Tíminn - 29.01.1993, Blaðsíða 3
Föstudagur 29. janúar 1993
Tíminn 3
Atvinnulausum fækkar á Suðumesjum m.a. vegna góðrar línu- og netaveiði. Kristján Guðmundsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur:
Stjórnvöld draga Suður-
nesjamenn á asnaeyrum
„Góðu fréttirnar eru þær að atvinnulausum hefur fækkað um 50-60
frá því atvinnuleysisbætur vou síðast greiddar ÚL En að hinu leyt-
inu ríkja hér mikil vonbrigði í garð ríkisstjórnarinnar sem ætlar
ekkert að leggja fram til uppbyggingu atvinnulífsins, heldur ætlar
það íslenskum aðalverktökum og sveitarfélögum á svæðinu.
ar sem hefur dregið okkur Suður-
nesjamenn á asnaeyrum," segir
Kristján Guðmundsson, formaður
Þótt ég sé yfirlýstur krati þá verð ég
að lýsa yfir miklum vonbrigðum
með þessa afstöðu ríkisstjómarinn-
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur.
Mikil vonbrigði eru meðal Suður-
nesjamanna út í ríkisstjórnina sem
ætlar ekki að standa við gefin fyrir-
heit um að leggja 500 milljónir
króna í uppbyggingu atvinnulífs á
svæðinu. En eins og kunnugt er þá
lýstu stjórnvöld því yfir í nóvember
sl. í tengslum við efnahagsráðstaf-
animar, að þau hygðust leggja fram
hálfan milljarð króna til uppbygg-
ingar atvinnulífsins á Suðumesjum.
Þessi ætlan stjómvalda átti að vera
framlag þeirra til að efla atvinnulíf á
svæðinu og til að minnka hið gríð-
arlega atvinnuleysi sem þar er. Þess í
stað munu sveitarfélögin á svæðinu
leggja fram 200 milljónir króna og
íslenskir aðalverktakar 300 milljón-
ir.
Kristján Guðmundsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur, segir að þessar hundakúnstir
stjómvalda ekki ná nokkri átt og
segir Suðumesjamenn velta því fyr-
ir sér hvort þeir séu einhvers konar
þriðja flokks borgarar í augum
stjómvalda. Hann bendir á að á
sama tíma séu stjórnvöld að leggja
fram milljónir í Jámblendið á móti
engu framlagi sveitarfélaga á svæð-
inu.
„Ef þetta verður ekki kjaftað í hel
þá vonar maður auðvitað að þessar
500 milljónir muni verða verulega
góð innspýting í atvinnulífið. Það
hafa hinsvegar allir verið að bíða eft-
ir öllum og tíminn hefur verið afar
illa nýttur."
í dag þegar atvinnuleysisbætur
verða greiddar út hjá Verkalýðs- og
sjómannafélaginu, gerir Kristján
ráð fyrir að bótaþegar verði 50-60
færri en síðast. Atvinnulausum hef-
ur þá fækkað úr 481 í um 420
manns. Þessi fækkun atvinnulausra
er tilkomin m.a. vegna góðra afla-
bragða sem verið hafa á línu og net á
gmnnslóð.
Þrátt fýrir þessa fækkun atvinnu-
lausra segir Kristján atvinnuástand-
ið á Suðurnesjum vera mjög við-
kvæmt og nánast eins og púðurt-
unnu. Hann segir að atvinnurek-
endur á Suðurnesjum muni geta
bætt við sig mannskap og aukið
starfsemi sína ef þeir fá aðgang að
lánsfé og auknu hlutafé. En þegar
kemur að sjóðakerfinu fái fýrirtækin
litla sem enga fyrirgreiðslu og alltaf
er ástæðan hin sama: „Þið hafið jú
Völlinn." -grh
Frá Dyrhólaey
Aðilar í Dyrhólahverfi vilja innheimta gjald af ferðamönnum sem
heimsækja staðinn. Ferðamálaráð:
Gjaldtaka fyrir að-
gang er andstætt lögum
SKATTFRAMTOL -
ÁRSUPPGJÖR
Tek að mér að gera skattframtöl og ársuppgjör fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Annast einnig kærumál og alhliða bókhaldsþjónustu.
Sigurður Páll Hauksson
viðskiptafræðingur,
sími 91-624756.
Kristín HaUdórsdótir, formaður Ferðamálaráðs, segir það vera and-
stætt gildandi lögum að taka gjald fyrir aðgang að ferðamannastöð-
um eða landsvæðum. Hún segir hins vegar að það sé ekkert við því
að segja þótt greitt sé fyrir þjónustu sem kunni að vera í boði þegar
inn á viðkomandi svæði sé komið.
