Tíminn - 18.12.1992, Síða 2

Tíminn - 18.12.1992, Síða 2
2 Tíminn Föstudagur 18. desember 1992 Björn Þ. Guðmundsson, lagaprófessor, segir að eðlileg málsmeðferð í EES- málinu sé að gera breytingar á samningnum og leggja hann breyttan fyrir Alþingi til samþykktar eða synjunar: Ekki er nægilegt að breyta EES-frumvarpinu Björn Þ. Guömundsson, lagaprófessor, segir ekki nægilegt að EES-frum- varpinu, sem nú liggur fyrir Alþingi, verði breytt. Leggja verði fram nýtt frumvarp þegar búið er að gera þær breytingar á EES- samningnum sem ákvörðun Svisslendinga að gerast ekki aðili að EES, kallar á. Björn segir að það samrýmist ekki íslenskum lögum að samþykkja frumvarpið eins og það liggur nú fyrir Alþingi. Björn sendi forseta Alþingis bréf þar sem vakin var athygli á þessu mikilvæga atriði. Utanríkisráðherra vill að sú málsmeðferð verði við höfð að Alþingi samþykki EES- samninginn nú þegar og síöar verði samþykkt bókun við samninginn sem taki tillit til ákvörðunar Sviss- lendinga. „Það nægir ekki að breyta íyrstu grein frumvarpsins einfaldlega vegna þess að það verður að sam- þykkja samninginn eins og hann er lagður fram eða ekki. Ef Alþingi ákveður að samþykkja frumvarpið þá tekur íyrsta grein þess þegar í stað giidi. Nú liggur fyrir að vegna úrsagnar Sviss þá þarf að breyta samningnum sjálfum og um það eiga að fara fram viðræður síðar. Al- þingi verður þá búið að samþykkja samninginn með þeim texta sem Iiggur fyrir núna og sem samþykkt- ur var í Óportó 2. maí 1992, þó að fyrir liggi að samningurinn verði endanlega aldrei í því formi sem Al- þingi er að ræða um hann núna.“ Björn sagðist ekki fallast á að eðli- leg málsmeðferð sé að EES- samn- ingurinn verði samþykktur á Al- þingi nú og síðar verði samþykkt bókun við hann sem taki tillit til ákvörðunar Sviss að gerast ekki aðili að EES. „Þessi lagatexti tekur gildi eins og hver önnur íslensk lög. Að mínu viti væri rétt málsmeðferð að umræður færu fram úti um breyt- ingar á samningnum og breyttur samningurverði lagður fyrirAlþingi til samþykktar eða synjunar." Bjöm sagðist hafa sent forseta Al- þingis bréf þegar sér varð ljóst hvaða leið stjómvöld hugðust fara við að lögfesta samninginn. „Mér fannst að hér stefndi í það að ekki væri farið að lögum og mér er ekki sama sem lagaprófessor um það. Rökin em þau sömu og þegar ég fór að athuga stjómarskrárþátt málsins", sagði Björn en hann hefúr sem kunnugt er sent utanríkismálanefnd greinar- gerð þar sem hann segir að vafi leiki á um að samningurinn standist ís- lensku stjórnarskrána. Bjöm var kallaður fyrir utanríkis- málanefnd eftir að forseti Alþingis hafði fellt þann úrskurð að sú máls- meðferð að afgreiða EES- fmmvarp- ið nú þegar yrði viðhöfð. Bjöm sagði að sú spurning vakni til hvers Bjöm Þ. Guðmundsson prófessor nefndin var að hlýða frekar á sín rök þegar búið var að hafna þeim með úrskurði úr forsetastóli. Björn sagði að þetta hafi sett mark sitt á fund- inn. Ekki hafi gefist tóm til að fara ítarlega yfir þau gögn sem hann hafi haft tiltæk. Bimi hefur ekki beinlínis verið þakkað fyrir innlegg sitt í málinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur ráðist harkalega að Bimi og sakað hann um óvönduð vinnu- brögð, auk þess sem hann hefur ráð- ist að honum persónulega. „Ég tel þessa gagnrýni á mína persónu ekki svaraverða. Það em efnisatriði máls- ins sem skipta máli. Ef menn telja að ég hafí rangt fyrir mér þá verður að hrekja það lögfræðilega." Aðspurður sagði Bjöm að það kunni vel að vera að tilgangur for- sætisráðherra með