Tíminn - 15.07.1992, Side 1

Tíminn - 15.07.1992, Side 1
Biskup íslands, Ólafur Skúlason, um úrskurð Kjaradóms: Er áfall fyrir prestastéttina Samkvæmt síðari úrskurði Kjaradóms er um 30% launahækkun presta dregin til baka og laun þeirra hækka um 1,7% eins og annarra. Forráðamenn Prestafélags íslands hafa mótmælt og nefnt hugsanleg- ar uppsagnir. Ólafur Skúlason, biskup íslands, segir að prestar hafi enn ekki orðað uppsagnir við sig eftir þennan síðari úrskurð. „Prestar eru náttúrlega í hálfgild- ings áfalli ennþá, eftir úrskurð Kjaradóms. Tveir prestar höfðu tal- að um uppsagnir við mig fyrir úr- skurð fyrri Kjaradóms. Þeir töldu að við óbreytt ástand gætu þeir ekki verið áfram í köllum sínum vegna fjárhagslegrar afkomu fjölskyldn- anna. En hvort menn gera alvöru úr þessu, það er meira en rétt að segja það; menn eru í þessu af hugsjón líka, en þeir bera ábyrgð ekki aðeins á sjálfum sér heldur líka á maka og börnum. Ég held að ástandið sé ennþá verra núna, því þegar er búið að sýna mönnum fram á, að þeir hafi haft rétt fyrir sér, eins og Kjaradómur gerir, og láta ljósið leika svolítið um prestastéttina, þá verður svartnætt- ið ennþá myrkara þegar þessu er svo öllu kippt í burtu. Ef til uppsagna kæmi, ylli það kirkjunni algjörum vandræðum og ekki síður þeim söfnuðum sem prestarnir þjóna. Það, sem prestur- inn gerir og veitir, er nú einu sinni viss fastastærð í byggðarlögum vítt og breitt um landið. Það er ekkert langt í það að fermingarundirbún- ingur hefjist og undirbúningur vetr- arstarfsins. Það að fá þetta ofan á ýmislegt annað, sem hrjáir lands- byggðina, er mjög slæmt," segir Ól- afur Skúlason. Forráðamenn Prestafélags íslands benda á að í síðari úrskurði Kjara- dóms segi að endurskoða þurfi launakjör presta, og vitna í fyrri dóminn, þannig að í framhaldinu gæti það komið prestastéttinni til góða. Það, sem náðist með fyrri Kjaradómi, hafí verið leiðrétting eft- ir áratuga baráttu og vonandi náist hún aftur. Dómur Kjaradóms náði til presta sem veita sjálfstæðu embætti for- stöðu, og þeir eru um 120 talsins á landinu öllu. Laun þeirra voru fyrir Kjaradóm um 120 þús. kr. á mán- uði, en hækkuðu með dómnum upp í um 150 þús. kr. á mánuði. Þessi hækkun hefur enn ekki verið greidd og lítið vitað um hvernig fjármála- ráðuneytið tekur á þeim málum. -BS I gær lokaði Vigdís Finnbogadóttir, forseti fslands, síðasta kerinu í kerskála ÍSAL með felliþekju. Þessi lokun markar ákveðin þáttaskil í mengunarvörnum í álverinu, en undanfarin þrjú ár hefur ver- ið fjárfest fyrir rúman einn og hálfan milljarð í þessum felliþekjubúnaði í kerskálanum. Búist er við að útblástur flúoríðs muni minnka úr 400 tonnum árið 1990 í 100 tonn í ár. Á myndinni má sjá frú Vigdísi í kerskálanum í gær. Henni á vinstri hönd gengur Rannveig Rist verkfræðingur, og á vinstri hönd forsetans gengur Einar Guðmundsson verkfræðingur. Tímamynd: Sigursteinn Hlutfallsgreiðslur af lyfjaverði koma aftur í stað 850 kr. eða 500 kr. fastagjalds: Greiösla sjúklings fyrir dýrt lyf getur hækkað allt að 500% Heilbrigðisráðherra hefur ákveð- ið þá breytingu á greiðslum fyrir lyf að sjúklingar skuli á ný fara að greiða ákveðið hlutfall af iyfja- verði, í staðinn fyrir fast gjald eins og tíðkast hefur síðan 1974. Frá fyrsta ágúst skal sjúklingur, við hveija lyfjaafgreiðslu, greiða 25% af verði lyfsins, en þó ekki meira en 3.000 kr. Þar sem fasta- gjaldið hefur að undanfomu verið 850 kr. og 500 kr. fyrir bestu- kaupalyf, getur þessi breyting þýtt allt að 250% til 500% hækkun á greiðslum sjúklinga sem nota dýr lyf. Sjúklingar á ódýrum lyfjum munu þar á móti sleppa með lægri greiðslur en nú. Elli- og örorku- lífeyrisþegar skulu hins vegar greiða 10% af verði lyfsins, en þó aldrei meira en 700 kr. fyrir hveija afgreiðslu. Þessar breyt- ingar eiga einungis við um þau lyf sem