Tíminn - 18.12.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 18.12.1992, Qupperneq 1
Föstudagur 18. desember 1992 219. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Lionshreyfingin safnaði fyrir fullkomnu sambýli fyrir gjörfötluð fómarlömb slysa. Sambýlið er tilbúið en hefur staðið autt á annað ár: Stjómvöld tíma ekki að kosta reksturinn Lionsmenn söfnuðu fyrir fjórum árum hátt í 30 milljónir kr. með sölu á Rauðu fjöðrinni svonefndu. Féð rann til byggingar sambýlis á Reykjalundi fyrir 7 gjörfatlaða einstaklinga sem eru flestir fórnar- lömb alvarlegra umferðaslysa. í dag stendur sambýlið fullbúið en mannlaust því að yflrvöld veita ekki fé til rekstrarins. Það virðist þau einu máli gilda þótt gjörfatlaðir, sem eru yflrleitt ungt fólk, séu m.a. vistaðir á öldrunardeildum. „Við skiljum því ekki hvaða sparn- að stjórnvöld sjá af því að taka húsið ekki í notkun“, segir Björn Ás- mundsson framkvæmdastjóri á Reykjalundi. Að sögn Björns er forsaga málsins sú að árið 1989 safnaði Lions- hreyfingin fyrir húsinu með sölu á rauðu fjöðrinni. Þetta segir hann hafa verið gert með stuðningi heilbrigðisyfirvalda. Ætlunin var að mæta þörf gjörfatlaðra einstak- linga fyrir varanlega vistun við heimilislegar aðstæður með bygg- ingu á sambýli fyrir sjö vistmenn. Dæmi um gjörfatlaðan mann er einstaklingur sem er algerlega la- maður en getur gert sig skiljan- legan með því að depla augabrún. Björn segir að látið hafi verið liggja að því að um sérstakan nið- urskurð hafi veri að ræða með því að taka ekki heimilið í notkun. „Við vitum að það kostar ekki minna að vista þetta fólk á þeim sjúkrastofnunum þar sem það býr við frekar óyndisleg kjör vitandi það að það þarf hjúkrunarlega umönnun alla ævi. Þetta er oft á tíðum ungt fólk sem hefur slasast í umferðaslysum og það er algengt að það sé vistað á öldrunardeildum í varanlegri vistun í herbergi með öðrum“, segir Björn. Björn telur að á milli 20 og 30 íslendingar séu gjörfatl- aðir. „Það var meiningin að velja úr þeim hópi. Þetta átti að vera til- raun gerð hér á Reykjarlundi", segir hann. Hann segir að Lionsmenn hafi beitt sér fyrir söfnuninni með góðum stuðningi heilbrigðisyfir- valda sem óskuðu eftir því að hús- ið yröi reist við Reykjalund. „Hús- ið hefur staðið tilbúið allt þetta ár. Við vorum tilbúnir til að hefja rekstur strax og höfum sent inn rekstraráætlun til ráðuneytisins. Síðan heyrðum við eins og aðrir Iandsmenn fjárlagatillögur og þar var skýrt tekið fram að ekki væri áformað að taka þetta hús í notk- un á þessu eða næsta ári“, segir Björn. Það er ekki laust við nokkra beiskju hjá Birni er hann segir: „Við erum raunar varnarlausir. Við sjáum um húsið og kyndum það og höfum eftirlit með því en það stendur autt.“ Hann segir að Reykjalundur sitji eftir með sárt ennið eftir þetta mál. „Það lá inni í loforði stjórn- valda að framkvæmdasjóður fatl- aðra myndi greiða það sem upp á vantaði af byggingakostnaði. Þeir skulda okkur, óverðtryggt, um 13 milljónir króna sem eru líklega 15 til 16 milljónir króna í dag“, segir Björn. „Það ræðir enginn við okkur um þetta nema Lionsmenn sem hafa þungar áhyggjur. Þeir söfnuðu fénu hjá almenningi sem þeir og gera á fjögurra ára fresti. Þeir geta náttúrulega ekki gengið fyrir hvers manns dyr og safnað fyrir góðum hlutum á meðan síðasta verk þeirra fær ekki að sjá dagsins ljós“, segir Björn. -HÞ Stórtjón í W a Egilsstöðum Verslunarhúsnæði brann á Eg- ílsstoöum í fyrrinótt og er tjón metið á allt að 12 milljónir króna. Tálið er að eldur hafl komið upp í skreytingu í Krambúðinni sem er önnur af tveimur verslunum sem staösettar eru í húsinu en hin er skóverslunin Krummafót- ur. Kona sem býr á efri hæð húss- ins varð eldsins vör. Áöur en slökkviliðið kom á staðinn haföi tengdasyni