Tíminn - 03.12.1992, Blaðsíða 12

Tíminn - 03.12.1992, Blaðsíða 12
AUGLÝSINGASIMAR: 680001 & 686300 Askriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaiþróttagallar á frábæru verði. Umboössala á notuðum bamavörum. Sendum í póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Símar: 685626 og 689711. VERIÐ VELKOMIN! Bílasala Kópavogs Smiöjuvegi 1, 200 Kópavogi Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN ríxniiui FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 Fjármálaráðherra segir aðgerðir sjúkraliða ólögmætar og hótar hörðu og setur skilyrði fyrir nýjum viðræðum við stéttarfélag þeirra: Sjúkraliðar mæti fyrst til vinnu Friörik Sophusson, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi í gær að samninganefnd rfldsins myndi ekki koma til fundar við sjúkraliða nema að sjúkraliðar hættu aðgerðum. Hann sagðist telja aðgerðirn- ar ólögmætar og gaf í skyn að Félagsdómur yrði hugsanlega látinn skera úr um lögmæti þeirra. Friðrik sagði að stefna stjórnvalda væri að samræma kjarasamninga. samið var um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga árið 1990, hefði því verið lofað að laun starfsfólks heil- brigðisstofnana á Iandsbyggðinni yrðu ekki lækkuð. Greinilegt sé að ekki eigi að standa við þetta. Ingi- björg sagði að þeir sjúkraliðar sem Sjúkraliöar í Reykjavík héldu áfram aðgerðum sínum í gær og í staö þess að mæta á vinnustaöi sína í gærmorgun var haldinn fjölmennur kjaramálafundur í húsnæði BSRB. Þaðan gengu svo fundar- menn niður í Ráðhús Reykjavíkur þar sem Kristín Á. Guðmundsdóttir ávarpaði Markús Örn Antons- son borgarstjóra og Magnús L. Sveinsson forseta borgarstjórnar. Þaðan gengu sjúkraliðar svo til Al- þingishússins og hlýddu á utandagskrárumræðu um kjaradeilu sjúkraliða. Timamynd Ami Bjama Hann sagði varasamt fyrir ríkisvald- ið aö semja um ólík kjör og réttindi eftir því hvar menn starfi á landinu. Ef gengið yröi að kröfum sjúkraliða myndi það skapa fordæmi fyrir aðra launahópa. Það var Kristín Ástgeirsdóttir, þingmaður Kvennalista, sem átti frumkvæði að umræðum um sjúkraliðadeiluna á Alþingi. Kristín sagði að ástandið á sjúkra- húsunum væri mjög alvarlegt og yrði erfiðara eftir því sem frá liði. Hún krafðist þess að þegar í stað yrði boðaður samningafundur og gengið yrði frá samningum eins fljótt og auðið er. „Ríkisvaldið verður að horfast í augu við þá staðreynd að það tekur við starfshópum sem búa við mis- munandi kjör eftir því hvar það býr á landinu. Það getur ekki verið meiningin að semja um afnám rétt- inda og jafnvel launalækkun fyrir sjúkraliða úti á landi, eða hvað? Hvaða afleiðingar hefði það fyrir sjúkrahúsin úti á landsbyggðinni ef slík réttindasvipting ætti sér stað? Hvað kemur í veg fyrir að mismun- andi kjarasamningar gildi á hinum ýmsu stöðum? Er það eitthvert náttúrulögmál að allir verði að hafa sömu laun og sömu réttindi í sömu störfum hjá ríkinu? Það er mjög margt sem mælir með því að fólk í sérhæfðum störfum úti á lands- byggðinni njóti ákveðinna bestu kjara til að tryggja að t.d. sjúkrahús séu mönnuð sérmenntuðu fólki," sagði Kristín. Ingibjörg Pálmadóttir (Frfl) og fleiri þingmenn minntu á að þegar ráðnir væru til starfa úti á landi væru nú ráðnir á taxta sem þýddi að viðkomandi væri á allt að 25% lægri launum en sjúkraliðar eru á sem ráðnirvoru fyrir 1990. Steingrímur J. Sigfússon (Alb.) sagði að ástæðan fyrir launamun sjúkraliða í Reykjavík og á lands- byggðinni, væri að ekki fengist fólk til starfa við sjúkrahús á lands- byggðinni á þessum lélegu launum. Þessi rök fyrir launamuninum væru enn gild. Finnur Ingólfsson (Frfl.) sagði að Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segir á Alþingi í gær að ekkert verði rætt við sjúkraliða nema þeir mæti fyrst