Tíminn - 05.11.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 05.11.1992, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 Askriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaiþróttagallar á frábæru verði. Umboðssala á notuðum bamavðrum. Sendum í póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Símar: 685626 og 689711. VERIÐ VELKOMIN! Bilasala Kópavogs Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi ■ Sflil 642190 Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN Iíniinn FIMMTUDAGUR 5. NÖV. 1992 ASÍ, BSRB, Neytendasamtökin og samtök bænda krefjast þess að þjóðin fái að segja skoðun sína á EES: Samtök launþega og neytenda krefjast þjóðaratkvæðis um EES Talsmenn þjóöaratkvæðis um EES; Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, Haukur Haildórsson, formaður Stéttarsambands bænda, og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. Tímamynd Ámi Bjama Fjögur af stærstu almannasam- tökum á íslandi, ASÍ, BSRB, Stéttarsamband bænda og Neyt- endasamtökin, skora á Alþingi að láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu um EES- samninginn, en Alþingi mun taka afstöðu til málsins í dag. Samtökin benda á að skoðanakannanir sýni að 70-80% þjóðarinnar séu fylgj- andi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þau telja ennfremur að slík at- kvæðagreiðsla muni kalla á um- ræðu í þjóðfélaginu sem muni skýra betur en nú liggur fyrir hvaða þýðingu EES hafi fyrir þjóðina. Þing allra samtakanna fjögurra hafa samþykkt nær einróma að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um EES-samninginn. Þetta þýðir ekki að þau séu á móti samningnum. Hvorki ASÍ, BSRB né Neytendasam- tökin hafa tekið formlega afstööu til samningsins, en Stéttarsambandið hefur hins vegar samþykkt að hafna honum. Þing ASÍ mun taka afstöðu til samningsins í lok mánaðarins, en talsmenn BSRB og Neytendasam- takanna segja að ekki sé fyrirhugað að samtök þeirra taki formlega af- stöðu til EES. „Það er margt í umræðunni um EES sem stangast á og að sumu leyti er það eðlilegt. Bæði fylgismenn og andstæðingar samningsins líta svo á að þetta sé að ýmsu leyti óvissu- ferðalag. Því fer ekki hjá því að það verður aldrei komist að óyggjandi niðurstöðu um öll álitamál. Reyndar er það svo að það sem einn sér sem kost á samningnum sér annar sem löst á honum. Hitt er verra að það er sumt í fullyrðingum um EES sem stangast fullkomlega á og við lítum svo á að slíkar mótsagnir þurfí að skýra. Til að knýja fram þær skýring- ar sé þjóðaratkvæðagreiðsla og um- ræða um hana heppilegasta leiðin," sagði Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB. „Þessi samningur er umdeildur og ég tel það afar veikt að samþykkja þennan samning með mjög tæpum þingmeirihluta. Það er ljóst að mik- ill meirihluti þjóðarinnar vill þjóð- aratkvæðagreiðslu um þennan samning og ég tel það fráleitt ef stjórnmálamenn ætla að hunsa þann vilja," sagði Jóhannes Gunn- arsson, formaður Neytendasamtak- anna. „Við teljum að sú umræða sem yrði undanfari þjóðaratkvæðagreiðslu myndi vera mjög upplýsandi hvað þessi samningur inniheldur. Við höfum orðið varir við að það er eitt og annað í þessum samningi sem er óljóst og menn túlka misjafnlega,“ sagði Haukur Halldórsson, formað- ur Stéttarsambands bænda. í þessu sambandi var vísað til reynslu Dana og Frakka, en mjög mikil og jákvæð umræöa varð um samrunaþróunina í Evrópu þegar Maastricht-sam- komulagið var borið undir þjóðina. Andstæðingar þjóðaratkvæða- greiðslu um EES hafa fullyrt að slík atkvæðagreiðsla muni fyrst og fremst fjalla um pólitískt ástand í dag, þ.e. snúast um stuðning eða andstöðu við ríkisstjórnina. Þessu svararÁsmundur Stefánsson, forseti ASÍ. „Auðvitað blandast pólitík inn í öll stærri þjóðfélagsmál, en hins vegar held ég að ef það væri látin fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál