Tíminn - 07.01.1993, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 7. janúar 1993
DNA-PRÓF UPP-
LÝSIR NAUÐGUN
Tálið er nokkuð víst að hinn svo- erlendis í DNA-próf og er niðurstað-
kallaði sólbaðstofuræningi sé sá an jákvæð. DNA-greining þykir gefa
sem nauðgaði konu á Akureyri og nær 100% örugga niðurstöðu. Mað-
ógnaði henni með hnífi í fyrrasum- urinn ógnaði konu með hnífi á sól-
ar. Sýni úr hinum grunaða var sent baðsstofu í nóvember. -EÓ
Starf óskast
Danskur talkennari sem vill flytja til (slands, leitar að hentugu
starfi meöan hann lærir íslensku. T.d. á hjúkrunarheimili eða
slíkri stofnun á Reykjavíkursvæðinu. Getur byrjað 1. febrúar
eða síðar.
Nánari upplýsingar gefnar i síma 46454.
Jólahappdrætti Blindrafélagsins
Dregið 17. desember 1992.
Vinningsnúmer:
7949 4864 13115 13977 2788 11818 13906 14669
8159 10622 12051 12588 801 2871 5345 8428
11748 1584 4967 7915 8970 12826
Vinninga skal vitja á skrifstofu félagsins. Sími 91-687333
Blindrafélagið, Hamrahlíð 17.
Gamli, góði bókamarkaöurinn
í Hafnarstræti 4, veröur opnaður í dag. Þús-
undir íslenskra og erlendra bóka, allar á verð-
inu 50-250 kr. stk.
Ævisögur, héraðssaga, gömul tímarit og blöð,
Ijóð, kvæði, sálmar, rímur, uppeldisfræði, sál-
arfræði, heimspeki, saga lands og heims, guð-
speki og nýaldarbókmenntir, trúmál og guð-
fræði, hagnýt efni og ótal ótal stórgóðra bóka
í öllum greinum.
Bókavarðan, Hafnarstræti 4,
sími29720
(blSírávántaT]
IÝMIS HVERFI
Lynghálsi 9. Sími 686300
EES heillaspor
eða stórslys?
Mjög margir þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu þegar greidd voru at-
kvæði um EES-samninginn á Alþingi í gær. Skoðanir voru mjög skiptar.
Eyjólfur Konráð Jónsson talaði um samninginn sem stórslys, en stuðn-
ingsmenn samningsins sögðu hann heillaspor sem myndi styrkja íslenskt
atvinnuh'f. Hér fara á eftir þau þrenn viðhorf sem fram komu við atkvæða-
greiðsluna.
„Ég tel að samningurinn um Evr-
ópskt efnahagssvæði, sé afar mikið
hagsmunamál fyrir íslenskt at-
vinnulíf og íslensku þjóðina í heild.
Ég tel að þessi samningur færi okk-
ur réttindi á erlendri grund langt
umfram það sem við þurfum að láta
af hendi og þess vegna styrki okkar
fullveldi og okkar sjálfstæði. Ég segi
því já,“ sagði Vilhjálmur Egilsson.
„Það mál sem hér er til afgreiðslu
er eitt það mikilvægasta sem Alþingi
fslendiri;;a hefur haft til umfjöllun-
ar. Málið nýst um það á hvern hátt
íslendingar tengist viðskiptaheild
sem er að myndast í Evrópu. Inn á
Evrópumarkað fara í dag á milli 70-
80% af okkar útflutningi og sam-
skipti okkar við Evrópu á öðrum
sviðum fara vaxandi með hverju ári.
Á þessum forsendum eru nánast all-
ir sammála um að við verðum að ná
hagstæðum viðskiptasamningum
við Evrópusamfélagið.
í dag bendir flest til þess að samn-
ingurinn um hið Evrópska efna-
hagssvæði verði einungis stuttur
kafli í viðskiptasögu Evrópu. Önnur
EFTA-ríki hafa ákveðið að sækja um
aðild að EB. Það er skoðun mín að
þar með skilji leiðir með íslending-
um og þeim. Inn í EB eigum við
ekkert erindi. í dag snýst málið um
það á hvern hátt við getum tryggt
viðskiptahagsmuni okkar við Evr-
ópu sem best. Ég tel að það verði
best gert með því að fara nú þegar
fram á að teknar verði upp viðræður
um að breyta viðskiptaþætti EES-
samningsins, hvað okkur íslendinga
varðar, í tvíhliðasamning við EB.
Fyrir því getum við fært full rök og
um slíka málsmeðferð gæti að mínu
mati náðst pólitísk sátt í þjóðfélag-
inu. Ég skora á forsætisráðherra að
beita sér fýrir slíkri málsmeðferð.
Það er skoðun mín að það að fella
samninginn á Alþingi á þessu stigi
geti skaðað hagsmuni okkar í þeim
viðræðum sem framundan eru auk
þess sern það myndi gefa þeim öflum
sem vilja sækja um aðild að EB, byr
undir báða vængi. Ég vil hins vegar
ekki bera pólitíska ábyrgð á vinnu-
brögðum ríkisstjórnarinnar og þá
sérstaklega utanríkisráðherra við lo-
kafrágang samningsins og sit því hjá
við atkvæðagreiðslu um málið,"
sagði Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
„Lögfesting þessa samnings í því
formi sem hann er nú í, er mark-
ieysa. Endanlegur búningur málsins
verður óhjákvæmilega annar heldur
en hér er í þingskjölum og því er
þessi afgreiðsla í sjálfu sér gildis-
laus. Þar að auki er þetta samningur
sem er efnislega óhagstæður íslend-
ingum. Við afsölum okkur með
samningnum, frumburðarrétti ís-
lendinga til landsins og auðlinda
þess. Með samningsgerðinni leiðum
við mikla erfiðleika yfir margar
greinar okkar atvinnulífs.
