Tíminn - 18.09.1992, Side 8
8 Tíminn
Föstudagur 18. september 1992
Hll
Flokksstarf
ísfirðingar — Félagsfundur Fundur verður hjá Framsóknarfélagi Isfirðinga fimmtudaginn 17. september kl. 20.30. Mætum 011 vel og stundvlslega. Stjómln.
Reykjanes Skrifstofa Kjördæmasambandsins að Digranesvegi 12, Kópavogi eropin mánudaga og miövikudaga kl. 17.00-19.00, slmi 43222. K.F.R.
Kópavogur Aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna 1 Kópavogi, verður haldinn að Digranesvegi 12 fimmtudaginn 24. sept- ember kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Inntaka nýrra félaga. Gestur fundarins verður Siv Friðleifsdóttir, fráfarandi for- maöur SUF. Kaffiveitingar. Stjómln. Siv
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir eftir
starfsmanni til að annast skjalavörslu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og reynslu á
þessu sviði. Ætlunin er að hefjast handa við tölvufærslu
skjalasafns og því nauðsynlegt að umsækjendur hafi
tölvukunnáttu.
Launakjör í samræmi við kjarasamninga opinberra starfs-
manna. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fýrri
störf sendist Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 116,150 Reykjavík, eigi síðaren 10. október.
Reykjavík, 15. september 1992.
Heilbrigðis- og tryggingamáiaráðuneytið
Afmælis- og
minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum
fyrir birtingardag.
Þœr þtirfa að vera vélrítaðar.
-----------------------\
if
Eiginkona min og móöir okkar Magnhildur Indriðadóttir frá Drumboddsstöðum Bergholti, Biskupstungum andaðist 16. september. Sveinn Kristjánsson og böm j
r 'í Elskulegi faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi Guðlaugur Eyjólfsson tYrrverandi kaupfélagsstjórf Aiftahólum 2, Reykjavfk lést á heimili slnu 16. september.
Þorbjörg Guðlaugsdóttir
Sigurður Guðlaugsson Magna Baldursdóttir
Ingólfur Guðlaugsson Rannveig L. Pétursdóttlr
Jón G. Guðlaugsson Lára Jónsdóttir
Bárður Guðlaugsson Guðný Elnarsdóttir
barnaböm og bamabarnabörn
_____________________________________________________________/
Ákall um hjálp!
Mannréttindasamtökin Amnesty
Intemational vilja vekja athygíi
þína á þeim mannréttindabrotum,
sem sagt er frá hér að neðan, og
vona að þú sjáir þér fært að skrifa
bréf til hjálpar fórnarlömbum
þeirra.
Þú getur lagt fram þinn skerf til
þess að samviskufangi verði látinn
laus eða að pyndingum verði hætt.
Boðskapur þinn getur fært fórnar-
lömbum „mannshvarfa" frelsi. Þú
getur komið í veg fyrir aftöku. Fóm-
arlömbin em mörg og mannrétt-
indabrotin margvísleg, en hvert bréf
skiptir máli.
íslandsdeild Amnesty gefur einnig
út póstkort til stuðnings því fólki
sem hér er sagt frá, og krefst ein-
ungis undirskriftar þinnar. Hægt er
að gerast áskrifandi að þessum kort-
um með því að hringja eða koma á
skrifstofu samtakanna að Hafnar-
stræti 15, virka daga frá kl. 16-18 í
síma 16940, eða senda okkur línu í
pósthólf 618,121 Reykjavík.
Suður-Afríka
Tsepo Lengwati var félagi í Afríska
þjóðarráðinu og fyrrverandi fangi á
Robbineyju. Hann var skotinn til
bana að morgni 28. janúar 1992,
meðan hann var í haldi lögreglu í
þorpi suður af Jóhannesarborg.
Hann virðist hafa verið fómarlamb
tilræðis, sem lögreglan átti þátt í.
