Tíminn - 07.01.1993, Blaðsíða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími Tímans er 686300 NÝTT OG FERSKT DAGLEGA CSO
^y^)reiðholtsbakarí
íyfTTTmr VÖLVUFELL113 - SÍMI73655
Bíliisalii Kópavogs Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
i SÍMI 642190 i Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN
Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segist hafa efasemdir um ágæti að-
y gerða ríkisstjórnarinnar í skattamálum:
Ottast að aðgerðirnar
skili engum árangri
„Eg hef mínar efasemdir um
ágæti þess að færa svona klyfjar
af atvinnurekstri yfir á launa-
fólk. Mestar áhyggjur hef ég þó
af því að þessar aðgerðir sldli
ekki þeim árangri sem að er
stefnt og það er slæmt þegar
svona mikið er lagt undir. Það
er slæmt þegar svona mikið er
lagt á launafólk ef árangurinn
verður kannski minni en efni
standa til. Það yrði skelfíleg
niðurstaða", sagði Guðmundur
Arni Stefánsson, bæjarstjóri í
Hafnarfírði, um aðgerðir ríkis-
stjómarinnar í skattamálum.
Guðmundur Árni sagðist ekki vilja
segja fleira um aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar. Ljóst væri að verið sé að
leggja þungar byrðar á launafólk.
Það sé umdeilanleg ráðstöfun. Hitt
sé þó verra ef aðgerðirnar skili ekki
þeim árangri sem að sé stefnt.
Eins og fram hefur komið í Tíman-
um, hafa ungir jafnaðarmenn harð-
lega gagnrýnt aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar og krafist þess að þær verði
endurskoðaðar. Þeir gagnrýna
skerðingu barnabóta og húsnæðis-
bóta, lækkun persónuafsláttar og
hækkun skatthlutfalls.
Það er ekki aðeins að Guðmundur
Árni og ungir jafnaðarmenn hafi
áhyggjur af aðgerðum ríkisstjórnar-
innar og afleiðingum þeirra fyrir
launafólk. Áhyggjurnar snúast einn-
ig um fylgi Alþýðuflokksins. í byrjun
næsta árs, þegar menn munu meta
árangur þeirra aðgerða sem nú hafa
verið ákveönar, fara fram sveitar-
stjórnarkosningar. Ef það reynist
rétt sem Guðmundur Árni óttast, að
þessar harkalegu aðgerðir skili tak-
mörkuðum árangri, er hætt við að
Alþýðuflokknum verði refsað í sveit-
arstjórnarkosningum. Alþýðuflokk-
urinn hefur sem kunnugt er mjög
sterka stöðu í mörgum sveitar-
stjórnum. Sterkust er staðan í Hafn-
arfirði. -EÓ
Ólafur Sigurpálsson og Valgeröur Ingólfsdóttir höföu í nógu aö
snúast í fiskbúöinni Arnarbakka í Breiðholti í gær við að af-
greiða viöskiptavini um soöningu dagsins. Tímamynd Ami Bjarna.
Fiskneysla landsmanna
hefur aukist til muna
eftir kjötveislu liðinna
daga. Fiskbúðin Arnar-
bakka:
Fólk
sólgið
í fisk-
metið
Valgerður Ingólfsdóttir í fískbúð-
inni Amarbakka í Breiðholti, seg-
ir að fiskneysla hafí aukist til
muna eftir kjötveislu liðinna daga
og það sé frekar skortur á físki til
að geta annað eftirspum. Hún
segist ekki vera frá því að ásókn
almennings í fískmeti hafí eitt-
hvað aukist með minnkandi ráð-
stöfunartekjum fólks.
Sem fyrr er það ýsan, bæði heil og
flökuð, sem trónir efst á vinsælda-
lista almennings en á þessum árs-
tíma eru hrogn og lifur einnig afar
vinsæl. Hins vegar virðist landinn
ekki líta við þorski fremur en fyrri
daginn nema söltuðum. Þar íýrir
utan er það rauðspretta, steinbít-
ur, karfi og að sjálfsögðu skatan
sem viðskiptavinir Arnarbakka eru
sólgnir í og þarf ekki Þorláks-
messu til.
Valgerður Ingólfsdóttir segir að
fiskurinn sé ódýrari en kjötið og
hjá þeim sé búið að vera sama fisk-
verð í tvö ár. Hún segir að fiskverð
á mörkuðum sé misjafnt og ráðist
eingöngu af framboði og eftir-
spurn. -grh
9
Iíininn
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
verðlækkun á
n I / jk n ir
Enn bólar ekkert á lækkun á
vömm sem keyptar em frá
Svíþjóð en þar var gengisfell-
ing 6% umfram gengisfell-
ingu íslensky kíónunnar. Al-
gengt viðkvæði kaupmanna
sem selja vöm frá Svíþjóð er
að mikið hafí verið keypt Inn
áður en gengið féll og jafn-
framt að sænskar vömr hafí
hækkað í verði en ekki lækkað
í kjöifar gengisfellingar.
„Málið er að við emm með
birgðir fyrir þrjá mánuði. Um
áramótin ætlum við að endur-
skoða hvar við stöndum“,
sagði HaUdór Gunnarsson,
markaðsfufltrúi hjá IKEA,
skömmu eftir gengisfellingu.
