Tíminn - 07.01.1993, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.01.1993, Blaðsíða 8
8 Tlminn Fimmtudagur 7. janúar 1993 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Jólaalmanak SUF Ettirfarandi númer hafa hlotið vinning i jólaalmanaki SUF: 1. desemtsen 525, 3570. 2. desemben 3686, 1673. 3. desember: 4141,1878. 4. desemben 1484, 2428. 5. desemben 683, 3056. 6. desember: 5403, 2389. 7. desemben 3952, 5514. 8. desemben 4342, 4341. 9. desember: 4340, 5169. 10. desemben 5060, 289. 11. desemben 1162, 1601. 12. desemben 1235, 522. 13. desember. 4723, 2429 14. desember 288,2834. 15. desember 1334, 4711. 16. desember 2833, 4710 17. desemben 3672,1605. 18. desember: 3235,4148. 19. desember 3243, 2497. 20. desemben 1629,1879. 21. desember: 1676, 1409. 22. desemben 1473, 3436. 23. desember 2832, 2731. 24. desember: 4915, 3527. Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins Dregið verður I nýárshappdrætti Framsóknarflokksins 6. janúar 1993. Velunnarar flokksins em hvattir til að greiða heimsenda giróseðla fyrir þann tima. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða i slma 91- 28408 eða 91- 624480. Óskum velunnurum okkar gleöilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum stuðninginn á árinu sem er að llða. Framsóknarflokkurlnn Kópavogur — Framsóknarvist Spilum framsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 10. janúar kl. 15.00. Góð verölaun og kaffiveitingar. Freyja Félagsvist á Hvolsvelli Spilum 10. og 24. janúar kl. 21.00. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu Þjóðmálanefnd SUF Fundur verður haldinn I þjóðmálanefnd SUF, þriöjudaginn 12. janúar n.k. kl. 17.00 aö Hafnarstræti 20 (3. hæð). Fundarefni: Lánasjóður Islenskra námsmanna. GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK SKÚLATÚNI 2 — 105 REYKJAVlK SlMI 632480 — MYNDSENDIR 628082 Hirðing jóiatrjáa Hirðing jólatrjáa hefst föstudaginn 8. janúar næstkomandi og veröur framkvæmd samhliða reglubundinni sorphirðu. Húsráðendur eru beðnir að setja trén út fyrir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð. Gatnamálastjórinn í Reykjavík Hreinsunardeild -------------------------------------------------\ if Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur vináttu og sam- úð við andlát og útför Sveins Jónssonar frá Neskaupstað Boðahlein 9, Garðabæ Sérstakar þakkir til starfsfólks á þriðju deild B, Hrafnistu, Hafnarfiröi. Gleðilegt ár. Þórunn Jakobsdóttir Björg Slgmundsdóttir Grétar Sveinsson Guöbjörg Kristjánsdóttir Þórunn Grétarsdóttir Sveinn Andri Sveinsson Rannveig Grétarsdóttir Sigmundur Jóhannesson Svelnn Omar Grétarsson II — Móöir mln og amma okkar Kristín Sveinbjarnardóttir Nýja-Bæ sem lést 31. des. sl., verður jarðsungin frá Bæjarkirkju, laugardaginn 9. janúar n.k. kl. 14. Ólöf Guðbrandsdóttir Guðbrandur Reynisson Kristinn Reynisson ________________I__________________________________/ Jónas Gunnlaugsson Fæddur 6. janúar 1907 Dáinn 24. desember 1992 Jónas Gunnlaugsson andaðist á Sjúkrahúsinu á Húsavík á aðfanga- dagskvöld, eftir að hafa dvalið þar og á Landspítalanum í Reykjavík mik- inn hluta ársins 1992. Fyrr á árinu hafði hann sárlasinn fylgt eiginkonu sinni, móðursystur minni, Laufey Kristjönu Benediktsdóttur, til grafar eftir meira en hálfrar aldar sam- fylgd. Þar sem einungis rösklega hálft ár er liðið síðan ég minntist Laufeyjar frænku minnar í minningargrein þar sem ég tíundaði börn þeirra hjóna og sameiginlegt lífshiaup, finnst mér ekki rétt að endurtaka þau orð nú. Hins vegar get ég ekki látið hjá líða að setja nokkur minn- ingarorð á blað sem kveðjuorð til jafn hjartfólgins vinar og Jónas var mér og mínum. Hinu er ekki að leyna, að enda þótt andláti slíks vin- ar um áratuga skeið fylgi óhjá- kvæmilega mikil saknaðartilfinning og tómleiki, verður að viðurkenna að þegar heilsan er á þrotum er dauðinn sá líknargjafi, sem einn getur