Tíminn - 24.02.1993, Blaðsíða 2
2 Tfminn
Miðvikudagur 24. febrúar 1993
Öll helstu landssamtök sem vinna að slysavörnum sameinast í átakinu „Öryggi barna - okkar ábyrgð":
Markmiðið að fækka slysum á
börnum um 20% á fimm árum
Framkvæmdastjóm átaksins „Öryggi baraa - okkar ábyrgð“ hef-
ur sett sér það markmið að fækka slysum á böraum um fimmt-
ung á næstu fímm árum. Þegar horft er til þess að slys á böraum
eru hlutfallslega mun algengari hér á landi heldur en í nágranna-
löndunum, ættu að vera möguleikar á að ná þessu markmiði. Ár-
ið 1992 slösuðust 152 böra samkvæmt skýrslum Iögreglu og
Umferðarráðs. Höfuðáhersla verður Iögð á að koma í veg fyrir
mjög alvarleg slys og dauðaslys.
Á íslandi voru dauðaslys á bömum
12 á hverja 100.000 íbúa á fimm
ámm en samsvarandi tala í Svíþjóð
var 7 böm á 100.000 íbúa. Miðað
við óbreytta siysatíðni mætti búast
við að 30 böm deyi af slysfömm á
íslandi á ámnum 1992—1997.
Með sameiginlegu átaki er stefnt
að því að forða a.m.k. 6 börnum frá
dauðaslysi.
„Öryggi barna - okkar ábyrgö",
sem er samstarfsvettvangur allra
helstu landssamtaka sem vinna að
slysavörnum, slysarannsóknum og
málefnum barna á íslandi, sem
stóðu að kynningarfundi fyrir
fréttamenn. I framkvæmdastjóm-
inni sitja fulltrúar frá Foreldra-
samtökunum, Hollustuvernd rík-
isins, Landlæknisembættinu,
Neytendasamtökunum, Rauða
krossinum, Slysavarnarfélagi ís-
lands og Umferðarráði. Með átak-
inu er stefnt að því að auka áhrif
slysavama með samvinnu og sam-
ráði margra aðila. Framkvæmda-
stjórnin telur jafnframt að sam-
staðan verði hvati að lausn stærri
verkefna og síðast en ekki síst er
vonast til að hægt verði að ná bet-
ur til almennings með öflugu
átaki.
Neytendasamtökin benda á að
lagaboð dugi ekki ein til þess að
fyrirbyggja slys. Þátttaka almenn-
ings í eigin slysavörnum sé nauð-
synleg forsenda fyrir því að fækka
þeim mörgu slysum sem verða á
heimilum og í frítíma vegna óvar-
kámi og gæsluleysis, hættulegra
og gallaðra vara, rangrar notkunar
á búnaði eða vegna skorts á góðum
leiðbeiningum á íslensku. Sam-
tökin taka undir þá kröfu fram-
kvæmdastjómar átaksins, til inn-
flytjenda vamings sem ætlaður er
bömum, að allar varúðarmerking-
ar og notkunarleiðbeiningar séu
tiltækar á íslensku.
Fulltrúi Foreldrasamtakanna
nefndi eftirfarandi, sem hvað mest
aðkallandi verkefni í slysavömum
íslenskra foreldra:
Of ung böm á reiðhjólum.
Hjálmanotkun bama á reiðhjól-
um. Ung böm í umferðinni. Uti-
vistartími bama á kvöldin. Ófull-
nægjandi leiktæki á almennings-
og skólaleikvöllum. Steinsteyptar
og hættulegar leik- og gmnn-
skólalóðir. Og stillansar og aðrar
hættur við óvarðar nýbyggingar.
Af hættum á heimilinu em þessar
helstar: Heitt kranavatn. Óvarðar
rafmagnsinnstungur. Lyf á glám-
bekk. Eiturefni í neðri skápum.
Einnig er varað við þeysingi með
böm í bflum og rangri notkun á
barnabflstólum.
Tálsmenn Rauða krossins segja
aðsókn að námskeiðinu „Slys á
bömum — forvamir, fyrsta hjálp"
endurspegla þá ánægjulegu við-
horfsbreytingu til slysavama, sem
orðið hafi hjá almenningi og hinu
opinbera undanfarin misseri.
Námskeiðið hafi fyrst verið kynnt
1988 við dræmar undirtektir. En í
fyrra hafi hátt í 700 manns sótt
það. Viðhorfsbreyting hins opin-
bera sjáist best á því að nú sé þess
víða krafist að fólk hafi sótt nám-
skeiðið „Slys á bömum" til þess að
fá tiltekin starfsréttindi.
Foreldrum ungra barna er bent á
að RKÍ hefur í nokkur ár selt svo-
kallaða kokhólka, sem em mæli-
tæki til að mæla stærð leikfanga.
Hólkurinn svarar til stærðar koks
3ja ara bams, þannig að hlutur eða
Alls 152 böm slösuðust hér á landl á síðasta ári, samkvæmt skýrslum lögreglu og Umferðarráös.
