Tíminn - 02.10.1992, Side 1
Föstudagur
2. október 1992
184. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
Ríkisstjórnin áformar að breikka eignarskattstofninn og taka aliar peningalegar eignir þar inn:
Tillögur um fjármagns-
tekjuskatt frystar
„Hjá ríkisstjómiimi er til athugunar að breikka eignarskattstofn-
inn. Hins vegar hafa menn lagt í ís þá tillögu að taka upp fjármagns-
tekjuskatt. Tillagan um breikkun eignarskattstofnsins gengur út á
það að taka allar peningalegar eignir þar inn. í framhaldi af því era
menn að skoða hveraig þetta kemur út með tilliti til þeirra sem eru
eignamiklir og hins vegar þeirra sem eru eignalitlir," segir Stein-
gímur Ari Arason, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.
Hann segir að tillaga fjármálaráð-
herra miði að því að breikkun eignar-
skattstofnsins verði að lögum fyrir
áramót, en hafi jafnframt ekki áhrif á
álagninguna fyrir en árið 1994. Enn-
fremur mundi þessi breyting gera
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu kleift að ná fram spamaði í
greiðslum lífeyristrygginga. Það er
hugsað þannig að réttur fólks til
greiðslu lífeyris yrði þá ekki einungis
bundin við launatekjur heldur verði
einnig tekið tillit til eignastöðu.
Steingrímur Ari segir að ný könnun
tekju- og lagaskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins á eignum ísíendinga
samkvæmt skattaframtölum ársins
1991, sé einungis talnagrunnur og
síðan eigi eftir að vinna úr niðurstöð-
um könnunarinnar. Samkvæmt
henni eiga 0,5% hjóna tæplega 6% af
heildareign landsmanna og á tíma-
bilinu 1990-1991 jókst hlutabréfa-,
peninga- og verðbréfaeign þessara
hjóna um 3,5 milljarða króna. Þar
kemur einnig fram að 10% hjóna
eiga helming peninga allra hjóna en
90% eiga hinn helminginn. Sé þessi
könnun borin saman við aðra sam-
bærilega sem gerð var í fyrra á fram-
tölum ársins 1990, kemur í Ijós að
hinir efhaðri verða sífellt ríkari á
kostnað hinna efnaminni.
„Það sem síðan þarf að taka afstöðu
til er það hversu langt eigi að ganga í
að lækka prósentuna í eignarskattin-
um og hvort það eigi að hækka frí-
eignarmarkið."
feignarskattinum er almennt 1,2%
þrep, háeignarskattur upp á 0,75%
og þjóðarbókhlöðuskattur upp á
0,25%. Þannig að þeir sem eiga mikl-
ar eignir eru því með 2,2% eignar-
skatt.
Steingrímur Ari segir að allir séu
sammála um það að ástandið í eign-
arskattálagningunni sé mjög slæmt
„Það er ekki aðeins að viðkomandi sé
með svona hátt eignarskattshlutfall
eins og raun ber vitni, heldur mis-
munar það fólki eftir því í hverju
eignimar em fólgnar; steinseypa í
formi fasteigna eða peningar og verð-
bréf.“ -grh
Ástir í undirheimum:
Stolið 23 pörum
af trúlofunar-
hringum
Stolið var 23 pörum af gullhring-
um úr skartgripaverslun við Lauga-
veg á þriðjudaginn. Um var að ræða
trúlofunarhringi. Þjófnaðurinn átti
sér stað á opnunartíma verslunar-
innar. Svo virðist sem þjófurinn
eða þjófamir hafi komist yfir feng-
inn þegar afgreiðslufólk var upptek-
ið annars staðar í versluninni.
FVrr í mánuðinum átti sér stað
svipaður þjófnaður í annarri skart-
gripaverslun við Laugaveg. í því til-
felli var stolið 24 demantshringum
að verðmæti liðlega hálfrar milljón-
ar króna. Þessi þjónaður var fram-
kvæmdur með svipuðum hætti, þ.e.
á opnunartíma verslunarinnar.
Ekki hefur tekist að upplýsa þessi
mál en þau em í rannsókn. -EÓ
KEPPNIN um það hver er sterkastur í heimi hófst í gær. Þegar kraftajötnamir vora niðri í bæ, hugðist
einn þeirra, hinn 500 punda James Perry, tylla sér eitt andartak. Þar fór þó illa því stóllinn var mörg-
um númeram of lítiil, enda vejulegur plaststóll. Jón Páll sóst hér hugreysta kraftakarlinn frá Banda-
ríkjunum. Tímamynd Áml Bjama
Menntamálaráðherra og
bókaskatturinn:
Gæti verið
rétt að
endur-
skoða hann
„Ég get sagt það að ef það er rétt
sem komið hefur fram í ályktunum
ýmissa þeirra aðila sem hafa tjáð
sig um afleiðingarnar sem þessi
samþykkt (ríkisstjómarinnar) hef-
ur þá finnst mér það réttlæta end-
urmat á samþykktinni," segir Ólaf-
ur.
