Tíminn - 06.02.1993, Qupperneq 19
Laugardagur 6. febrúar 1993
Tíminn 19
Laumuspil
Sneakers ★★★ 1/2
Framleiöendur: Walter F. Parkes og
Lawrence Lasker.
Handrít: Phil Alden Robinson, Walter F.
Parkes og Lawrence Lasker.
Leikstjórí: Phil Alden Robinson.
Aöalhlutverk: Robert Redford, Dan
Aykroyd, Ben Kingsley, Sidney Poitier,
River Phoenix, David Strathaim og Mary
McDonnell.
Háskólabfó.
Öllum leyfð.
Laumuspil gengur út á þá framtíð-
arsýn margra að upplýsingar og
upplýsingaöflun verði ein eftirsótt-
asta markaðsvaran í framtíðinni.
Hægt er að tengjast öllum möguleg-
um fýrirtækjum með heimilistölv-
unni, t.d. til að fá upplýsingar, panta
flugferðir eða stunda bankaviðskipt-
in sín. En hvað ef þú getur náð þér í
ólöglegar upplýsingar, fengið flug-
ferðir ókeypis eða millifært peninga
til þín af öðrum reikningum? í
Laumuspilum er gælt við þessa hug-
mynd, en bara á miklu stærri mæli-
kvarða.
Robert Redford leikur höfuðpaur
manna, sem sérhæfa sig í innbrot-
um í stórfyrirtæki. Með hjálp nú-
tímatölvutækni stela þeir upplýs-
ingum, peningum eða bara hverju
sem er og láta svo stjórnendur fyrir-
tækjanna vita um gallana á öryggis-
kerfum þeirra. Redford fær heim-
sókn frá tveimur mönnum Öryggis-
stofnunar, sem vilja að hann steli
rafeindatæki. Hann er tregur til, en
þeir kúga hann til verksins með hót-
unum um að upplýsa lögregluna um
gamlar syndir úr fortíð hans. Hóp-
urinn nær tækinu án mikilla vand-
ræða, en þeir uppgötva að tækið get-
ur ráðið dulmálslykla allra móður-
tölva í Bandaríkjunum, meira að
segja Seðlabankans þar í landi, og
því er hægt að millifæra fé að vild
ásamt öðrum óskunda. Þeir láta
tækið af hendi til mannanna, en
komast að því að þeir eru ekki frá
Öryggisstofnuninni, heldur skipu-
lögðum glæpasamtökum. Með tæk-
inu eru glæpamennimir fljótir að
koma nafni Redfords í skrár alríkis-
Iögreglunnar, og bendla hann við
tvö morð, og til að sanna sakleysi
sitt verður hann að ná því til baka.
Þótt Laumuspil fjalli um tölvur og
önnur nútímatól að miklum hluta,
er ástæðulaust að halda atburðarás-
ina flókna. Handritshöfundarnir
sneiða snyrtilega hjá því að samræð-
ur verði sífellt um tölvukubba,
leiðslur eða tölvuvírusa, heldur ein-
beita sér frekar að spennandi sögu-
þræði blönduðum skemmtilegum
húmor. Leikstjórinn, Phil Alden Ro-
binson, sem gerði hina ágætu Field
of Dreams, gerir vel í mjög góðum
spennuatriðum, sem eru oft ansi
frumleg undir ljúfum saxófóntón-
um Branfords Marsalis. Redford þarf
einu sinni að passa að hreyfa sig löt-
urhægt, svo ákveðnir mælar nemi
ekki hreyfingu hans, öfugt við flest
spennuatriði, þar sem persónan þarf
að flýta sér, ef upp á líf og dauða er
að tefla.
Leikhópurinn er skemmtilegur
með fræga leikara í öllum aðalhlut-
verkum. Robert Redford, sem farinn
er að eldast dálítið, leiðir hópinn,
sem stendur sig með miklum ágæt-
um. Sidney Poitier, Dan Aykroyd og
River Phoenix eru réttir menn á
réttum stað í sínum hlutverkum og
David Strathairn er mjög góður í
hlutverki Hvíslarans, sem er blindur
rafeindasnillingur. Stórleikarinn og
Óskarsverðlaunahafinn Ben Kingsl-
ey bregst svo ekki frekar en fyrri
daginn í hlutverki vinar Redfords úr
fortíðinni.
