Tíminn - 18.11.1992, Síða 8
8 Tfminn
Miðvikudagur 18. nóvember 1992
Grágás, lagasafn
þjóðveldisins, í
vandaðri útgáfu
Mál og menning hefur gefið út bók-
ina Grágás, Iagasafn íslenska þjóð-
veldisins. Umsjónarmenn eru Gimn-
ar Karlsson sagnfræðiprófessor,
Kristján Sveinsson sagnfræðingur og
Mörður Ámason málfi-æðingur.
Bókin er fyrsta prentútgáfa Grágás-
ar á íslandi og jafnframt fyrsta útgáf-
an fyrir almenning ekki slður en
fræðimenn. Hún kom síðast út I
Kaupmannahöfn á 19. öld í fræði-
legri, stafréttri útgáfu.
Grágás geymir lagasafn þjóðveldis-
ins og er samsteypa tólf lögþátta,
sem voru í gildi þangað til landið
gekk undir Noregskonung á ofan-
verðri 13. öld. Einn af þeim, Vígslóði,
sem fjallar um víg og áverka, hefnd
og refsingar, er það elsta sem vitað er
með vissu að fest var á bók á íslandi.
Það var gert veturinn 1117-18 hjá
Hafliða Mássyni goða á Breiðaból-
stað.
Grágás lýsir stjómarháttum íslend-
inga og daglegu lífi frá landnámi til
ofanverðrar 13. aldar. Lagasafnið er
eitt helstu imdirstöðurita í íslenskri
réttarsögu og mikilvæg heimild til
skilnings á þjóðveldinu og sígildum
íslenskum bókmenntum. Grágás er
ein af uppsprettum íslensks ritmáls,
skrifuð á kjamyrtu máli og svip-
miklu, stíllinn tær og orðfæri sérstætt
og athyglisvert.
Iútgáfunni er texti aðalhandritanna
felldur saman þannig að safnið
myndar eina heild. Grágás fylgir inn-
gangur um aldur og sögu, skýTÍngar-
myndir og Itarleg atriðisorðaskrá.
Textinn er gefinn út með nútfmastaf-
setningu og orðskýringum. Grágás er
603 síður, prentuð I prentsmiðjunni
Odda.
Örlög á bænum Sýn
á Svörtuhæð
Út er kominhjá Máli og menningu
skáldsagan Á Svörtuhæð eftir enska
rithöfundinn Bruœ Chatwin.
Sagan segir frá leiguliðanum Amos
Jones, sem dag einn kemur auga á
prestsdótturina Maríu við messu, en
frá þeim degi tekur líf þessa kot-
bónda stakkaskiptum. Sagan hefst
Leikmaðurinn
(The Player)
Leikmaðurinn (The Player). *** 1/2
Framleiðandi: Cary Brokaw.
Handrit: Michael Tolkin. Byggt á sam-
nefndri bók hans.
Leikstjóri: Robert Altman.
Aðalhlutverk: Tim Robbins, Greta
Scacchi, Peter Gallagher, Whoopi Gold-
berg, Fred Ward, Bríon James og
Cynthia Stevenson.
Regnboginn.
Öllum leyfð.
Að lifa og hrærast í kvikmynda-
borginni Hollywood, er ekki eins
spennandi og margir halda. Að fá
tækifæri til að leika, skrifa handrit,
leikstýra eða framleiða, er erfitt
mál. Að verða góður (vinsæll) er
jafnvel enn erfiðara. Þegar vin-
sældirnar eru til staðar, verður svo
að halda þeim við. Það er gert með
því að heilsa rétta fólkinu, hæla
rétta fólkinu og hunsa rétta fólkið.
Þetta snýst sem sagt aðallega um að
sleikja sig upp við rétta fólkið. Pen-
ingar skipta öllu. „Nei. Það var
listamynd. Það er allt öðruvísi",
segir einn yfir-
maður kvik-
myndavers í
myndinni. Að
græða sem mest, er galdurinn.
