Tíminn - 29.01.1993, Qupperneq 12

Tíminn - 29.01.1993, Qupperneq 12
12 Tíminn Föstudagur 29. janúar 1993 FIINDIR OG FÉLAGSSTÖRF Halldór Jón Jónas Karen Eria Almennir stjórnmálafundir á Austurlandi Þingmenn og varaþingmenn Framsóknarflokksins á Austurlandi boða til almennra stjómmálafunda I kjördæminu sem hérsegirá tlmabilinu frá 31. janúartil H.febrn- ar. Reyðarflröl: I Verklýðshúsinu sunnudaginn 31. jan. kl. 16.00. Esklfírðl: I Slysavamafélagshúsinu 31. jan. kl. 20.30. Neskaupstað: I Egilsbúð mánud. 1. febr. kl. 20.30. Stöðvarfirði: Félagsheimilið þríðjud. 2. febrúar kl. 20.30. Breiðdalsvik: Hótel Bláfell miövikud. 3. febrúar kl. 20.30. Höfn: Framsóknarhúsið fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.30. Bakkafirðl: Miðvikudag 10. febrúar kl. 20.30. Vopnafiröi: Fimmtudag 11. febnjarkl. 20.30. Fundarefni: Atvinnumál — stjómmálaviðhorfið — staða EES- samningsins. Allir eru velkomnir á fundina. Nánar auglýst á viðkomandi stöðum. Athugið breytt- an fundartíma á Eskifirði og Fáskrúösfirði. Fundarboðendur Félagsvist á Hvolsvelli Spilum sunnudaginn 31. janúar og sunnudaginn 14. febrúar kl. 21.00. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu Framsóknarvist — Reykjavík Framsóknanrist verður spiluð n.k. sunnudag 31. jan. f Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, og hefst kl. 14.00. Veitt verða þrenn verðlaun, karia og kvenna. Finnur Ingólfsson alþingismaöurflyturstutt ávarp i kaflihléi. Framsóknarfélag Reykjavikur Brautarholt á Skeiðum Alþingismennimir Jón Helgason og Guðni Ágústsson boða til fundar um stjómmálaviðhorfið að Brautarholti mánudaginn 1. febrúar kl. 21.00. Guönl Létt spjall á laugardegi Laugardaginn 30. janúar n.k. frá kl. 10.30 - 12.00, að Hafnarstræti 20, 3. hæð, mætir Finnur Ingólfsson og ræö- ir stjómmálaviðhorfið. Fulltrúaráðlð Finnur Inglbjörg Vesturland Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður og Sigurður Þórólfsson varaþingmað- ur verða með fundi um stjómmálaviö- horfið og málefni héraðsins á eftirtöld- um stöðum: Mánudagur 1. febr. n.k.: I Logalandi kl. 14.00 og I Lyngbrekku kl. 21.00. Mlövikudagur 3. febr. n.k.: I Félags- heimilinu Suðurdölum kl. 14.00 og I Breiðabliki kl. 21.00. Fimmtudagur 4. febr. n.k.: I Röst, Hellissandi. kl. 21.00. Siguröur FÉLAG JÁRNIÐNAPARMANNA Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjómar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnað- armanna fyrir næsta starfsár. Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs fé- lagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, ásamt meðmælum a.m.k. 75 fullgildra félagsmanna. Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og auk þess tillögur um 14 menn til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn þeirra. Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og trúnað- armannaráðs rennur út kl. 18.00 mánudaginn 8. febrúar 1993. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Nemendaleikhúsið: BENSÍNSTÖÐIN Nemendaleikhúsið hefur hafið sýn- ingar á Bensínstöðinni eftir Frakk- ann Gildas Bourdet, en þetta er ann- að verkið sem þau setja upp á þess- um síðasta vetri sínum í Leiklistar- skólanum. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. Verkið gerist á bensín- stöð rekinni af Magdalenu, sem á 3 dætur. Elsta dóttirin, Teresa, er óánægð með einkalíf sitt, miðdóttir- in Mód er að fara að gifta sig, en á sér jafnframt elskhuga sem flækir málið, og sú yngsta, Doris, er í tygj- um við mótorhjólatöffara og hugsar um það eitt að komast að heiman. Eiginmaður Magdalenu dúkkar skyndilega upp eftir að hafa ekki lát- ið frá sér heyra í 18 ár og þá fer að draga til tíðinda. Nemendaleikhúsið hefur valið sér skemmtilegt verk að þessu sinni, ólíkt skemmtilegra en Clara S., og hæfileikar hvers og eins koma nú betur í ljós. Björk Jakobsdóttir fannst mér mjög sannfærandi sem Teresa. Maður fékk fljótlega samúð með þessari vansælu konu. Hinrik Ólafsson var jafnframt góður sem bifvélavirkinn Samson. Jónu Guð- rúnu Jónsdóttur hættir aftur á móti til of mikils asa í hlutverki Mód. Vig- dís Gunnarsdóttir, Kristína Sundar Hansen, Gunnar Gunnsteinsson og Doffi Hermannsson standa sig öll með prýði. Hópurinn hefur fengið