Tíminn - 05.11.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 5. nóvember 1992
Timinn 7
„ Upphaf nýrra tíma “ er fyrirheit Bills Clinton sem hefur verið Ig'örinn 42. forseti Bandarílganna:
Bandaríkin hafa snúið
frá Reaganbyltingunni
Bill Clinton, sigurvegari Demókrataflokksins um æðsta embætti Banda-
ríkjanna sem repúblikanar höfðu verið einráðir um í 16 ár samfleytt,
sagðist ekki hafa minna í hyggju en „upphaf nýrra tíma“ í Bandaríkjun-
um þegar ljóst var að ríkisstjórinn í Arkansas hafði verið kjörinn 42. for-
seti Bandaríkjanna í gær, aðeins 46 ára að aldri og fyrsti kosni Banda-
rílq'aforseti sem fæddur er eftir síðari heimsstyijöld.
„Kæru landar. í dag hefur banda-
ríska þjóðin valið í bjartri von, með
djörfung og fjöldaþátttöku að hefja
nýjan þátt í sögu sinni," sagði
hann síðdegis í gær. í ávarpi til
fagnandi stuðningsmanna í Little
Rock, höfúðborg Arkansas, bar
hann lof á stuðningsmenn sína
sem hefðu myndað óvenjulegt
bandalag í baráttu fyrir breyting-
um. Hann ákallaði líka stuðnings-
menn repúblikanans Georges
Bush sem enn situr í embætti, og
þá sem veittu hinum óháða Ross
Perot stuðning sinn, um að taka
þátt í því að koma á nýjum tímum
í Bandaríkjunum.
370 kjörmenn Clin-
tons í 33 ríkjum
Kosningarnar snerust um efna-
hags- og atvinnumál. Loforð Clin-
tons um að koma fram með nýjar
hugmyndir og að binda enda á 12
ára efnahagsstefnu repúblikana
urðu til að vinna honum stórsigur
í vali kjörmanna, hann hlaut alls
370 kjörmenn í 33 ríkjum, Bush
168 í 18 ríkjum og Perot fékk eng-
an kjörmann.
Kosningabaráttuna byggði Clin-
ton á því að taka sér forystuhlut-
verk meðal nýrrar kynslóðar Am-
eríkana og hann varð næstum að
láta í minni pokann fyrir árásum á
persónuleika hans, kynlíf og
hvernig hann komst hjá herskyldu
í Víetnamstríðinu.
Bush hafði ráðist stöðugt á Clin-
ton í kosningabaráttunni og sagði
hann mann sem vantaði skapfestu
og væri ekki treystandi til að valda
forsetahlutverkinu, en viður-
kenndi kurteislega ósigur sinn
þegar fyrir lá að Bill Clinton hefði
hreppt hnossið.
„Svona lítum við á og þjóðin ætti
líka að líta þannig á þetta. Þjóðin
hefur látið álit sitt í ljós og við ber-
virðingu fyrir lýðræðinu,"
um
sagði Bush, sem orðinn er 68 ára,
við vonsvikna stuðningsmenn í
heimaborg sinni, Houston.
Hann sagðist hafa hringt í Clin-
ton til að óska honum til hamingju
og heita því að valdaskiptin yrðu
hnökralaus.
Samkvæmt stjórnarskránni verð-
ur Clinton settur inn í embætti 20.
janúar nk.
„Clinton háði sterka kosningabar-
áttu. Ég óska honum alls hins
besta í Hvíta húsinu," sagði Bush.
Þegar hann gekk af sviðinu sneri
hann sér að konu sinni, Barbara,
og sagði: Þetta er búið.
Þátttaka Perots færði
Clinton sigurinn
í kosningunum í gær fengu Clin-
ton og meðframbjóðandi hans A1
Gore, öldungadeildarþingmaður
frá Tennessee, meirihluta atkvæða
eingöngu vegna þátttöku Perots.
Perot, milljarðamæringurinn frá
Texas, eyddi meira en 60 milljón-
um dollara af eigin fé til að leggja
áherslu á að embættismenn ríkis-
valdsins væru þjónar fólksins en
ekki öfugt.
