Tíminn - 06.02.1993, Qupperneq 11
Laugardagur 6. febrúar 1993
Tíminn 11
heimilar sjúkratryggingum að
greiða að fullu lyf í sérstökum tilfell-
um þegar um óvenjumikla lyfja-
notkun að staðaldri er að ræða.
Lækkun heildsölu-
álagningar lækkar
lyfjaverð um 150
milljonir a an
í september s.l. lagði fulltrúi heil-
brigðisráðuneytisins til lækkun á
heildsöluálagningu í lyíjaverðlags-
nefnd en tillagan náði ekki sam-
þykki nefndarinnar. Samkvæmt lög-
um skal vísa ágreiningi í lyíjaverð-
lagsnefnd til ráðherra. Ráðherra
féllst á tillöguna.
Rökin fyrir lækkun álagningar
voru m.a. þau að afnám aðstöðu-
gjalds hefði í för með sér lækkun
kostnaðar fyrir fyrirtækin og að
kostnaður vegna flutninga hefði
lækkað. Þessari ákvörðun ráðherra
var ekki vel tekið í röðum heildsala.
Höfðuðu þeir mál á hendur heil-
brigðisráðherra á þeirri forsendu að
fulltrúi ráðuneytisins í lyflaverð-
lagsnefnd væri vanhæfur til setu í
nefndinni. Þessu máli töpuðu heild-
salar fyrir héraðsdómi en hafa nú
vísað því til hæstaréttar.
Ákvörðunin um lækkun heildsölu-
álagningar kom því til framkvæmda
1. febrúar síðastliðinn. Tálið er að
þessi lækkun hafi í för með sér um
17% lækkun á heildsöluverði lyfja
og muni skila sér í milli 2,6-2,7%
lækkun á smásöluálagningu miðað
við lyfjaverð 1. janúar 1993.
Tálið er að lyfjapakki landsmanna
sé um 5 milljarðar. Þar af greiðir
ríkið um 70% en sjúklingar um
30%. Má því ætla að þessi lækkun
heildsöluálagningar spari ríki og
sjúklingum um 150 milljónir króna
áári.
Foreldrar greiða auk-
inn kostnað vegna
tannlæknakostnaðar
bama
Heilbrigðisráðherra hefur beitt sér
fyrir breytingum á greiðslu tann-
læknakostnaðar barna í þá veru að
láta foreldra bama greiða meira. Til
áramóta 1991/1992 greiddi ríkið all-
an tannlæknakostnað bama undir
16 ára aldri. i byrjun árs 1992 var
foreldrum gert að greiða 15% af
tannlæknakostnaði barna sinna
nema fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir
og skoðun tanna sem sjúkratrygg-
ingar greiddu að fúllu.
Nú hefur sú breyting verið gerð að
foreldrar greiða nú 25% af tann-
læknakostnaði bama sinna, einnig
fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir, en ein
skoðun á ári hjá tannlækni verður
áfram greidd af sjúkratryggingum.
Elli- og örorkulífeyris-
þegum gert að greiða
meira fyrir tannlækna-
kostnað
Elli- og örorkulífeyrisþegum sem
njóta fúllrar tekjutryggingar verður
gert að greiða 25% af tannlækna-
kostnaði sínum en þessi kostnaður
var áður greiddur að fullu af sjúkra-
tryggingum.
Hlutur elli- og örorkulífeyrisþega
sem hafa skerta tekjutryggingu
eykst úr 25% í 50% af tannlækna-
kostnaði.
Aðrir elli- og örorkulífeyrisþegar,
þ.e. þeir sem ekki njóta tekjutrygg-
ingar og greiddu 50% af tannlækn-
iskostnaði sínum, skulu greiða
tannlæknakostnað sinn að fullu.
í þessu sambandi skal bent á að til
þess að eiga rétt á fullri tekjutrygg-
ingu mega ellilífeyrisþegar sem fá
fulla tekjutryggingu aðeins hafa í
tekjur á mánuði:
- 17.582 krónur hjá einstaklingi og
24.615 krónur ef um hjón er að
ræða
- 25.542 krónur hjá einstaklingi og
35.759 krónur ef um hjón er að
ræða og tekjur þeirra em greiðslur
úr lífeyrissjóðum.
Sjúklingar þurfa nú að
greiða íyrir komu á
heilsugæslustöð
Heilbrigðisráðherra hefur beitt sér
fyrir miklum breytingum á greiðslu
sjúklinga vegna komu á heilsu-
gæslustöð og hefur hann stuðlað að
breytingu á hlutdeild sjúklings í
lækniskostnaði.
í byrjun árs 1992 var sett á gjald
fyrir komu á heilsugæslustöð, 600
krónur fyrir almenning og 200
krónur fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega, en áður var ekkert gjald takið
fyrir þessa þjónustu. Fyrir komu til
sérfræðings var gjaldtaka hækkuð
úr 900 krónum í 1200 krónur fyrir
almenning og úr 300 krónum í 500
krónur fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega.