þrjá gesta- LEIKHÚS V_______________________/ leikara til liðs við sig, þá Hilmar Jónsson sem leikur vangefinn son Teresu, Tútút, Þröst Guðbjartsson sem leikur föðurinn, og Erling Jó- hannesson sem Winnokk, vin Doris- ar. Hilmar sýnir stjörnuleik, radd- beiting og líkamstjáning mjög sann- færandi. Erling er stórskemmtileg- ur Winnokk og náði unglingatökt- unum vel. Þýðing Friðriks Rafnssonar er lið- leg og skörp skil á milli unglinga- málsins og máls þeirra eldri. Leik- myndin er verk Gretars Reynissonar og er einföld og vel gerð. Búningar Helgu Stefánsdóttur eru góðir og hæfa hverri persónu mjög vel, sér- staklega þegar allir dressa sig upp til brúðkaupsins. Bensínstöðin er bæði skemmtilegt og spennandi verk og næsta frum- sýning Nemendaleikhússins er til- hlökkunarefni. —Gerður Kristný OÞJALIR OG ILLIR Margur tók Viðeyjarbræðrum fagnandi, Davíð fyndinn, leikari og leikritaskáld, Jón Bald engu minni leikari en ekki skáld, svipar til viss hóps franskra leikara. Fljótt þótti bera á því að Davíð glutraði niður sínum fína húmor. Jón Bald fór Viltu komast Vélsleði til sölu Polaris Indy 650 árg. ‘89. Ekinn aöeins 2.400 mílur. Mjög vel útlítandi í topp- standi. Brúsa- og farangursgrind, farangurskassi úr áli. Gott staðgreiðsluverð. Uppl. í síma 91-685582 eða á sleðanum í far- síma 985-34561. hamförum í imbakössum lands- manna flest kvöld sem hann var ekki í Brussel. Jón þjóðarhagur velti vöngum yfir því, hvar hann ætti að setja niður álverið sitt, og þegar hann loks var búinn að finna staðinn var áldraumurinn búinn. Þá sést Sighvatur oft á skjánum, vemdari velferðarinnar. Kerfið er f ‘N Lesendur skrlfa dýrt og einhversstaðar verður að taka peningana. Sighvatur og Jón Sæm. hafa uppgötvað bættan hag ellilífeyrisþega og sjúklinga og mætti bæta á þá svona 250 millj- ónum. Nú er kvenfólk enn að skamma Sighvat fyrir að loka Fæðingarheimili Reykjavíkur og því liggi sængurkonur hvar sem skonsa finnst í Landspítalanum. Hvaða mannfjölgunarlæti eru þetta allt í einu? Og hvernig var það, fæddist ekki frelsarinn í fjár- húsi? Vita menn ekki að markmið stjómar okkar er niðurskurður, hærri skattar, lægri skattleysis- mörk, minni kaupmáttur? Mörgum fannst til um utanríkis- ráðherra sinn þegar hann kom frá Bmssel með stóm bombu, samn- ing um allt fyrir ekkert, langhala fyrir loðnu. Þar fór þó eitthvað milli mála. Kallarnir í Bmssel vildu karfa og fengu hann. Þeir fúlsa ekki við þeirri sjávarins skepnu eins og bóndinn á Múla sem sagði: „Ég vil ekki andskotans karfann, Ólafur." Mjög var Jón utanríkis orðinn leiður á löngum og leiðinlegum ræðum á „hinu háa Alþingi" ein- sog það heitir þar á bæ, Eiður var leiður, Davíð hundleiður og fannst hann kominn í gaggó á nýjan leik. Eiginlega vom allir orðnir leiðir, landslýður leiður á landsfeðmm volandi yfir vondum óvinum EES sem töluðu allt of mikið. Málfrels- ið blívur, sögðu hinir langorðu og leiðinlegu. Og skrifað stendur: „Varist þá sem beita málfrelsi sínu til að afnema það þegar þeir kom- ast til valda.“ Varla getur talist óeðlilegt að um- ræður yrðu langar „á hinu háa“ þingi um mál þar sem þingskjölin em 22 þúsund blaðsíður, þ.e. Jóns- bók, Bjamarbænir og Davíðssálm- ar. Ekki fúrða þó þingmenn hafi verið langþreyttir og leiðir eftir allan þann lestur, eða ber þeim ekki að lesa þingskjöl? En það ber að virða við utanríkis- ráðherrann að hann vildi svona f lokin lyfta umræðunni á hærra plan. Á hvaða plani skyldi saga ráð- herrans um sjö milljarðana hafa verið eða spjall hans um þvagfæra- þol þingmanna á móti EES? Stjórnarliðar hafa geisað nokkuð um ofbeldi stjórnarandstöðu á þingi. Þessu þuifi að breyta í sam- ræmi við vilja Viðeyjarbræðra. Mætti af því hjali ráða, að þetta hafi verið með öðmm og betri brag hjá sjálfstæðismönnum. í bókinni um Jónas frá Hriflu vitnar Guðjón Friðriksson í bréf frá Magnúsi Guðmundssyni, þing- manni Skagfirðinga og lengi ráð- herra, til Jóns á Reynistað, dags. 26. okt. 1931. Magnús kveðst von- daufur um samkomulag á þingi um kjördæmamálið, „og færi svo emm við staðráðnir í, nema önnur tfðindi gerist, að vera eins óþjálir og illir á næsta þingi og við get- um . Haraldur Guönason

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.