hörðum við- brögðum við ábendingu sinni hafi verið að vara lögfræðinga við því að hafa afskipti af málinu. „Ég læt ekki kúga mig á þennan hátt. Ég hef fullt skoðanafrelsi og málfrelsi. Ég tel það raunar hlutverk starfsmanna Háskólans að láta sig varða það sem er að gerast í þjóðfélaginu", sagði Björn. -EÓ Deilt um lögsögu Félags- dóms í máli ríkisins á hendur sjúkraliðum: Sjúkraliðar áfrýja til Hæstaréttar Félagsdómur hefur úrskurð- að aö hann hafi Iögsögu í máli ríkisins gegn Sjúkra- liðafélagi íslands um ólög- mæta vinnustöðvun. Að sögn framkvæmdastjóra fé- lagsins mun félagið líklega áfrýja þessum úrskurði til Hæstaréttar. Aðalkrafa félags sjúkraliða var sú að málinu yrði vfsað frá á þeim forsendum að mál- ið félli ekki undir lögsögu Fé- lagsdóms. Nú hefur hann hins vegar orðið á þann veg að hann hafi lögsöguna og hefur Sjúkraliðafélagið viku- frest til að kæra þann úrskurð til Hæstaréttar. Gunnar Gunnarsson framkvæmda- stjóri félagsins segir að texti laganna sé skýr: „Það segir í lögunum að lögsaga dómsins taki til boðaðrar vinnustöðv- unar. Það verður ekki skilið öðruvísi en að hann megi ekki fjalla um það sem liðið er“, segir Gunnar. —HÞ Útgerðarfélag Akureyringa fjárfestir í þýsku útgerðarfyrirtæki: Kaupir allt að 60% hlutabréfa í byrjun næsta árs verður væntanlega gengið frá kaupum Útgerðarfélags Akureyinga hf. á Akureyri á 60% hlutabréfa í næst stærsta útgerðaríyrir- tæki Þýskalands, Rostocker Fichfang í Rostock. Hlutfall framkvæmdafjár Reykjavíkur af áætluðum tekjum lækkar úr 3,4 milljörðum í 1,5 milljarð milli ára: Frekar umbylting heldur en breyting Þýska útgerðarfyrirtækið á átta frystitogara og þar af eru sjö þeirra 4-5 ára gamlir. Kvótaeign þess er um 20-30 þúsund tonn en þó aðal- lega af síld, makríl og karfa en veiði- heimildir þess eru víða og m.a. við Grænland, Nýfúndnaland, Færeyjar, Noreg, Norðursjó og í Barentshafi. Auk þess hefur fyrirtækið aðgang að styrkjum og annarri fyrirgreiðslu frá Evrópubandalaginu og frá þýsk- um stjórnvöldum Þegar hefur verið undirrituð vilja- yfirlýsing um kaupin en Gunnar Ragnars forstjóri ÚA segir að endan- leg afgreiðsla málsins muni ekki liggja fyrir fyrr en í janúar þegar Þjóðverjarnar verða búnir að sam- þykkja kaupin fyrir sitt leyti. Þessi fyrirhuguðu hlutafjárkaup ÚA í hinu þýska fyrirtæki voru kynnt á stjómarfundi félagsins í gær. Gunn- ars Ragnars segir að stjómin sé samstíga í þeim skrefum sem stigin hafa verið, en þessi hlutafjárkaup hafa verið til skoðunar þar nyrðra frá því í sumar. Forstjóri ÚA segir þessi hlutafjár- kaup mjög áhugaverð og m.a. út af arðsemissjónarmiði. Hann segir að rekstur þessara frystitogara verði hrein viðbót við önnur umsvif Út- gerðarfélagsins og muni ekki verða blandað við annan rekstur félagsins. Gert er ráð fyrir að þýsku frystitog- ararnir muni athafna sig í íslensk- um höfnum og með bækistöð fyrir norðan. -grh „Það er tæpast hægt að tala um breytingu á fjárhagsáætluninni — fremur hægt að kalla það umbylt- ingu“, sagði Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi, spurð um fjárhags- áætlun næsta árs sem lögð var fram á fundi borgarstjómar í gær. Gleggsta dæmið um þetta segir Sigrún það, að framkvæmdafé borgarinnar, þ.e. afgangur frá rekstri eins og hjá öðrum fyritækj- um, sé dottið niður í um 1,5 millj- arð borið saman við 3,4 milljarða árið áður. Þaraa sé því um meira en helmingslækkun að ræða milli ára, sem fremur megi líkja við hrun heldur en breytingu. Hversu Iangt sem hún liti aftur sagðist Sigrún ekki finna dæmi þess að svo