Tíminn - 29.01.1993, Blaðsíða 11

Tíminn - 29.01.1993, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. janúar 1993 Tíminn 11 Jacques Chirac ber fullt traust til dóttur sinnar Claude sem þykir fremur gegna hlutverki móöur en dóttur f pólitískum draumum hans. Chirac undirbýr for s etako sningar Pólska þjóðdansasýningaratrió- ið var afstaðið, tryggu flokksfé- lagamir höfðu ýtt til hliðar disk- unum undan köldu réttunum og ÖU athyglin beindist að Jacques Chirac, þar sem hann þrumaði um ranglæti sósíalismans og grimmilegt óréttlæti sem hrúg- að er á herðar bænda í Frakk- landL Þegar borgarstjórinn í París, af flokki Gaullista, leit í kringum sig í rúmgóðum matsalnum í Hotel de Ville í Douai, stöðvaðist augnaráð hans örskamma stund við aðlaðandi unga konu með hárið bundið í tagl með svartri flauelsslaufu. Konan kinkaði kolli svo að varla var sjáanlegt og Chirac lauk rösklega ræðu sinni og stikaði út af sviðinu við fagnandi lófatak. Nokkrum augnablikum síðar sat hann í aftur- sætinu á límúsínu sem hélt hratt til Cambrai. Konan með taglið sat við hlið hans. Kosningabarátta Chir- acs til forseta hafín? Þetta sama endurtók sig alls staðar þar sem Chirac kom en hann er nú í snemmbomum kosningaleiðangri um norðurhluta Frakklands. Án þess að mikið beri á er alltaf við hlið hans konan sem orðin er nánasti trúnað- arvinur best þekkta borgarstjóra Frakklands, 29 ára gömul dóttir hans, Claude. Þegar Chirac leggur gmndvöllinn að enn einni atlögunni að forseta- stólnum, sem Francois Mitterrand verður að stíga úr f fyllingu tímans, er yngri dóttur hans treyst fyrir aðal- hlutverkinu í því sem er að verða áberandi pólitísk endurreisn. Eftir auðmýkjandi ósigur fyrir Mitt- errand í forsetakosningunum 1988, virtist Chirac særður og niðurdreg- inn. Núna, þegar sósíalistar Mitterr- and eru óöruggir með sjálfa sig, er Chirac aftur stokkinn fram í sviðs- Ijósið. Nýleg skoðanakönnun sýnir að hann hefur sjónarmunsforskot á Jacques Delors í næstu forsetakosn- ingum. Fyrst eru það þing- kosningamar í mars Chirac, nýlega sextugur, hefur kast- að sér út í kosningabaráttuna fyrir þingkosningamar í mars af sama ákafa og búast mætti við af helmingi yngri manni. Leyndardómur ný- fúndinnar orku? Margir aðstoða- manna hans benda á Claude. „Hann er farinn að treysta á hana,“ segir Lydie Gerbaud, blaðafulltrúi Chiracs undanfarin 15 ár. „Hann ber full- komið traust til hennar. Hann veit að hún einbeitir sér aigerlega að honum og er ekki með neina leyni- lega pólítíska áætlun fyrir sjálfa sig.“ Frá skrifstofu sinni í ráðhúsinu, í nokkurra skrefa fjarlægð frá skrif- stofu borgarstjórans í París, skipu- leggur Claude allar ferðir föður síns utan Parísar, velur tengiliði og gefur honum ráð um framkomu gagnvart fjölmiðlum. Gömlum ráðgjöfum Gaullista- flokksins til gremju er hún orðin einn af fjómm nánustu ráðgjöfum hans. Hún fær hrós — eða last eftir því hver talar — fyrir að hafa skorið niður fundadagskrá flokksins og að hvetja til meiri félagslegra tengsla við óbreytta kjósendur. Árangurinn er greinilega afslappaðri Chirac sem auðveldara er að fá aðgang að og er farinn að leggja niður þráhyggjutil- hneiginguna sem var hans fylginaut- ur þegar hann var síðast forsætisráð- herra. „Claude hefur hjálpað honum við að róa sig niður," segir Gerbaud. „Hún er frekar í hlutverki móður hans en dóttur," bætti annar ráðgjafi við. Harmleikur í íjöl- skyldunni Koma Claudes fram f dagsljósið sem áhrifamikil persóna felur harm- leik í Qölskyldunni. Fyrir tæpum þrem ámm reyndi eldri systir henn- ar, Laurence, að fremja sjálfsmorð með því að kasta sér út um glugga á íbúð sinni á fjórðu hæð. Þó að Laurence hafi náð sér og síð- ar náð læknisprófi hefur hún verið andlega sjúk og er undir stöðugu eftirliti hjúkmnarkonu. „Það hefur valdið fjölskyldunni mildum sárs- auka," segir Gerbaud. „En það er aldrei talað um það opinberlega." Fyrstu afskipti Claude vom ekki fullicomlega vel heppnuð. 