Tíminn - 29.01.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 29. janúar 1993
Tíminn 9
í fyrsta sinn sem ákvörðun hreppsnefndar um að nýta forkaupsrétt að jörð er hnekkt af dómstólum:
V-Landeyjahreppur situr uppi
með 370.000 kr. málskostnað
Hæstiréttur hefur staðfest héraðsdóm um að fella úr gildi þá
ákvörðun Vestur-Landeyjahrepps að neyta forkaupsréttar að jörð-
inni Eystrihól með því að ganga inn í kaupsamning sem þrír hesta-
menn gerðu við fyrri eiganda hennar haustið 1988. Hreppsnefndin
samþykkti að nýta forkaupsrétt sinn að jörðinni og ákvað á sama
fundi að selja hana öðrum hrossamönnum.
Dómstólar féllust á þá kröfu, seljanda
og kaupendanna þriggja, að ógilda
bæri ákvörðun hreppsnefndar um að
neyta forkaupsréttar, og jafnframt að
hún hefði glatað rétti til að neyta for-
kaupsréttar að nýju í þessu máli.
Hreppurinn var sömuleiðis dæmdur
til þess að greiða málskostnað bæði í
héraðsdómi og fyrir hæstarétti, sam-
tals 370 þúsund krónur.
„Þetta er mér vitanlega í fyrsta sinn
sem ákvörðun hreppsnefndar, um að
neyta forkaupsréttar að jörð, er
hnekkt fyrir dómstólum," sagði Eirík-
ur Tómasson, lögmaður kaupend-
anna, hrossamannanna þriggja.
Þessi dómur markar þá nokkur tíma-
mót? Jí, ég held að þetta mál komi til
með að hafa áhrif á ákvarðanir hrepps-
nefnda — og ég veit raunar þegar til
þess að það hefur haft áhrif."
Að mati Eiríks má draga þann lær-
dóm af þessu máli að hreppsnefndir
megi ekki fara með þennan rétt, sem
þær hafa, alveg eins og þeim sýnist.
Þær verði að gæta ákveðinna reglna,
skráðra og óskráðra, þegar þær taka
slíka ákvörðun, en megi ekki mis-
muna mönnum. í þessu máli sagðist
hann hafa talið að um augljósa mis-
munun væri að ræða. Kaupendumir,
sem hann fór með málið fyrir, væm
búsettir utan sveitar og hefðu lýst yfir
að þeir ætluðu að stunda hrossarækt á
jörðinni. En það sama hefði líka átt
við um mann þann, sem hreppsnefnd-
in ákvað að selja jörðina.
Eftir undirritun kaupsamnings við
seljanda Eystrihóls haustið 1988
sendu kaupendur kaupsamninginn til
hreppsnefhdar Vestur-Landeyja og
óskuðu eftir að hreppurinn félli frá
forkaupsrétti að jörðinni. Á hrepps-
nefndarfundi nokkrum vikum síðar
var hins vegar samþykkt að hreppur-
inn nýtti sér forkaupsréttinn og gengi
inn í kaupin. Án þess að láta kaupend-
ur vita, samþykkti hreppsneftid á
sama fundi að selja öðmm jörðina.
Kaupendur skutu þá málinu til land-
búnaðarráðuneytisins og fóm fram á
að það ógilti ákvörðun hreppsnefndar-
innar um að neyta forkaupsréttarins.
Ráðuneytið hafnaði þeirri kröfu.
Bæði seljandi jarðarinnar og kaup-
endumir þrír stefndu þá hreppnum.
Málið byggðu þeir m.a. á því að
hreppsnefnd hefði, við ákvörðun sína,
ekki gætt réttra lagasjónarmiða, hún
hefði brotið gegn viðurkenndri jafn-
fræðireglu og ekki kannað málavexti
nægilega. Að mati stefnenda hefði
persónuleg óvild oddvita hrepps-
nefndar, Eggerts Haukdals, út í vanda-
mann eins kaupendanna ráðið mestu
um ákvörðun hreppsnefhdar. Var þar
m.a. vísað í skýrslu Eggerts fyrir
dómnum, þar sem fram komu ýmsar
fullyrðingar um andstöðu nágranna
Eystrihóls gegn því að kaupendur
fengju jörðina og hvað þeir hefðu í
hyggju m.a. varðandi kvótann sem
henni fylgir. Héraðsdómur taldi sann-
að að þama væri um söguburð og
slúður að ræða. Sannast hefði að
hreppsnefndin hefði ekki kynnt sér
viðhorf umræddra nágranna, eins og
haldið hafi verið fram í bréfi hennar til
landbúnaðarráðuneytisins. Hrepps-
nefndin hefði heldur ekki gefið kaup-
endum kost á að láta í ljós sitt álit á
þeim sögusögnum sem ákvörðun
hennar byggðist á, eins og hún hefði
átt að gera.