þá myndu menn taka afstöðu til þessa einstaka máls. Ég held að það liggi Ijóst fyrir að afstaðan til EES er skipt innan allra stjórnmálaflokka og nægir að minna á umræður inn- an Kvennalista síðustu daga. Þetta eru kannski enn frekari rök fyrir því að málið fari í þjóðaratkvæða- greiðslu. Ég held að það væri síðan rangt af stjórnmálamönnum að fara að draga einhverjar aðrar pólitískar ályktanir af niðurstöðu í slfkri at- kvæðagreiðslu," sagði Ásmundur. Ögmundur tók undir þetta og sagði að hefðbundin skipting þjóðarinnar í stjórn og stjórnarandstöðu eigi ekki við í þessu máli. Menn myndi sér skoðun á EES eftir eigin sann- færingu miklu frekar en flokkslín- um. Fram kom í máli fjórmenninganna að þingmönnum bæri að taka alvar- lega þegar fulltrúar frá stærstu al- mannasamtaka í landinu sameinast um að krefjast þjóðaratkvæðis um EES-samninginn. -EÓ ...ERLENDAR FRÉTTIR... WASHINGTON Clinton óskað gæfu og gengis Heillaóskirnar streymdu til Arkansas eftir að Bill Clinton hafði unniö for- setaembaettiö af George Bush meö þvi aö lofa langþreyttum Bandarikja- mönnum nýjum tímum. Bill Clinton er fyrstur demókrata til að setjast i for- setastólinn I 16 ár, en hann vann Ge- orge Bush meö vænum meirihluta meö því aö lofa nýjum aögeröum i efnahagsmálum. Bandarikjamenn eru þekktir aö þvl aö vera slakir viö aö kjósa en kjörsókn nú var sú mesta í áratugi. EVRÓPA Gengisbreytingar í kjölfar forsetakosninga í BNA Gjaldeyrismarkaöir í Evrópu sýndu dauf viöbrögö viö sigri Clintons sem viöast haföi veriö vænst. Dollarinn reis I Aslu en féll aftur I Evrópu á meöan fjárfestar biöu viöbragöa markaösins í New York. Veröbréfa- markaöir I Evrópu sýndu varla nokkur viöbrögö viö kosningaúrslitunum og virtust einbeita sér aö eigin vanda- málum. MIÐAUSTURLÖND Misjafnlega brugðist við Clinton Israelar fögnuöu sigri Clintons ákaf- lega en Palestínuarabar höföu allan vara á vegna yfirlýsinga Clintons i baráttunni um stuöning viö Israela og arabar óttast aö friöarviöræöur í Miöausturlöndum kunni aö hægja á sér I kjölfar kosningaúrslitanna. LONDON Major kokhraustur John Major, forsætisráöherra Bret- lands, hélt þvi fram i gær aö hann myndi sigra kosningar i þinginu um Evrópumálin eftir aö uppreisn innan hans eigin flokks haföi veikst en hún heföi getaö leitt til afsagnar Majors. BRUSSEL Evrópubandalagið í hættu Talsmenn Evrópubandalagsins í Brussel lýstu þvi yfir aö hætta væri á klofningu meöal hinna 12 þjóöa bandalagsins ef breska þingiö greiddi atkvæöi gegn sameinaöri Evrópu. AMSTERDAM Hollendingur næsti forseti EB? Jacques Delors segir aö hollenski for- sætisráöherrann, Ruud Lubbers, sé rétti maöurinn til aö taka viö af honum sem forseti Evrópubandalagsins þeg- ar valdatímabili hans lýkur áriö 1994. BELGRAD Panic sleppur fyrir horn Alþjóölegar tilraunir til að koma á friöi i Bosníu komust aftur á skriö eftir Mil- an Panic, forsætisráöherra Júgóslav- iu, komst naumlega hjá vantraustsyf- irlýsingu og Serbar í Bosniu ákváöu aö sitja áfram viö samningaboröið. LISBON Bardagar í rénum Síöustu átök milli stjórnarliöa í Angóla og andspyrnumönnum UNITA virtust nánast fjara út og teikn eru á lofti um áframhaldandi viöræöur. ACCRA Rawlings áfram við völd Leiötogi Ghana, Jerry Rawlings, hef- ur tekiö áberandi forystu I fyrstu for- setakosningum sem haldnar hafa veriö frá þvi hann komst til valda áriö 1981. Eftir aö úrslit voru Ijós i 77 af 200 kjördæmum landsins sást aö Rawlings haföi hlotiö 52% atkvæöa gegn 35% helsta keppinautarins, söguprófessorsins Albert Adu Boa- hen. NICOSIA Bandarískur fangi í íran Iranir segjast hafa tekiö bandariskan mann, Milton Mayer, til fanga, sakaö- an um ólögleg viöskipti og tengsl viö starfsemi erlendra leyniþjónusta. DENNI DÆMALAUSI „Allirað horfa núna og ekki missa afneinu. Wilson brosir rétt strax. “

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.