Laumuspil er gæðaafþreying, sem
státar af góðu handriti og markvissri
leikstjórn. Öll tækniatriði eru unnin
af fagmennsku, sem er óneitanlega
nauðsynlegt í þessari mynd. Efnið er
nokkuð frumlegt og húmorinn góð-
ur, sem góðir leikarar eiga ekki í
vandræðum með að koma frá sér.
Öm Markússon
Davíð -
Davíð Oddsson hefir sagt á fundum
og í fjölmiðlum að þeir, sem vilja er-
lenda lántöku núna, tali ekki af heil-
indum. Þetta lýsir fáfræði og um leið
óskammfeilni.
Það er vissulega glapræði að taka er-
lent lán í verðbólgu, en jafn mikið
glapræði að hafna slíku láni í atvinnu-
leysi og kreppu. Forsætisráðherrann
er sá sem ekki talar af heilindum.
Jóhannes Nordal lét svo um mælt í
Ekki kjós-
endur
heldur
Alþýöu-
flokkurinn
Þegar útvarpsumræða var um EES-
samninginn varð Birni Bjamasyni
það á að segja að kjósendur hefðu
ýtt ráðherrum fyrrverandi ríkis-
stjómar úr stólunum.
Sannleikurinn er sá að kjósendur
gerðu það alls ekki. Þeir veittu ríkis-
stjóm Steingríms Hermannssonar
nóg kjörfylgi til að halda áfram. Þeir
létu flokka hennar fá 32 þingmenn.
Það er meirihluti þings, -stjómhæf-
ur meirihluti þegar þingið er ein
málstofa, svo sem orðið var.
Það voru því ekki kjósendur sem
ýttu ráðhermm Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags úr stólum. Það
gerði Alþýðuflokkurinn, jafnaðar-
mannaflokkur íslands.
Undarlegt ef Björn Bjarnason man
þetta ekki þegar hann fer að hugsa
sig um.
Það skiptir verulegu máli að rétt sé
farið með söguna að þessu leyti. Eft-
ir kosningar notaði Alþýðuflokkur-
inn það kjörfylgi sem hann hlaut til
þess að skipta um ríkisstjórn. Síðar
mun sjást hversu kjósendur hans
meta það við hann. Það var engan
veginn yfirlýst stefna flokksins í
kosningabaráttunni að skipta skyldi
um stjórn. Ábyrgðin er hans, hversu
sem metið verður. H.Kr.
Nordal
sjónvarpi 3. febrúar, að lágvaxtaskeið-
ið á 8. áratugnum væri orsök efna-
hagsvandans í dag. Þá átti að hækka
vexti, sagði hann. En það er rangt.
Lækka átti verðbólgu með því að
stöðva erlendar lántökur og draga úr
seðlaprentun.
Jóhannes fékk vaxtahækkuninni til
leiðar komið á 9. áratugnum með
lánskjaravísitölu sinni. Hvað gerðist?
Vextir mku upp úr öllu valdi. Verð-
bótaþáttur vaxta að viðbættum raun-
vöxtum sveifluðust frá rúmlega 20%
og upp í tæplega 80% á ári. Skuldir
Lesendur skrifa
fyrirtækja og heimila hlóðust upp og
gjaldþrot urðu daglegir viðburðir.
Undirstöðuatvinnuvegimir em vart
- Valur
lengur starfhæfir og sjálft bankakerfið
riðar til falls vegna tapaðra lána, Þama
er rót vandans.
Með nýju frumvarpi á að afnema
verðtryggingu fjárskuldbindinga, seg-
ir viðskiptaráðherra. Þetta er þó
blekking ein, því að ætlunin er að gera
verðtrygginguna „frjálsa", en hún er
nú óheimil á skammtímalán (allt að
3ja ára).
Valur Valsson bankastjóri staðfestir
þetta í Mbl. 29. janúar: „Verði tak-
markanir á notkun verðtryggingar af-
numdar munu fyrstu viðbrögðin af
þessum sökum verða þau að verð-
trygging á útlánum eyksL“
Að verðtryggja skuldir en ekki kaup-
gjald þeirra, sem greiða eiga skuldim-
ar, fær ekki staðist. Það er siðleysi sem
launþegasamtökin verða að hafna
skilyrðislaust Á.S.