áður báru fastagjald, en ekki önnur. Tilganginn með þessum aðgerð- um segir heilbrigðisráðherra, Sig- hvatur Björgvinsson, þann að ná fram auknum sparnaði í lyfja- kostnaði um leið og tilkostnaður sjúklinga lækkar. Lyfjaútgjöld al- mannatrygginga stefni að óbreyttu í 2,5 milljarða, sem er 300 milljón- ir kr. umfram áætlun fjárlaga. Greiðsluhlutfall (25% og 10%) og þak sé valið með það í huga, að kostnaður sjúklinga aukist ekki að meðaltali miðað við óbreytta neyslu. Með þessum breytingum er hins vegar, enn einu sinni, stefnt að því að fá lækna til þess að ávísa ódýr- ustu lyfjum í hverjum flokki, til hagsbóta bæði fyrir sjúklingana beint og fyrir skattborgarana. Sú kvöð er framvegis lögð á lækna, að taka afstöðu til afhendingar ódýr- asta samheitalyfs á nýhönnuðum lyfseðli. Heimili læknir afgreiðslu ódýrasta samheitalyfs, skal hann rita (S) aftan við nafn lyfsins á lyf- seðlinum, en annars (R) ef hann heimilar ekki slíka afgreiðslu. Án þessara merkinga verður lyfseðill ógildur. Samfara er sú kvöð á lyf- sala að afhenda ávallt ódýrasta samheitalyfið, þegar læknar heim- ila það. Lyfsölum er sömuleiðis, frá næstu mánaðamótum, gert skylt að afhenda sjúklingum greiðslu- kvittun með sundurliðuðum kostnaði sjúklings og TVygginga- stofnunar. Væri reglunni um að afgreiða ávallt ódýrasta samheitalyfið fylgt út í æsar, gæti lyfjakostnaður lækkað um 500 milljónir kr., sam- kvæmt útreikningum á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Þar þykir mönnum þó varla raunhæft að reikna með meira en 100 til 200 milljóna kr. lækkun lyfjakostnaðar vegna samheitalyfja. Ráðuneytis- menn beina því til fólks að það spyrji lækni sinn jafnan, við útgáfu lyfseðils, hvort völ sé á ódýrara lyfi. Þessu til viðbótar er vonast til nokkurs sparnaðar með því að læknar varist framvegis að ávísa of stórum lyfjaskömmtum, þar sem slíkt muni hér eftir auka útgjöld sjúklinga að ástæðulausu. Lyf hafa undanfarið ár skipst í fjóra flokka eftir því hvemig greiðsla fyrir þau skiptist á milli sjúklinga og almannatrygginga: Stjörnu-merkt lyf greiða al- mannatryggingar að fullu. O-merkt lyf greiða sjúklingar að fullu. B-merkt lyf greiða almannatrygg- ingar að fullu fyrir þá sem fram- vísa lyfjaskírteinum. E-merkt lyf greiða sjúklingar fast gjald fyrir til 1. ágúst, en hlutfall af verði eftir það. Hér er um þau lyf að ræða sem framangreindar breytingar ná til. En um 69% af lyfjaútgjöldum TVyggingastofnun- ar hafa verið vegna þessara E- merktu lyfja. Að undanförnu hefur fastagjaldið, sem almennir sjúklingar greiða, staðið undir 23% af heildarverði þessara lyfja. Hjá lífeyrisþegum hafa fastagreiðslurnar nægt fyrir 7% af heildarverði lyfjanna. Þessi heildarskipting lyfjakostnaðar milli sjúklinga og Tryggingastofn- unar á að vera óbreytt. Breytingin felst í því að framvegis þarf fólk að greiða minna en áður fyrir ódýr lyf, en meira en áður fyrir dýr lyf. Að undanförnu hafa aðeins um 6% af afgreiðslum E-merktu lyfj- anna verið yfir 3.000 króna greiðsluþakinu sem miðað er við í hinum nýju reglum, þ.e. kostað meira en 12.000 krónur alls. Greiðsluþátttöku E-merktra lyfja, sem fást út á lyfjaskírteini, verður þannig háttað að hlutfall og há- marksgreiðsla verður helmingi lægri en annars (þ.e. almennt 12,5% og 1.500 kr. þak). Aðrar breytingar eru m.a. að TVyggingastofnun verður heimilt að gefa út lyfjaskírteini þar sem greiðsluþátttaka er bundin við ódýrasta samheitalyf hverju sinni. Enn er ónefnd sú breyting að frá 1. ágúst verða teknir upp fjölnota lyfseðlar fyrir sjúklinga, sem eru í langtímameðferð. Þeir gefa kost á allt að fjórum afgreiðslum á sama lyfseðli. Þetta sparar sjúklingi ekki aðeins ferðir til læknis, heldur gef- ur honum einnig möguleika á að dreifa greiðslum fyrir lyf yfir lengra tímabil. - HEI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.