Tíminn - 05.02.1993, Qupperneq 8

Tíminn - 05.02.1993, Qupperneq 8
8 Tíminn Föstudagur 5. febrúar 1993 FUNDIR Haltdór Jón Jónas Karen Erla Almennir stjórnmálafundir á Austurlandi Þingmenn og varaþingmenn Framsóknarflokksins á Austurlandi boða til almennra stjómmálafunda I kjördæminu sem hér segir á timabilinu ffá 31. janúar til 11. febrú- ar. Bakkafiról: Miðvíkudag 10. febnjar kl. 20.30. Vopnaflrði: Fimmtudag 11. febnjar kl. 20.30. Fundarefni: Atvinnumál — stjómmálaviðhorfið — staða EES- samningsins. Allir eru velkomnir á fundina. Nánar auglýst á viðkomandi stöðum. Athugiö breytt- an fundartima á Eskifiröi og Fásknjðsfirði. Fundarboðendur Halldór Ingibjörg Akranes Sigurður Opinn stjómmálafundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu, Sunnubraut 11, mánudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Frummælendur: Halldór Asgrlmsson, Ingibjörg Pálmadóttir og Siguröur Þórólfsson. FUF Fljótsdalshéraði Félag ungra framsóknarmanna Fljótsdalshéraði heldurfélagsfund laugardaginn 6. febrúar kl. 20.00 I Upplýsingamiöstöö KHB. Á dagskrá em m.a. umræður um framtiðarhorfur og atvinnumöguleika ungs fólks á Héraöi, ávörp gesta, kosningu nýs formanns FUFF og svo önnur mál. Siöan skln sól á árshátíðina okkar um kvöldið, sem við undirbúum að fundi lokn- um. Veitingar á boðstólum. Fjölmennum á þessa fyrstu árshátlð vetrarins. Stjóm FUFF Kópavogur — Framsóknarvist Spilum framsóknarvist að Digranesvegi 12 sunnudaginn 7. febrúar kl. 15.00. Kaffiveitingar og góð verðlaun. Freyja, félag framsóknarkvenna Kópavogur— Opið hús Opið hús er alla laugardaga kl.10.00 - 12.00 að Digranes- vegi 12. Kaffi og létt spjall. Sigurður Geirdal bæjarstjóri verður til viðtals. Framsóknarfélögln Slgurður Guðnl Borg — Aratunga Alþingismennimir Jón Relgason og Guðni Ágústsson boöa til fundar um stjómmálaviðhorfið að Aratungu Biskupstungum, mánu- daginn 8. febrúar kl.21.00. Jón Kópavogur — Atvinnumál — Kjaramál Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna i Kópavogi boðar til opins fundar um atvinnu og kjaramál að Digranesvegi 12, mánudaginn 8. febrúar kl. 20.30. Gestur fundarins og frummælandi verður Benedikt Daviðsson, forseti A.S.I. Allir velkomnir. Bátavél óskast Óska eftir að kaupa notaða diesel bátavél, ca. 20-50 ha. Tilboð er greini tegund, stærð, aldur og verðhugmynd, sendist til: Tíminn, auglýsingadeild, Lynghálsi 9, 110 Reykjavík, auðkennt „DIESEL“. LEIGUSALAR Hvemig væri að ganga frá málunum með góðum fyrirvara? Prófarkalesara á Tímanum vantar 2ja til 3ja herbergja íbúð frá 1. júní. Skilvisum greiðslum og góðri umgengni er heitið. Æskilegt aö um langtimaleigu yrði aö ræða. Uppl. gefur Bjöm I slma 91-10517 (hs) eða 686300 (vs). AFA í NÝJUM BÚNINGI Aarhus Frimærkehandel í Árósum hefir gefið út frímerkjaverðlista fyrir Danmörku, Norðurlöndin, Vestur- Evrópu og Austur-Evrópu, undanfarna áratugi. Með þeim breytingum, sem orðið hafa í Austur-Evrópu á undanförn- um árum, hefur forlagið nú ákveð- ið að gera breytingar á bæði skipu- lagi verðlistans yfir Austur-Evrópu, en einnig að flytja Þýska alþýðulýð- veldið heim til Vestur- Evrópu. Þriðja breytingin er svo að verðlist- inn kemur nú út, það er að segja bæði Austur-Evrópu-bindin, þann 25. mars 1993. Þá hefir verð þeirra þegar verið ákveðið DKR 288,00 hvort bindi; er þá virðisaukaskatt- urinn innifalinn í því verði, það er að segja sá danski. Þannig er Evrópufrímerkjaverð- listinn frá AFA orðinn fjögurra binda ritverk, auk Norðurlandalist- ans og Danmerkurlistanna, sem og ýmissa sérbóka um aðskiljanleg frímerkjafræðileg efni. Framvegis heita þessi bindi verð- Iistans: AFA Östeuropa Fri- mærkekatalog 1993, bind 1, A-R. Síðara bindið nefnist svo: AFA Öst- europa Frimærkekatalog 1993, bind 2, S-U. Þess er að gæta að miklar verð- breytingar hafa átt sér stað, ein- mitt í austurhluta Evrópu, þar sem gömul frímerkjalönd hafa nú risið upp af