Perot hafði eins og Bush spáð
sjálfum sér sigri þrátt fyrir að
skoðanakannanir fýrir kosningar
sýndu að hann myndi tapa og hann
staðfesti að hann er einn sterkasti
óháði forsetaframbjóðandinn sem
fram hefur komið í sögunni í
Bandaríkjunum.
Tálið var að hann hefði hlotið um
13 milljónir atkvæða, samanborið
við 32 milljónir Clintons og 28
milljónir sem Bush hlaut, gott
meira en þau 10 milljón atkvæði
sem kynþáttaaðskilnaðarsinninn
George Wallace fékk 1968. Og 19
prósentin sem hann fékk eru mun
meira en nokkur annar óháður
frambjóðandi hefur fengið, nema
Teddy Roosevelt, sem fékk 27% at-
kvæða sem framfarasinnaður
frambjóðandi 1912.
Margir Bandaríkjaforsetar hafa
Hin nýju forsetahjón Bandarfkjanna eru þau fyrstu í sögu landsins
sem fædd eru eftir síöara stríö. Hér eru þau Hilary og Bill á kosn-
ingaferðalagi fyrir nokkrum vikum.
tekið við embætti án þess að hafa
meirihluta atkvæða bak við sig og
þar á meðal má telja John Kennedy
og Richard Nixon. Clinton nýtur
bæði mikils yfirburðasigurs í
kosningunum og samstarfs við
sterkan meirihluta demókrata á
þingi.
Við sigur hans komst aftur til
valda í Hvíta húsinu flokkur sem
aðeins hefur ráðið þar ríkjum í
fjögur ár af undanförnum 24 ár-
um. Og þessi sigur markaði meiri
stórbreytingu á pólitískum vett-
vangi en orðið hefur í Bandaríkj-
unum frá því 1980 þegar síðasti
demókrataforsetinn Jimmy Carter
laut í lægra haldi í hægri sinnaðri
byltingu sem feykti Ronald Reagan
í forsetastólinn með Bush sér við
hlið.
í reynd voru Bandaríkjamenn í
gær að kveða upp sinn dauðadóm
yfir Reagan-byltingunni.
Clinton verður þriðji yngsti for-
seti Bandaríkjanna frá upphafi.
Hann ólst upp, föðurlaus og í fá-
tækt í Hope, Arkansas, en gerðist
forystumaður Demókrataflokks
sem hefúr gengið í endurnýjun líf-
daganna. Hann er jafnnæmur á
óskir viðskiptalífsins og verð-
mætamat aímennings og það
hvernig virkja megi ríkisvaldið til
hjálpar fólkinu.
í kosningabaráttunni lagði Bush
áherslu á traust og persónuleika
en Clinton hélt sig fast við það að
nauðsynlegt væri að koma fram
með nýjar hugmyndir til að lyfta
efnahag þjóðarinnar upp úr lægð-
inni.
Óánægðir kjósendur gengu til
kjörborðsins fleiri en nokkru sinni
fýrr og voru augsýnilega á sama
máli og Clinton. Þar með varð
Bush fýrstur kosinna forseta repú-
blikana eftir Herbert Hoover sem
ekki hefur náð endurkosningu til
annars kjörtímabils.
Efnahagsvandi og at-
vinnumál aðalmálin í
augum kjósenda
Skoðanakannanir meðal kjósenda
á kjörstöðum um allt land sýndu
að efnahagsmál og atvinnumál eru
langmikilvægustu málefnin í aug-
um þeirra, og því næst áhyggjur
vegna fjárlagahallans og heilsu-
gæslumála, en þetta voru einmitt
þau þrjú atriði sem Clinton lagði
linnulaust áherslu á alla þá 13
mánuði sem hann sóttist eftir for-
setaembættinu.
Næstum 80% þeirra sem svöruðu
í könnunum álitu efnahagsmálin í
megnasta ólagi og 65% voru
óánægð með hvernig Bush hefði
tekið á þeim vanda.
Atriði eins og persónuleiki fram-
bjóðanda, traust og gildi fjölskyld-
unnar, sem Bush lagði hvað mesta
áherslu á, snertu lítið við kjósend-
um.