bundið enda á þjáningar og veitt mönnum hvfld. Jónas Gunnlaugsson fæddist á Eiði á Langanesi á fyrsta áratug aldarinn- ar. Foreldrar hans voru hjónin Þor- björg Daníelsdóttir frá Eiði og Gunnlaugur Jónsson, fæddur á Eld- jámsstöðum. Jónas var þriðja barn- ið í hópi 11 systkina. Heimili þeirra Gunnlaugs og Þor- bjargar var annálað fyrir myndar- skap og framfarahug í öllu sem laut að bættum búskaparháttum. Sem dæmi um það vitna m.a. bygging fyrsta steinsteypuhússins á Langa- nesi árið 1912, bygging heimilisraf- stöðvar um 1930 og óvenjulega stórt og slétt tún við bæinn, sem að mestu var unnið með því að rista torf af þýfðum móum með undir- ristuspaða og stinga síðan upp jarð- veginn, blanda hann húsdýraáburði, slétta og þekja á ný. Á þeim 40 árum, sem þau hjónin stóðu fyrir búskap á Eiði, fyrst með foreldrum Þorbjarg- ar og síðari árin með börnum sín- um, tókst þeim sannarlega betur en þorra bænda að breyta búskapar- háttum á jörðinni úr miðaldabúskap í nútímalegt horf þess tíma. í þessum jarðvegi óx Jónas úr grasi við margvísleg sveitastörf, sjósókn og annað það er til féll. Þau hjónin Jónas og Laufey voru gefin saman í hjónaband árið 1939 og bjuggu á Eiði í meir en hálfan c----------------------^ annan áratug, er þau fluttu til Húsa- víkur þar sem þau áttu lengst af heima á Héðinsbraut 5. Síðustu árin dvöldu þau á heimili aldraðra að Hvammi á Húsavík. Á Húsavík vann Jónas Iengstan tímann hjá bænum við alls kyns verkamannsstörf, sem hann sinnti af stakri trúmennsku. Þegar sorp- brennslustöðin var reist á Húsavík á árinu 1972, var honum falin umsjón með henni og var það síðan hans að- alstarf hjá bænum. Á þessum tíma var ég bæjarstjóri á Húsavík og er mér á þessari stundu Ijúft og skylt að þakka honum störf hans fyrir Húsavíkurbæ um nær tveggja ára- tuga skeið. Enda þótt ég hitti Jónas fyrst á Eiði vorið 1950, hófust raunveruleg kynni okkar ekki fyrr en vorið 1960, þegar ég flutti til Húsavíkur, þá ein- hleypur, og þau hjónin, Jónas og Laufey, tóku mig í fæði í meir en hálft þriðja ár. Á þeim tíma tengd- umst við Jónas þeim vináttubönd- um, sem aldrei bar skugga á um meira en þriggja áratuga skeið. Mér var fljótt ljóst, að enda þótt ekki væri hægt að merkja annað en Jónas væri sæmilega ánægður með lífið og tilveruna á Húsavík, stóð sveitin og sveitalífið ætíð huga hans næst. Það fann ég glöggt, þegar við fórum í heimsóknir til foreldra minna í Svartárkoti í Bárðardal. Sér- staklega hafði hann gaman af að stunda veiðiskapinn f Svartárvatni og þar var hápunktur tilverunnar að veiða silunginn á dorg gegnum ís á vorin. Þá eru mér og minnisstæðar árlegar ferðir með þeim hjónum á þorrablót í Bárðardal, þar sem þau voru um árabil í hópi þeirra dugleg- ustu á dansgólfinu. Enda þótt Svartárkot hafi á ýmsan hátt komið í staðinn fyrir Eiði sem „sveitin hans“ Jónasar, er mér ekki grunlaust um að þar hafi honum fundist eitt á skorta. En það voru ljónviljugir gæðingar, því Jónas var á yngri árum mikill hestamaður og allt fram á síðasta ár kom glampi í augun, þegar Steinunn systir tók hann með sér upp í hesthús á Húsa- vík og hann fékk að klappa hestun- um hennar, enda þótt hann treysti sér ekki lengur til að fara á bak þeim. En enda þótt reiðhestana skorti í Svartárkoti, var hægt að grípa í spil á kvöldin og af því hafði Jónas mikla ánægju. Var líka oft far- ið að halla æði mikið á nóttina, þeg- ar spilastokkunum var pakkað sam- an og gengið til náða. Jónas var meira en meðalmaður á hæð og samsvaraði sér vel. Hann hélt sér alla tíð grönnum og nokkuð styrkum líkamlega. Má eflaust þakka dugnaði hans við að stunda sund, en um áratuga skeið mætti hann í sund í sundlauginni á Húsavík klukkan 7.00 að morgni og allt fram á síðasta ár fór hann að jafnaði í sund tvisvar á dag. Síðustu tvo áratugina átti Laufey frænka mín, kona Jónasar, við þrá- láta vanheilsu að stríða. í veikindum konu hans komu