Tíminn - 12.11.1992, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.11.1992, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 12. nóvember 1992 Tíminn 7 Drífa Sigfúsdóttir: „ Viljum fá svar viö þvf hvort tillagan um frísvæðiö telst raunhæf eöa ekki. “ nmamynd: pjetur r „I anda þess sem við óskuðum „Ég fagna því að sértækar ráðstaf- anir virðast loks í sjónmáli hvað Suðumesin snertir, vegna þess ástands sem nú ríkir hér,“ sagði Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjar- stjómar í Keflavík, í samtali við blaðið þegar við ræddum við hana nýframkomnar hugmyndir um sjóðstofnun á vegum íslenskra Aðalverktaka og heimamanna á Suðuraesjum til viðréttingar at- vinnulífinu.,Aðeins hér í Keflavík eru 230 manns á atvinnuleysis- skrá,“ sagði Drífa enn, „og á skrá hafa verið um og yfír 200 manns það sem af er árinu. Þaraa hefur því verið um varanlegt ástand að ræða og þá einkum meðal kvenna, en 11% kvenna hér eru atvinnu- lausar." í anda þess sem óskað var eftir „Við Suðumesjamenn höfðum sem kunnugt er gengið á fund ráðamanna og óskað eftir sértæk- um ráðstöfunum fyrir svæðið. Þannig hitti stjóm Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum for- sætisráðherra að máli fynr nokkru, en því miður var óskum okkar þá háfnað. Þess vegna hlýt ég að fagna þeirri áherslubreytingu, sem núna hefúr orðið vart, því hún er í anda þess sem við fómm fram á. Við báð- um forsætisráðherra einmitt um að stofnaður yrði sérstakur sjóður, sem hefði það meginhlutverk að stuðla að atvinnuþróun hér og veitti atvinnulífinu stuðning. í atvinnumálum okkar beinast augu manna fyrst og fremst að því að vernda þá atvinnustarfsemi, sem fyrir er, og þá einkum í sjávar- útveginum, því sjávarútvegsstörfin skapa svo mörg störf til hliðar við greinina. í öðm lagi viljum við hrinda af stað þróunarstarfi, sem skapa mundi ný störf í stað þeirra, sem ekki em lengur fyrir hendi, og á ég þá ekki síst við þau störf sem lögð hafa verið niður á Keflavíkur- flugvelli. í þriðja lagi viljum við skoða þjónustustörf og má þar á meðal nefna byggingu D-álmu við Sjúkrahús Keflavíkurlæknishér- aðs. Á slíkum aðgerðum er einmitt þörf núna, því þær mundu þýða mörg viðbótarstörf fyrir konur. Á sjúkrahúsinu em nú allar stoð- deildir fyrir hendi og ekki vantar annað en rúmin. Sjúkrahús Kefla- víkurlæknishéraðs er nú eina sjúkrahúsið á landinu þar sem fyrir hendi er heildstæð áætlun um það hvernig rekstrinum skuli hagað og þar á meðal hver starfsmannafjöld- inn verði. Að öðm leyti er kjami þessa máls sá að í stað þess að við þurfum nú að flytja fjölda sjúklinga til Reykjavíkur, viljum við fá að hjúkra þeim hér heima.“ Fleirí leiðir „Þá hef ég hugmyndir um fleiri leiðir til úrbóta, eins og að starf- semi Landhelgisgæslunnar verði flutt til Suðumesja. Enn tel ég sjálfsagt að rekstur Keflavíkurflug- stöðvarinnar verði tekinn til ræki- legrar endurskoðunar. Flugstöðina vildi ég láta reka sem sérstakt fyrir- tæki og markaðssetja þá þjónustu sem þar fer fram. f framhaldi af því þyrftu svo að koma til reglur um að eftir“ Rœtt við Drífu Sigfúsdóttur, forseta bæjarstjórnar i Keflavik, um stofnun sjóðs til atvinnu- uppbyggingar og áform heimamanna um ný úrrœði Suðurnesjamenn njóti