Tíminn - 18.09.1992, Blaðsíða 9
Tíminn 9
Föstudagur 18. september 1992
ITC Akureyri
Kynningarfundur á starfsemi ITC verð-
ur haldinn á Akureyri laugardaginn 19.
september. Fundurinn verður á Hótel
KEA og hefst kl. 15. Fundir ITC-samtak-
anna eru öllum opnir. Upplýsingar hjá
Sign'ði sími 96-23339 og Sigurbjörgu
sími 91- 43774.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú f
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10. Nýlagað molakaffi.
Tónlistarfélag
Vestiv-Húnvetninga
Fyrstu reglulegir tónleikar tónlistarfé-
lagsins á starfsárinu 1992-93 verða í
Hvammstangakirkju laugardaginn 19.
september kl. 20.
Einar Kristján Einarsson gftarleikari
leikur einleik á gítar.
Á efnisskrá Einars eru verk eftir Luis de
Narvaez, J.S. Bach, Femando Sor, Karól-
ínu Eiríksdóttur, Isaac Albeniz, Yukojiro
Yocoh og Agustin Barrios.
Einar Kristján Einarsson er fæddur á
Akureyri 1956 og hlaut þar sfna fyrstu
tónlistarmenntun. Haustið 1977 hóf
hann gítamám við Tónskóla Sigursveins
D. Kristinssonar og lauk burtfararprófi
1982. Aðalkennarar hans voru Gunnar
H. Jónsson og Joseph Fung. Einar stund-
aði framhaldsnám í Manchester f Eng-
landi 1982-1988 og voru aðalkennarar
hans George Hadjinikos, Gordon Crossl-
ey og David Russell. Hann hefur auk þess
sótt námskeið hjá John Williams, Alirio
Diaz, José Luis Gonzalez o.fl.
Einar lauk einleikara- og kennaraprófi
frá Guildhall School of Music 1987 og
hefur síðan haustið 1988 kennt gítarleik
við Tónskóla Sigursveins og Tónlistar-
skóla Kópavogs. Auk tónleikahalds f
Englandi og á Spáni hefur hann komið
fram við margvísleg tækifaeri víða á fs-
landi, m.a. lék hann einleik með Kamm-
ersveit Akureyrar sl. hausL
Þjóðleikhúslð:
Hafió — nýtt leikrrt
Ólafs Hauks Símonarsonar
Annað kvöld, laugardaginn 19. sepL,
fmmsýnir Þjóðleikhúsið á Stóra sviðinu
nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson,
Hafið, f leikstjóm Þórhalls Sigurðsson-
ar. Lýsingu annast Páll Ragnarsson og
Þórunn S. Þorgrímsdóttir hannar leik-
mynd og búninga.
Leikritið gerist í fslensku sjávarplássi
þar sem við blasir atvinnuleysi og gjald-
þrot útgerðarfyrirtækisins, sem hingað
til hefur verið burðarás samfélagsins.
Aðalpersónumar eru gamli útgerðarjaxl-
inn Þórður og fjölskylda hans. Böm
Þórðar og tengdaböm vilja koma honum
fyrir í „einhverri gamalmennageymslu,
þar sem hann fær reglulega fótsnyrt-
ingu“ og gera upp eignir fyrirtækisins.
Leikritið gerist á fáeinum dögum um
áramót. Það er „mikið átakaverk, fyndið
og beinskeytt, eins og við er að búast af
Ólafi Hauki“, að því er Þjóðleikhúsið seg-
ir í fréttatilkynningu.
Leikendur em Helgi Skúlason, Margrét
Guðmundsdóttir, Bríet Héðinsdóttir,
Pálmi Gestsson, Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Jóhann Sigurðarson, Randver
Þorláksson, Ragnheiður Steindórsdótt-
ir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Stefán
Jónsson, Þórey Sigþórsdóttir, Edda
Arnljótsdóttir og Siguröur Sigurjóns-
son.
Guðbjörg Lind Jónsdóttir sýnir
í Listasalnum Nýhöfn
Guðbjörg Lind Jónsdóttir opnar mál-
verkasýningu í listasalnum Nýhöfn,
Hafnarstræti 18, laugardaginn 19. sept-
ember kl. 16-18.
Á sýningunni em verk unnin með olíu á
síðastliðnum tveimur ámm.
Guðbjörg Lind er fædd á ísafirði árið
1961. Hún stundaði nám í Myndlista- og
handíðaskóla íslands og útskrifaðist frá
málaradeild árið 1985.
Þetta er sjötta einkasýning Guðbjargar,
en hún hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og erlendis.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga frá kl. 12-18 og frá kl. 14-18
um helgar. Lokað á mánudögum. Henni
lýkur 7. október.
Kvikmyndasýningar MÍR hefj-
ast aö nýju
Reglulegar kvikmyndasýningar hefjast
að nýju eftir sumarhlé í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, sunnudaginn 20. sepL kl.
16 með sýningu á kvikmyndinni „Upphaf
valdaferils", sem fjallar um fyrstu stjóm-
arár Péturs mikla Rússakeisara.
Fram til áramóta verða svo alls 13
sunnudagssýningar, sem alltaf hefjast kl.
16. Sýndar verða gamlar og nýlegar kvik-
myndir, gerðar í Sovétrfkjunum, m.a.
ýmsar myndir sem taldar voru til klass-
ískra kvikmynda Sovétmanna, svo sem
„Baltneski fulltrúinn“ frá 1936 og
.Jdaður með byssu“ frá 1938. Einnig eru
á sýningarskrá myndir frá seinni tímum,
sem athygli hafa vakið, Ld. „Stríðið
hefst daginn eftir" og „Brautarstöð fyr-
ir tvo“. Meðal leikstjóra, sem eiga mynd-
ir á sýningarskrá, eru Sergei Gerass-
imov, A. Zarkhi, I. Heifits, Sergei Jútke-
vitsj og Eldar Rjazanov.