Á fundi framkvæmdastjómar Ferða-
málaráðs í vikunni, var samþykkt
ályktun þess efnis þar sem stjómin ít-
rekar fýrri samþykktir um að ekki
skuli tekið gjald fýrir aðgang að ferða-
mannastöðum eða landsvæðum.
Hins vegar álítur Ferðamálaráð að
ekki sé óeðlilegt að taka gjald fýrri
veitta þjónustu sem boðin kann að
Deilt um
nafn
á áfengi
Afkomendur rússneska áfengisfram-
leiðandans Pjotr Smimovs og Banda-
ríska Smimoffsfýrirtækisins hafa
deilt um einkarétt á nafninu í Rúss-
landi og hafa þariend stjómvöld úr-
skurðað þeim bandaríska í viL
í frétt frá umboðsaðila nafnsins hér á
landi, segir að forsaga málsins sé sú að
Boris nokkur Smimov hafi stofnað
verslunarfýrirtæki „PA Smimoff og af-
komenda" í Moskvu. í framhaldi af því
óskaði fýrirtæki hans eftir einkarétti
til notkunar Smimovs nafnsins við
áfengisfiramleiðslu og að bandaríska
fýrirtækið með þessu nafni yrði þar
með útilokað fiá rússneska markaðin-
um.
Niðurstöður málaferla, sem hinn
bandaríski framleiðandi höfðaði, urðu
þær að Boris Smimov gæti ekki notað
nafnið á vömmerki á áfengi.
vera, þegar inn á slík svæði er komið.
Tilefnið að þessari ályktun fram-
kvæmdastjómar Ferðamálaráðs, er
m.a. að aðilar í Dyrhólahverfi hafe
ákveðið upp á sitt einsdæmi að taka
gjald af ferðamönnum sem heim-
sækja staðinn í sumar. í rökstuðningi
þeirra fýrir gjaldtökunni, benda við-
komandi aðilar á að slíkt fyrirkomu-
lag tíðkist víða erlendis í vaxandi
mæli og m.a. til að standa straum af
umhirðu og eftirliti á vinsælum stöð-
um. Að mati samstarfsaðila í Dyrhóla-
hverfi mun gjaldtakan skapa forsend-
ur fýrir vemdun eyjunnar sem þeir
segja að sé nytjaland bænda í hverf-
inu sem þeir íétu friðlýsa árið 1978.
Kristín Halldórsdótir segir að við-
komandi aðilar hefðu að ósekju átt að
sækja um styrk til Ferðamálaráðs til
uppbyggingu svæðisins í Dyrhólaey
áður en þeir fóm af stað með þessa
hugmynd sína að innheimta aðgangs-
eyri að eynni. Hún segir að hugmynd-
ir um að taka gjald af ferðamönnum
fyrir aðgang að ferðamannastöðum
eða landsvæðum, komi upp öðm
hverju og nægi í því sambandi af
nefha Dimmuborgir. Aftur á móti sé
lítið við því að segja þótt greitt sé fyr-
ir aðgang að Höfða í Mývatnssveit
sem er á einkalóð.
Hins vegar sé því ekki að leyna að
farið sé að sjá á ýmsum vinsælum
stöðum samfara vaxandi ferðamanna-
straumi til landsins og um landið og
eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af því.
Aftur á móti sé Ferðamálaráð vanbúið
til að sinna lögbundnum skyldum
sínum hvað umhverfisvemd varðar
sökum fjárskorts.
Aðspurð hvort þess mætti vænta í
næstu framtíð að aðgangur lands-
manna að vinsælum ferðamanna-
stöðum og landsvæðum muni ráðast
af getu buddunnar hveiju sinni, sagð-
ist Kristín rétt vona að svo verði ekki
og landsmönnum verði áfram tryggð-
ur aðgangur að náttúruperlum lands-
ins án tillits til greiðslugetu þeirra.
-grh
AUKIN OKURETTINDI
(meirapróf)
Innritun á námskeið til aukinna ökuréttinda, sem
hefst þann 5. febrúar nk., er í fullum gangi.
Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 13.00-
17J0O.
Ökuskóli íslands hf.,
Dugguvogi 2, sími 683841.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984 -1.fl. 01.02.93-01.08.93 kr. 59.940,16
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1993.
SEÐLABANKI ÍSLANDS