Tíminn - 18.11.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.11.1992, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 18. nóvember 1992 192. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Sjómenn gegn fjölgun skattþrepa í tekjuskatti. Oskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins: Allt í þoku nema auknar skattaálögur Ríkisstjórnin ieggur til að 900 ára gömul embætti hreppstjóra verði lögð niður um áramót: Verða engir hreppstjórar á íslandi eftir áramót? Á næstu dögum verður lagt fram frumvarp á Alþingi sem felur í sér að embætti hrepp- stjóra verða lögð niður og verk- efni þeirra flutt til annarra í stjómkerfinu. Miðað er við að Iögin taki gildi um áramót ef þau verða samþykkt. Launa- kostnaður ríkisins vegna hrepp- stjóra er um 18 milljónir á árí og er vonast eftir að með frum- varpinu nái ríkið að spara stærstan hluta þeirrar upphæð- ar. Embætti hreppstjóra eru Iík- lega elstu embætti hér á landi. Orðið hreppstjóri kemur fyrst fyrir svo vitað sé í tíundarlaga- þætti frá árinu 1096. Frá árinu 1809 hafa hreppstjórar verið rfk- isstarfsmenn. Að sögn Ara Edwald, aðstoðar- manns dómsmálaráðherra, er frumvarpið um afnám embættis hreppstjóra allviðamikil laga- smíð. í mjög mörgum lögum er vikið að hreppstjórum og verk- efnum þeirra. Hann sagði að frumvarpið gerði ráð fyrir að lögreglumenn taki yfir lög- gæsluþátt hreppstjóraembætta. Héraðsdýralæknar og sveitar- stjóm taki yfir nokkur verkefni og önnur séu hreinlega felld niður. Ari sagði að ein af ástæðunum fyrir því að ákveðið var að fara út þessa breytingu sé að með henni náist fram spamaður. Sparnað- urinn sé reyndar ekki mikill því að árslaun hreppstjóra séu inn- an við 100 þúsund á ári. Ari benti á að verið sé að efla sýslu- mannsembættin og gera kostn- aðarsamar breytingar á dóm- stólakerfinu. Á sama tíma sé lagt að dómsmálaráðuneytinu að spara. Hreppstjórar á landinu eru um 200. -EÓ Óskar Vigfússon, _ formaður Sjómannasambands íslands og fulltrúi í miðstjórn Alþýðusam- bands íslands, segir að þær hugmyndir sem ræddar hafa verið til bjargar sjávarútvegin- um séu þokukenndar. Hann segir að það sé ekkert fast í hendi annaað en auknar skatta- álögur á launafólk sem nemur þeim níu milljörðum sem ætl- unin er að iétta af fyrirtækjum og færa yfir á almenning. Formaður Sjómannasambandsins segir ennfremur að það sem lagt hefur verið upp varðandi lausn á vanda sjávarútvegsins gangi ekki nægilega langt og séu ekkert annað en skyndiplástrar. Hann er jafnframt þeirrar skoðunar að þrátt fyrir að launafólk taki á sig þessar níu millj- arða króna álögur þá muni það fyrr eða síðar fá gengisfellingu í haus- inn. Óskar segir að það sé hið mesta óráð að ætla sér að fjölga skattþrep- um í útreikningi tekjuskatts með svonefndum hátekjuskatti og minn- ir á ályktun þess efnis frá nýafstöðnu þingi Sjómannasambandsins. Þar kemur m.a. fram að staðgreiðslu- kerfi skatta hafi verið mikill ávinn- ingur fyrir sjómenn en verði skatt- þrepum fjölgað sé óhjákvæmilegt að verulegur hluti skattanna verði greiddur eftir á eins og var í gamla kerfinu. En það bitnaði oft illa á sjó- mönnum sökum sveiflukenndra tekna. Hann segir að sá fjöldi sem getur skammtað sér laun muni sleppa við hátekjuskattinn en hinir ekki. Það sé því verið að hengja bak- ara fyrir smið verði þessi leið farin. En það er ekki aðeins að það sé andstaða gegn fjölgun skattþrepa meðal félaga í Sjómannasamband- inu heldur einnig hjá Farmanna- og fiskimannasambandi íslands. Á ný- afstaðinni formannaráðstefnu þess á Norðfirði var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er þeirri hugmynd að bæta við nýjum skattþrepum sem muni koma afar illa við yfirmenn vegna skattgreiðslna eftir á. Þessu til viðbótar má benda á að Konráð Alfreðsson, formaður Sjó- mannafélags Eyjafjarðar, greiddi at- kvæði gegn því að hátekjuskattur- inn yrði hafður með í ályktun Al- þýðusambands Norðurlands um síð- ustu helgi og vitnaði í því sambandi til áðurnefndrar ályktunar frá þingi Sjómannasambandsins. -grh ER JÓLABÓKIN í ÁR „JÁRNSÍÐA “ MADONNU? Þessi jólasveinn í glugga hljómplötuverslunar einnar í Reykjavík virðist draga á eftir sér hlass af hinni frægu málmslegnu myndabók „kynlífsfrelsarans" Madonnu poppsöngkonu frá Bandaríkjunum. Hvort bókin verði jólabókin í ár er hins vegar önnur saga. Tímamynd Ami Bjama Síðasta fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar sannar sig sem sýndarfjárhagsáætlun: Borgin slær þýskt bankalán upp á 2,3 milljarða króna Borgarráð Reykjavíkur heimilaði á fundi í gær að borgarsjóður taki lan hjá þýskum banka; West-Deutsche Landesbank á grund- velli óformlegs tilboðs bankans frá því t síðasta mánuði. Lánið er að upphæð 40 milljónir Bandaríkjadaia eða ríflega 2,3 milljarðar króna. Lánið, sem er nálægt því að vera jafnhátt og fjórðungur tekna borgarsjóðs á þessu ári, verður afborgunariaust fyrstu tvö árin, en greiðist síðan tneð 11 jöfttum afhorgunum. Með þessari lántðku er stefnt að því að brúa bil milli tekna og gjaida borgarsjóðs á yfirstandandi fjár- hagsári og koma í veg fyrir að framkvæmdir á vegum borgar- innar dragist saman á næsta ári, að því er segir í minnísblaði með umsókninni til borgarráðs und- irrituðu af Eggert Jónssyni borgarhagfræðingi og Jónl G. Tómassyni borgarlögmanni. í minnisblaði þeirra kemur elnnig fram að ástæða til lántök- unnar séu yfírdráttur borgarinn- ar hjá Landsbankanum sem nú nemur um 2,5 milfjörðum króna. Af láninu eigi að verja 1155 miiljónura kr. tll að greiða hann niöur. Þá séu tekjur borg- arsjóðs 500 milljónum fer. minni en áætlun gerði ráð fyrir. Enn- fremur hafi ráðstafanir í at- vinnumálum kostað 350 millj- ónir, rekstrargjöld hefðu verið 150 milljónlr umfram áætlanir og autón lánsfjárþörf bílastæða- sjóðs hefði ttumið 155 miHj. kr. „Þetta staðfestír það sem ég og fleiri fulltrúar minnlhlutans sÖgðu við umræður um núver- andi fiárhagsáætlun horgarinn- ar, að hún væri sýndaráætlun sem ektó gæti staðist Það hefur nú komib á daglnn,“ sagði Sig- rún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, í gærkvöldi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.