Leikmaðurinn fjallar um svona
lífemi. Þetta er ádeila af bestu
gerð, sem kemur inn á marga þætti
í líferni þotuliðsins. Peningamálin,
baktalið, vinsældimar, yfirborðs-
kenndin og ástarmálin koma þama
við sögu og margt fleira.
Myndin fjallar um Griffin Mill
(Tim Robbins), sem er yfirmaður í
kvikmyndaveri. Hann les handrit
og hlustar á hugmyndir höfunda,
og ef honum líkar þær, semur hann
um kvikmyndaréttinn. Hann þarf
að sjálfsögðu að neita mörgum, en
handritshöfundur nokkur tekur því
illa og sendir honum sífellt hótun-
arbréf. Mill hefur ákveðinn höfund
í huga og fer á fund hans. Eftir að
hafa rætt við höfundinn, slæst Mill
við hann og myrðir í reiðikasti.
Mill gengur þannig frá að það líti út
sem ránmorð. Hann hittir kær-
ustu hins látna, sem er íslensk
myndlistarkona að nafni June Guð-
mundsdóttir (Greta Scacchi). Þau
verða ástfangin en lögregluna fer að
gruna ýmislegt og þar að auki
kemst Mill að því, að um rangan
höfund var að ræða, því enn berast
hótunarbréf.
Það skemmtilega við myndina er
að á meðan við (ylgjumst með æv-
intýrum Mill, fáum við bráðíyndna
innsýn inn í kaldan veruleika kvik-
myndaborgarinnar. Myndin er
spennandi, en um leið er deilt á alla
skapaða hluti sem tengjast kvik-
myndum. Handrit Tolkins er geysi-
vel skrifað í alla staði, hvort sem um
spennu eða háð er að ræða.
Robert Altman hefur verið mjög
mistækur leikstjóri. Hann gerði
hina meinfyndnu MA.S.H. árið
1970, og var tilnefndur til ósk-
arsverðlauna fyrir hana. Hann var
aftur tilnefhdur 1975 fyrir Nash-
ville, líklega hans bestu mynd.
Hann hefur ávallt farið eigin leiðir í
gerð mynda sinna. Hann hefur oft-
ast sneitt hjá stóru kvikmyndaver-
unum, enda verið óhræddur við að
gagnrýna hlutina þar. Leikmaður-
inn er í hópi bestu mynda Aitmans,
það er augljósL Hann hlaut
gullpálmann í Cannes fýrir bestu
Ieikstjórnina, og einnig Robbins
fyrir bestan leik í karlhlutverki.
Hann hefur næmt auga fýrir kvik-
myndatöku og heldur myndinni á
þægilegu róli allan tímann. Mynd-
in er kannski aðeins of löng svo ég
nefni myndinni
eitthvað til for-
áttu.
Það má til
sanns vegar færa, að gagnrýni hans
á kerfið í Hollywood hafi allri verið
safnað saman í þessari mynd.
Vissulega á Altman skoðanasystk-
ini, því hann hefur safnað saman ó-
grynni af stjömum, sem koma fram
undir eigin nafni í myndinni, eða
leika eitthvert auka- eða smáhlut-
verk. ÖII léku þau án endurgjalds.
Það væri ógemingur að þylja nöfn-
in á stjörnunum, en áhugasömum
er bent á auglýsingar um myndina.
Aðalhlutverkið leikur Tim Robb-
ins frábærlega. Þessi yfirmaður,
sem hugsar aðeins um að græða og
verður síðar ein taugahrúga út af
ofsóknum óþekkts manns, er mjög
vel túlkaður. íslendingurinn June
Guðmundsdóttir er góð í meðför-
um Gretu Scacchis, en þó held ég
að ýmsir hnjóti um lýsingar á Iand-
inu okkar og íbúunum.