fram þeir eigin- leikar í fari Jónasar, sem í mínum huga einkenndu hann mest og sem ég mat mest við hann, en það voru trygglyndið og trúmennskan. Hjá Jónasi hef ég fundið sterklegri ein- kenni þessara tveggja höfuðkosta mannskepnunnar en hjá þorra ann- arra samferðamanna og þannig mun ég minnast hans um ókomin ár. Við Sigrún kona mín og börnin vottum aðstandendum okkar inni- legustu samúð. Blessuð sé minning Jónasar Gunnlaugssonar. Haukur Harðarson frá Svartárkoti VIÐE Y J ARKAPPAR VIÐ ÁRAMÓT Ráðherrarnir Davíð Oddsson og Jón Baldvin Hannibalsson létu að von- um ljós sitt skína í Morgunblaðinu á gamlársdag. Þeir eru efnislega sama sinnis, enda þótt hvor noti sitt orða- lag. Enginn þarf lengur að vera í vafa um það, hvar formaður Alþýðu- flokksins hefir skipað sér í pólitík. Hann er fulltrúi atvinnurekenda, ekki verkamanna, og er reyndar hægra megin við Davíð, ekki vinstra megin. Hver er nú málflutningur þessara manna, sem stukku út í Við- ey að loknum kosningum til að brugga saman ráð sín? Þeim er tíðrætt um samdrátt í efnahagslífi á Vesturlöndum. Hvor- ugur gerir sér þó grein fyrir því, að orsakir hans verða í meginatriðum raktar til EB-ríkjanna, sem hafa lok- að sig af innan tollmúra og torveld- að alþjóðaviðskipti. TVegða þeirra að undirrita nýtt GATT-samkomulag hefir gert illt verra. Innanlandspólit- ík EB-ríkjanna, sem hefir auðkennst af einkavæðingu og hringamyndun, hefir magnað kreppuna og atvinnu- leysið. Hlutafélög hugsa um það öðru fremur að tryggja eigin hag og telja sér ekki skylt að Iíta á þarfir samfélagsins. Þvert á móti vilja þau beinlínis atvinnuleysi til að hafa hemil á kaupkröfum launþega. Og þrátt fyrir samkeppnislöggjöf í EB- ríkjum, berast statt og stöðugt fregnir um samruna fyrirtækja á meginlandinu. Tilgangurinn er sagður vera að hagræða, en hann er raunverulega sá einn að geta ráðið markaðsverðinu. Eftir nýafstaðinn fund forsætisráð- herra á Norðurlöndum hefir Davíð Oddsson stillt þjóð sinni upp við (----------------------------Á Lesendur skrifa V__________I_________________J vegg: Við eigum að sækja nú þegar um aðild að EB, meðan Danir gegna þar forustuhlutverki, eða undirrita EES-samninginn án tafar. Þó er vit- að, að sá samningur er aðeins til skamms tíma, því að skandinavísku ríkin þrjú eru á leið inn í EB. Davíð segir ætlunina ekki vera að sækja um aðild íslands. Hvers vegna má þá ekki freista tvíhliða samnings við EB, þannig að við höldum fullu sjálfstæði og landhelginni, í stað þess að undirrita bráðabirgðasamn- ing með valdaafsali? Eitt er víst: Ef við undirritum EES-samninginn, er vonlaust að útrýma atvinnuleysi á íslandi. Um leið og slíkt tækist, myndu hópar atvinnulausra úr EB- löndunum flykkjast hingað skv. ákvæðum samningsins um frjálsa fólksflutninga. Meginatriðið í ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar er tilfærsla á sköttum frá fyrirtækjum yfir á launþega. Þetta er gert meðan enn eru opnar ótal leiðir fyrir atvinnurekendur til að sleppa við skattgreiðslur. Nægir að nefna útgáfu jöfnunarhlutabréfa, sem frægt varð af dæmi Aðalverk- taka, stórfellda gjaldfærslu skv. 53. gr. skattalaganna og frábærlega lé- legt skatteftirlit með atvinnurekstri. Ljóst mátti vera, að ríkissjóðshalli yrði ekki jafnaður, nema með skatt- lagningu fjármagnstekna og nýjum skattþrepum á hátekjur. Þar er eyðslan, sem veldur óhagstæðum viðskiptajöfnuði og þrýstingi á vaxtastigið. Slík skattheimta við- gengst í öðrum löndum, bæði aust- an hafs og vestan, og þó er spamað- ur sem hlutfall landsframleiðslu allt að 75% hærri þar en hér. Ríkis- stjórnin valdi þann kost að þyngja skattbyrðar láglaunafólks og skerða tryggingabætur barnafjölskyldna, sjúklinga og aldraðra. Hún segir þetta vera „varanlegar ráðstafanir". Þeim verður þó öllum hrundið með átaki launþegasamtaka á næstu mánuðum. Félagshyggjumaður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.