Vegna slíkra galla á undirbúningi að
ákvörðun Vestur-Landeyjahrepps um
að neyta forkaupsréttar að Eystrihól
felldi héraðsdómur þá ákvörðun úr
gildi. Hæstiréttur hefur nú nýlega
staðfest þann dóm og dæmt Vestur-
Landeyjahrepp til að borga 370 þús.
kr. í málskostnað, sem fyrr segir.
- HEl
Nýr félagsskapur innan Verslunarráðs:
Tölvuseljendur
stofna samtök
Fyrirtæki, sem selja tölvur, tölvubúnað og þjónustu við tölvur og
eiga aðild að Verslunarráði íslands, hafa stofnað með sér samtök,
Samtök tölvuseljenda, skammstafað STS. Á stofnfundinum 21.
janúar sl. voru kosnir í stjórn þeir Heimir Sigurðsson Örtölvu-
tækni-Tölvukaupum hf., Áki Jónsson Aco hf. og Öm Andrésson frá
Einari J. Skúlasyni hf.
í samþykktum félagsins segir að
tölvuseljendur innan Verslunarráðs
íslands eigi sér þar vettvang til upp-
lýsinga- og skoðanaskipta, hags-
munagæslu varðandi almennt
starfsumhverfi og til þess að standa
að sameiginlegum verkefnum. Hver
aðili samtakanna tilnefnir einn full-
trúa til eins árs í senn og einn til
vara.
Stjóm samtakanna verður í hönd-
um þriggja manna, sem fulltrúamir
kjósa úr sínum hópi á ársfundi sem
haldinn verður í septembermánuði
framvegis. Stjómin skiptir sjálf með
sér verkum formanns, varafor-
manns og ritara.
Hlutverk stjómarinnar er að sinna
þeim verkefhum, sem tilgreind em í
samþykktum STS, og að koma fram
fyrir hönd hópsins gagnvart fram-
kvæmdastjórn Verslunarráðs og
stjómvöldum. STS mun ekki hafa á
höndum neins konar almennan,
fjárhagslegan rekstur, en getur
stuðlað að framkvæmd afmarkaðra
verkefna samkvæmt ákvörðun árs-
fúndar eða almenns fundar hverju
sinni.
Stjómin skal halda stjómarfundi
minnst mánaðarlega, nema yfir 2-3
sumarmánuði, og almenna fundi
minnst fjómm sinnum á ári og er
ársfundur einn þeirra. Einnig geta
þrír eða fleiri úr hópnum óskað eftir
almennum fundi um tiltekið mál-
efni og skal stjómin þá verða við
slíkri ósk þegar í stað með boðun al-
menns fundar, sem haldinn skal
innan þriggja daga frá því að form-
leg ósk bersL Rita skal fundargerðir
stjómarfunda og almennra funda og
senda öllum aðilum eftir hvern
fúnd.
STS hefúr fundaaðstöðu hjá Versl-
unarráði, aðgang að aðstoð félags-
málastjóra þess sem og annarra
starfsmanna eftir atvikum og nýtur
þjónustu skrifstofu VÍ við boðun
funda, varðveislu og dreifingu
gagna.
í nánari skilgreiningu á hver skulu
vera verkefni STS segir:
*Fastur umræðu- og upplýsinga-
vettvangur.
♦Skoðun laga og reglna sem snerta
greinina (Áhrif á umsagnir VÍ).
♦Erindrekstur gagnvart stjómvöld-
um.
*Samstarf við framkvæmdastjóm
VÍ.
*Samskipti við aðra hagsmunaað-
ila á tölvusviði.
*Staðlamál.
*Útboðsmál.
*Einstök rekstraratriði.
*ErIend samskipti.
*Sýningahald eða þátttaka í sýn-
ingum.
*Önnur afmörkuð kynningarverk-
efni.
*Annað sem hópurinn kann að
ákveða hverju sinni.