Whoopi Goldberg er skemmtileg
í hlutverki lögreglukonu og Fred
Ward sömuleiðis í hlutverki örygg-
isvarðar. Af aukaleikurum ætla ég
aðeins að nefna einn sem stendur
upp úr, en það er Richard E. Grant,
sem leikur höfund sem er sann-
færður um listrænt gildi handrits
síns, þótt það sé í raun alger klisja.
Leikmaðurinn er mjög vel gerð
mynd á allan hátt, sem flestir ættu
að sjá. Það er þess virði, þótt ekki
væri nema til að sjá hina bráð-
fyndnu íslensku persónu.
Öm Markússon.
BRUCE CHATWIN
um sfðustu aldamót og eru rakin til
okkar daga örlög tveggja ættliða á
bænum Sýn á Svörtuhæð. í fyllingu
tímans taka tvíburamir Benjamín og
Lewis við búinu. Þeir eru nauðalíkir,
en stefna þó í ólíkar áttir, annar vill
fara burt, hinn vill vera um kyrrt.
Bruce Chatwin fæddist árið 1940.
Hann nam fomleifafræði í háskóla og
ferðaðist víða um heim við rannsókn-
ir sínar á hirðingjum. Um tíma starf-
aði hann bæði sem blaðamaður og
listaverkasali. Chatwin lést árið 1989.
Áður hefur komið út á íslensku eftir
hann skáldsagan Utz.
Ami Óskarsson þýddi bókina, sem
er 247 blaðsíður. Bókin var unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Austræn ljóð í
þýðingu Helga
Ut er kominnjá Máli og menningu
bókin Ljóð úr austri, sem hefur að
geyma þýðingar Helga Hálfdanar-
sonar á kínverskum og japönskum
ljóðum.
Hér eru saman komin f eitt bindi
Kínversk ljóð frá liðnum öldum, sem
út voru gefin 1973, og Japönsk Ijóð
frá liðnum öldum, sem komu út
1976. Japönsku ljóðin eru að mestu
hin sömu og áður. En þeim kínversku
hefur fjölgað lítið eitt.
í tærum einfaldleika sínum endur-
spegla þessi ljóð fögnuð og sorgir
þjóðanna f hversdagsönn og á skapa-
stundum, ást á föðurlandinu og gleði
yfir fegurð þess og fijósemd. „Oft og
einatt er andartakinu með nokkrum
hætti teflt gegn hinu eilífa, hið smáa
og hverfula metið við óendanleikann,
þó ekki sé nema að fugl fljúgi útí blá-
inn, eða dropi falli á kyrran vatns-
flöt," eins og þýðandinn kemst að
orði í formála.
Bókin er 250 blaðsíður, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Þóruntt Valdimarsdóttir.
Júlía
— skáldsaga eftir
Þórunni Valdimarsdóttur
Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út
skáldsöguna Júlíu eftir Þórunni
Valdimarsdóttur. Þetta er fyrsta
skáldsaga hennar, en áður hefur Þór-
unn sent frá sér ljóðabók auk sagn-
fræðirita og ævisagna, sem hlotið
hafa skínandi viðtökur lesenda.
„Júlía er margslungið skáldverk,"
segir í kynningu Forlagsins. „Hún er
öðrum þræði spennusaga um ástir og
örlög, ástarsaga Júlfu og Starkaðar,
og geymir í sér lausn á gátunni um
dauða söguhetjunnar — hvers vegna
var Júlía myrt? Um leið má líka lesa
hana sem táknrænt framtfðarskáld-
verk. Sagan ólgar af erótík og brugð-
ið er upp heillandi sýnum og svikul-
um tálmyndum, sem skírskota jafnt
til fortíðar sem framtíðar."
Júlía er 203 bls. Essemm/Tómas
Hjálmarsson hannaði kápu. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði. Verð: 2.880
kr.
Hjá Báru
Endurminningar Báru Sigurjóns-
dóttur kaupkonu
Bára Sigurjónsdóttir er þjóðkunn
fyrir verslunarstörf og kventísku-
verslim sína, Hjá Báru. Minna er þó
vitað um lífshlaup og einkahagi þess-
arar gagnmerku framkvæmdakonu.