Tsepo Lengwati var einn sjö gmn-
aðra um aðild að ráni þar sem lög-
regluþjónn lét lífið. Fjórir af hinum
sjö hafa síðan látist við gmnsamleg-
ar aðstæður. Nóttina áður en Tsepo
Lengwati lést var hann færður úr
klefa sínum af nokkmm lögreglu-
þjónum og hettuklæddum mönnum
og honum misþyrmt. Næsta dag
lagði hann fram kæm á hendur lög-
reglunni. Hann var aftur færður úr
klefa sínum næstu nótt og sam-
kvæmt framburði lögreglunnar
skaut vopnaður maður á hann í lög-
reglubíl í Sharpeville. Lögreglan
kvaðst hafa svarað skotárásinni, en
byssumaðurinn hafi sloppið. Við
skoðun líksins kom í ljós að Tsepo
Lengwati var með skotsár um allan
líkamann, en enginn annar í lög-
reglubílnum virðist hafa særst og
engin lögreglurannsókn virðist hafa
verið gerð á drápinu.
Síðastliðin tvö ár hafa margir félag-
ar Afríska þjóðarráðsins og skyldra
samtaka orðið fórnarlömb árása og
tilræða, sem öryggislögreglan hefur
verið bendluð við. í maí 1992 birti
dagblaðið Weekly Mail í Jóhannesar-
borg ný sönnunargögn um net
leynilegra stöðva, sem notaðar em
af lögreglu til að yfirheyra fólk og
ráða menn til að standa að tilræðum
og öðmm ofbeldisverkum gegn
stuðningsmönnum Afríska þjóðar-
ráðsins. Þetta hefur aukið gmn-
semdir um að lögreglan hafi annað-
hvort myrt Tsepo Lengwati eða
tengist því á annan hátt.
• Vinsamlegast sendið kurteisleg
bréf á ensku og farið fram á að gerð
verði opinber og hlutlaus rannsókn
á kringumstæðunum við dauða Tse-
po Lengwati og að hinir seku verði
leiddir fyrir rétt, t.d. á þessa leið:
Your Excellency,
I wish to draw your attention to the
case of Tsepo Lengwati, an African
National Congress member and
former Robbin Island prisoner. He
was shot dead in the early hours of
January 28, 1992, while in the cu-
stody of police officers from Vander-
bijlpark. He appears to have been
the victim of targeted assassination
in which the police were involved. I
call for an open and independent
judicial inquiry into the circumst-
ances surrounding the death of Tse-
po Lengwati and that those res-
ponsible be brought to justice.
Skrifið til:
President RW.de Klerk
State President’s Office
Tsepo Lengwati.
Private Bag X83
Pretoria 0001
South Africa
Kólumbía
Félagar í hinni sjálfstæðu mann-
réttindahreyfingu (CREDHOS),
sem starfar í borginni Barranca-
bermeja í hinu stríðshrjáða héraði
Magdalena Medio, hafa í auknum
mæli orðið fómarlömb mannrétt-
indabrota sérsveita hersins.
Þrír félagar CREDHOS hafa þegar
verið myrtir. í mars 1991 var verka-
maður að nafni Humberto Hernán-
dez skotinn til bana af óeinkennis-
klæddum mönnum. í janúar síðast-
liðnum var ritari CREDHOS, Blanca
Valero de Durán, drepin af óein-
kennisklæddum byssumönnum fyr-
ir utan skrifstofu samtakanna. Þrír
lögreglumenn, sem voru vitni að
árásinni, sinntu, að sögn, ekki hróp-
um hennar um hjálp né reyndu að
elta árásarmennina uppi. í júní var
svo annar starfsmaður CREDHOS,
Julio Berrio, drepinn af óþekktum
byssumönnum.
í framhaldi af yfirlýsingu foringja í
hernum í febrúar, þar sem hann
tengdi starfsemi CREDHOS við
skæruliðahreyfingar, jukust hótanir
sérsveita hersins á hendur CRED-
HOS. í júní sluppu þrír félagar
hreyfingarinnar naumlega við
meiðsl, þegar nokkrir vopnaðir
menn réðust með skothríð á bifreið
þeirra. í bílnum var m.a. forseti
CREDHOS, Jorge Gómez Lizarazo.
Þeir voru nýkomnir frá viðræðum
við ættingja fjögurra manna, sem
höfðu verið drepnir daginn áður af
óþekktum byssumönnum.
