Tíminn - 06.01.1993, Blaðsíða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 6. janúar 1993
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Jólaalmanak SUF
Eflirfarandi númer hafa hlotið vinning i jólaalmanaki SUF:
1. desemben 525, 3570. 2. desember. 3686,1673. 3. desember: 4141, 1878.
4. desemben 1484, 2428. 5. desemben 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389.
7. desember: 3952, 5514. 8. desemben 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169.
10. desemben 5060, 289. 11. desemben 1162, 1601. 12. desember: 1235, 522.
13. desember 4723, 2429 14. desemben 288,2834. 15. desemben 1334, 4711.
16. desemben 2833, 4710 17. desemben 3672,1605. 18. desember: 3235, 4148.
19. desemben 3243, 2497. 20. desemben 1629, 1879. 21. desember: 1676, 1409.
22. desemben 1473, 3436. 23. desemben 2832, 2731. 24. desember: 4915, 3527.
Nýárshappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið verður i nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar 1993. Velunnarar
flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda giróseðla fyrir þann tfma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91- 28408 eða 91-
624480.
Óskum velunnurum okkar gleöilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum
stuðninginn á árinu sem er að llða.
Framsóknarflokkurinn
Kópavogur —
Framsóknarvist
Spilum framsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 10. janúar ki. 15.00.
Góð verðlaun og kaffiveitingar.
Freyja
Félagsvist á Hvolsvelli
Spilum 10. og 24. janúar kl. 21.00.
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu
LOKAÐ
Skrifstofur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verða lokaðar eftir hádegi í dag, frá kl. 12:00,
vegna jarðarfarar Helga E. Guðbrandssonar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK
SKÚLATÚNI 2 — 105 REYKJAVlK
SlMI 632480 — MYNDSENDIR 628082
Hirðing jólatrjáa
Hirðing jólatrjáa hefst föstudaginn 8. janúar næstkomandi
og verður framkvæmd samhliða reglubundinni sorphirðu.
Húsráðendur eru beðnir að setja trén út fyrir lóðamörk og
verða þau þá fjarlægö.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNIU ÓDÝRU
HELGARPAKKAN A OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Endurskins-
merki
á alla!
|| UMFERÐAR
Páll Sigurðsson
íþróttakennari frú Lundi í Stíflu
Fæddur 3. júní 1904
Dáinn 25. desember 1992
Páll Sigurðsson íþróttakennari frá
Hofi í Hjaltadal andaðist á sjúkra-
húsinu á Sauðárkróki á jóladag, 25.
desember s.l., á áttugasta og níunda
aldursári. Hann hafði á langri ævi
verið heilsugóður og hraustmenni
þar til fyrir ári síðan að sjúkleiki fór
að sækja á og dró hann að lokum til
dauða.
Páll var kominn af skagfirskum, ey-
firskum og sunnlenskum kenni-
mönnum, glímumönnum og krafta-
mönnum, sem sagnir eru til um, og
bar órækt vitni þessara forfeðra
sinna. Hann fluttist á fyrsta ári með
foreldrum sínum, Sigurði Kristjáns-
syni bónda og kennara frá Ytra-
Garðshomi í Svarfaðardal og konu
hans Maríu Guðmundsdóttur frá
Háakoti í Stíflu, að Háakoti þar sem
þau hjónin bjuggu fyrstu árin. Þau
fluttust síðar að Lundi í Stíflu og var
Páll löngum kenndur við þann bæ
og síðar við Hof í Hjaltadal.
Páll ólst upp í Fljótunum og bar
svipmót þess fagra héraðs og ætt-
menna sinna. Þegar faðir hans, Sig-
urður, dó 1919, gerðist hann ráðs-
maður hjá móður sinni í Lundi, þá
aðeins 15 ára, og hélt búsforráðum
ásamt henni allt til 1934. Hann fór í
Hólaskóla og útskrifaðist þaðan sem
búfræðingur 1927. Hann stundaði
nám hjá Sigurði Greipssyni í Hauka-
dal 1929-1930 og var í glímuflokki
sem sýndi á Alþingishátíðinni á
Þingvöllum 1930. Árið 1934 gerðist
hann kennari við Hólaskóla og
kenndi þar íþróttir allt til ársins
1963, að vetrinum 1936-1937 und-
anteknum er hann var við nám í
íþróttaskólanum á Laugarvatni til
þess að auka sér þekkingu í starfinu
og réttinda í sinni kennslugrein.