löngum svefni og önnur ný stundum tekið við. Verðhækkanir hafa orðið verulegar, en einnig hafa orðið lækkanir, eins og t.d. á DDR-frímerkjum. Við skulum aðeins gera okkur grein fyrir þeim fjölda landa, sem ýmist hefja útgáfu við þessar breyt- ingar eða þá að þau byrja á ný að gefa út frímerki. Þessi lönd eru: Ar- menía, Aserbajdsjan, Eistland, Hvíta-Rússland (Belarus), Kasakhstan, Kirgistan, Króatía, Lettland, Litháen, Makedónía, Moldavía, Rússneska lýðveldið, Slóvenía, Tadsjikistan, Turkmen- istan, Úkraína og Úsbekistan. Þá eru Tékkía og Slóvakía að skiljast sundur og hvað kemur út úr því sem verður eftir af Júgóslavíu, veit enginn ennþá. Eigandi Aarhus Frimærkehandel og höfundur verðlistanna er Lars Boes. Hefir hann unnið mikið verk Forsíöa Noröurlandalistans. og gott við gerð allra þessara frí- merkjaverðlista, því að einnig gef- ur hann út Vestur-Evrópu-frí- merkjaverðlistann, auk Danmerk- urverðlistans og danska sérverð- listans, en einnig gefur hann út Norðurlandaverðlistann, sem les- endur þáttanna kannast við af um- sögnum hér í þáttunum. Þá gefur Lars Boes einnig út frí- merkjatímaritið Populær Filateli, sem kemur út mánaðarlega og eru alltaf birtar í því jafnóðum skrán- ingar nýrra frímerkja í hinum ýmsu listum, auk verðbreytinga sem verða í gegnum árið. Er þann- ig aðgengilegt fyrir þá, sem nota verðlistana og kaupa tímaritið, að fylgjast með því sem er að gerast á hverjum tíma. Sigurður H. Þorsteinsson Merki AFA: GATT-viðræðum- ar á ný í sj álfheldu George Bush kostaði kapps að leiða til lykta Uruguay-Iotuna, þ.e. yfir- standandi lotu í GATT-viðræðunum, áður en hann fór úr forsetastóli, en heppnaðist það ekki. Um stöðuna í þeim viðræðum um lækkun tolla og afnám viðskiptahamlna birti Inter- national Herald Tribune 26. janúar 1993 grein eftir Robert J. Samuels- on, en í henni sagði: „Sala varnings landa á milli jókst um 42% á níunda áratugnum (iðn- varnings um 65%), en framleiðsla í heimi öllum um 31%. Andvirði selds varnings landa á milli varð $ 3,1 billjón (ensk trilljón) 1989 og nam um 15% vergrar framleiðslu í heimi öllum. Samt sem áður fjölg- aði viðskiptalegum tálmunum eftir því sem á níunda áratuginn leið.“ „Bandaríkin flytja út meiri varning en nokkurt annað land, en lækkun gengis dollars frá miðjum níunda áratugnum hefur örvað útflutning þeirra. Mun útflutningur þeirra 1992 hafa numið 447 milljörðum $, 6% meira en 1991 og 23% meira en 1989. Hömlur á alþjóðlegum við- skiptum eru ekki bandarískum iðn- aði til framdráttar." ,Á síðustu mánuðum viðræðnanna var á þennan veg fjallað um helstu flokka varnings og þjónustu: ...GATT-reglur taka ekki til þeirra. Á vegi verslunar með þær eru marg- ar torfærur. EBE greiðir mjög niður útflutning hinnar dýru kornvöru sinnar. Japan bannar allan innflutn- ing á rís. Síðla árs (1992) hétu EBE- lönd að minnka niðurgreiðslu út- fluttrar kornvöru um 21% (ath. en Frakkland hótaði að beita neitunar- valdi). í samkomulagsgerð yrði Jap- an líka gert að flytja inn 5% ríss síns. Álnavara og fatnaður. Útflutningur þeirra (einkum frá þróunarlöndum) er takmarkaður að alþjóðlegu sam- komulagi (Multi-Fiber Arrange- ment). Þeim kvótum verður smám saman aflétt á 10 árum, ef sam- komulag tekst. Höfundaréttur og hönnunarréttur. Að nýrri samkomulagsgerð yrði veitt vemd gegn stælingu (copying) og traustataki á ýmsum sviðum, allt frá hugbúnaði til lyfja og söngva. Einkaleyfi og höfundaréttur í einu landi tækju til annarra. Brotleg lönd sættu þeim viðurlögum að útflutn- ingi þeirra yrðu settar skorður. Þjónusta. Að nýrri samþykkt yrðu lönd að nema úr gildi lög gegn út- lendri þjónustustarfsemi — allt frá bankastarfsemi og fjarskiptum til verktækni." Að þessum markmiðum stefndu samningamenn Bandaríkjanna í viðræðunum í Uruguay-lotunni, en óvíst er nú, hvenær þeim verður fram haldið. Viðskiptallfið

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.