Tíminn - 01.12.1992, Page 9

Tíminn - 01.12.1992, Page 9
Tíminn 9 Þriðjudagur 1. desember 1992 DAGBOK Einar Krisfján Einarsson. Gítartónleikar í Geróubergi Miðvikudaginn 2. desember kl. 20.30 heldur Einar Kristján Einarsson gítarleikari, tónleika í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Einar leikur verk eftir Luis Milan, J.S. Bach, Femando Sor, Lennox Berkeley, Heitor Villa-Lobos og Agustin Barrios. Efnisskrá tónleikanna er afar fjölbreytt. Elstu verkin eru frá sextándu öld, en þau yngstu frá þeirri tuttugustu. Elstu verkin eru líkast til upphaflega samin fyrir forvera gítarsins, s.s. verkin eftir Luis Milan á spánska vihuela og verk Bachs fyrir lútu. Nýrri verkin eftir Villa-Lobos og Lennox Berkeley sýna aftur á móti vel möguleika og Óöl- breytilega tækni gítarsins. Einar Kristján Einarsson er fæddur á Akureyri 1956 og hlaut þar sfna fyrstu tónlist- armenntun. Haustið 1977 hóf hann gítamám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinsson- ar og lauk þaðan burtfararprófi 1982. Aðalkennarar hans voru Gunnar H. Jónsson og Joseph Fung. Einar stundaði framhaldsnám í Manchester f Englandi 1982-1988 og vom aðalkennarar hans George Hadjinikos, Gordon Crosskey og David Russell. Hann hefur auk þess sótt námskeið hjá Alirio Diaz, Jose Luis Gonzales o.fl. Einar lauk ein- leikara- og kennaraprófi frá Guildhall School of Music 1987 og hefur síðan haustið 1988 kennt gítarleik við Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Kópavogs. Auk tón- leikahalds í Englandi og á Spáni hefur hann komið fram við margvísleg tækifæri hér- lendis. M.a. lék hann einleik með Kammersveit Akureyrar sl. haust og nýverið á ein- leikstónleikum í Seltjamameskirkju. Umræöufundur í Odda Félag um heilbrigðislöggjöf efnir til umræðufundar miðvikudaginn 2. des- ember n.k. kl. 17 í stofu 101 í Odda, hug- vísindahúsi Háskóla íslands. Efni fundarins er: Vísindarannsóknir og meðferð persónuupplýsinga. Framsögumenn verða tveir: Páll Þórð- arson, framkvæmdastjóri Læknafélags íslands, mun fjalla um vísindasiðanefnd- ir á heilbrigðissviði, og Þorgeir öriygs- son, prófessor og formaður tölvunefhd- ar, ræðir um lagareglur um aðgang vís- indamanna að persónuupplýsingum.. Að framsöguerindunum loknum verða umræður. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um fundarefnið. Almannatryggingan 30% tekjutryggingarauki greiddur í desember Þann 3. desember n.k., þegar bætur al- mannatrygginga vegna desembermánað- ar verða greiddar út, munu lífeyrisþegar með tekjutryggingu fá uppbót, 30% tekjutryggingarauka. Þessi uppbót er f samræmi við kjarasamninga á vinnu- markaði um greiðslu desemberuppbótar. Fulla uppbót, kr. 10.709 hjá ellilífeyris- þegum og kr. 10.900 hjá öryrkjum, fá þeir sem hafa óskerta tekjutryggingu, heimilisuppbót og sérstaka heimilisupp- bót. Tekjutryggingaraukinn skerðist svo í sama hlutfalli og þessir bótaflokkar hjá lífeyrisþega. Þeir, sem ekki njóta tekjutryggingar, fá enga uppbóL Á greiðsluseðli mun þessi uppbót ekki koma sérstaklega fram, heldur verður hún lögð við upphæö hvers þessara þriggja bótaflokka. Kvenfélagasamband íslands: Leiöbeiningastöö heimilanna veröur opin allan daginn Kvenfélagasamband íslands hefur allt frá árinu 1963 rekið Leiðbeiningastöð heimilanna. Leiðbeiningastöðin hefur aðeins verið opin hluta úr degi, en verður nú, frá 1. desember, opin alla virka daga frá kl. 09- 17. Starfsmenn Leiðbeiningastöðvar heim- ilanna gefa upplýsingar um gæðakann- anir á heimilistækjum og ýmsum þeim áhöldum er nota þarf við heimilishald. Ennfremur eru gefnar upplýsingar um þrif, þvotta, hreinsun efna og allt það er lýtur að manneldi og matargerð. Kvenfélagasamband íslands gefur út fræðslurit um margvísleg efni, er tengj- ast heimilishaldi, og eru þau seld á skrif- stofu landssambandsins. Þjónustan er ókeypis almenningi. Leiðbeiningastöð heimilanna er til húsa í Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík. Sími 91-12335. Símsvari er opinn þegar skrifstofan er lokuð. Fax 91-625150. Skrifstofa Kvenfé- lagasambands íslands og tímaritsins Húsfreyjunnar eru opnar á sama tíma. Forstöðumaður stöðvarinnar er Stein- unn K. Ingimundardóttir hússtjómar- kennari og starfsmaður er Steinunn V. Óskarsdóttir sagnfræðingur. HONNUNARSAMKEPPNI ÍSTEX Verðiaunaafhending og sýning verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu, fimmtudaginn 3. desember nk. kl. 1600. Sýndar verða handpijónaðar flíkur úr hönnunarsamkeppninni „íslensk hönnun úr íslenskri ull“. Þátítakendur og gestir þeirra velkomnir. m ÍSTEX® ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR H.F. PÓSTHÓLF 140 - 270 MOSFELLSBÆ - SlMI 91-666300 - MYNDSENDIR 91-667330 Eric Stoltz er ekki tilbúinn að giftast Bridget Fonda og Eric Stoltz vinna saman og búa saman. Eric Stoltz er svo sannariega á upp- leið í kvikmyndabransanum og hef- ur margt lært síðan hann fluttist átta ára með fjölskyldu sinni frá Samóaeyjum til Santa Barbara. Þá kunni hann ekki einu sinni að hnýta skóreimarnar sínar, enda haföi hann aldrei í skó komið! Eric var þó fljótur að læra og verða heimsmaður. Hann segir frá því nú að fyrir einhverjum árum hafi hann verið á mótorhjóli í Los Angeles og ekið við hlið bíls með þakið fellt Þar sat stúlka, sem honum Ieist svo vel á að hann sagði ekki skilið við hana fyrr en hún hafði gefið honum símanúmerið sitt „Ég var frekur og ósmekklegur," segir hann nú. Og þó, stúlkan undir stýri var eng- in önnur en Bridget Fonda, af hinni frægu og voldugu leikaraætt Fonda, dóttir Peters og bróðurdóttir Jane. Þau Eric og Bridget tóku upp sam- band, sem reyndar þoldi ekki tíðan og langan aðskilnað tveggja frama- gjamra listamanna á uppleið. Leiðir skildu þegar hann hélt til Englands til að leika í kvikmynd og hún til New York. Fjögur ár liðu áður en fundum þeirra bar saman á ný og nú var gaman að hittasL Eftir sex mánuði sættust þau á að vera saman. „Það var eins og að fara í heitt bað,“ segir Eric, og nú sjá þau ekki sólina hvort fyrir öðm. Að vísu var ekki öllum hindrunum strax rutt úr vegi. Jennifer Jason Leigh, fyrrverandi kærasta Erics, Eric Stoltz er 31 árs, vinsæll og eftirsóttur leikari og veit hvaö hann vill. leikur keppinaut Bridget í kvik- myndinni „Single White Female" og var sagt að þeim kæmi illa saman. Eric segir að vísu ástandið hafa ver- ið undarlegt, þegar þau vom þrjú saman komin, en stelpumar hefðu komist ágætlega frá því. Nú búa þau Eric og Bridget sem sagt saman í sátt og samlyndi og sumir vilja láta þau gera alvöru úr því að giftasL En Eric er ekki reiðu- búinn til þess. Hann segir að hring- ur á baugfingri myndi breyta lífi hans algerlega. „Ég myndi taka samband okkar miklu alvarlegar ef ég væri búinn að vinna hjónabands- heit fyrir guði, fjölskyldu og vin- um,“ segir hann og er greinilega ekki tilbúinn til þess. i spegju Tímans Stjörnukokkar gerðu lukku á sælkerahátíð og söfnuðu fé Mikil sælkerahátíð var haldin í New York nýlega og var það í flmmta sinn sem slík hátíð fer fram. Þar sýndu frægar stjömur úr kvikmyndum og sjónvarpi á sér nýja og óvænta hlið, kokkuðu dýrindis rétti of- an í viðstadda, sem vom fúsir til að reiða fé af hendi til „March of Dimes“, sjóðs til að auka heilbrigöi bama. Leikkonan Sonia Braga eldaði kjúklingasúpu við góðar undirtektir og var sérstaklega eftir því tekið hvað Donald Tmmp var ákafur að komast að pottun- um hennar til að smakka. Hann lét sér ekki nægja minna en að vera fremstur í röðinni! Þá gerðu fylltu kirsuberjatómatarnir hennar Lauren Hutton mikla lukku og Joan Rivers, sem er frægust fyrir hvassa tungu í sjónvarpinu, sýndi fram á að bragðskynið hennar er í góðu lagi. Það vom grískar moussaka- tartalettur sem hún töfraði gestina með. Ágóðinn af sælkerahátíðinni nam um 65 milljónum ísl. kr. og rennur eins og fyrr segir til góðgerðasjóðs. Donald Trump sér alltaf um aö vera fremstur í röðinni. Honum þótti kjúklingasúpan hennar Son- ia Braga algert sælgæti.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.