forgangs til allrar vinnu og undirverktakastarf- semi á Keflavíkurflugvelli meðan núverandi ástand ríkir. Ég get ekki skýrt frá öllu því sem við nú ræðum í bæjarstjóm Kefla- víkur, en ligg ekki á því að við erum með mörg jám í eldinum. Ýmsir hafa haft samband við okkur sem áhuga hafa á rekstri hér og þar á meðal em þrír aðilar, sem óskað hafa eftir leyfi til útflutnings héðan á ferskfiski — bæði til veitingahúsa og á erlenda fiskmarkaði. Em menn þá með í huga þau ákvæði í samningnum um Evrópskt efna- hagssvæði sem fela í sér niðurfell- ingu á tollum á fiski. Allmörg fyrir- tæki em semsé byrjuð að undirbúa sig þama. Óskylt efni, en sem þó horfir einnig til uppbyggingar, em áform er tengjast Bláa lóninu. Þar ættu að geta skapast mörg störf. Suðurnesjamenn munu ekki láta sitt eftir liggja að taka þátt í því átaki, sem stofnun sjöðsins er, og það hafa bæjar- og sveitarstjómir þegar sannað. Til dæmis hefúr bæj- arsjóður Keflavíkur stofnað kvóta- kaupasjóð og keypt kvóta fyrir um 20 milljónir og ég álít það skyn- samlega fjárfestingu, er muni skila sér fljótt og vel. Einnig höfum við lagt hlut í fyrirtæki í bænum og á ýmsan hátt stuðlað að minnkun at- vinnuleysisins, svo sem með sum- aratvinnu skólafólks, en til hennar var varið átta milljónum sl. sumar. Þá skal ekki látið hjá lfða að geta um að Keflavíkurbær hefúr nú samþykkt að kaupa hlutafé SÍS í Stakksvík, sem áður var Hrað- frystihús Keflavíkur. Þar starfa fáir nú f bili, en við horfúm til bjartari tíma og þá ekki síst í ljósi þess áhuga á ferskfiskútflutningi héðan, sem ég gat um. Þá var mikilsverður stuðningur í því fólginn er okkur barst nú fyrir helgina styrkur frá Atvinnuleysis- tryggingasjóði, sem mun verða notaður til þess að fiármagna all- mörg ný störf. Þar er um að ræða störf sem að sjálfsögðu er skilyrt að verði utan samkeppni við aðra at- vinnustarfsemi hér.“ Svör þegar í stað „En atvinnuástandið er eftir sem áður alvarlegt og að endingu vil ég koma að þeirri ósk okkar sem vak- ið hefur þjóðarathygli, en hún er sú að Keflavíkurbær verði gerður að frísvæði. Ríkisstjómin hefur haft þetta erindi til meðferðar frá því í sumar, en ekki skilað því af sér. Ég vil nú fá svar við því hvort þessi tillaga okkar um frísvæðið teljist raunhæf eða ekki og að þetta hætti að velkjast í kerfinu. Við í stjóm Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum höfum að auki sent utanríkisráðneytinu ósk um að skipuð verði samstarfsnefnd hér að lútandi. Henni hefur ekki heldur verið svarað, og við emm vissulega orðin óþolinmóð. En þrátt fyrir núverandi örðug- leika er ég bjartsýn en ekki svart- sýn á framtíð atvinnumálanna. Auðvitað á stofnun þessa nýja sjóðs sinn þátt í því, en það sem einkum eykur mér bjartsýni er vitundin um hve ötullega er starfað að leit nýrra úrræða og hve mörg jám við þegar höfum í eldinum." AM Veldur þungt Bömum á skóladagheimili stafar hætta vegna aðkeyrslu við sölutum á Langholtsvegi, að áliti m.a. foreldrafélags Langholtsskóla. Málið er búið að veltast um langt skeið í borgarkerfínu frá borgarstjóra til nefnda og emb- ættismanna borgarinnar. „Þetta er aUt svona pínulítið mál þar sem bannað er að keyra upp á eina gangstétt af því að það skapar hættu fyrir börn,“ seg- ir Margrét Sæmundsdóttir, sem sæti á í Umferðaraefnd af hálfu Kvenna- listans. Henni fínnst að það ætti að vera hægt að leysa það bæði fljótt og vel. Margrét segir að fyrst hafi for- stöðukona skóladagheimilis við Langholtsveg sent Umferðamefnd bréf. Þar bendir hún á mikla slysa- hættu á skólaleið bama á aldrinum 6 til 9 ára við Langholtsveg, nánar tiltekið við Sunnutorg. í bréfinu kemur fram að leið barnanna, sem þurfa að ganga í og úr skóladag- heimilinu, liggur framhjá söluturni þar sem eigandi hans hefur fengið leyfi til eins konar hringaksturs í kringum verslunina til að auðvelda bifreiðum aðgang að sölulúgu. Til að komast þessa leið þurfa bifreiða- stjórar að aka yfir gangstétt og jafn- framt að leggja á henni í bið eftir af- greiðslu. Margrét segir að þetta þýði að böm þurfi að vara sig á bifreiðum frá mörgum sjónarhomum, þegar þau leggja Ieið sína í og úr skóladag- heimilinu. Biðstöð strætisvagns er einnig við verslunina og eiga farþeg- ar erfitt með að nota hana, þar sem bifreiðar hefta aðgang að henni. Þama þurfa skólaböm oft að bíða eftir vagni á leið sinni í skólasund og em þá í hættu, að áliti Margrétar. „Þetta er algjörlega ólöglegt," segir Margrét. Hún segist hafa tekið und- ir sjónarmið forstöðukonu skóla- dagheimilisins þegar hún sendi Um- ferðamefnd bréf. Það kom henni samt verulega á óvart þegar málið var fellt í nefndinni með þeim orð- um að þessi staður væri ekkert hættulegri en margir aðrir. Þessari niðurstöðu segir Margrét að for- stöðukonan hafi átt erfitt með að kyngja, þar sem hún telur sig bera ábyrgð á börnunum á leið í og úr skóla. Margrét segist hafa ráðlagt henni að leita til borgarstjóra með þetta erindi. „Hann vísar henni á aðstoð- kerfi ekki litlu máli? Sölutuminn og aökeyrslan viö Sunnutorg, sem um ræöir f greininni. vmamynd: Arm Bjama arborgarverkfræðing, sem ætlar að kanna málið en gerir ekkert. Það líð- ur og bíður og að endingu sendir foreldrafélag Langholtsskóla emb- ættismanninum bréf um úrlausn málsins, en ekkert gerist," segir Margrét. í framhaldi af því leitaði forstöðu- konan til Umferðarráðs með röð af myndum þar sem hún sannar mál sitt. Margrét býðst til að taka málið fyrir á ný í Umferðamefnd. Það sést glöggt á myndum að mikil hætta stafar af fyrirkomulagi við sölutum- inn. Borgarskipulag lætur taka myndband af þessu svæði þar sem sömu hættur koma fram. Þá var málinu frestað til skoðunar umferð- ardeildar borgarinnar, að sögn Margrétar. Hún segir að gatnamálastjóri hafi í skriflegu svari sagt að aldrei hafi verið veitt leyfi fyrir þessari inn- keyrslu. Hún hefur eftir honum að líklega hafi einhver borgarstarfs- maður gert þetta í leyfisleysi fyrir 15 árum. Margrét álítur sig geta sýnt fram á það að þetta sé brot á 4. gr. umferð- arlaga. Þar segir að lögreglustjóri og veghaldari skuli í samráði við við- komandi skólayfirvöld gera ráðstaf- anir til að vernda börn gegn hættum í umferðinni á leið þeirra til og frá skóla. Hún segir að þrátt fyrir að gatna- málastjóri hafi tekið undir rök sín, hafi málinu aftur verið frestað til þess að skrifstofustjóri borgarverk- fræðings geti skoðað málið. Þar er málið statt í borgarkerfinu. -HÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.