Þeim haföi þá heldur fækkað frá árinu áður þegar 163 slösuð böm komust á sömu skrár, en það
var líka eitt mesta slysaár um langt skeið, ef marka má þetta línurit Umferðarráðs.
leikfang sem hverfur ofan í hann
SLYS Á BÖRNUM í UMFERÐINNI Á
ÍSLANDI MIÐAÐ VIÐ 100.000 BÍLA
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
63
58 —
■fi
V-
sif
g s
o o>
E3 Aldur 0-6 ára □ Aldur 7-14 ára
getur verið hættulegt yngri böm-
um. Kokhólkar em einnig seldir í
nokkmm apótekum og heilsu-
gæslustöðvum. - HEI
Framkvæmdanefnd átaksins
Öryggi bama - okkar ábyrgö. i
henni sitja fulltrúar Foreldra-
samtakanna, Hollustuvemdar,
Landlæknisembættisins,
Rauða krossins, Slysavarnafé-
lagsins, Neytendasamtakanna
og Umferöarráös.
Tlmamynd Ami Bjama
Ógreiddir reikningar safnast upp hjá atvinnulausum í Bolungarvík. 133 á atvinnuleysiskrá og von á 25 til viðbótan
Utborgun bóta í næstu viku
Alls eru 133 skráðir atvinnnulausir
í Bolungarvík og von er á 25 til við-
bótar í skrána á næstunni, þegar
áhöfnin á Heiðrúnu hefur látið skrá
sig og einnig mannskapurinn á
Dagrúnu þegar togarinn kemur til
Allsherjaratkvæöagreiösla i
Starfsmannafélagi Reykja-
vikurborgan
Verkfall
eða ekki
verkfall
Á fundi stjómar, samninga-
nefndar og fulltrúaráðs Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
í gær, var samþykkt að láta fara
fram allshetjaratkvæðagrelðsiu I
félaginu um boðun verkfalls
sem hefjast skal þann 22. mars
n.k..
Jafnframt skorar fundurínn á
allt launafólk í landinu að fylkja
sér til samstöðu í yfirstandandi
kjarabaráttu.
heimahafnar að afiokinni söluferð
til Þýskalands.
Daði Guðmundsson, formaður
Verkalýðs- og Sjómannafélags Bol-
ungarvíkur, segist búast við að
fyrstu atvinnuleysisbæturnar verði
greiddar út í næstu viku. Þeir sem fá
fullar bætur fá tæpar 43 þúsund
krónur á mánuði sér og sínum til
framfærslu. Þegar eru ógreiddir
reikningar farnar að safnast upp
meðal hinna atvinnulausu og hætt
við að bunkinn muni stækka á næst-
unnni, ef að líkum lætur.
„Það er einkum unga fólkið sem er
farið að verða hálfpirrað og þá aðal-
lega út af peningaleysi."
Enn sem komið er hefur lítill sem
enginn árangur orðið af þreifingum
og annarri viðleitni forráðamanna
bæjarins til að gangsetja á ný
vinnslu og veiðar sem áður til-
heyrðu fyrirtækjum EG. Að vísu er
brætt á fullu í bræðslunni sem H.
Böðvarsson hf. á Akranesi tók á
leigu og einnig munu forráðamenn
fyrirtækisins vera að bræða með sér
leigu á rækjuvinnslunni.
Stjóm Verkalýðs- og sjómannafé-
lagsins hefur þegar óskað eftir því
við bæjaryfirvöld að fá að fylgjast ná-
ið með framvindu mála en fram til
þessa hefur enginn fundur verið
boðaður.
Á meðan reyna fyrrum starfsmenn
Einars Guðfinnssonar hf. að stytta
sér stundir með ýmiskonar afþrey-
ingu í von um betri tíð. -grh
12% ísl. feröa-
fólks í 2,9%
gistinátta
í frétt Tímans á baksíðu í gær um
ferðalög íslendinga innanlands seg-
ir í inngangi að 2,9% íslenskra
ferðamanna hafi nýtt sér bænda-
gistingu. Þar átti að standa að
ferðafólkiö nýtti sér 2,9% gisti-
nátta í bændagistingu en um 12%
íslensks ferðafólks nýtti sér bænda-
gistingu.
Þá segir enn fremur í fréttinni að
íslenskir ferðamenn hafi eytt um 7,5
milljörðum kr. í fyrrasumar en átti
að standa að þeir hafi eytt þessari
summu á fyrra ári.
Stjóm Herjólfs hf. ákvað í gær að
segja öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins upp. Uppsagnir þessar hafa
verið yfirvofandi undanfarna daga,
en Herjólfur hefur nú verið bundinn
við bryggju vegna verkfalls stýri-
manna á Herjólfi, en þeir em tveir.
Verkfallið og Herjólfsstoppið hefur
valdið heimamönnum erfiðleikum
vegna aðfanga og hefur meðal ann-
ars verið mjólkurskortur. Ekkert
hefur verið rætt við stýrimennina
sérstaklega undanfarið og sagði
Grímur Gíslason í samtali við Tím-
ann að ástæðan væri hve mikið bæri
f milli deiluaðila.