Hjá Báni sviptir hulunni af ævi Báru
og færir lesandann inn í leyndustu
sáíarátök og dramatíska atburði í
hinu viðburðaríka lífi hinnar þrótt-
miklu kjamakonu. Á hlýjan og heið-
arlegan hátt segir Bára frá sérstæðum
uppvexti sínum í Hafnarfirði, ævin-
týralegum æsku- og unglingsárum
heima og erlendis, ástum sínum og
sorgum sem ungrar konu, stuttu en
afdrifaríku hjónabandi sínu með fyrri
manni sfnum, Kjartani Sigurjónssyni,
hinum efnilega tenórsöngvara, sem
lést langt fyrir aldur fram í London í
stríðslok, og greinir á hispurslausan
hátt frá stormasamri og tilfinninga-
ríkri sambúð við síðari eiginmann
sinn, Pétur Guðjónsson. Hinn rauði
þráður í hinni miklu örlagasögu Báru
er frelsið, barátta hennar fyrir frelsi
konunnar í einkalífi jafnt sem at-
hafnalífi á tímum þegar jafnrétti
kynjanna var óþekkt hugtak.
Það er Ingólfur Margeirsson sem
færir bókina f letur. Ingólfur er lands-
þekktur fyrir rihm ævisagna. Þar má
nefna bók hans, Lífsjátningu, endur-
minningar Guðmundu Elfasdóttur
sem kom út fyrir áratug og seldist í
tveimur stórum upplögum og var til-
nefnd fyrst ævisagna til Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Lffróður, ævisaga Ama Tryggvason-
ar leikara, sem kom út í fyrra, hlaut
fádæma góðar viðtökur gagnrýnenda
og lesenda og varð nr. 1 á metsölu-
lista DV frá upphafi til enda fyrir sfð-
ustu jól. Hjá Báru er skrifuð af næmi
og skilningi á viðfangsefninu, sem
einkennir fyrri bækur Ingólfs Marg-
ehssonar.
Öm og Örlygur gefur út.
Meðfylgjandi frétt birtíst « Dag-
blaðinu Vísi, fimmtudaginn 29.
október síðastliðinn, og vakti at-
hygii mína fyrir það, að bér var
prédikari á ferð, sem ættí, eins og
allir kristnir menn, að vera vel upp-
lýstur í kristínni kenningu. En því
miður er það allt of algengt, að slík-
ir falsspámenn skuli draga með sér
heilu hópana af fólki, sem kallast
kristið, út í slika ringulreið sem
frétt þessi greinir frá.
Það er með óiíkináum bversu illa
upplýst kristíð fólk er í kenningum
Krists og hversu auðvelt virðist vera
að leiða það (villu. FÓIk almennt, þó
kristið kailist, les ekki Nýja Testa-
mentið. Virðlst þekking þess ein-
skorðast við fleygar setningar, sem
jfa)
fest hafa í daglegu málL JafnveS hef-
ur bréfritari orðið var við að ný-
fermdir unglingar vita ekki muninn
á kaþólsku og lútersku kirkjunni,
þó sú síðastnefnda hafi á sínum
tíma sagt skiliö við páfadóminn
með Lúter í broddi fylkingar.
Þar sem ég hef ekki séð nein við-
brðgð þjá talsmðnnum kristínnar
kirkju í landinu í fjölmiðlum við
þessari frétt, langar mig sem
áhugamanni og raunar utanskóla-
guðfræðingi að benda fólki á hvað
Kristur sagði sjálfur um það fyrir-
bæri sem kallast endir veraldar og
dómsdagur. Hann sagði: „En um
þann dag og stund veit enginn, ekki
Þúsundir Kóreubúa trúöu á heimsendi á miðnætti í nótt:
Fólk seldi allt sitt
og beið dauðans
- „Guölaug“sögðuvonsviknirmennsemeiganúekkert
Einn helsti hcimsendasöfouöurinn
i Suöur Kóreu fékk um bað boð frá
Guðiað veröldin myndi (arastámið-
nætti (iðastliðnu. Hinir réttlátu
fengju þá að íara til Guðs á efsU
degl cins og Biblían lofar. Spáln
brást, sem kunnugt er.