Starfsemi hreyfingarinnar til varn-
ar mannréttindum í Magdalena
Medio hlaut alþjóðlega viðurkenn-
ingu árið 1991, þegar henni voru
veitt Lettelier-Moffit-verðlaunin af
Institute of Political Studies í
Bandaríkjunum. Síðustu mánuði
hefur CREDHOS opinberlega for-
dæmt fjölgun brota, sem framin eru
af sérsveitum hersins og almennum
hermönnum í Barrancabermeja og
nágrenni, s.s. pyndinga, aftaka án
dóms og laga og „mannshvarfa".
CREDHOS hefur einnig bent á
mannréttindabrot, sem framin eru
af skæruliðasveitum á svæðinu. Rík-
isstjóm Kólumbíu hefur fordæmt
árásimar á CREDHOS og hefur lof-
að nákvæmum rannsóknum. Samt
sem áður hafa hinir seku enn ekki
verið fúndnir og Ieiddir fyrir rétt.
• Vinsamlegast sendið kurteisleg
bréf á ensku og farið fram á að ör-
yggi þeirra, sem láta sig mannrétt-
indabrot varða, verði tryggt og
höndum komið yfir þá, sem nýlega
réðust á félaga í CREDHOS, t.d. á
þessa leið:
Your Excellency,
I write to you out of concern for
members of the independent Regi-
onal Human Rights Committee
(CREDHOS), based in the town of
Barrancabermeja, who have increas-
ingly been the victims of human
rights violations by paramilitary
forces. Three of them have already
been murdered and others have be-
en threatened or attacked. However,
those responsible have not yet been
identified and brought to justice. I
urge you to guarantee the safety of
human rights monitors and to bring
to justice those responsible for the
recent attacks on CREDHOS mem-
bers.
Skrifið til:
President César Gaviria Trujillo
Palacio deNarino
Santa Fe de Bogotú
Colombia
Sýrland
Mustafa Khalifa er 44 ára stærð-
fræðingur, sem verið hefur í haldi
síðustu tíu árin án ákæru eða rétt-
arhalda. Hann er talinn vera í haldi
í Saidnaya-fangelsinu, að sögn án
nauðsynlegrar læknishjálpar. Hann
er samviskufangi.
Mustafa Khalifa var handtekinn í
janúar árið 1982 af leyniþjónustu
sýrlenska hersins fyrir meinta aðild
að Kommúnistaflokknum, Hizb al-
’Amal al-Shuyuí. Flokkurinn er
einn margra ólöglegra pólitískra
samtaka, sem hafa það markmið að
auka lýðræði í landinu og að pólit-
ískir fangar verði leystir úr haldi.
Hundruð félaga og stuðningsmanna
flokksins hafa mátt sæta varðhaldi
án ákæru eða réttarhalda, pynding-
um og annarri illri meðferð. Allt að
200 félögum flokksins, m.a. sam-
viskuföngum, er nú haldið í fangelsi
án ákæru eða réttarhalda.
Mustafa Khalifa er kvæntur og á
eina dóttur. Eiginkona hans Sahar
al-Buni, sem er 33 ára verkfræðing-
ur, var í haldi án ákæru eða réttar-
halda frá 1987 til ársloka 1991. Hún
var látin laus ásamt 60 öðrum sam-
viskuföngum, sem allir voru konur
og fangelsaðar höfðu verið í tengsl-
um við Kommúnistaflokkinn. Tveir
bræðra hennar eru einnig taldir
vera í haldi, annar frá 1986, hinn frá
1987, án þess að vera ákærðir eða
koma fyrir dómara, sömuleiðis
vegna meintrar aðildar að Komm-
únistaflokknum.
• Vinsamlega sendið kurteislega
orðað bréf á ensku og farið fram á að
Mustafa Khalifa verði látinn laus
skilyrðislaust og án tafar, t.d. á þessa
leið:
Your excellency,
I appeal to you for the release of
Mustafa KhaÚfa, a topographer who
has been in detention without
charge or trial for over 10 years, for
alleged membership of the Party for
Communist Action Hizb al-’Amal
al- Shuyuí. He is reported to be held
in Saidnaya Prison, where he is said
to have been without proper medic-
al attention. He is a prisoner of
conscience and I urge you to release
him immediately and uncondition-
ally.
Skrifið til:
President Hafez al-Assad
Presidentidl Palace
Damascus
Syrian Arab Republic