Tíminn - 15.07.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 15.07.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Miðvikudagur 15. júlí 1992 Þingið í Litháen losar sig við forsætisráðherrann: Vantraust samþykkt á Gediminas Vagnorius í gær var samþykfct á þingi Litháens vantraust á forsætisráðherra Iands- ins, Gediminas Vagnorius, og hann settur af. Vantrauststillagan var samþykkt með 69 greiddum atkvæðum gegn 6. Vagnorius hefur verið dyggur stuðn- ingsmaður forseta landsins, Vytautas Landsbergis, og voru þeir banda- menn í baráttu við Moskvuvaldið þegar Litháen barðist fyrir sjálfstæði sínu. Herskáir þjóðernissinnar á þingi landsins hafa verið mjög gagnrýnir á störf Vagnorius, og þá einkum stefnu hans í fjármálum. Þingmenn saka hann um að hafa mistekist að koma á markaðsbúskap. Vagnorius var skipaður forsætisráð- herra skömmu áður en sovéskar her- sveitir réðust með hörku á íbúa Lit- háen í janúar 1991. í þeim átökum, sem m.a. urðu um sjónvarpstuminn í Vilníus, drápu sovésku hermennim- ir 13 þjóðernissinnaða mótmælend- ur. Vagnorius slóst í hóp með ráðherr- um og þingmönnum sem héldu til í þinghúsinu. Búist var við að sovésku hermennimir myndu ráðast á þing- húsið, sem ekki varð, en umsáturs- ástand ríkti hins vegar nokkum tíma í þinghúsinu, eins og frægt varð. Tálsmenn þingsins í Litháen segja að ráðherra orkumála, Leonas As- mantas, sem gagnrýnt hefúr Vagnori- us einna harðast, muni taka við emb- ætti forsætisráðherra þar til kosning- ar verða í þinginu þann 25. október næstkomandi. Fyrir réttum mánuði vom greidd at- kvæði um vantraust á Vagnorius. Þá hélt hann velli. Úrslitin í gær fóm hins vegar á annan veg og em talin valda Landsbergis vandræðum. Hann á nú í stöðugt meiri vandræðum með herskáa þjóðemissinna í hópi þing- manna, sem láta stöðugt meira á sér bera. Fyrir u.þ.b. mánuði varð Landsberg- is að sætta sig við að láta í minni pok- ann, þegar allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram um aukin völd forseta yfir þingi. Þá vildi Landsbergis láta samþykkja nýja stjómskipan, sem hefði fært honum aukin völd. Tillaga hans náði ekki fram að ganga. —Reuter/Krás. Páfinn nýtur kyrrðar og friðar á sjúkrahúsi og: HLUSTAR Á MESSUR SÉR TIL DÆGRASTYTTINGAR Jóhannes Páll páfi hefur nú legið tvo daga á sjúkrahúsi þar sem hon- um er haldiö til rannsókna. Ekki er alveg Ijóst hvað þjakar páf- ann, sem er 72 ára gamall og kvart- aði upphaflega undan illindum í meltingarvegi. Tálsmenn Páfagarðs segja að páfa líði vel og vilja þeir hvorki staðfesta né neita fréttum, sem birtust í ítalska útvarpinu um að páfi hefði æxli í ristli. Páfanum hafa borist kveðjur víðs- vegar að úr heiminum og óskir um Konur eiga það til að verða mjög eyöslusamar rétt fyrir tíðir, segir í nýútfcominni sfcýrslu frá Bretlandi. í skýrslunni segir að verslunar- ferðir kvenna á þessum tíma endi Íðulega í táraflóði, kveinstöfum, eftirsjá og rifrildi við maka. Skýrsla þessi er gefin út af stofn- un sem kalla mætti „Stofnun um næringarráðgjöf fyrir konur“ (Wo- men’s Nutritlonal Advisory Serv- ke). Fram kemur í skýrsiunni að hjá mörgum konum hafl fjárráð og/eða peningaleysi lítil sem engin áhrif i þessa óskynsamiegu pen- ingaeyðslu síðustu dagana fyrir tfð- ir. í niðurstöðum könnunar, sem frá er greint í skýrslu þessari, segir að skjótan bata. Meðal þeirra, sem sendu honum kveðjur í gær, var Mehmet Ali Agca, tyrkneski byssu- maðurinn sem reyndi að ráða páf- ann af dögum árið 1981. Þá hafa páfa einnig borist kveðjur frá Mik- haíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna gömlu. Kaþólskir menn um víða veröld liggja nú á bæn og biðja fyrir heilsu páfa. Tekið er til þess í fréttaskeytum 72% aðspurðra kvenna segist eyða um efni fram stðustu daga fyrir tíð- ir. „Einu sinni keypti ég bíl á þessu tímabili tíðahríngsins og þegar ég var orðin eðlileg aftur, trúði ég varla eigin augum,“ sagði kona ein, sem vitnað er í í skýrslunni. Önnur sagði: „Ég fcaupi mikið af snyrti- vörum og fatnaðl, en verst er þó þegar ég hef látiö klippa mig þann- ig að ég þarf að sjá eftir því svo mánuðum skiptir.