Tíminn - 05.11.1992, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 5. nóvember 1992
Tíminn 5
Frá David Keys fornleifafrœðingi, fréttaritara Tímans í London:
Fomleifafræðingar finna
elsta skip Evrópu
Fomleifafræðingar í Bretlandi
hafa nú fundið elsta skip Evrópu.
3000 ára gamalt 17 metra langt
skip fannst 8 metrum undir yfir-
borði jarðar í ensku borginni Do-
ver við Ermarsund. Skipið mun
hafa verið notað sem ferja á for-
sögulegum tímum og flutt vam-
ing og farþega milli Bretlands og
meginlandsins.
Embættismenn við breska Þjóð-
arsjóminjasafnið segja að fundur
skipsins „hafi mikilvæga alþjóð-
lega þýðingu".
„Þetta er best varðveitta skipið frá
bronsöld sem enn hefur fundist í
Evrópu,“ segir Gillian Hutchinson,
safnvörður fornleifadeildar Þjóðar-
sjóminjasafnsins.
Skipið fannst við vegavinnufram-
kvæmdir.
Aðeins eitt annað vel varðveitt
ævafornt skip hefur áður fundist í
heiminum, kaupfar sem kafarar
fundu undan suðurströnd Tyrk-
lands.
Skipið, sem fannst í Dover, er að
öllum líkindum frá 1000 f.Kr., en
kann að vera allt frá því 1500 f.Kr.
Skipinu verður kom-
ið fyrir á ævarandi
sýningu á safninu í
Dover
Skipið er gert úr þykkum tré-
plönkum og var bundið saman
með þræði, sem gerður var úr ýv-
iðar- eða víðitágum. Fyllt var upp í
rifurnar milli þeirra með saman-
pressuðum mosa!
Að mestu leyti verður þessu 2,5 m
breiða skipi forðað frá tortímingu
og því komið fyrir almenningi til
sýnis á Doversafni.
Bronsaldartréskipið, sem hefur
varðveist fullkomlega, stóð á kilin-
um á botni uppþornaðra árósa, þar
sem nú er orðið þurrlendi í mið-
borg Dover.
Það er sennilegt að skipið hafi
Svona hefur skipið, sem nýlega fannst í Dover, litið út árið 1000 f.Kr.
' —vv»Í»VÍm».
w vUUy.M U/ /f i//' ““ 'U^UillLl
«t\ Ur\Íj/‘
Sfíl.
mifoKp
SAMAM MC0 5rölO;iVl
ý\ýlÐAl£TÁöiUM
þV£l?f2>lTAe VO(?V
t/lköcjqmoM
ÞverziKfAM
borið allt að 5 tonn af farmi —
sem gefur tilefni til að álykta að
jafnvel fýrir 3000 árum hafi
verið lífleg viðskipti milli Bret-
lands og meginlandsins.
Fyrir nokkrum árum fundu
kafarar hluta farms eins þess-
ara Ermarsundsbáta rétt fyrir
utan ströndina við Dover — en
ekkert skip! Farmurinn, sem
hefur verið aldursgreindur frá
1200 f.Kr., innihélt 350 hluti úr
frönsku brotajárni — gamlar
axir, brotin sló'lmingasverð og
skemmd verkfæri. Enn er þó
eftir að sjá hvort skipið, sem
nýlega fannst í Dover, hefúr
verið í eigu brotajárnssala á
bronsöld.
ÞOWkOlVGA ÞyicKU^.
TfL HocfoVlN 0R. '
HCLMlMClUOUíVV TK7A
ftOXJJIU .iclcjPopM
SF~líe &\)DlkóNCoO.
AFLS H^Pl ISNC^D
|MS OPPHAF'
i£CA Vteif) 50 fet
IMK l
A/\)(JM EMN
'amötí
ÞdÓDAP'ól&MiNMSAPN
10 HtfOK
'[ Þa£P< MyA/O^^M
Ut6IA)CM VWDA
5>UPlF> HAfiFWiDUT.
Mansal í Jemen
Fomleifafræöingar rannsaka 3000 ára gamla skipiö, sem nýlega
fannst í heilu lagi I Dover.
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent frá
sér bókina Seldl Sönn saga konu í
ánauð eftir Zanu Muhsen og Andrew
Crofts. Guðrún Finnbogadóttir ís-
lenskaði.
Ensku systurnar Zana og Nadia
voru 14 og 15 ára þegar faðir þeirra
seldi þær í hjónaband
til Jemen. Þær áttu
áhyggjulausa bernsku
heima í Birmingham
á Englandi, þegar fað-
irinn bauð þeim í fýrsta sinn á æv-
inni í sumarleyfi til útlanda. Þær sáu
hvergi „sólarstrendur undir pálma-
trjám“, eins og þeim hafði verið lof-
að. Dvölin í Jemen varð skelfileg
martröð. Auðmýkingar, ofbeldi og
nauðganir urðu daglegt brauð eftir
að stúlkurnar voru neyddar til að
giftast piltum í afskekktum þorpum í
Bækur
Jemen — þorpum sem ekki voru
einu sinni til á landakorti. Zana
komst undan eftir átta ára vist í þessu
víti, en neyddist til að skilja eftir son
sinn. Nadia er ennþá fangi í nauð-
ungarhjónabandi í Jemen.
í kynningu Forlagsins segir: „Þessi
áhrifamikla og vel rit-
aða bók hefur vakið
gífurlega athygli um
allan heim. Saga Zanu
er borin uppi af til-
finningahita og viljastyrk unglings-
stúlku sem aldrei lætur bugast. Saga
hennar kallar okkur til samhjálpar
og hún á erindi við alla, enda eru
nauðungarflutningar stúlkubarna til
framandi landa harmsaga sem ís-
lendingar þekkja af eigin raun.“
Seld! Sönn saga konu í ánauð er
239 bls. með mörgum myndum úr
lífi systranna Nadiu og Zanu. Grafft
hf. hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði.