Tíminn - 03.12.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 3. desember 1992
Timinn 9
■ DAGBÓK I
Mahler-veisla í Háskólabíói
í kvöld
í kvöld, fimmtudaginn 3. desember, kl.
20 verður 5. sinfónía Gustavs Mahler
leikin á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói. Stjómandi tón-
leikanna verður Petri Sakari, aðalhljóm-
sveitarstjóri S.f.
Eflaust hafa margir Mahler-aðdáendur
beðið þessara tónleika með óþreyju. Sin-
fónían er eitt tónverka á efnisskrá, enda
tekur hún um það bil 75 mínútur í flutn-
ingi.
Það var árið 1904 sem 5. sinfónía Ma-
hlers var frumflutt undir stjóm tón-
skáldsins í Köln í Þýskalandi. Viðtökur
áheyrenda vom nánast fjandsamlegar og
einnig er sagt að hljóðfæraleikarar þeir,
sem léku verkið, hafi verið lítt hrifnir af
verkinu og höfundi þess, enda átti Ma-
hler oft í útistöðum við hljóðfæraleikara.
Það er óhætt að segja að síðan hafa við-
horf breyst til þessa verks, sem telja má
eitt af stórverkum tónbókmennta 20.
aldarinnar. Fimmtu sinfóníu Mahlers
hefur stundum verið líkt við „Eroicu"
Beethovens og víst má finna samsvörun,
þrátt fyrir ólíka framsetningu — dýpstu
örvæntingu og allt til fullkominnar sælu
má finna í báðum þessum verkum.
Sinfónían er í þrem hlutum, sem skipt-
ast í 5 þætti. Þannig mynda fyrstu 2
þættimir fyrsta hluta. f öðmm hluta er
3. þáttur verksins, en þriðja hluta skipa
4. og 5. þáttur. Þriðji hluti sinfóníunnar
hefst á hinum undurfagra Adagietto-
þætti. Er sá þáttur kannski þekktastur
fyrir að hafa verið notaður á áhrifamik-
inn hátt í kvikmynd Luchinos Visconti,
„Dauðinn í Feneyjum".
Mahler skrifaði sín tónverk yfirleitt fyr-
ir mjög stóra hljómsveit og þess má geta
að á tónleikunum í kvöld verður Sinfón-
íuhljómsveitin stækkuð og skipa hana þá
tæplega 90 hljóðfæraleikarar.
Nýr sparisjóösstjóri
Sparisjóós Kópavogs
Halldór J. Ámason hefur tekið við starfi
sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Kópavogs.
Halldór er fæddur 5. september 1959.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Sund árið 1979 og prófi frá
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla ís-
lands vorið 1986. Frá 1985-1987 vann
hann sem notendaráðgjafi og síðar sem
rekstrarráðgjafi hjá SKÝRR. Árið 1987
var Halldór ráðinn forstöðumaður Hag-
deildar hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar og
frá nóvember 1991 var hann ráðinn úti-
bússtjóri í nýju útibúi Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar í Garðabæ. Halldór er kvæntur
Guðfmnu Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi
og eiga þau tvö böm.
Ólafur St Sigurðsson lögfræðingur,
sem verið hefur sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Kópavogs undanfarin 8 ár, hverfur
nú til starfa á öðmm vettvangi.
Jólaglóö
Framsóknarmenn á Seltjamamesi, þá er komið að þvi að við byrjum að reyna að
kveikja jólaglóðina' I okkur og nærstöddum. Þetta ætlum við að gera á Sex bauj-
unni nk. laugardag, 5. desember, og hefst jólaglóðin" kl. 16.30. Þeir, sem að þvl
loknu hefðu hug á að snæða kvöldverð á Sex baujunni, geta pantað borð I slma
611414.
Vonandi hittumst við sem flest i hátlðaskapi á Sex baujunni og takið endilega með
ykkur gesti. Stjómin
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilað verður á sunnudagskvöldum 13. desember og 10. Janúar. Auk kvöldverð-
launa verða ein heildarverðlaun: Dagsferð fyrír 2 með Fiugleiðum til Kulusuk.
3 hæstu kvöld gilda. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
Konur í Kópavogi
Jólafundur Freyju verður haldinn miðvikudaginn 9. desember að Digranesvegi 12 og
hefst kl. 20.30. Nánar auglýst slðar. Stjóm Freyju.
Kópavogur—
Laufabrauðsdagur
Laugardaginn 5. desember verður laufabrauðsdagur að Digranesvegi 12. Þar veröa
laufabrauðskökur til sölu á vægu verði, skomar og bakaðar á staönum. Ailir, ungir
sem aldnir, velkomnir.
Takið með ykkur skurðbretti. Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl
Jólaalmanak SUF
Eftirfarandi numer hafa hlotið vinning i jólaalmanaki SUF:
1. desember: 525, 3570.
2. desember: 3686,1673.
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spiluö verðurframsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 6. desember kl. 15.00.
Góð verðlaun og kaffiveitlngar.
Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús I Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðju-
dögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum elns og veríö hefur undan-
farin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viðtals á þessum tlma og ennfremur em allir,
sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögöu verður hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgamess.
Kópavogur — Skólamál
Mánudaginn 7. desember Id. 20.30 verður haldinn opinn fundur um skólamál I
Kópavogi.
Fundurínn veröur haldinn að Digranesvegi 12.
Framsögumenn veröa: Bragi Mikaelsson, formaður skólanefndar, og Ingvi Þorkels-
son, fulltrúi Framsóknarflokksins f skólanefnd.
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna I Kópavogl
Kópavogur — Opið hús
Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opið hús á laugardögum kl. 10-12 aö Digranes-
vegi 12. Lltið inn, fáið ykkur kaffisopa og spjallið. Framsóknarfélögln
Mike Biggs er oröinn 18 ára og er aö koma undir sig fótunum í músíkbransanum í London.
Sonur lestarræningjans
stoltur af föður sínum
Mike Biggs varö fyrir stríðni skóla-
félaganna vegna pabba síns, hins al-
ræmda og ógleymda lestarræningja
Ronalds Biggs. Mike er nú orðinn
18 ára og segist aldrei hafa skamm-
ast sín fyrir pabba sinn, þrátt fyrir
allt. „Reyndar er ég svolítið mont-
inn af því hvað pabba tókst vel að
plata yfirvöldin," segir hann.
Ronnie Biggs er orðinn að þjóð-
sagnapersónu og síður en svo
gleymdur. Þó eru tæp 30 ár liðin síð-
an honum tókst að komast undan
lögregluyfirvöldum í Bretlandi með
2,6 milljóna sterlingspunda hlut
sinn úr frægasta lestarráni allra
tíma. Fengnum segist hann hafa eytt
á flóttanum um Belgíu, Frakkland
og Ástralíu, og í lýtaaðgerð sem
hann lét gera á sér „rétt til að halda í
við Elizabeth Táylor," segir hann.
Mike ber til baka þann orðróm að
nú, þegar hann sé orðinn 18 ára og
þar af leiðandi ekki lengur á fram-
færi föður síns skv. brasilískum lög-
um, kunni faðir hans að eiga framsal
yfir höfði sér. Hann segir pabba sinn
tiltölulega óhultan í Brasilíu, enda
enginn framsalssamningur í gildi
milli Brasilfu og Bretlands. „Það er
bara einn tilbúningur fjölmiðlanna
enn," segir hann.
Þegar breskir málaliðar rændu
Ronnie og fluttu hann til Barbados
1980, varð Mike svo miður sín að
hann kom fram í brasilíska sjónvarp-
inu og sárbað um að fá pabba sinn
aftur. í kjölfarið naut Mike vinsælda
sem nokkurs konar barnapopp-
stjama, enda var hann ekki nema 6
ára. Og það
varð upphafið
að tónlistar-
ferlinum, sem
Mike er enn að
feta sig á, enda
býður hann
upp á fjöl-
skrúðugan
tónlistar-
smekk. „Bras-
ilískur djass
og bossa nova
er mín
músik," segir
hann.
Líf Mikes
snýst nú um
nýstofnaða
hljómsveit
hans og ferða-
lög. Hann seg-
ir að það sé
Mike og
Ronnie
Biggs hafa
alltaf veriö
perluvinir.
gott að búa í London og hitta fólk og
rækta tengsl við ættingja, en ferða-
lög séu Ifka spennandi. Lendir hann
aldrei í vandræðum vegna nafnsins,
þegar hann þarf að sýna vegabréfið
sitt?
„Nafnið mitt er svo langt, Michael
Femando Nascimento Castro Biggs,
að flestir hafa gefist upp áður en þeir
hafa lesið það til enda,“ segir hann.