Eftir nærfellt þrjátíu ára kennslu
við Hólaskóla fluttist Páll ásamt
konu sinni til Akureyrar þar sem
þau unnu til ársins 1983, hann við
verslunarstörf hjá KEA en hún við
saumaskap. Hugur þeirra hjóna leit-
aði alltaf vestur yfir Tröllaskagann,
heim til Skagafjarðar. Eg hygg að
þegar þau færðu sig til Akureyrar,
hafi þau þá þegar stefnt að því að
flytjast til baka að starfstíma lokn-
um. Þó að Stíflan væri raunar öll í
samanburði við fyrri tíma, var þó
Skagafjörðurinn þeirra heimahérað.
Það var því árið 1985 sem leið þeirra
lá aftur heim í Skagafjörðinn og
hafa þau verið búsett á Sauðárkróki
síðan.
ÁAkureyri bjuggu þau Páll ogAnna
við Klapparstíg, beint yfir íþrótta-
vellinum. Hann gat því notið þess,
sem þar fór fram, úr gluggum íbúð-
arinnar, en það datt honum ekki í
hug að gera. Svo grandvar var hann
að slíkt fannst honum vera þjófnaði
næst.
Eins og sjá má af þessu ágripi hér
áð framan, hefur Páll snemma vígst
til þeirra starfa sem hann stundaði
lengst af ævi sinnar, kennslu, upp-
eldis- og íþróttamála og almennra
félagsmála. Enganveginn eru þó
upptalin þau verkefni, sem hann
fékkst við á langri ævi. Hann brá fyr-
ir sig barnakennslu í Fljótum 1927-
1929. Hann var formaður Ung-
mennasambands Skagafjarðar
1939- 1942, kenndi sund víðsvegar
um Skagafjörð um langt árabil,
komst í kynni við kirkjumál á Hóla-
stað og söng þar í kirkjukór, var kos-
inn í hreppsnefnd og oddviti um
skeið. Hann sat í stjórnum ýmissa
samtaka bænda o.fl. Enn eru þó
ótalin veigamikil verkefni, sem Páll
fékkst við, búskapurinn og ritstörf-
in. Áður er getið ráðsmennsku hans
í Lundi, en árið 1945 fluttist Páll
ásamt fjölskyldu sinni að Hofi í
Hjaltadal og hóf þar búskap. Ekki er
að orðlengja það, en í höndum fjöl-
skyldunnar óx búskapurinn bæði að
magni og gæðum og varð að fallegu
búi með góðar afurðir, enda hirðu-
semin og natnin við búskapinn ætíð
höfð í fyrirrúmi hjá heimilisfólkinu.
Hugur Páls til ritstarfa og fræði-
mennsku hefur vafalaust vakað með
honum alla tíð. Eg hygg þó að hann
hafi ekki snúið sér að þeim málum í
neinni alvöru fyrr en hin síðari ár,
en þá líka af fullri alvöru og atorku,
eins og honum var lagið. Eftir hann
liggja nú ýmsir þættir tengdir sögu
og sögnum og samtímaatburðum,
svo sem frá Hólastað og úr Fljótum,
sem birst hafa í afmælisriti Hóla-
skóla, Skagfirðingabók og víðar.
Einnig munu liggja eftir hann ýms-
ir óprentaðir þættir. Hann var gerð-
ur að heiðursfélaga Sögufélags
Skagfirðinga á 50 ára afmæli þess
1987.
Af því, sem hér hefur verið talið,
má sjá að Páll naut trausts og trún-
aðar samborgara sinna og samfylgd-
armanna í ríkari mæli en flestir aðr-
ir. En hann var heldur ekki einn á
ferð. Kona hans og lífsförunautur,
Anna Gunnlaugsdóttir frá Víðinesi í
Hjaltadal, lofaðist honum ung að ár-
um og tók þátt í störfum hans og
áhugamálum með hógværum og
hljóðlátum hætti. Þessi fallega kona
var honum og heimili þeirra hjóna
dýrmaetur gimsteinn, sem aldrei má
gleymast. Þau hjónin eignuðust
þrjú böm, en þau eru: María hfr. að
Vogum í Kelduhverfi, Sigurður lög-
reglumaður í Reykjavík, og Hjalti
Þórarinn forstöðumaður Safnahúss
og Héraðsskjalasafns Skagfirðinga á
Sauðárkróki.