„Það stóð aldrei til svo ég nefiii eitt
dæmi að flytja allt prentverk úr
landi. Það var ekki tilgangurinn
með þessari breytingu. Ef það eru
afleiðingarnar í raun og sannleika
þá sýnist mér það hljóta að hafa í för
með sér endurmat á samþykktinni,"
bætir Ólafur við. Hann segist vera
að bíða eftir gögnum frá fjármála-
ráðuneytinu sem verði lögð fram á
ríkisstjómarfundi á næstunni.
„Ég hef ekki tjáð mig neitt sérstak-
lega um hann (bókaskattinn) að
öðm leyti en því að ég sem ráðherra
í þessari ríkisstjórn er aðili að þess-
ari samþykkt og vík mér ekki undan
ábyrgð á henni,“ segir Ólafur. -HÞ
Meinatæknar hafa snúið til vinnu að nýju:
Allt fast í deilu við röntgentækna
Ekki hefur tekist samkomulag í deilu ríkisms og röntgentækna á
Borgarspítala og Landspítala. Upp úr samningum slitnaði í fyrri-
nótt. Röntgentæknar fallast alls ekki á kröfu stjórnenda spítal-
anna um breytingu á vinnutíma. Meinatæknar á spítölunum hafa
hins vegar snúið aftur til vinnu eftir að gefín var yfírlýsing um að
þeir gætu horfíð af vinnustað áður en dagvinnu er lokið ef engin
verkefni lægju fyrir. Samið var við sjúkraliða í fyrrínótt um breyt-
ingu á vinnutíma gegn 6,2% launahækkun.
í fyrrinótt slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum milli röntgen-
tækna á Borgarspítalanum og full-
trúa Reykjavíkurborgar og ríkis-
ins. Uppsagnir 35 röntgentækna
sem vinna á Borgarspítala og
Landspítala tóku því gildi í gær.
Þegar upp úr samningaviðræðum
slitnaði lágu fyrir drög að kjara-
samningi. Ekki náðist hins vegar
samkomulag um breytingu á
vinnutíma. Röntgentæknar telja
sig hafa gert ráðningarsamning
um að vinna 37,5 tíma á viku, en
stjórnendur spítalanna kannast
ekki við að hafa gert slíkan samn-
ing. Samninganefnd röntgen-
tækna hafnaði viðræðum um
kjarabætur gegn breytingu á
vinnutíma.
Röntgentæknar sinna neyðar-
þjónustu á Borgarspítala og Land-
spítala.
Röntgentæknar á Borgarspítala
sögðu upp störfúm með formleg-
um hætti. Röntgentæknar á Rík-
isspítölunum líta hins vegar á bréf
stjómenda spítalans um breytingu
á vinnutíma sömu augum og
meinatæknar gerðu. Þeir telja að
með bréfinu hafi ráðningarsamn-
ingi þeirra verið sagt upp og því
beri þeim ekki skylda til að mæta
til vinnu. Röntgentæknar telja að
vinnuveitendur geti ekki einhliða
ákveðið breytingar á vinnutíma.
Það sé samningsatriði.
f ályktun frá Röntgentæknafélagi
fslands er lýst fullri ábyrgð á
hendur vinnuveitenda varðandi
brot sem félagið telur að átt hafi
sér stað á kjarasamningi. í álykt-
uninni segir að vinnubrögð
vinnuveitenda í þessu máli hafi
stefnt öryggi sjúklinga í bráða
hættu.
f gær var röntgentæknum boðið
óbreytt vinnufyrirkomulag í einn
mánuð meðan leitað væri lausna á
deilunni, en því var hafnað.
Meinatæknar á Borgarspítala
hættu við að leggja niður störf í
gær eins og þeir höfðu boðað.
Stjórnendur Borgarspítala lýstu
því yfir að yfirmenn á deildum
spítalans geti heimilað þeim að yf-
irgefa vinnustað sinn áður en dag-
vinnutíma líkur ef ekki liggja fyrir
verkefni. Vinnuvikan yrði hins
vegar 40 klukkustundir.
í gærmorgun var meinatæknum
á Ríkisspítölunum boðin sama yf-
irlýsing. Eftir að meinatæknar á
spítalanum höfðu borið saman
bækur sínar féllust þeir á að snúa
aftur til vinnu. Deila meinatækna
og spftalans er þar með leyst.
Igær sinntu meinatæknar á Rík-
isspítölunum neyðarþjónustu.
Samningar tókust í nótt við
sjúkraþjálfara á Borgarspítala, en
þeir eru með svipað vinnufyrir-
komulag og röntgentæknar. Sam-
komulagið gerir ráð fyrir að
vinnutími sjúkraþjálfara lengist
úr 37,5 klukkustundum á viku
upp í 40 stundir. í staðinn fá
sjúkraþjálfarar 6,2% launahækk-
un. - EÓ