1987 hvatti hún Chirac til að fá flokks- bróður sinn, borgarstjóra í útborg Parísar, til að afturkalla bann við tónleikum Madonnu. „Pabbi vissi ekki mikið um Madonnu," sagði hún þá. „Svo að ég neyddi hann bak við luktar dyr til að hiusta á allar plöt- umar mínar með henni og horfa á myndböndin." Áðferðin heppnaðist og tónleikam- ir vom haldnir, en mynd af Chirac í gallabuxum þar sem hann hlustaði á Madonnu á einkavíðómstæki varð víða að athlægi. Hann var sakaður um hræsnisfulla tilraun til að biðla til atkvæða æskufólks eftir að hafa ámm saman sýnt grímulausa fyrir- litningu á rokk og ról menningu. Claude hefur þroskast mikið síðan henni varð á þetta bemskubrek. Hún talar ekki lengur um föður sinn op- inberlega sem „pabba“ heldur notar einfaldlega nafnið, Chirac. Claude er hávaxin og tígurleg, klæðist gjaman gallabuxum og kú- rekastígvélum. Hún viðurkennir fúslega að lengi vel hafi hún lítinn áhuga haft á starfi föður síns. „Ég hef mikinn áhuga á dýmm og lang- aði til að verða dýralæknir," segir hún. Eftir að hafa unnið smátíma sem aðstoðarstúlka dýralæknis, tók hún til starfa á auglýsingastofu. Þá bað faðir hennar hana að hjálpa sér. „Fyrst var ég hrædd. En það leit út fyrir að verða spennandi ævintýri, og ég gat ekki neitað honurn." Tengdasonurinn mál- pípa Chiracs? í september sl. giftist Claude Philippe Habert, 35 ára fréttaskýr- anda hjá Le Figaro. Tengslin hafa gefið greinum Haberts þau áhrif að ýmislegt er lesið út úr þeim sem álit- ið er komið úr herbúðum tengdaföð- urins, og nýlega varð íjaðrafok þegar hann véfengdi þá langlífu tilgátu að Chirac myndi ekki sækjast eftir for- sætisráðherraembættinu í mars til að spara sjálfan sig fyrir kosninga- baráttuna til forsetaembættisins 1995. Habert gaf í skyn í sjónvarpinu að valið á þeim sem almennt er litið á að sé útvalinn af Chirac til forsætis- ráðherraembættis — Edouard Ball- adur fyrmrn fjármálaráðherra — myndi reyndar vera „stórfelld mis- tök“. Var Habert að nýta sér innan- hússþekkingu konu sinnar? Claude Chirac gaf ekkert út á það. Hún hló bara þegar minnst var á að sem áhrifamiki! persóna f fjölskyldu sem stefnir að því að setjast í Elysée- höll kunni hún varða svar Frakk- lands við Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna. „Ég hef aldrei haft áhuga á að hasla mér völl sjálf í pól- itík,“ segir hún. „Ég ætla að standa með Jacques Chirac þangað til í kosningunum. Eftir þær er mínu hlutverki lokið.“ Hvert stefhir í EBE? Bandaríska vikuritið Time efndi í desember 1992 til málþings í Lond- on um stöðu Efnahagsbandalags Evrópu. í grein þess um ráðstefnuna 28. desember 1992 sagði: „Úr því að Maastricht-samningurinn var aðeins naumlega samþykktur í þjóðarat- kvæðagreiðslu í Frakklandi í sept- ember (1992), duldist aðildarlönd- unum tólf ekki, að úr tiltrú almenn- ings á EBE drægi, ef ráðstefna for- ystumanna þess í Edinborg (í desember) mistækisL (Þar voru) Danmörku búnar margþættar und- anþágur frá höfuðatriðum samn- ingsins, sem hún ljær væntanlega samþykki sitt í maí (1993). Yfir aðra tálmun var komist, þegar fátæku að- ildarlöndin við Miðjarðarhaf, fyrir forgöngu Felipe Gonzales, forsætis- ráðherra Spánar, féllust á málamiðl- un um lækkun á framlögum til (þró- unarsjóðs) þeirra á næstu fimm ár- (OTBMnwi) um. Hvort sem öll aðildarlöndin leggja upp í þá för, eða tíu eða aðeins fimm, eru Þýskaland og Frakkland staðráðin að hefja samfellingarferli að myntbandalagi (sín á milli) í síð- asta lagi 1. júní 1993.