Tíminn - 01.12.1992, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.12.1992, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriöjudagur 1. desember 1992 Flokksþing framsóknarmanna lýsir yfir stuðningi við tveggja þrepa virðisaukaskatt ef matvörur verði í neðra skattþrepinu: Æðstu embættismenn fari frá um leið og ríkisstjórn Flokksþing Framsóknarflokksins sem lauk um helgina lýsti yfir stuðningi við hugmyndir um að tekinn verði upp tveggja þrepa virð- isaukaskattur í því skyni að fækka undanþágum, og styrkja inn- heimtu. Helstu nauðsynjavörur heimilanna (matvörur) verði í lægra skattþrepi. Jafnframt var lögð áhersla á aukið sjálfstæði opin- berra stofnana, meira frumkvæði og ábyrgð stjómenda þeirra. Lagt var til að þeir verði ráðnir til sex ára, en æðstu embættismenn og stjómendur efnahagsstofnana verði einungis ráðnir til sama tíma og hver rfldsstjóra starfar. Atvinnulífíð verði styrkt í samvinnu við hagsmunaaðila í ályktun um atvinnumál segir að öflugt atvinnulíf sé undirstaða hag- sældar og afkomu þjóðarinnar. Því verði að styrkja undirstöður atvinnu- veganna. Það hljóti að vera forgangs- verkefrii í íslenskum stjómmálum. í þessu sambandi er m.a. lögð áhersla á bætt rekstrarskilyrði fyrirtækja, lækk- un vaxta, gengisstefnu sem tryggi hagstæða afkomu fyrirtækja og jafn- vægi í utanríkisviðskiptum, aukið áhættufé í atvinnurekstri frá almenn- ingi, lífeyrissjóðum og erlendum aðil- um, menntastefnu sem taki meira til- lit til þarfa atvinnulífsins og lægra orkuverð. Ríkisvaldið, sveitarfélög, fjármála- stofnanir og aðilar vinnumarkaðarins þurfi að mynda víðtæka samstöðu um stefríu í atvinnumálum, enda Ieysi sókn í atvinnumálum best þau miklu vandamál sem við blasa. Varað við „Þróunar- sjóðnum“ í sjávarútvegsmálum er lögð áhersla á að afli verði unninn í meira mæli í landi, aðstaða fiskvinnslustöðva og frystiskipa verði jöfhuð og tekið verði sérstakt tillit til minnstu byggðarlaga ef þau missa aflaréttindi. Lagt er til að hvalveiðar verði hafhar að nýju, land- helgin verði stækkuð þannig að ís- lendingar ráði öllu landgrunninu um- hverfis landið og sérstakt átak verði gert í rannsóknum á vannýttum fiski- stofhum. Flokksþingið varar harðlega við þeim hugmyndum sem koma fram í „Þró- unarsjóði" ríkisstjómarinnar eins og þær liggja nú fyrir. Þingið telur að þama sé gengið mjög langt í átt til miðstýringar og lagðar meiri kvaðir á sjávarútveginn en hægt sé að ætlast tíí. í ályktun um iðnað segir að við þró- un útflutningsiðnaðar beri að leggja mesta áherslu á greinar sem byggja á íslenskum hráefnum, þekkingu og orku. Við uppbyggingu útflutnings- iðnaðarins er m.a. lagt til að stofnaður verði útflutningslánasjóður. í ályktun um landbúnaðarmál er lögð áhersla á að svo verði búið um hnútana að landbúnaður verði áfram einn af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Bent er á að skattlagning landbúnaðar hér á landi sé mun meiri en landbúnaðar í nágrannalöndum okkar og því þurfi að breyta. Lögð er áhersla á að í alþjóðasamningum verði þess gætt að innflutmngur á bú- vömm til landsins verðjjfain tak- markaður. Persónuafsláttur hjóna verði millifæranlegur í ályktun um ríkisfjármál er lögð áhersla á mikilvægi stöðugleika í efhahagsmálum og að jöfnuður sé í tekjum og gjöldum ríkissjóðs. Bent er á að við núverandi aðstæður sé óraun- hæft að ná fram spamaði í ríkisrekstri á einu ári. Vinna þurfi að spamaði með Iangtímamarkmið í huga, þ.e. 3- 5 ár. Lagt er til að tekinn verði upp tveggja þrepa virðisaukaskattur í því skyni að fækka undanþágum og styrkja innheimtu. Helstu nauðsynja- vömr heimilanna (matvömr) verði í lægra skattþrepi. Þá