lágt hlutfall teknanna hafi orð- ið eftir til framkvæmda. En af hverju er þetta? ,Já af hverju er þetta? Mér er erfitt að skýra það, nema þá að offjárfest- Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi ingu sé fyrst og fremst um að kenna. Ég held að það hafi hrein- lega enginn maður á íslandi farið á annað eins fjárfestingariyllerí og Hallinn á ríkissjóði er að nálgast 10 milljarða og talsvert er enn í pípunum: Hallinn í ár er þegar orðinn 9,6 milljarðar Með fjáraukalögum sem nú liggja fyrir Alþingi er hallinn á fjárlögum þessa árs orðinn 9,6 milljarðar. Guðmundur Bjamason (Frfl.) segir að enn séu ekki öll kurl komin til grafar og flest bendi til að þessi halli eigi eftir að auk- ast enn. Fjárlög gerðu ráð fyrir rúmlega fjögurra milljarða halla á þessu ári. Fljótlega varð Ijóst að þessi tala myndi ekki standast. Flest bendir til að hún eigi eftir að fara yfir 10 millj- arða og er þá ekki tekið tillit til skuldbindinga sem falla á ríkissjóð og Ríkisendurskoðun telur rétt að reikna inn í hallann á þessu ári. Guðmundur segir að mikið vanti á að tekið hafi verið tillit til allra þátta í frumvarpi til fjáraukalaga sem nú er verið að fjalla um á Alþingi. 300 milljónir vanti til rekstrar Hafrann- sóknastofnunar vegna þess að ekki tókst að selja veiðiheimildir Hag- ræðingarsjóðs í þeim mæli sem áætlað var. Lyfjakostnaðurinn stefni í að fara um 500 milljónir fram úr áætlun fjárlaga, en inn í fjárauka- lagafrumvarpið er aðeins tekið 200 milljónir. Um 66 milljónir vanti vegna rekstrar ferja og flóabáta. Þá hafi í haust aðeins 243 milljónir af 500 milljónum sem ná átti með sölu ríkiseigna skilað sér í rikissjóð.Tlpp- haflegt markmið var að selja ríkis- eignir fyrir 1,1 milljarð. -EÓ treyst eins á happdrættisvinninga eins og Davíð Oddssorí'. Þótt þensluárin á síðasta áratug hafi skilað meiri tekjum en áætlað var hafi vitanlega þurft ofurmáta bjart- sýni til að búast við að svo yrði áfram um alla framtfð, eins og hafi líka komið í ljós á árunum síðan 1990. Frá 1990 hefur það verið að gerast, árlega, að tekjumar hafi alltaf orðið minni heldur en áætlað var. Við gerð fjárhagsáætlunar í fyrra hafi tekjur borgarinnar verið áætlaðar 12,8 milljarðar. Nú sé hins vegar talið að þær verði ekki nema 12,3 milljarðar, eða um hálfum milljarði undir áætlun. Fyrst og fremst sé þetta vegna miklu slakari inn- heimtu aðstöðugjalda. Sigrún segir athyglisvert að tekjur ársins 1993 séu nú aðeins áætlaðar um 12,2 milljarðar, þ.e. um 600 millj.kr. lægri en í fjárhagsáætlun í fyrra — en aftur á móti álíka og reiknað er með að útkoma ársins verði f raun. Þetta þýði væntanlega að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár verið raunhæfari heldur en núna síðustu árin. Stærsta tekjustofn- inn, útsvörin, segir Sigrún áætluð 6.260 milljónir króna 1993, eða nánast sömu upphæð og í síðustu fjárhagsáætlun. Og fasteignagjöld- in segir Sigrún hækkuð heldur, í 2.045 milljónir kr. í áætlun næsta árs. Borgin var búin að lýsa yfir að framkvæmdafé ætti að verða svipað næsta ár og í ár. Þessvegna segir Sigrún nú ráðgert að um helmingi 2,5 milljarða lánsins, sem borgin tók fyrir mánuði síðan, verði bætt við það sem afgangs er frá rekstri. En þrátt fyrir þetta hafi Reykjavík- urborg hundruðum milljóna kr. minna til framkvæmda á næsta ári en því síðasta. Og jafnframt þýðir þetta að hún verði enn í yfirdrætti upp á 1,4 milljarð um áramót, sem vitanlega sé mjög hátt, t.d. 11,5% af . áætluðum tekjum næsta árs. - HEI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.