Leiðir okkar Páls Sigurðssonar
lágu fyrst saman á haustdögum
1936, er við hófum nám í íþrótta-
skóla Björns Jakobssonar á Laugar-
vatni. Á þeim tíma var á héraðsskól-
unum fólk á misjöfnum aldri í sama
bekk, allt frá 15 ára og uppí 30 ára.
Svo var einnig um íþróttaskólann að
þessu sinni. Við vorum aðeins fjögur
f skólanum og var aldursmunur á
þeim elsta og yngsta 14 ár. Elstur
var Páll, 32 ára. Hann gekk ákveðn-
ari skrefum til þessa náms en við
hin, búinn að kenna við Hólaskóla í
nokkur ár og stundaði námið til
þess að afla sér réttinda til starfsins
áfram. Hann hafði einnig áður
stofnað sitt eigið heimili, átti konu
og barn norður í Skagafirði og ann-
að barn þeirra hjóna fæddist síðla
þessa vetrar. Hann var kjölfestan í
þessum fámenna hópi nemenda
Iþróttaskólans, reyndur og ráðsettur
en tók þó á hógværan hátt þátt í öll-
um okkar ærslum og gamanmálum.
Hann var þrátt fyrir aldursmuninn
fullkomlega „einn af okkur". Á þeim
tímamótum, sem nú eru, viljum við
þrjú þakka honum fyrir samveru-
stundimar í skólanum fyrir 55 ámm
og aðrar, sem síðar hafa gefist, og
flytja Önnu konu hans, börnum
þeirra og skyldmennum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Þegar ég nokkmm ámm síðar
fluttist norður í Skagafjörð, lágu
leiðir okkar Páls saman á ný, bæði í
félagsmálum og daglegu lífi. Við
vomm prófdómarar hver hjá öðmm
og endurnýjuðum okkar vinsemd. í
ferðum til Hóla kom ég til þeirra
hjónanna í gamla bæinn á Hólum,
sem nú er varðveittur sem safngrip-
ur, en þau vom ásamt börnum sín-
um síðustu íbúarnir í þessum gamla
bæ. Þar var allt fínt og fágað og bar
íbúunum vitni um fagurt mannlíf
og umhverfi, þrátt fýrir fátæklegan
og fornan búnað. Nú er „öldin önn-
ur“ í búnaði öllum og aðstöðu.
Eftir að þau Páll og Anna fluttust til
Sauðárkróks hófust á ný nánari
samskipti okkar f milli. Síðari árin
áttum við oft samleið í spilastundir í
Safnaðarheimilinu og á samkomur
eldri bæjarbúa og í ferðir um hérað-
ið eða utan þess. Leiðir okkar lágu
þó enn frekar saman í sundlaugina í
þeirri meiningu að efla þrótt okkar
gegn Elli kerlingu. Páll hafði alla tíð
verið hraustmenni, harðfýlginn og
heilsugóður, að undanteknu síðasta
árinu er hann bjó við vaxandi van-
heilsu og sjúkdóm, er að lokum dró
hann til dauða. Þetta er Ieið okkar
allra að lokum.
Einhverntímann á Sókrates að hafa
sagt: „Góðum manni getur ekkert
grandað, hvorki lífs né liðnum." Eg
hefi þá trú að hafi þessi orð ein-
hverja þýðingu, þá falli lífsferill og
lífsstarf Páls Sigurðssonar undir
hljóm þeirra og meiningu og að
honum verði því ekki grandað, þótt
látinn sé.
Við hjónin sendum Önnu konu
hans og börnum þeirra innilegar
samúðarkveðjur með þökkum fyrir
samverustundir fyrr og síðar og
minnum á að gott er að minnast
góðs manns.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARIN S
LAUGAVEGI 120* 155 REYKJAVÍK
Eignir til sölu
Eftirtaldar eignir eru til sölu:
1. Reiðhöllin, Víðidal, Reykjavík.
2. Fóðurstöð Melrakka, Sauðárkróki.
3. Jörðin Skeið, Svarfaðardal.
4. Loðdýrabýlið Dýrholt, Svarfaðardal.
5. Jörðin Brekknakot, Þistilfirði.
6. Alifuglasláturhús við Árnes, Gnúpverjahreppi.
7. Jarðirnar Efra- og Syðra-Sel, Stokkseyrarhreppi.
Nánari upplýsingar veita
Þorfinnur og Leifur í síma 25444.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Guðjón Ingim.