í samningnum felst mjög mikið
fullveldisafsal. íslendingum hefúr
reynst fullveldið heilladrjúgt. Full-
veldi er kannski mikilvægara smá-
þjóðum heldur en stærri þjóðum og
því er það óheillaspor að skerða það.
Ég er andvígur aðild íslands að Evr-
ópubandalaginu og þessi samnings-
gerð leiðir okkur innan skamms inn
í EB. Síðast en ekki síst þá samrým-
ist ekki þessi samningur hinni ís-
lensku stjórnarskrá. Eg hef unnið
drengskaparheit að því að halda
stjórnarskrána og því hlýt ég að
segja nei,“ sagði Páll Pétursson. -EÓ
Þorfinnur hf. keypti togarinn Gylli og 1145 þorskígildistonn
á 378 milljónir:
Afhentur nýjum
eigendum í gær
ísfísktogarinn Cyllir ÍS var afhentur nýjum eigendum á Flateyri í gær en
kaupandi skipsins er hlutafélagið Þorfínnur hf. Kaupverð skips og 1145
tonna þorskígildiskvóta er um 378 milljónir. Þar með verður kvóti skipsins
áfram innan fjórðungsins en eins og kunnugt er þá leit út lengi vel að skip-
Hluthafar í Þorfinni hf. eru Flateyr-
arhreppur sem á 30% hlutafjár og
70% eru í eigu íshúsfélags ísfirðinga
hf. á ísafirði. Þessi hlutföll kunna þó
að breytast með tilkomu aukins
hlutafjár en stefnt er að því að auka
það úr einni milljón í 100 milljónir.
Jafnframt hefur stjórn íshúsfélags-
ins ákveðið að opna það fyrir öðrum
hluthöfum, sem var raunar forsenda
þess að fyrirtækið ákvað að ráðast í
kaupin á togaranum.
Gyllir ÍS heldur von bráðar á veið-
ar, en togarinn verður gerður út frá
ísafirði og mun landa upp hjá íshús-
félaginu, en áhöfnin verður frá Flat-
eyri. í stað Gyllis hefur útgerðarfé-
lagið Hjálmur hf. á Flateyri fest
kaup á línubátnum Val frá Stöðvar-
firði auk þess sem fyrirtækið gerir út
á kúffisk.
Þorleifur Pálsson hjá íshúsfélagi ís-
firðinga segir að kaupin á Gylli muni
styrkja fyrirtækið verulega og at-
vinnuöryggi starfsfólksins. Á síðasta
ári voru atvinnuleysisdagar hjá ís-
húsfélaginu 40 talsins vegna hráefn-
isskorts. Auk Gyllis fær fyrirtækið
afla til vinnslu frá aflaskipinu Guð-
björgu ÍS, línubátnum Hafdísi og
Framnesi ÍS sem íshúsfélagið á 50%
í, á móti Fáfni hf. á Þingeyri. -grh
Hross í Húnavatnssýslu lítt hrifin af flugeldaskothríð:
Æddu áhvað
sem fyrir varð
Hross fótbrotnaði í rimlahliði og
girðingar kubbuðust í sundur er
styggð komst á hross í Húnavatns-
sýslu um áramótin." Þau tóku
strikið og æddu nánast á hvað sem
fyrir varð þegar flugeldasprenging-
arnar byrjuðu," segir Hermann
ívarsson lögreglumaður á Blöndu-
ósi sem býr á Hvammstanga.
Slík var ferðin á þarfasta þjóninum
að ristahlið urðu engin hindrun fyr-
ir þau flest en eitt fótbrotið hross
þurfti samt að aflífa að sögn Her-
manns. Þá segir hann að fimm
strengja girðing hafi ekki hindrað
för hrossanna sem einfaldlega ruddu
sér leið þar í gegn en þó án þess að
verða fýrir teljandi meiðslum.
Hann segir að hrossin hafi ekki
linnt látum fyrr en eftir margra kfló-
metra sprett.
Hermann álítur að mikið sé af
hrossum á þessum slóðum sem séu
oftast innan girðinga. Þau komust
samt auðveldlega yfir girðingarnar
að sögn Hermanns þar sem þær
voru yfirleitt á kafi í snjó.
Hann telur að hrossin hefðu líklega
haldist innan girðinga hefði allt ver-
ið með ró og spekt. „Hrossin æddu
upp á þjóðveg og tóku á sprett lík-
lega eina fjóra fimm kflómetra. Þá
var haft samband við eigendur
þeirra sem þurftu að ná í þau því
veruleg hætta stafar af hrossum á
þjóðvegi," segir Hermann. -HÞ
Jólatrés-
vandræði
úr sögunni
Vandræðagangur margra við að
losna við jóitré virðist úr sög-
unni þar sem þau verða sótt
fólki að kostnaðarlausu á höf-
uðborgarsvæðinu.
Reykjavíkurborg, Kópavogur
Og Hafnarfjörður veita íbúum
sínum þá þjónustu að sækja tré
á fostudaginn þeim að kostnað-
ariausu. Fólk er beðið að færa
trén út að lóðamörkum til að
flýta fyrir söfnuninni.
Hafnarijarðarbær reið á vaðið í
lyrra og nú bætast höfuðborgin
og Kópavogur í hópinn.
Nýja sendibílastöðin seldi fyrir
jólin sérstök jóiatijáaskflakort.
Forraðamenn fyrirtækisins hafa
ákveðið að endurgreiöa þessi
kort