Aiik leikinna mynda verða sýndar á síð-
ustu sýningu fyrir jól tvær heimildar-
kvikmyndin um armenska tónskáldið
Aram Khatsatúrjan og helgimyndamál-
arann Andrei Rúbfjov. Einnig teikni-
mynd gerð við Hnotubrjótinn, svítu eftir
Tsjaíkovskij.
Aðgangur að kvikmyndasýningum MÍR
er ókeypis og öllum heimill meðan hús-
rúm leyfir.
Húnvetningafélagiö
Félagsvist á laugardaginn kl. 14 í Húna-
búð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Gönguhrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun.
Grænmetismarkaöur í húsi
KFUM og KFUK
Á morgun, laugardag, verður haldinn
grænmetismarkaður f húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg (gegnt Langholts-
skóla). Markaðurinn verður opnaður kl.
14 og rennur ágóðinn til kristniboðs-
starfs íslendinga í Eþíópíu og Kenýu.
Það eru nokkrar konur f hópi kristni-
boðsvina sem standa fyrir markaðinum.
Þama verður seldur ýmiss konar jarðar-
gróði — allt eftir því hvað konunum
tekst að útvega á söluborðin, en þær eru
háðar því hversu kristniboðsvinir og aðr-
ir velunnarar vilja gefa af uppskeru sum-
arsins. Nær allt sem sprettur úr mold og
má leggja sér til munns er vel þegið:
kartöflur, kál, ber, ávextir o.s.frv. Tekið er
á móti því, sem fólk vill leggja fram, f
KFUM-húsinu við Holtaveg í dag, föstu-
dag, kl. 17-19.
Eins og fyrr sagði hefst markaðurinn kl.
14 á laugardag.
Ellefta starfsár íslensku
hljómsveítarinnar aö hefjast
Næstkomandi sunnudag, 20. septem-
ber, kl. 17, efnir íslenska hljómsveitin til
kammertónleika til heiðurs Jóni Þórar-
inssyni tónskáldi, f tilefni af 75 ára af-
mæíi hans 13. september síðastliðinn.
Dagskráin er unnin í samvinnu við Lista-
safn Sigurjóns Ólafssonar og flutt í húsa-
kynnum þess á Laugamestanga. Félagar
úr íslensku hljómsveitinni flytja verk eft-
ir afmælisbamið; Elín Ósk Óskarsdóttir
sópransöngkona og Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir píanóleikari flytja nokkur
þekktustu sönglaga Jóns, og Sigurður I.
Snorrason og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir leika sónötu hans fyrir klarínettu
og píanó. Öllum er heimill ókeypis að-
gangur. Kaffistofa safnsins verður opin
að tónleikum loknum.
Ellefu tónleikar em fyrirhugaðir á ell-
efta starfsári íslensku hljómsveitarinnar,
og kennir þar margra grasa. íslensk tón-
lisL innlendir einleikarar, einsöngvarar
og stjómendur eru í öndvegi líkt og allt-
af áður. Auk ofangreindra verka Jóns
Þórarinssonar verða m.a. á dagskrá tón-
verk eftir Inga T. Lárusson, Atla Heimi
Sveinsson, Misti Þorkelsdóttur, Leif Þór-
arinsson, Hróðmar I. Sigurbjömsson,
Pál ísólfsson og Gunnar Reyni Sveins-
son. Stjómendur verða þeir Guðmundur
Óli Gunnarsson, Hákon Leifsson, öm
Óskarsson og Guðmundur Emilsson.
Verkstjóri óskast
Rafmagnsverkstæði Kaupfélags Ámesinga, Selfossi,
óskar að ráða verkstjóra með meistararéttindi.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri í síma 98-21208
eða 98-21114.
Kaupfélag Árnesinga.
Candice Bergen fékk Emmy-verðlaun I þriðja sinn fyrir að leika hina einstæðu móður, lögfræðinginn
Murphy Brown, sem hefur verið mikill þyrnir I augum Dans nokkurs Quayle, sem kvaö vera varaforseti
Bandaríkjanna og mikill snillingur.
Emmy-verðlaun fyrir
sjónvarpsleiklist
Ted Turner, fjölmiðlakóngur og
eigandi CNN-sjónvarpsstöðvar-
innar, var viðstaddur þegar
Emmy-verðlaunin voru afhent við
hátíðlega athöfn á dögunum.
Emmy-verðlaunin eru veitt fyrir
gerð sjónvarpsleikrita og fram-
haldsþátta, leik, leikstjórn og tón-
list og raunar skemmtiefni í sjón-
varpi af hvers konar tagi.
Ted Turner fór ekki erindisleysu
á Emmy-hátíðina, því að hann var
þar heiðraður fyrir gríðarlega
mikið og gott framlag til
skemmtiefnis í sjónvarpi.
Ted Turner er giftur leikkonunni
Jane Fonda, en hún var ekki með
manni sínum á hátíðinni. Hún
var eitt sinn mikil gella og þykir
enn, enda er hún þekkt leikfimi-
og líkamsræktarmanneskja.
Á litlu myndinni er Jane Fonda í
kvikmyndinni Barbarella, sem
gerð var snemma á sjöunda ára-
tugnum. Þá var hún gift miklum
smekkmanni á konur, franska
kvikmyndastjóranum Roger Vad-
im, en hann hafði áður verið gift-
ur öðrum miklum kvenkosti,
Brigitte Bardot.
Ted Turner sjónvarpskóngur
meö Emmy-verðlaunin sín.
Jane Fonda sem Barbarella.