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftirtilboðum í viðhald loftræstikerfa í
ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða af-
hent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr.
5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 2. mars 1993,
kl. 14,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOB
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Malbikunarstöðvar
Reykjavikurborgar, óskar eftir tilboðum í 15.000-19.400 tonn af
asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 17. mars
1993 kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
KENWOOD SEGULBANDSTÆKI
fæst fyrir lítið.
Upplýsingar í síma 17778.
Með sínu nefl
í þættinum í dag verða gefin upp tvö lög og ljóð, sem bæði em af erlend-
um uppruna, en hafa í sinni íslensku mynd öðlast miklar vinsældir hér-
lendis. Fyrra lagið er „Laugardagskveld" eftir H. Lambert við ljóð Fröd-
ings í þýðingu Magnúsar Asgeirssonar. Seinna lagið er skoskt, en eftir
því sem næst verður komist er höfundur ljóðsins óþekktur.
LAUGARDAGSKVELD
C G7 C
Það var kátt hérna ‘um laugardagskveldið á Gili,
Am D7 G
það kvað við öll sveitin af dansi og spili,
Am D7 G
það var hó, það var hopp, það var hæ!
G7 C
Hann Hofs-Láki, æringi austan af Iandi,
Dm G7 C
þar úti í túnfæti dragspilið þandi,
G7 C
hæ dúdelí dúdelí dæ!
2.
Þar var Dóra á Grund, hún er forkunnar fögur
og fín, en af efnunum ganga ekki sögur,
hún er glettin og spaugsöm og spræk.
Þar var einþykka duttlungastelpan, hún Stína,
og hún stórlynda Sigga og Ása og Lína
og hún María litla á Læk.
3.
Þar var Pétur á Gili og Gústi á Bakka,
tveir góðir, sem þora að láta það flakka
og að stíga við stúlkurnar spor.
Þar var Dóri í Tungu og Bjössi á Barði
og bílstjóri’ úr Nesinu’ og strákur frá Skarði
og hann Laugi, sem var þar í vor.
4.
Og þau dönsuðu þarna í dynjandi galsa,
og þau dönsuðu polka og ræla og valsa,
svo í steinum og stígvélum small,
og flétturnar skiptust og síðpilsin sviptust
og svunturnar kipptust og faldarnir lyftust
og danslagið dunaði’ og svall.
5.
Inni í döggvotu kjarri var hvíslað og hvískrað
og hlegið og beðið og ískrað og pískrað,
meðan hálfgagnsætt húmið féll á,
þar var hlaupið og velst yfir stokka og steina
og stunið og hjúfrað í laufskjóli greina
„Sértu’ að hugsa’ um mig, hafðu mig þá!“
6.
Yfir byggðinni stjörnunótt blikaði fögur,
yfir blátæm vatni með laufskógakögur
lá gullið og vaggandi glit,
og frá birki og smára og blikandi töðu,
frá brekkum og grundum og túni og hlöðu
lagði áfengan ilm fyrir vit.
D7
X 0 0 2 1 3
E7
< >
< > 4 t
< >
0 2 3 14 0
Dm
Am
4 >
4 > ( >
X 0 2 3 1 0
G7
X 3 2 O 1 O
7.
Og refur með gaggi tók undir við óminn,
og andvaka kmmmi að brýna tók róminn,
en þau hjúin, þau heyrðu það ei.
En „kmnk“ heyrðist bergmál í Selfjalli segja
og sem svar við hans Hofs-Láka dúdelfdeija!
kom dúdelí! dúdelí deil
KOMDUKISAMÍN
Am
Komdu kisa mín, kló er falleg þín
Dm E7 Am
og grátt þitt gamla trýn.
Am
Mikið malar þú, mér það líkar nú,
Am E7 Am
víst ert þú vænsta hjú.
C G
Banar margri mús, mitt þú friðar hús,
Am E7
Ekki’ er í þér lús, oft þú spilar brús.
Am
Undrasniðug, létt og liðug leikur bæði snör og fús.
Am Dm E7 Am
Við skulum drekka dús.
2 10 0 0 3