sér um samskipti við stöðvar fé-
lagsins erlendis og undirbýr íslands-
sölu þeirra á markaðinum ytra.
Knut Berg, yfirmaður Flugleiða í
Svíþjóð, tekur við svæðisstjórastöðu
í Skandinavíu af Símoni Pálssyni. Á
sama tíma flytjast höfuðstöðvar fé-
lagsins í Skandinavíu frá Osló til
Stokkhólms. Auk þess hefur Hans
Indriðason verið skipaður yfirmaður
Flugleiða í Noregi. Hann starfaði áð-
ur sem hótelstjóri á Hótel Loftleið-
um í Reykjavík. —GKG.
Átak hafið sem nefnist:
Fræ á fjöll
ruslið heim
Ferðaklúbburinn 4x4 hefur í sam-
vinnu við Landgræðslu ríkisins og
Olís haflð átak sem nefnt hefur ver-
ið „Fræ á flöll — ruslið heim“.
Klúbburinn hefur látið framleiða
sérstaka ruslapoka til að hafa með á
fjöll. Pokarnir eru úr þykkara plasti
en venjulegir ruslapokar og er því
ekki eins mikil hætta á að þeir rifni í
ferðum.
Landgræðsla ríkisins hefur gefið
klúbbnum snarrótar- og melgresis-
fræ ásamt áburði, í minni pokum,
sem settir eru í ruslapokana.
Klúbbfélagar og aðrir áhugamenn
taka pokana með sér upp á hálendið
og dreifa fræjunum og áburðinum á
svæði þar sem Landgræðslan hefur
óskað eftir samvinnu við klúbbinn
um dreifingu, vegna sérstöðu klúbb-
félaga. Pokarnir eru síðan notaðir
undir rusl á leiðinni til byggða. .
Pokarnir verða afhentir ferða-
mönnum á skrifstofu klúbbsins í
sumar og skorar klúbburinn á menn
að taka þátt í átaki klúbbsins. Einnig
er ferðaklúbburinn að láta útbúa
litla ruslapoka til að hafa í bflum og
verða þeir pokar afhentir á bensín-
stöðvum Olís og á skrifstofu klúbbs-
ins.
—GKG.
Nýr ríkissamningur gerður:
Samningur um
pappírsvörur
Nýr ríkissamningur hefur verið
gerður um kaup á pappírsvörum
milli Innkaupastofnunar ríkisins
og Rekstrarvara og fylgir honum
umtalsverð verðlækkun.
Útboð fór fram í febrúar og bárust
tilboð frá alls 14 aðilum. Mikill
munur reyndist vera á tilboðunum.
Vöruflokkarnir í samningnum
eru til dæmis salernispappír bæði
litlar og stórar rúllur, handþurrkur,
eldhúsrúllur, rúllupappír á skoðun-
arbekki og servéttur.
Liðin eru 9 ár síðan pappírsvörur
fyrir ríkisstofnanir voru fyrst boðnar
út á vegum Innkaupastofnunar rík-
isins. Allar ríkisstofnanir og fyrir-
tæki í eigu ríkisins ásamt bæjar- og
sveitarfélögum hafa rétt til að kaupa
samkvæmt samningnum.
—GKG.
Ásgeir Jóhannsson, forstjórí Innkaupastofnunar ríkisins, og Krist-
ján Einarsson, forstjóri Rekstrarvara, við undirritun nýja ríkis-
samningsins um pappírsvörur o.fl.