„Það er ekki farið að koma
neitt inn af vöram. Allar þær
vömr sem við tókum inn vom
komnar fyrir gengisfellingu",
segir Halldór nú. Hann þorir
ekkert að segja tíl um hvort
sænskar vörur fyrirtækisms
muni lækka um 6% við næstu
innkaup. „Það verður bara að
skoða það þegar þar að kem-
ur“, segir Halldór.
Heimasmiðjan flytur inn
heimilistæki frá Svíþjóð. Þar á
bæ höfðu menn einnig keypt
öll tæki áður en til gengisfell-
ingar kom að sögn Sigurðar
Stefánssonar verslunarstjóra.
„Það sem við höfum sett okk-
ur er fost verðstefna. Það er
búið að vera sama verð hjá
okkur þvf okkur er illa við all-
ar verösveiflur", sagði Atli
Atlason hjá sama fyrirtæki um
ástæður þess að verð á vömn-
um lækkaði ekki í kjölfar
gengisfellingar. Hann segir að
sænski seljandinn hafí hækk-
að verð á heimilistækjum til
að mæta gengisfellingu
sænsku krónunnar.
—HÞ
I
...ERLENDAR FRÉTTIR...
SUMBURGH, Skotlandi
Reynt aö afstýra mesta
mengunarslysi Evrópu
Olíuskipiö Braer, sem laskaöist viö
Hjaltland, var I gær fariö aö tætast I
sundur af miklum sjógangi aö því er
talsmaöur flutningaráöuneytisins
sagöi I gær. Risastór olíuflekkur frá
skipinu fór á dreif en sérfræöingar
böröust viö aö koma i veg fyrir aö
Bretland yröi aö þola eitthvert mesta
mengunarslys Evrópu.
BELGRAD
Vance og Milosevic hittust
Cyrus Vance, friöarsamningamaöur
Sameinuðu þjóöanna, og Slobodan
Milosevic, forseti Serbíu, harölínu-
þjóöemissinninn sem Vesturlanda-
menn llta á sem lykilmanninn til aö
finna lausn á Bosníumálinu, áttu fund
saman I gær.
PARlS
Efasemdir um samkomulag
Frakkar sögöu I gær aö stríðandi lýö-
veldin þrjú, þar sem áöur var Júgó-
slavía, heföu samþykkt í grófum
dráttum aö lýsa Sarajevo .opna borg“
og aö hersveitir sem sitja um borgina
myndu draga sig til baka I 30 km fjar-
lægö. En stjómarerindrekar sem
fylgjast meö friöarviöræöunum um
Bosníu I Genf, létu I Ijós efasemdir.
MAR AZ-ZOHOUR, Libanon
Ekki sér fyrir endann á vist
í einskismannslandi
Forystumenn rúmlega 400 Palestínu-
manna, sem fastir hafa veriö I einsk-
ismannslandi I Suður- Líbanon I 20
daga, sökuöu Israela I gær um und-
anbrögö til aö koma I veg fyrir heim-
för þeirra meö stuöningi Sameinuöu
þjóöanna.
JERÚSALEM
ísraelar segja ákvörðunina
endanlega
Israelar sögöu í gær að ákvörðun
þeirra um aö reka yfir 400 Palestínu-
menn til Suöur-Líbanon, væri endan-
leg og óafturkræf og aö þeir væntu
einskis af tilraun nýs sendimanns
S.þ., til aö koma þeim heim aö nýju.
MOGADISHU
Kanar haröari í horn aö taka
Bandarískir hermenn hafa heitiö þvl
aö sýna .vondu strákunum” I Sómalíu
meiri hörku. Þeir skutu til bana sóm-
alskan byssumann utan viö Mogadis-
hu I gær, aöeins nokkrum klukku-
stundum eftir aö þeir skutu annan
byssumann til bana í höfuöborginni.
LÚANDA
Bardagar breiðast út
Ákafir bardagar breiddust út til tveggja
héraöshöfuðstaöa til viöbótar i Angóla i
gær þegar yfirvöld hertu árásir gegn
uppreisnarmönnum UNITA. Þetta jók á
ótta manna um aö algert borgarastrið
væri aftur i uppsiglingu.
SRINAGAR, Indlandi
33 drepnir í Kashmír
A.m.k. þrjátíu og þrir voru drepnir og
fjölmargir særöir í bænum Sopore i
Kashmir i átökum milli herskárra aö-
skilnaöarsinna og indverskra öryggis-
sveita, að því er embættismenn
sögöu í gær.
STUTTGART, Þýskalandi
Kinkel treystir stöðu sína
Þýski utanríkisráöherrann, Klaus
Kinkel, virðist á góðum vegi meö aö
treysta stööu sina sem risandi stjarna
i þýskum stjórnmálum. I gær tók
hann við formennsku i flokki frjáls-
lyndra demókrata, en ekki eru nema
tvö ár síöan hann gekk í flokkinn.
KINSHASA
Lögreglumaður skýtur
stjórnmálamann
Yfirmaöur i lögreglunni banaöi þekktum
stjómmálamanni i Zaire þegar hann
skaut hann I höfuöiö i deilum aö þvl er
flokksfélagar hlns látna hafa látiö I veöri
vaka. Yfirstjóm hers Zaire, haföi áöur
tilkynnt aö Nyamuisi Muvingi heföi látiö
lifiö i borginni Butembo i austurhluta
landsins I byssubardaga milli lífvarða
hans og vopnaðrar lögreglu.
DENNI DÆMALAUSI
.C; NAS'Distr. BULLS
„Heyrði ég rétt?Ætlarþú að senda HUNDINN á nám-
skeið til að læra að hlýða?“