Þúsundir nmnna I ninnm af stærstU
kristnu sðfruðunum i Kórcu scldu
allar eigur tlnar og gáfú and vlröiö
fátækum. Fólkið sagði upp vinnu
sinnl og situr nú uppi bæöi eigna- og
atvixmulaust
Margir þdrra sero trúðu að hln
hinsta stund vseri að renna upp
brugöust reiðir viö þegar miönættið
leið án þess aö sæla á himnum félli
þeim i skaut „Guð laug að okkur “
sagði elnn begar hann~ kom út ur
idririu 1 SeouLAðrir vildu ckki tfell-
einu sinni
englar himn-
anna né son-
urinn, heldur
aðeins faðir-
inn einn.“
(Matteusar-
guðspjall
24:36).
Með öðrum
orðum þá
vissi ekki einu
sinni Jesús
Kristur sjáif-
ur um ná-
kvæma tíma-
setningu
þessara við-
burða. Þó svo
að öll teikn
séu á lofti um
að hinir síð- u
ustu dagar „Guð skal reynast sannorður, þó sérhver maður
séu í nánd, reynlst lygarl.“ (Rómverjabréflð 3:3-4). Og Hebr-
s a m k v æ m t eabréfíð 6:17-18 segir m.a.: „Það er ómögulegt að
spádómum Guðfarimeðlygl."
Biblfunnar, þá getur enginn maður ustu dögum.
ast almættið og sögöu aö mistðk
heföu oröið viö útreikningana.
Sagt er að um 1S0 kirkjur viös vcg-
lar um Suður-Kóreu hafi veriö þétt-
setnar þegar leiö að miönætti í
mörgum kristnum sófnuöum þar l
landl er þvl trúaö að heimsendir sé
l nánd þótt allar spár hafi til þcssa
brrigðist
Lóercglan haföl mikinn viöbúnað
vegna þessa uppátækis enda ittu
margir von á að alda sjálfsmorfta
fylgdi á efhr þegar heimsendaspáin
brygðist Ekki kom þó til þess og fólk-
iö læddist niöurlútt á braut þótt sum
ir hefðu nú hvergi höföi sinu að að
halla.
Tvmr unpar Hulkur r«yndu aö hytja andUt sM þ*gar þaar yflrpófu kl
Saoui I Soður-Kórau akfitnmu mMr mifinaatt. Þaar sfigfiuat hata g
hfrir loratdra sina afi trua afi halmaaodir yrfii á mióruatt. s
sagt fyrir um daginn eða stundina.
Það er alveg víst, því Biblían segír
svo frá. Athyglisvert var að sjá
hvemig bfómynd, sem sýnd var á
Stöð 2 fyrir skömmu og bar heitið
Sjöunda innsiglið, tók á þessu efni
um hina sfðustu daga, þó brugðið
hafl verið frá ritningunnf að mörgu
leytí. Eínnig hefur trúhópurinn
Vottar Jehóva gefið út athyglisvert
flugrit sem ber heitið: Mim þessi
heimur bjargast? Athyglisvert rit,
sem vert er að skoða á þessum síð-
Biblían hefur sagt fyrir um fals-
spámenn sem boða munu lygar í
nafnl Guðs, en slíkt er allt tímanna
tákn og engin ástæða til að hlaupa á
eftir því sem þeir segja og kunna að
segja á næstunnl. „Guð skal reynast
sannorður,“ segir í bréfl Páls post-
ula til Rómverja, og það orð er satt,
þó svo menn hafl sagt hann fara
með iygi, samkvæmt fréttinni af
falsspámanninum í Suður-Kóreu.
Einar Ingvi Magnússon