Tíminn - 01.12.1992, Side 1
Þriðjudagur
1. desember 1992
206. tbl. 76. árg.
VERÐ í LAUSASÖLU
KR. 110.-
veriö hefur undanfarin tvö ár. Þá
eru bókatitlar álíka margir og
veríö hefur eða um 500.
Þetta kemur fram í frétt frá Fó-
lagi íslenskra bókaútgcfenda.
Þar kemur fram aö ævisögum
hefur fjölgað mest á kostnað
bóka almenns efnis. Fjórðungur
bóka í ár eru barna- og unglinga-
bækur og er það svipað og var í
tyrra. íslenskum bókatíðíndum
er nú dreift sem fyrr á heimili
landsmanna.
Sjúkraliðar grípa til aðgerða eftir árangurslausa sáttafundi:
Sjúkrastofnanirnar
óstarfhæfar í dag?
Sáttafundur stóð yfir í Karphúsinu í kjaradeilu sjúkraliða rikisins
þegar Tíminn fór í prentun og búist við að hann stæði fram eftir
nóttu. Fátt benti þá til þess að deilan myndi leysast. Sjúkraliðar
hafa ákveðið að mæta ekki til vinnu í dag en safnast þess í stað sam-
an á fund. Á honum verður ákveðið um frekari aðgerðir til að knýja
á um úrlausn á kjaramálum stéttarinnar.
Kristín Guðmundsdóttir formaður
Sjúkraliðafélags íslands segir að
þessi fundur geti þess vegna staðið í
nokkra daga. Hætt er við að algert
neyðarástand skapist á sjúkrastofn-
unum vegna fundar sjúkraliða sem
viðsemjendur hafa séð fyrir með
góðum fyrirvara.
.Aðgerðir okkar verða ekki afboð-
aðar nema að fyrir liggi samningur,"
sagði Kristín síðdegis í gær. Þá hafði
sáttasemjari boðað samningafund
Ásmundur Stefánsson fyrrverandl forseti ASf afhenti í gær arftaka sínum Benedlkt Davíðssynl
iyklana að verkalýðskontómum að vlðstöddum blaöamönnum og I gættlnnl grillir I Láru V. Júlíus-
dóttur framkv.sijóra, Ara Skúlason hagfræöíng og fleira starfsfólk ASÍ. Ásmundur vildí ekkert
gefa upp um það i gær hvað hann hyggst taka sér lýrir hendur Tímamynd, sigursteinn.
Gengi pesetans og escudosins hefur ekkert fallið, en forsætisráðherra hefur full-
yrt að gengisfall þessara tveggja gjaldmiðla hafi orsakað gengisfall krónunnar:
Var gengið fellt fyrir misskilning?
Gengi spánska pesetans og portúgalska escudosins hefur nánast
ekkert breyst síðan viðmiðunarmörkum þessara gjaldmiðla gagn-
vart ECU var breytt um 6%. Þetta kemur fram í svari Seðlabanka
íslands við fyrirspurn frá Ólafi Ragnar Grímssyni, formanni Al-
þýðubandalagsins. Ólafur Ragnar spurði Seðlabankann um þetta at-
riði vegna þess að þegar forsætisráðherra kynnti gengisfellingu
krónunnar notaði hann gengisfall pesetans og escudosins sem rök
fyrir gengisfellingunni.
í svari Seðlabankans kemur fram
að gengi spánska pesetans og
portúgalska escudosins gagnvart
þýska markinu og ECU, hefur ver-
ið nánast óbreytt frá því að við-
miðunarmörkum pesetans og
escudosins var breytt 23. nóvem-
ber. Viðmiðunarmörkunum var
breytt vegna þess að talið var óhjá-
kvæmilegt að gengi þessara
tveggja gjaldmiðla félli. Það gerð-
ist hins vegar ekki. Nú er liðin vika
frá því viðmiðunarmörkunum var
breytt. Markaðurinn virðist hafa
trú á að gengi þessara tveggja
gjaldmiðla sé eðlilegt.
Ólafur Ragnar sagði að ekkert
hafi gerst á alþjóðlegum gjaldeyr-
ismörkuðum frá því að gengi
sænsku krónunnar féll 19. nóvem-
ber. Þá sagði Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra: „Efnislega hefur
þetta ekki neikvæð áhrif hér, það
er að segja bein efnisleg áhrif eru
gengislega séð fremur jákvæð í
þessu landi en þetta gefur mikið
tilefni til þess að fara nákvæmlega
yfir málin á nýjan leik hjá okkur.“
Eftir þetta beindust sjónir manna
að gengi norsku krónunnar. Gengi
hennar féll hins vegar ekki.
Ólafur Ragnar sagði að sá rök-
stuðningur sem forsætisráðherra
bar fram fyrir gengisfellingu krón-
unnar standist ekki. Gengi ís-
lensku krónunnar virðist því hafa
verið fellt í fljótfærni eða fyrir mis-
skilning.
Það vakti nokkra athygli að Ólaf-
ur Ragnar kynnti fréttamönnum
bréf Seðlabankans framan við dyr
þingflokksherbergis Alþýðuflokks-
ins. Ólafur Ragnar sagði ástæðuna
vera þá að á þeim stað aðfaranótt
mánudags í síðustu viku kynnti
Jón Baldvin Hannibalsson ákvörð-
un um gengisfellingu íslensku
krónunnar og færði þá fram rökin
um gengisfall pesetans og escud-
osins.
-EÓ
með sjúkraliðum og viðsemjendum
þeirra en árangur var enginn orðinn
þegar Tíminn fór í prentun í gær-
kvöldi.