hennar tekist að ráöa niðurlögum hans aö mestu leyti. Innbú skóverslunarinnar er ttyggt en vafl lék á hvort Kram- búðin væri vátryggð. -HÞ Óðinn strandar viö ísafjörð Varðskipið Óðhm tók niðri við höfnina á ísafirði f gær. Fagranesið dró skipið af strandstaö, en svo illa vildi til að togvírinn lenti í skrúfu Fagranessins eftir að Óðinn losnaði. Fagranesið var dregið til bryggju. -EÓ Um 240 manns deyja árlega af völdum reykinga. „Þetta er faraldur“, segir ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins. Hagfræðistofnun: Útgjöld meiri en tekjur dagar til jóla Árið 1990 var þjóðhagslegur kostn- aður af tóbaksreykingum um 200- 700 milljónir umifram tekjur ríkisins af tóbakssölu. Þá deyja um 240 ís- lendingar áríega af völdum reykinga sem jafngildir þvf að viðkomandi ein- staklingar tapi að jafhaði 14 árum af ævi sinni. Ef reykingamenn ættu að standa tmdir öllum kostnaði af tób- aksneyslu sinni þyrfti pakkinn af síg- arettum að kosta a.m.k. 300 krónur. Þetta kemur m.a. fram í nýútkom- inni skýrslu Hagfræðistoínunar Há- skóla íslands sem Bjögvin Sighvats- son vann að beiðni Tóbaksvama- nefndar. En eins og kunnugt er þá er nefndin stjómvöldum til ráðuneytis í tóbaksvömum og fyrir ríkisstjóm liggur m.a. frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að leggja sérstakt leyfisgjald á alla þá sem selja tóbak. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu segir að dauðsföll af völdum reykinga séu það mörg að hér sé um farald að ræða. Samkvæmt skýrslunni námu tekjur ríkisins af sölu tóbaks um 3.100 millj- ónum króna árið 1990 en útgjöldin Björgvin Sighvatsson t.v. og því næst Guömundur Magnússon prófessor og Páll Sigurðsson, ráöuneytisstjóri í heilbrigðisráðu- neytinu. Tímamynd:Ámi Bjama voru á bilinu 3.3-3.8 milljarðar og er það „varfæmisleg niðurstaðá' að mati skýrsluhöfundar og því kunna út- gjöldin að vera mun meiri. Hinn þjóð- hagslegi kostnaður ríkisins vegna reykinga árið 1990 skiptist þannig að beinn heilbrigðiskostnaður var á bil- inu 370400 milljónir og hefur þá ver- ið tekið tillit til þess framtíðarspam- aðar, 240 miljóna, í heilbrigðiskerfinu sem ótímabær dauði reykingamanna veldur. Almennur sjúkrahússkostnað- ur var 470 milljónir og lyfja-, sér- fræði- og heilsugæslukostnaður og kostnaður vegna heimilislækninga var áætlaður um 135-160 miljónir. Þá var á árinu um 8 miljónum króna var- ið til tóbaksvama. Óbeinn kostnaður vegna reykinga nam um 2.940-3.420 milljónum króna sem skiptist þannig að fram- leiðslu- eða vinnutap vegna ótíma- bærra dauðsfalla, örorkuþega og veik- indaforfalla reykingamanna var 1.840-2.230 milljónir. Annar þjóðfé- lagslegur kostnaður s.s. eldsvoðar af völdum reykinga og framleiðslutap fýrirtækja vegna reykinga á vinnustað og þá aðallega í formi „smókpásu" var 1.1-1.2 milljarðar. Að mati skýrsluhöfúndar er hlutur fyrirtækja og opinberra stofnana af hinum þjóðfélagslega kostnaði sem hlýst af reykingum, um 1.500-1.630 milljónir á árinu 1990, sem jafngildir umframkostnaði að upphæð 30-32 þúsund krónum á hvem starfsmann sem reykir. Þá hefur verið tekið tillit til beinna og óbeinna veikindaforfalla af völdum tóbaksreykjar, reykinga- hléa, þrifa, skemmda á búnaði og hús- gögnum og að reykingar hafi versn- andi áhrif á líkamsgetu reykinga- mannsins. -grii EIGUM NÚ FYRIRLIGGJANDI Harðviður margar viðartegundir, full þurrkaður - Gólfflísar D.PIatt - Gólfparket mikið úrval með öllu tilheyrandi - Útihurðir sýnishorn á staðnum - Austurlensk gólfteppi hágæðavara - Mexi vörur hleðslu og veggflísar, lím og fúgusement - Kopar á þök - Koparbúsáhöld - Tidaholm fiaggstangir með öllu tilheyrandi - Þrýstidælur fyrir skólplagnir. Allt vandaðar vörur. BYGGIR h/f Sími 91-677190

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.