“ „Þeir, sem vilja að fyrstu skrefm verði stigin í Air Canada ásamt tveimur fjársýslu- mönnum í Texas, James Coulter og David Bonderman, hefur fest kaup á 55% af hlutafé Continental Airlines Holdings, sem að undanförnu hefúr notið greiðslustöðvunar. Kaupverðið er 450 milljónir $, að tilkynnt var 9. nóvember 1992. Fær Air Canada 27,5% hlutafjárins og Coulter og Bonderman önnur 27,5%. Lánardrottnar fá 35,6% hlutafjár hins endurskipulagða Continental Airways. átt til sambandsríkis, telja til þess hníga auðsæ rök: EBE hlýtur að verða markaður án innri landa- mæra. Því að tollabandalag eitt sam- an leiddi ekki til þeirrar stækkunar framleiðslu(fyrirtækja), er leiðir til lækkunar kostnaðar, greiðari til- Crédit Lyonnais kaupir 50,1% í BfG Crédit Lyonnais hefur fest kaup á 50,1% af hlutafé Bank fur Gemein- wirtschaft A.G. á jafnvirði 890 millj- óna $ og munu kaupin fara fram í tveimur áföngum. Verður Crédit Ly- onnais þannig fyrstur útlendra banka til að eignast þýskan banka meq útibú um allt Þýskaland. Þýsk verkalýðsfélög hafa verið helsti eign- araöili BfG ásamt Aachener & Múnchener Beiteiligungs A.G. (AMB), sem að Qórða hluta er í eigu flutninga og stöðlunar starfshátta, eins og Vestur-Evrópu er á þörf til að geta keppt við Bandaríkin og Japan. Að sínu leyti kemur sameiginlegur markaður aðeins að tilætluðum not- um, ef sagt verður fyrir um kostnað og hagnað, en því varnar samhrær- ingur 12 gjaldmiðla, jafnvel þótt laustengdir séu. Sameiginlegur gjaldmiðill þarfnast umsjónar (eins) seðiabanka, sem hafa hlyti forræði í peningamálum aðildarlanda og fransks vátryggingarfélags, Assur- ances Genérales de France. Að und- anförnu hefur BfG beðið mikið tap á lánum til aðila í Austur-Evrópu. ALBA tvöfaldar álvinnslu sína Aluminium Bahrain (ALBA) hefur nú lokið við stækkun álvers síns. Á ári vinnur það nú 460.000 tonn í stað 225.000 tonna síðasta ár. Pott- lína álversins er nú 1 km að lengd, með 288 pottum. ALBA hóf vinnslu 1971, 10.000 tonn áls á ári, en á þrengja þannig að fullveldi þeirra og athafnarými. Fyrir sakir vísis að pól- itískri samfellingu þeirra, gæti EBE farið að móta sameiginlega stefnu í öryggis- og landvamarmálum, eink- um nú er verið er að aflétta ógnar- jafnvægi á milli kjamorkuvelda." „En ein martröð hefur þokað fyrir annarri, og draga Danir, Bretar og 49% franskra kjósenda í efa, að hyggilegt sé (fyrir aðildarlöndin) að afsala sér mörgu fmmkvæði sínu.“ næstu 10 ámm jók það vinnslu sína í áföngum upp f 170.000 tonn, en 1990 fór vinnsla þess upp í 205.000 tonn. — Á1 vinnur ALBÁ úr álsýringi frá Ástraiíu, og fær orku frá 1340 megawatta rafstöð, sem sjálf er knú- in bmna jarðgass frá Khuff- svæð- inu. Vinnslutækni hefur ALBA sótt til Pechiney á Frakklandi, en um- hverfisvemdartækni til Norsk Viftefabrik, sem er í eigu Asea Brown Boveri. Aðalframkvæmdastjóri ALBA-versins er norskur, Gudvin K. Tofte. Air Canada kaupir Continental Airways

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.