er lagt til að full- ur persónufrádráttur hjóna og sam- býlisfólks verði millifæranlegur. Lögð er áhersla á aukið sjálfstæði op- inberra stofnana, jafhframt því sem frumkvæði og ábyrgð stjómenda þeirra verði meiri. Lagt er til að þeir verði ráðnir til sex ára, en æðstu emb- ættismenn og stjómendur efnahags- stofnana verði einungis ráðnir til sama tíma og hver ríkisstjóm starfar. í ályktun um ríkisfjármál er varað við einkavæðingu opinberra fyrirtækja eins og ríkisstjómin hefur staðið að henni. Einkavæðing eigi hins vegar rétt á sér við vissar aðstæður, þ.e. þeg- ar samkeppni sé fyrir hendi á frjálsum markaði, starfsfólk eigi möguleika á að gerast eignaraðilar í fyrirtækjum og markaðsaðstæður séu þannig að eðlilegt verð fáist fyrir eignimar. Stuðningur við til- raunasveitarfélög í ályktun um velferðarmál segir að langur vinnutími, aukin atvinnuþátt- taka kvenna og mismunandi aðstæö- ur hinna ýmsu þjóðfélagshópa hafi breytt lífsvenjum fólks. Aldursskipt- ing þjóðarinnar sé einnig að breytasL Þetta kalli á breyttar almannatrygg- ingar og heilbrigðisþjónustu. Nauð- synlegt sé að spara og hagræða í vel- ferðarkerfinu, en forsenda árangurs sé að þetta sé gert í góðri samvinnu við starfsfólkið sem hlut á að máli og sam- tök þess. í ályktun um sveitarstjómarmál er lögð áhersla á að valdið sé fært nær fólkinu á þann hátt að sveitarstjómar- stigið verði eflt, m.a. með sameiningu sveitarfélaga. Sameiningin megi þó aðeins koma til framkvæmda að íbúar viðkomandi sveitarfélags séu fylgjandi sameiningu. Lýst er yfir stuðningi við hugmyndir um tilraunasveitarfélög. Kannað verði hvort sveitarfélögin geti að öllu leyti tekið við rekstri grunn- skóla, heilbrigðisþjónustu, málefnum fatlaðra og öldrunarþjónustu. í ályktun um byggðamál er bent á að til að byggð dafhi þannig að auðlindir lands og sjávar séu nýttar þurfi fyrir- tækjum í undirstöðuatvinnuvegun- um að vera búnar aðstæður sem tryggi starfsfólki örugga atvinnu og eðlilega afkomu og eigendum sann- gjaman arð. Mikilvægt sé að unnið verði markvisst að framkvæmd stefri- unnar sem mörkuð var með breyting- um fyrrverandi ríkisstjómar á lögum um Byggðastofhun, um gerð byggða- áætlana, myndun atvinnuþróunar- svæða og stofnun atvinnuþróunarfé- laga og sjóða. Endurskoða þurfi stjómkerfi og stjómsýslu með tilliti til efiingar og frekara sjálfsforræðis byggðarlaga í landinu. Lagt er til að opinberar stofnanir verði fluttar út á land og verð á raforku og símaþjón- ustu verði jafnað um land allL í menntamálum var samþykkt álykt- un þar sem segir að stefha skuli að einsetnum grunnskóla, Iengri og samfelldari skóladegi og að skólamál- tíðir komi til framkvæmda innan tíu ára. Lýst er andstöðu við lög um Lána- sjóð íslenskra námsmanna sem ríkis- stjómin knúði fram fyrr á þessu ári. Lögð er áhersla á jafnrétti til náms án tillits til efnahags og búsetu. -EÓ Jón Þórarinsson tónskáld sér um dagskrá um Inga T. Lárusson í Þjóðminjasafninu í dag. Aldarafmæli Inga T. Lárussonar: Dagskrá í Þjóðminjasafni í dag 1 dag kl. 17 á fullveldisdaginn dagskráin kl. 17. Ósk Óskarsdóttir, John Speight, verður flutt dagskrá í Þjóðminja- Rakinn verður æviferill hins ást- Þóra Fríða Sæmundsdóttir og safninu í umsjón Jóns Þórarins- sæla sönglagahöfundar og félagar Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir. Af- sonar í tilefni aldarafmælis Inga T. úr röðum íslensku hljómsveitar- mælisdagskránni verðu útvarpað Lárussonar tónskálds og hefst innar leika og syngja: þau Elín beint á Ríkisútvarpinu, rás 1. Framkvæmdastjórn SSÍ mótmælir harðlega efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar: Óásættanlegar fyrir launafólk Framkvæmdastjóra Sjómannasambands íslands mótmælir harð- lega framkomnum efnahagsaðgerðum rfldsstjóraarinnar til eflingar atvinnulíflnu og telur að þær séu með öllu óásættanlegar fyrir launafólk í landinu. Ennfremur mótmælir fram- kvæmdastjórnin fjölgun skattþrepa við útreikning á tekjuskatti og ítrek- ar í því sambandi ályktun 18. þings SSÍ þar að lútandi. En þar kemur fram að með fjölgun skattþrepa er óhjákvæmilegt að verulegur hluti skattanna verði „eftir á greiddur" og jafnframt sé með fjölgun skattþrepa verið að eyðileggja kosti stað- greiðslukerfsins og við þær breyt- ingar munu sjómenn ekki sætta sig við. Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambandsins segir að ekki hafi verið tekin afstaða til Þróunar- sjóðs sjávarútvegsins á fundi fram- kvæmdastjórnarinnar í síðustu viku, en hins vegar mótmælir hann harðlega því að svokallað „veiði- leyfagjald eða auðlindaskattur" verði tekið af óskiptum hlut sjó- manna. Einnig mótmælir formaður SSÍ öllum vangaveltum í þá veru að laun sjómanna komi til með að hækka í kjölfar gengisfellingar krónunnar. Hann segir að sjómenn hafi orðið fyrir verulegum tekju- missi af völdum þeirra gengishrær- inga sem orðið hafa og þá sérstak- lega af lækkun pundsins í haust. Oskar var kjörinn í miðstjórn ASÍ á þingi þess í síðustu viku en nokk- urrar óánægju hefur gætt hvernig til tókst með miðstjórnarkjörið og einkum hvað hlutur landsbyggðar- innar var rýr. Formaður SSÍ sagðist bera blendnar tilfinningar í brjósti til þess hvernig tókst til með skipan hinnar nýju miðstjórnar og hversu mikið pólitíkin grasseraði í einu og öllu á þinginu. -grh Fulltrúar lyfjahóps Félags íslenskra stórkaupmanna: Fulltrúi ráðherra fari úr lyfjanefnd Fulltrúar svonefnds lyfjahóps Félags íslenskra stórkaupmanna hafa óskað eftir því við umboðsmann Alþingis að hann vfld Guðjóni Magnússyni, skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu, úr lyfja- nefnd. Þeir telja að hann sé vanhæfur til að sitja í nefnd sem ákveði álagningu á lyfjum og benda á að áður hafl umboðsmaður Alþingis úrskurðað deildarstjóra úr sama ráðuneyti vanhæfan. Birgir Thorlacius fer fyrir þessum hópi. Hann segir að í Iyfjanefnd eigi sæti fulltrúi frá tryggingastofnun og lyfjahóp stórkaupmanna. Þá skipar ráðherra sérstaklega fulltrúa sem á að vera sérfróður um lyfsölumál. Hann segir að áður hafi Einar Magnússon, deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu, verið valinn af ráðherra. .Apótekarafélagið kvartaði yfir því við umboðsmann Alþingis að Einar væri helsti ráðgjafi ráðherra varðandi lyfjamál og ekki stætt á að hann væri þá líka í Lyfjaverðlags- nefnd sem ákveður rekstrarskilyrði apóteka," segir Birgir. Hann segir að á þetta hafi umboösmaður Alþingis fallist og því talið Einar vera van- hæfan. I framhaldi af því segir Birg- ir að ráðherra hafi skipað Guðjón Magnússon skrifstofustjóra. „Hóp- urinn bar það undir umboðsmann Alþingis hvort þarna væri nokkur munur á, þar sem Guðjón kemur að lyfjamálum í ráðuneytinu. Auk þess teljum við hann ekki sérfróðan um lyfsölumál," segir Birgir. Hann veit ekki hvenær úrskurður umboðs- manns muni Iiggja fyrir. Birgir bendir á að komi upp ágrein- ingur í nefndinni, þá úrskurði ráð- herra og þannig geti ráðuneytið valdið ágreiningi innan nefndar og hafi þar með endanlegt vald. Þess má geta að nefndinni er ætlað að endurskoða álagningu á lyfjum. Birgir segir að það hafi samt ekki verið ástæðan fyrir kvörtuninni við umboðsmann heldur hafi aðalmálið verið það að Einar hafi áður verið metinn vanhæfur og því eigi það sama við um Guðjón. -HÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.