til vinnu. Timamynd Árni Bjama. ef fjármálaráðherra vildi samræma launakjör í opinberri þjónustu gæti hann byrjað á starfsmönnum í ráðuneytunum sem margir væru mikið yfirborgaðir og fengju greitt fýrir óunna yfirvinnu. „Ég vil segja það að samninga- nefnd ríkisins er tilbúin til að koma til fundar við sjúkraliða um leið og látið er af þeim aðgerðum sem nú eru uppi. Við teljum þær aðgerðir ólögmætar. Um það er deila. Þegar slík deila kemur upp þá höfum við dómstól, Féiagsdóm, sem getur skorið úr um það. En ég hygg að það sé öllum fyrir bestu, sjúkralið- um, ríkinu og þó ekki síst sjúkling- unum, að horfið verði aftur til þess að taka upp kjarasamninga. Það get- ur gerst um leið og af þessum að- gerðum er látið," sagði fjármálaráð- herra. Það vakti athygli við umræðuna í gær að heilbrigðisráðherra tjáði sig ekki um málið. Byrjunarlaun sjúkraliða í Reykja- vík eru 52.426 en hæstu laun kom- ast upp í 68.301. -EÓ ...ERLENDAR FRÉTTIR... MOSKVA Gaidar hrellir harölínu- menn Jegor Gaidar, starfandi forsætisráö- herra, baröist fyrir pólitískri framtiö sinni og réöist á harölínuandstæö- inga sina i gær. Hann sagöi aö sér- hver breyting á stefnu hans myndi hrinda Rússlandi út I óðaveröbólgu. SARAJEVO Serbar herða sig Stórskotahriö Serba dundi á Saraje- vo og fjölda bæja í noröurhluta Bos- nlu I gær en I Serbíu stendur yfir undirbúningur aö úrslitakosningum sem almennt er álitiö aö gefi bestar vonir um aö binda enda á bardagana. GENF Ráöherrar ræða um Bosníu Stjómarerindrekar sögöu í gær aö er- lendir ráöherrar frá um 30 rikjum ætli aö eiga fund I þessum mánuöi til aö ræöa stríöiö I Bosniu og sifellt há- værari áköll um hernaöarlega ihlutun Vesturlanda. PARlS Grípur VES inn í Bosníu? Fundur þings Vestur- Evrópusam- bandsins (VES) lagöi I gær fast aö vamarbandalagi níu Evrópuríkja aö Ihuga áætlanir um hugsanlega hern- aöariega íhlutun I Bosniu. BONN Evrópa loki á flóttamenn Þjóöverjar segja aö Evrópa veröi sameiginlega aö stööva straum flótta- manna sem hefur hrundiö af staö kynþáttaofbeldi I Þýskalandi og viöar. Og maöurinn sem átti upptökin aö hátiöahöldum til aö minnast 50 ára af- mælis undravopns Hitlers, V-2 eld- flaugarinnar, hefur sagt skiliö við stærsta geimfyrirtæki Þýskalands. Miklar deilur komu upp eftir aö Karl Dersch, alþjóölegur markaösstjóri Deutsche Aerospace (DASA), haföi dregiö gamla keisarafána landsins aö húni og sagöi hann af sér starfi eftir hatrammar deilur viö aöalforstjóra DASA. LUANDA Dregur úr bardögum I gær dró úr bardögum i noröurhluta Angóla, þar sem uppreisnarher UN- ITA hóf árásir I þessari viku. Enn ligg- ur þó viö allsherjar borgarastyrjöld á ný I landinu. AÞENA Ríkisstjórnin rekin Gríski forsætisráöherrann, Constant- ine Mitsotakis, rak alla ráöherra sína í gær og ætlar að mynda nýja stjórn áöur en sólarhringurinn er liöinn, aö sögn talsmanns hans. HANOI Engin útþenslustefna Li Peng, kinverski forsætisráöherr- ann, neitaöi i gær aö Beijing vildi auka áhrif sín á þessum slóöum og sagöi aö nýupptekin eölileg tengsl Kina viö Vietnam, myndu eiga sinn þátt í aö tryggja jafnvægi í Asiu. HONGKONG Vopnaðir ránsmenn Ræningjar, vopnaöir byssum og handsprengjum, sendu skothríö aö lögreglunni áöur en þeir rændu leigu- bil og keyröu hann I klessu. Þetta var annar skotbardaginn I mannþrönginni I Hong Kong I gær, segja yfirvöld. KINSHASA Hættuástand Öryggisliö Zaire umkringdi ráöuneyt- isbyggingar I höfuöborginni þegar spenna jókst milli Mobutu Sese Seko forseta og forsætisráöherrans. I fyrra- dag neitaöi Etienne Ishisekedi for- sætisráöherra aö fara aö skipun Mo- butus um aö leysa upp stjórnina, og i gær hindruöu herlögregla og vopnaö- ar lögreglusveitir aögang aö ráöu- neytunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.