Tíminn - 18.11.1992, Qupperneq 9

Tíminn - 18.11.1992, Qupperneq 9
Miðvikudagur 18. nóvember 1992 Tíminn 9 Síðustu sýningar á UPPREISN Sýningum íslenska dansflokksins á UPPREISN fer senn að ljúka. Sýningunni hefur verið mjög vel tekið, en þar eru sýndir þrir ballettar eftir jafhmarga danshöfunda. Fyrsta verkið á sýningunni er glettinn íþróttaballett þar sem dansar- amir dansa til dæmis fótbolta, karate og skautadans. Annað verkið er Nottumo eftir William Soleau, en sá ballett er sam- inn sérstaklega fýrir íslenska dansflokk- inn. Þriðji ballettinn er rómantískt verk með söngvum Edith Piaf eftir danshöf- undinn Stephen Mills. Næstu sýningar verða fimmtudaginn 19. nóvember og síðasta sýning fimmtu- daginn 26. nóvember. Miðasala er í Þjóð- leikhúsinu. Guðbergur les fyrir börn í dag, kl. 14.30, verður Guðbergur Bergsson f útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi og les úr verkum sínum. Dagskrá þessi er liður í sýningunni „Orð- list Guðbergs Bergssonar" og er hún einkum ætluð bömum. Bömunum gefst einnig kostur á að taka þátt í Táleiknum, en hann gengur út á það að teikna og lita fallegustu, skemmtilegustu og skringi- legustu tána. Öll böm era hjartanlega velkomin. í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 verða síðustu sýningar á leikdagskránni „SANNAR SÖGUR — af sálarlífi systra", leikgerð Viðars Eggertssonar á Tanga- sögum Guðbergs Bergssonar. Viðar er jafnframt leikstjóri, en leikendur era Anna S. Einarsdóttir, Harpa Amardóttir, Ingrid Jónsdóttir, Margrét Ákadóttir, Sigríður Eyþórsdóttir og Steinn Ármann Magnússon. RÝMI Gallerí, Laugardal RÝMI Callerí, Listhúsi í Laugardal, Engjateigi 17-19 er opið alla virka daga og laugardaga frá kl. 11-18 og sunnu- daga frá kl. 14-18. Sími/fax er 91-30840. í galleríi RÝMIS stendur nú yfir sýning á verkum eftir Lindu Ámadóttur, Jónas Braga Jónasson, Guðrúnu TVyggvadóttur o.fl. Félag eldri borgara Árshátíð félagsins verður 28. nóvember í Ártúni. Matur, skemmtiatriði og fjörag músík. Upplýsingar á skrifstofu félagsins fsíma 28812. Kvenfélag Óháöa safnaöarins Félagsvist verður fimmtudagskvöldið 19. þessa mánaðar kl. 20 í Kirkjubæ. Kaffiveitingar. Góð verðlaun. Harmonikkutónlist á Hvammstanga Hinir alkunnu harmonikkuleikarar Reynir Jónasson og Grettir Bjömsson verða gestir Tónlistarfélags V-Húnvetn- inga í kvöld, 18. nóvember. Þeir félagar hafa ekki fyrr spilað saman á tónieikum sem þessum og er félagið stolt af því að eiga framkvæði að því að þeir æfi og spili saman. Á þessum tónleikum ætla þeir að flytja bæði erlenda og íslenska harm- onikkutónlist Tónleikar þessir era þriðju tónleikar félagsins á þessu starfs- ári og era allir sem geta hvattir til að koma á Hótel Vertshús í kvöld kl. 21 til þess að sjá og heyra í þeim félögum. BILALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar ALFA-LAVAL JÖTUNN hf er umboðsaðili fyrir ALFA-LAVAL mjaltavélar hérlendis og hefur aðlagað sig nútímanum með alhliða þjónustu við íslenska bændur á sviði mjólkurtækni. ffl tits 0$'fig HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 634000. World Press Photo 1992 opið daglega í Listasafni ASÍ 14.00- 22.00. Síðasti sýningardagur í Kringlunni í dag. Síðasti sýningardagur í Listasafni ASÍ sunnu- dagurinn 22. nóvember. Listasafn ASÍ Myndarlegur bakhluti sýningarstúlkunnar sómir sér ágætlega, en er sennilega ekki meðal þess varn- ings sem verið var að auglýsa. Óvænt uppákoma á tískusýningu Rússneskar tískusýningarstúlk- Mestu kátínuna vakti þó óvænt sem mýndin sýnir. Ekki fylgir sög- ur komu í hópum til Thipei, höfuð- atriði á sýningunni, sem reyndar unni hvort skorturinn í Rússlandi borgar Tævan, og sýndu það, sem var haldin utandyra. Vindhviða sé slíkur að tískusýningarstúlkur þær höfðu á boðstólum, við mik- feykti upp pilsi einnar sýningar- fái ekki nærbuxur sér til skjóls, inn fögnuð viðstaddra. stúlkunnar og kom þá í ljós það þegar þær fara til útlanda. Sótt um vínnu í Tyrklandi Nýlega var mikill fjöldi manna samankominn á Cebeci-íþrótta- leikvanginum í Ankara, svo mikill að helst hefði mátt halda að stór- keppni væri í vændum. Svo var þó ekki. Hér voru saman komnir allir þeir, sem sækja vildu um störf hjá ríkinu þeirra í Tyrklandi. Fjöldi þeirra, sem gengu undir próf til að sýna fram á hæfni sína til að gegna þessum mikilvægu embættum, var slíkur að ekki dugði minna en heill íþróttaleikvöllur. Það þurfti heilan íþróttavöll til aö rúma alla umsækjendur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.