Tíminn - 18.12.1992, Page 7

Tíminn - 18.12.1992, Page 7
Föstudagur 18. desember 1992 Tíminn 7 „Stoltastir erum við af ritsafni Indriða G.“ segir Reynir H. Jóhannsson, útgáfustjóri bókaútgáfunnar Reykholts Reynir H. Jóhannsson: „Af sögu Volkswagen-bjöllunnar veröur enginn svikinn. “ Tlmamynd Árni Bjarna ! gær ræddi blaðið við Reyni H. Jó- hannsson, útgáfustjóra bókaútgáf- unnar Reykholts að Faxafeni 12 í Reykjavík, um bækur foriagsins í ár. Þar eru titlar ekki margir, en því meira er í verkin lagt, eins og ljóst má vera af því sem Reynir segir hér á eft- ir. Þar ber þó hæst ritsafn Indriða G. Þorsteinssonar rithöfundar. „Já, stoltastir erum við af ritsafni Indriða G. Þorsteinssonar," segir Reynir, „en það kemur nú út í níu bindum ásamt myndbandsspólu með kvikmyndinni „79 af stöðinni." Þetta er önnur tveggja skáldsagna höfundar sem hafa verið kvikmyndaðar. For- mála fyrir safhinu ritar Hallberg Hall- mundsson. Við teljum að hér hafi mjög vel tekist til og þykjumst vissir um að safnið mun hljóta þær góðu viðtökur sem það verðskuldar. En hér er þó ekki allt talið, sem við gefum út eftir Indriða, því tíunda bók- in er ,/Ettjörð mín kæra“, síðara bind- ið af ævisögu Hermanns Jónassonar. Þar er fjallað um ævi Hermanns frá því í stríðsbyrjun og til dánardægurs hans. í bókinni segir meðal annars af viðbrögðum Hermanns við tilraunum Þjóðveija til ítaka hér fyrir stríð, svo og þætti hans í undirbúningi að lýð- veldisstofnuninni og er þó auðvitað fátt eitt talið. Verk tveggja lífsspekinga Þótt þessi tvö verk séu þær bókanna sem ég hlýt að nefna fyrst, þá er fleira í boði hjá okkur. „Minnisstæðar tdl- vitnanir" heitir bók eftir Norman Vin- cent Peale, sem er mjög kunnur af bókum sínum hér á landi. Ein þeirra er „Vörðuð leið til Iífshamingju", sem hefur að geyma lífsspeki sem mörgum hefur hjálpað. En ,>1innisstæðar til- vitnanir" Peales hefúr að geyma ívitn- anir allt frá Kristi, Búdda og Kóranin- um og frarn til okkar tíma. Þær hefur Peale valið á grundvelli reynslu sinnar og er þeim skipt í kafla, sem hver spannar sértakt svið. Dæmi um kafla- heiti eru ,Andleg heilsa“, „Líkamleg heilsa" og svo framvegis og skrifar höfundurinn inngangsorð fyrir hverj- um kaflanna. f inngangsorðunum skýrir hann hvemig best sé að nýta sér tilvitnanimar í daglegu lífi. „Heilbrigði njóttu" er bók eftir annan kunnan lífsspeking, Edgar Caice, sem sömuleiðis er þekktur meðal íslend- inga. Caice er nú látinn, en bókin er unnin með þeim hætti að bandarískur læknir, Eric A. Mein, fór í rit hans og gerði rannsóknir á dáleiðslutækni hans. Hann hefur fúndið út að þama er mikil sannindi að finna og eftir því sem læknavísindunum fleygir fram kemur það æ betur í ljós hve mikið Caice hafði til síns máls — eða þeir sem töluðu í gegnum hann, ef menn vilja fremur orða það svo. Ævisaga „bjöllunnar“ En nú verð ég að bregða mér yfir í aðra sálma, því þá er komið að bók um Fólksvagninn — eða „bjölluna" frægu. Við köllum þetta „ævisögu bíls“, sem þó er ekki alveg réttnefni. „Bjallan" er ekki öll enn, þar sem hún er nú framleidd lítið breytt í Mexíkó. En ævisaga þýsku „bjöllunnar" er þetta þó frá upphafi til enda. Lesand- inn verður hér margs vísari, sem sumt kemur á óvart. Til gamans má nefna að það mun hafa verið Hitler sem þakka má straumlínulagið á Volks- wagen- bjöllunni. Porsche hafði hannað bfi sem var með kantaðri út- línur, en þýski Foringinn vildi hafa þær mýkri. Auðvitað varð þá svo að veral Þá má nefna að fyrstu bflamir, sem smíðaðir voru eftir stríð, þóttu það lélegir að allir, sem gátu sýnt fram á að þeim hefði tekist að aka honum tíu þúsund kflómetra, fengu viður- kenningarskjal og gullúr. Hér er um afar skemmtilega bók að ræða, en hún er í stóru broti með af- bragðsljósmyndum, fleiri en fáerri í lit Af sögu „bjöllunnar" verður enginn svikinn og þarf enga bfladellumenn til þess að hafa gaman af henni.“ ISLANDSBANKI Hluthafafundur Hluthafafundur í íslandsbanka h.f. verður haldinn mánudaginn 21. desember n.k. í Átthagasal Hótels Sögu og hefst kl. 16:00. Fundarefni 1. Tillaga um sameiningu Eignar- haldsfélagsins Iðnaðarbankinn hf. og Eignarhaldsfélags Versl- unarbankans h.f. við íslands- banka h.f. 2. Tillögur um breytingar á sam- þykktum félagsins: a) Að enginn hluthafi getifarið meðfleiri atkvœði á hluthafa- fundum en sem nemur 20% af atkvœðum í bankanum. b) Að ákvörðun um breytingu á samþykktum bankans þurfi að hljóta samþykki 213 hluta greiddra atkvœða og samþykki hluthafa sem ráða yfir minnst 213 hlutum þess hlutafjár sem farið er með atkvœði fyrir á hluthafafundi. 3. Önnurmál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir í íslandsbanka h.f., Bankastræti 5 (4. hæð), Reykjavík, 18. desember sem og á fundardegi. Dagskrá fundarins og tillögur liggja frammi á sama stað. Bankaráð Islandsbanka hf. Ný bókfrá Urvalsbókum: Meðleigj- andi óskast Sakamálasagan Meðleigjandi óskast er komin út hjá Úrvalsbókum, en kvikmynd sem gerð var eftir sög- unni er einmitt þessa dagana sýnd í Stjörnubíói og aðalhlutverk leika Bridget Fonda og Jennifer Jason Leigh. Meðleigjandi óskast er eftir John Lutz og þýðandi er Erling Aspelund. Fallej, óvenjuleg oi ódýr jólagjöf Ársmappa Pósts og síma með fhmerkjum ársins 1992 er falleg, ódýr og óvenjuleg jólagjöf. Hún er vel til þess fallin að vekja áhuga á frímerkjasöfnun hjá ungu kynslóðinni. Stingdu ársmöppunni í jólapakkann. Hún kostar aðeins 960 krónur og fæst á póst- og símstöðvum um allt ktnd. i Pósthólf 8445, 128 Reykjavik, Sími 63 60 51 PÓSTUR OG SÍMI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.