Stofnaðilar að STS eru ACO hf.,
Skipholti 17, Einar J. Skúlason hf.,
Grensásvegi 10, HP á íslandi hf.,
Höfðabakka 9, Heimilistæki, Sætúni
8, JAPIS/G. Run. hf., Brautarholti 2,
Nýherji hf., Skaftahlíð 24, Radíó-
búðin hf., Skipholti 21, Tæknival
hf., Skeifunni 17, og Örtölvu-
tækni/TöIvukaup hf., Skeifunni 17.
—sá
Húseigandi þar sem þessi sorptunna er mætti alveg moka betur
frá tunnunni sinni. Þaö er ekki létt verk að toga þunga tunnu upp
úr snjóskafli. Timamynd Ami Bjama
Snjórinn eykur
sorphirðukostnað
Sá mikli snjór, sem kyngt hefur
niður á landinu í janúar, hefur
valdið sorphirðumönnum veruleg-
um erfiðleikum. Víða hefur reynst
Forstöðumaður Simon Wiesenthal- stofnun-
arinnar í Jerúsalem til íslands:
Synjað um við-
tal við ráðherra
Efraim Zuroff, forstöðumaður Sim-
on Wiesenthal-stofnunarinnar í
Jerúsalem, kemur hingað til lands í
næstu viku. í farteskinu mun hann
hafa ný sönnunargögn um meinta
stríðsglæpi Eðvalds Hinrikssonar,
sem hann er sakaður um að hafa
drýgt í Eistlandi á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Ósk forstöðumannsins um viðræð-
ur við Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Þorstein Pálsson dóms-
málaráðherra var hafnað, en þess í
stað mun hann hitta embættismenn
að máli. Auk þess mun Zuroff flytja
fyrirlestur við Siðfræðistofnun Há-
skóla íslands um viðleitnina við að
koma höndum yfir stríðsglæpa-
menn.
í fórum sínum mun forstöðumað-
urinn vera með ný gögn, sem stað-
festa fyrri ásakanir gegn Eðvald Hin-
rikssyni, en þeirra aflaði hann í Eist-
landi eftir að hafa hitt að máli for-
sætisráðherra Eistlands,
innanríkisráðherrann og dóms-
málaráðherra landsins.
-grh
Atvinnurekendur og verkalýdsféiög
á Suðurlandi:
SAMEIGINLEG-
UR ATVINNU-
MÁLAFUNDUR
Boðað hefur verið tíl almenns
fundar um atvinnumál á Suður-
landi nk. þriðjudagskvöld kl.
20.30 í Hótel Setfoss. Það eru Al-
þýðusamband Suðurlands og At-
orka — félag atvinnurekenda á
Suðurlandi sem standa sameigin-
lega að fundlnum og eru þing-
menn kjördæmisins og sveltar-
stjórnamenn sérstaldega boðnlr.
„Segja má að með þessum fundi
séu mörkuð tímamót í samskipt-
um verkalýðsfélaganna og at-
vinnurekenda á Suðurlandi, en
þetta mun í fyrsta sinn sem þess-
ir aðilar standa sameiginlega að
fundi um atvinnumál," segir í
frétt frá þessum aðilum.
—SBS, Selfossi
erfitt að ná sorptunnum upp úr
snjósköflunum. Björninn er ekki
unninn þó það takist, því sorpbíl-
arnir hafa átt í erfiðleikum með að
komast að húsum vegna mikilla
snjóruðninga. Sorphirðumenn
hafa því í mörgum tilfellum orðið
að draga tunnurnar á eftir sér lang-
ar leiðir yfir stóra skafla.
Pétur Hannesson, deildarstjóri
hjá embætti gatnamálastjóra, sagði
að vinnudagur sorphirðumanna
væri búinn að vera langur í janúar
og mun lengri en venjulega. Þó
hafi áætlun um sorphirðu ekki far-
ið úr skorðum vegna fannfergisins.
Pétur sagði Ijóst að allur þessi
mikli snjór þýði nokkurn auka-
kostnað við sorphirðu í janúar, en
erfitt sé að meta hve mikill hann
sé.
Pétur tók fram að mjög margir
íbúðaeigendur hefðu brugðist vel
við tilmælum um að moka frá
sorptunnum. Hann sagðist síðan
bara vona að veðurfarið fari að
skána og tíðin verði sorphirðu-
mönnum hliðhollari það sem eftir
lifir vetrar. -EÓ