„Kröfur okkar eru þær að sjúkralið-
ar úti á landi sem þegið hafa laun
samkvæmt kjarasamningum sinna
fyrri starfsmannafélaga, haldi sínum
kjörum innan Sjúkraliðafélags fs-
lands og fái jafnframt 1.7% ofan á
kauptaxta í samræmi við síðustu
kjarasamninga. Á þessu strandar.
Hins vegar eru sjúkraliðar hér í
Reykjavík ekkert síður að skoða það
sem þeir telja að brotið sé á þeim
gagnvart ráðningasamningnum því
þeir hafa átt að vera búnir að fá 1,7%
ofan á laun sín allt frá upphafi yfir-
standandi samningstíma. Það hafa
sjúkraliðar ekki fengið." segir Krist-
ín.
í ályktun frá Sjúkraliðafélaginu er
þess krafist að nú þegar verði hafist
handa við frágang samnings þar sem
algjörlega sé óviðunandi að sjúkra-
liðar skuli hafa unnið í 15 mánuði
án kjarasamnings. Einnig er þess
krafist að félagar njóti sömu og ekki
lakari kjara en um var samið í „þjóð-
arsáttarsamningum" s.l. vor eða um
1.7% hækkun launa og frá 1. maí
orlofsauka sem um var samið; kr.
8.000. Telja sjúkraliðar sig eiga bæði
siðferðilega og lagalega kröfu til
þessara kjarabóta til jafns við aðra.
Kristín vill benda á að þetta séu að-
gerðir sem miðist ekkert síður við
sjúkraliða í Reykjavík en á lands-
byggðinni. Hún bætir við að sjúkra-
liðar leggi einnig áherslu á það að
halda samningsréttinum innan
stéttarfélags síns, Sjúkraliðafélags
íslands. í því sambandi nefnir hún
ummæli sem Birgir Guðjónsson,
formaður samninganefndar við-
semjenda, lét hafa eftir sér um helg-
ina. Ummæli hans voru efnislega á
þá leið að sjúkraliðar geti farið til
baka inn í fýrrverandi félög og notið
þeirra kjara sem samningar félag-
anna bjóða upp á. „Hafi Birgir hald-
ið að hann myndi hræða sjúkraliða
með þessum ummælum þá er það
þvert á móti: Hann hellti frekar olíu
á þann eld sem fyrir var kviknaður
og þessi ummæli voru því út í blá-
inn,“ segir Kristín Á. Guðmunds-
dóttir. -HÞ
Samstarfssamningur um fiskveiðimál á milli ís-
lands og Evrópubandalagsins:
Fiskiskip EB í landhelgina
Gert er ráð fyrir að rammasamningur íslands og Evrópubanda-
lagsins um fiskveiðimál svo og erindaskiptin frá því í maí í vor
um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum, verði lögð fyrir Alþingi
til staðfestingar í þessari viku.
Samkvæmt því fá fiskiskip EB út-
hlutað veiðiheimildum á næsta ári
í íslenskri efnahagslögssögu sem
nemur þrjú þúsund tonnum af
karfa, að meðtöldum aukaafla sem
má þó ekki innihalda þorsk. Á móti
fá íslendingar þrjátfu þúsund tonn
af loðnu sem sögð eru vera 20%
verðmætari en hlutur EB. Karfann
má veiða á tímabilinu frá júlí til
desember á tveimur afmörkuðum
svæðum. Eftir 1993 geta ísland og
EB komið sér saman um að breyta
samsetningu tegunda þessara þrjú
þúsund tonna karfaígilda, í ljósi
frekari rannsókna á langhalastofn-
inum og eru úthlutuð veiðisvæði
m.a. ákvörðuð með það í huga.
Verði hins vegar engar loðnuveið-
ar leyfðar á einhverri vertíð vegna
slæms ástands loðnustofnsins
mun EB ekki fá neinar veiðiheim-
ildir í karfa og ennfremur mun
karfakvóti EB skerðast í hlutfalli
við skertan loðnukvóta svo nokkuð
sé nefnt.
Samkvæmt rammasamningnum
sem undirritaður var í lok síðustu
viku skulu fiskiskip EB á meðan
þau stunda veiðar í íslenskri land-
helgi, hlíta ráðstöfunum og vernd-
un, stjórnun, öllum skilmálum,
öllum reglum og reglugerðum um
fiskveiðar í íslenskri landhelgi. í
samningnum eru ákvæði um upp-
lýsingaskyldu sem ætluð eru yfir-
völdum til að fylgjast með gangi
veiðanna, en fiskiskip EB mega
aldrei vera fleiri en þrjú samtímis á
afmörkuðum veiðisvæðum og ekki
fleiri en fimm á veiðum á sama
tíma. Verksmiðjuskip EB fá ekki
veiðileyfi í íslenskri landhelgi.
Þá verður ávallt íslenskur veiði-
eftirlitsmaður um borð í togurum
EB og jafnframt mun allur kostn-
aður af veru eftirlitsmannsins
verða greiddur af viðkomandi EB-
útgerð. Til að tryggja að skip EB
veiði ekki annað en karfa eru
ákvæði í samningnum sem kveða á
um að ef einhver þorskur veiðist,
eða meðalafli annar en langhali
verður meiri en 10% aflans í
hverju hali, geti veiðieftirlitsmað-
urin krafist þess að veitt verði ann-
ars staðar á hinu afmarkaða svæði.
Þá telst meðafli jafngildur karfa í
verðmæti.
Ennfremur er kveðið á um það í
samningnum að blandaðir veiði-
túrar eru bannaðir og einnig skal
allur afli veiddur á íslandsmiðum,
sem og sá afli sem er í veiðiskipum
þegar það kemur inn í landhelgi
Islands, verða vigtaður hérlendis
eða á erlendum fiskmörkuðum
sem íslendingar viðurkenna. -grh