Akveðið var í þessu sambandi að
taka upp notkun fríkorta, þannig að
m&m
þegar ákveðnu hámarki væri náð
fengi sjúklingur alla læknisþjónustu
sér að kostnaðarlausu. Þetta hámark
var í upphafi:
- 12.000 krónur fyrir einstaklinga
- 12.000 krónur fyrir öll böm undir
16 ára aldri
- 3.000 krónur fyrir elli- og örorku-
lífeyrisþega.
í sambandi við kjarasamningana
s.l. vor lýsti ríkisstjórnin því yfir að
hámarksgreiðsla fyrir Iæknisþjón-
ustu vegna barna í sömu fjölskyldu
yrði lækkuð úr 12.000 krónum á ári
í 6.000 krónur og að ekki skyldi
greitt fyrir böm yngri en 6 ára við
komu á heilsugæslustöð.
Nýjasta reglugerðin
hækkar hlutdeild sjúk-
linga enn meira
Þann 25. janúar síðastliðinn tók
gildi ný reglugerð um hlutdeild
sjúklinga í lækniskostnaði sem hef-
ur það í för með sér að hlutur sjúk-
linga eykst í flestum tilfellum veru-
lega (sjá töflur hér fyrir neðan).
Reglugerðin felur í sér að tekið er
upp afsláttarkort í stað fríkorts. Það
ber að hafa í huga að fríkort eins og
hafa verið við lýði s.l. tvö ár veittu
handhafa alla læknisþjónustu um-
fram hámark ókeypis á meðan af-
sláttarkort veita honum þjónustuna
á lægra verði þegar kostnaðarmark-
inu hefur verið náð. Afsláttarkort
fást gegn framvísun kvittana þegar
„almennir" sjúklingar hafa greitt
12.000 krónur, elli- og örorkulífeyr-
isþegar 3.000 krónur og greiddar
hafa verið 6.000 krónur fyrir börn
yngri en 16 ára í sömu fjölskyldu.
I þessu sambandi ber að athuga
sérstaklega að afsláttarkort gefa
handhafa rétt til ókeypis þjónustu
fram til 1. mars 1993. Er þama tek-
ið tillit til yfirlýsinga í sambandi við
síðustu kjarasamninga.
Nokkur óvissa hefur ríkt um hvern-
ig slysavarðstofan muni taka
greiðslu fyrir þjónustu sína. Einnig
hefur komið í Ijós að sumar göngu-
deildir taka 1.500 krónur fyrir komu
eins og áður var en aðrar göngu-
deildir 1.200 krónur og síðan 40% af
umfram kostnaði. Skýringin á mis-
munandi gjaldtöku á göngudeildum
er sú að þær deildir sem senda
reikninginn til Tryggingastofnunar
rukka eftir 1.200/40% reglunni en
þær sem ekki senda reikning á
Tryggingastofnun taka áfram 1.500
krónur.
Á slysavarðstofunni munu gilda
þrír gjaldflokkar. Þessir flokkar em:
I. 1.200 krónur fyrir endurkomur
(hér er um lækkun að ræða frá því
sem áður var).
II. Nýkomur 2.200 krónur (var áður
1.500 krónur).
u.
m
<
z
-O
m
z:
z
<
m
m
<
sem þeir segja u
dann?
II l
pegar aðrir fara að sofa
<
O
m
Þórhallur „Laddi" Sigurðsson gysmeistari
Ólafía Hrönn Jónsdóttir glensiðjukona
Hjálmar Hjálmarsson spaugsmiður og
Haraldur „Halli" Sigurðsson spévirki
gera létta óttekt á mannlífinu og
rannsaka þjóðareðlið í bráð og lengd
Haukur Hauksson flytur ekki fréttir af
gangimála ®RÚV
Leikstjórn Björn G. Björnsson
Útsetningar Þórir Baldursson
Björgvin Halldórsson og hljómsveit
Stéttarsambands Fjörkálfa taka þátt í
Rl
pantanir síma $t-2®S00l
FORRETTIR
Freyðandi humarsúpa
eða
Ferskar laxavefjur.fylltar kryddjurta- og valhnetufrauði
AÐALRÉTTIR
Ofnsteiktur lambahryggsvöðvi, gljáður rabarbaracompot
framreiddur með nýjum garðávöxtum
eða
Hcegsteiktur grísahryggur með eplum, smálauk og
hvítvínssósu
eða
Grœnmetisréttur
EFTIRRÉTTIR
Grand Marnier ís með ávöxtum og rjóma
eða
Svartaskógarterta með kirsuberjasósu
S é r t i I b o ð á g i s t i n g u
0|
i: \
<1
-lofar góðu!