“ Af þeim, sem þátt tóku í könnun- inni, voru 59% sem stóðust ekki súkkulaði og sætindi, 54% sólund- uðu peningum í fÖt, og 30% kvenn- anna sóuðu penfngum í snyrtivörur að eigin sögn. Fjórðungur þeirra eyddi peningum í gjaflr. Tæplega helmingur kvennanna sögðust eyða um efni fram. Þessi aukaflárútíát leiddu til flárfaags- vandræða hjá 15%, en 16% sögðu að eyöslusemin orsakaði deilur við maka. Loks er þess getíð að hin aufcnu útgjöld, sem vart verður mánaðar- lega í lífi kvennanna, valdi ómældrí sektarkennd og þunglyndi. „111 eru konur, sem skilja greiðslukortín og ávísanaheftin eftir heima af ásettu ráði á þessu tímabili, tii þess eins aö þær geti ekki látið undan skyndi- löngunum sínum,“ sagði Maryon Stewart, sem er reyndur ráðgjafl og stofnandi ofangreindrar stofnunar (WNAS). —Reuter/Krás. að þar sé jafnt um fátæka bændur í Póllandi að ræða sem skólabörn í Bandaríkjunum. Eins og áður segir vilja talsmenn Páfagarðs ekkert segja um hvers eðl- is veikindi páfa eru. Þeir segja að til- kynning muni verða birt um það síðar. Aftur á móti segja þeir að páfa líði vel, friður sé með honum og hann hlusti á messur milli rann- sókna. Rannsóknirnar fólust m.a. í röntgenmyndatöku og segulómun. Getgátur eru uppi um að veikindi páfa stafi af einhverjum samdrætti eða þrengslum í þörmum, sem auð- velt sé að laga. Til þess þyrfti páfi þó að leggjast undir hnífinn. Navarro- Valls, talsmaður páfa, hló og gerði að gamni sínu við fréttamenn þegar þeir reyndu að spyrja hann spjörun- um úr. Hann sagðist ekki vilja vera með óþarfa yfirlýsingar og bað menn bíða rólega þar til niðurstöð- ur rannsóknanna lægju fyrir. Na- varro-Valls, sem er læknir að mennt, vildi þó ekki neita því að skurðaðgerðar væri þörf. Jóhannes Páll páfi hefur þótt heilsuhraustur, enda fyrrverandi fjallgöngumaður. Hann náði sér undraskjótt eftir banatilræðið, sem honum var sýnt árið 1981, og til þess var tekið er hann lagðist í ferðalög áður en ár var liðið frá morðtilræðinu. Páfinn, sem er fyrsti páfi í 455 ár sem ekki er ítalskur, þykir mjög víð- förull. Þannig hefur hann ferðast til meira en 100 landa í 55 ferðum frá því að hann tók við embætti árið 1978. í síðasta mánuði fór hann til Angóla og reyndi að stuðla þar að friði. —Reuter/Krás. Jóhannes Páll II páfi. Það er ekki tekið út með sæidinni að vera kona: HÆTTIR TIL EYÐSLUSEMI í LOK TÍÐAHRINGSINS! JERÚSALEM — Yitzhak Rabin tók formlega við emb- ætti forsætisráðherra (sraels í gær, og sagði við það tæki- færi að hann væri bjartsýnn og teldi sig geta bætt sam- skipti við Bandaríkjamenn, sem hann taldi bandamenn ísraela. Von er á utanríkisráðherra Bandaríkjanna, James Baker, til ísraels næstkomandi sunnudag. Það mun verða fyrsta ferð hans þangað frá því að friðarviðræður hófust fyrir níu mánuðum. Þessar viðræður voru að undirlagi Bandaríkjamanna og þeim nokkurt kappsmál. SARAJEVO — Fulltrúar frið- argæslusveita S.Þ. sökuðu báða deiluaðila í Sarajevo um að hafa brotið samninga um vopnahlé. Nokkrum klukku- stundum áður höfðu sprengj- ur sprungið rétt við höfuð- stöðvar þeirra í borginni. Leið- togar stríðandi afla hafa sam- þykkt að koma til Lundúna og hitta Carrington lávarð að málum. Carrington reynir að miðla málum í umboði S.Þ. Þing Júgóslavíu er tilbúið til þess að skipa ameríska miljónamæringinn Milan Panic í embætti forsætisráðherra, eftir að hann hafði heitið því að binda enda á þjóðernis- deilurnar í Bosníu og rjúfa einangrun landsins á alþjóða- vettvangi. MOSKVA — Hermenn frá Rússlandi og Georgíu, gráir fyrir járnum, voru sendirtil friðargæslustarfa í Suður-Os- setíu í gær. Þetta er fyrsta að- gerð sinnar tegundar til þess að reyna að stöðva þjóðernis- deilur í fyrrum Sovétríkjunum. NEW YORK — Demókratar hafa nú loks, eftir mánaða erj- ur og ótta um að tapa eina ferðina enn slagnum um Hvíta húsið, blásið í herlúðra og senda Bush forseta tóninn: „Það verður ekki um annað tækifæri að ræða fyrir þig og hafðu það!“ segja þeir og eru kokhraustir. NAIROBI — Uppreisnar- menn í Súdan segja að stjórnarherinn hafi náð á sitt vald höfuðstöðvum þeirra í Torit, sem er bær í suðurhluta landsins. Þeir sögðust hins vegar vera að undirbúa um- sátur um bæinn. AÞENA — Mikil sprenging varð fyrir utan fjármálaráðu- neytið í miðborg Aþenu í gær. Gríska útvarpið sagði að a.m.k. einn maður hefði særst alvarlega. BAGDAD — Sérfræðingar á sviði kjarnorkumála snéru aft- ur til Bagdad í gær til þess að Ijúka við eyðileggingu bygg- ingar þar sem írakar hugðust framleiða kjarnavopn. Sér- fræðingarnir eru á vegum S.Þ. MANILA — Eldfjallið Pinatu- bo á Filippseyjum gaus í gær- dag eftir að hafa legið í dvala í um 10 mánuði. Gosiö var lít- ið, en þó dreifðist aska um næriiggjandi héruð. Jarðfræð- ingar segja að hvorki hafi orð- ið manntjón né eignatjón.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.