Táp Bush leiðir til valdabaráttu
innan flokks hans, Repúblikana-
flokksins. í húfi er hugmynda-
fræðileg stefna flokksins og hvern-
ig standa skuli að næstu kosninga-
baráttu um forsetaembættið að
fjórum árum liðnum.
Kjósendabylgjan sem tryggði
Clinton sigur, breytti líka samsetn-
ingu þingsins þó að báðar deildir
þess haldi áfram að lúta öruggum
meirihluta demókrata og nú held-
ur flokkurinn um valdataumana
við báða enda Pennsylvania Av-
enue í fýrsta sinn síðan 1980.
Kjördœmisþing framsóknarmanna á Vesturlandi:
Ríkisstj ómin fari frá og
efnt verði til kosninga
Kjördætnisþing framsóknarmanna á Vesturlandi sem haldið var um síðustu
helgi telur að skapa verði undirstöðuatvinnuvegum landsins bætta rekstr-
arstöðu, m.a. með lækkun tilkostnaðar, svo sem vaxta, orkuverðs og niður-
fellingar aðstöðugjalds, enda verði sveitarfélögunum tryggðar tekjur til að
bæta upp tekjumissi vegna aðstöðugjaldsins. Lögð er áhersla á að við þessa
aðgerðir verði auknum álögum beint að hátekjufólki, en kaupmáttur hinna
lægst launuðu verði varinn.
„Kjördæmisþingið mótmælir
gjaldþrotastefnu ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
sem hefur leitt til stórfellds at-
vinnuleysis og fátæktar alþýðu
manna og að í þess stað verði tekið
upp á ný blandað hagkerfi og á
þann hátt verði núverandi kerfi
óheftrar og miskunnarlausrar
frjálshyggju kveðið niður. Leiðin út
úr vandanum er að núverandi rík-
isstjórn fari frá og fram fari kosn-
ingar til Alþingis sem fýrst," segir í
ályktun sem samþykkt var á þing-
inu.
Þingið krafðist þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild Islands að EES
og ítrekaði að fylgja verði fast eftir
þeim fýrirvörum sem framsóknar-
menn hafa sett varðandi samning-
inn um Evrópskt efnahagssvæði.
Þingið lýsti sig jákvætt gagnvart
hugmyndum um að koma á fót
„reynslusveitarfélögum" ef íbúar
þeirra samþykkja hugmyndina.
Jafnframt lagði þingið áherslu á að
sameining sveitarfélaga verði ekki
framkvæmd með valdboði og í and-
stöðu við vilja íbúa einstakra sveit-
arfélaga. Jafnframt var lögð áhersla
á að sveitarstjórnarstigið verði eflt.
Þingið var vel sótt. Framsögu-
menn voru Ingibjörg Pálmadóttir
alþingismaður Halldór Ásgríms-
son, varaformaður Framsóknar-
flokksins, Valgerður Sverrisdóttir
alþingismaður og Erna Bjarnadótt-
ir landbúnaðarhagfræðingur. -EÓ
BORNIN
HEIM!
ALMENN FJÁRSÖFNUN 2.-15. NÓV. 1992
STONDUM SAMAN OG SYNUM VIUANN í VERKI!
Prátt fyrir rúmlega tveggja ára þrotlausa baráttu, hefur hvorkl gengib né reklö
i því aö ná börnunum Dagbjörtu og Rúnu helm frá Tyrklandl. Margir hafa lagt
málinu 110 og sýnt vlljann I verkl, en betur má ef duga skal. MeO samstllltum
stuOnlngl fslensku þjóOarinnar má lelOa þetta erflOa mál tll farsælla lykta. VIO
skulum öll eiga okkarþátt Iþvi aO réttlætiO slgrl aO lokum.
Hægt er aö grelöa framlag meO greiöslukortl. Hafiö kortiö viö höndlna þegar
þér hrlnglö. Elnnlg er hægt aö grelöa meö gíróseöll sem sendur veröur helm.
SÖFNUNARSÍMI:
a wh,, mm
MM WM WM
w& JfflM 81
i í:v V
ám.
mJm
m W
ml
jf
B
éá
ÍV'v'v';- -w m bb mm
VinaUl
VIÐ ERUM VIÐ SIMANN KL. 10-22.
Fjórgæsluaðili: Landsbanki Íslands.
Samslarfshópurinn.