Tíminn - 02.03.1993, Page 5

Tíminn - 02.03.1993, Page 5
Þriðjudagur 2. mars 1993 Tíminn 5 Heimir Steinsson: Ríkisútvarpið í sókn „Markaðurmn á að ráða ferðinni.“ Svo mælir ritstjóri einn í for- ystugrein eigi alls fyrir löngu, en þar veitist höfundur að Ríkisút- varpinu vegna hækkunar afnotagjalds um fjóra hundraðshluta í byrjun þessa árs. „Markaðurinn á að ráða ferð- inni.“ Fróðlegt væri nú að fá að vita, hvaða skepna þessi „markað- ur“ er sem ráða skal ferðinni. Enn gagnlegri væri vitneskjan um það, hvert ferð „markaðarins" er heitið, hvaða stefnu „markaður- inn“ mótar, hver er vilji skepn- unnar, „markaðarins", — og hin röklegu markmið. Ríkisútvarpið starfar samkvæmt lögum, er Alþingi setti árið 1985. Þar kveður meðal annars svo á í 15. gr. 1. málslið: „Ríkisútvarpið skal leggja rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð". Um þetta lagaákvæði segir ritstjórinn, að „skyldur Ríkisútvarpsins í menn- ingarlegum efnum séu frekar móralskar í seinni tíð en lagaleg- ar“. Ekki er gott að vita, hvað lög- mönnum sýnist um svofellda út- leggingu lagaákvæðis. Einu sinni vissi ég sjálfur ofurlítið niður með nefinu á mér í siðfræði, og mér er ekki kunnugt um, að Al- þingi fáist við að setja mönnum siðaboð, þótt það vonandi taki mið af mórölskum vegvísum. Best gæti ég trúað, að þessi mór- alísering ritstjórans sé lítið annað en markleysa af því tagi, sem hrýtur úr penna, þegar umræðu- efni þrýtur. Ferð án fyrirheits En það var ferðaáætlun „mark- aðarins", sem mér leikur hugur á að kynnast. „Markaðurinn á nefnilega að ráða ferðinni." Og hvert er nú ferðinni heitið? Hver skyldi vera vilji „markaðarins" og stefnumið varðandi íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð? Markaðs- hyggjumenn eru nú á hverju strái. Hátt og í hljóði játa þeir trú á „markaðinn", rétt eins og rit- stjórinn sjónumhryggi í forystu- grein sinni. En ferðaáætlun markaðarins rennur þessum mönnum um greipar óðar og reynt er að hafa hendur í hári hennar. Enginn virðist geta sagt fyrir um það með neinni vissu hvert markaðurinn stefnir. Talað er um að „markaðssetja" hitt og þetta. En torvelt er að fullyrða fyrirfram hvort markaðssetning- in tekst eður ei. Getur það hugs- ast að „markaðurinn" sé óræður með öllu, viljavana, stefnulaus og þar af leiðandi án ábyrgðar? Ef „markaðurinn" ekki lætur sér vel líka íslenska tungu, sögu þjóðar- innar og menningararfleifð, kynni svo að fara að þessi verð- mæti öll verði borin fyrir borð. Við hvern er þá um að sakast? Tæpast löggjafann né nokkurn annan. Þá mun hvorki tjóa að gráta Björn bónda né safna liði. „Markaðurinn" hefur talað, og „markaðurinn" virðist vera vit- laus í frummerkingu þess orðs. „Markaðurinn“ gefur engar skýr- ingar. „Markaðurinn" kveður upp dóma í blindni og enginn fær nokkru sinni krafið hann svars. Hann heldur áfram sinni „ferð án fyrirheits" út í myrkrið. íslensk menningar- pólitík Um þessar mundir er þó nokkuð rætt og ritað um Ríkisútvarpið, framtíð þess og verkefni. Góður drengur, Bolli R. Valgarðsson, stingur niður penna á dögunum. Hann talar m.a. um Ríkisútvarpið Rás 1 og segir: „Rás 1 sinnir mik- ilvægu menningarlegu hlutverki í íslensku samfélagi, sem hefur það markmið að koma til móts við alla þjóðfélagshópa og kyn- slóðir. Það er hlutverk, sem er og verður aldrei á færi einstaklings- framtaksins. Með sölu Rásar 1 yrði dagskrárefni í útvarpi til mikilla muna snauðara, þynnra og útvatnaðra." Bolli R. Valgarðsson er bersýni- lega í hópi þeirra manna, sem ekki una því að velta sér upp úr einum saman markleysum „markaðarins". Bolli hefúr skoð- un og varla að hann hirði um að mæla þá skoðun á kvarða ginn- helgrar kreddu framboðs og eftir- spurnar. Skoðun hans er m.a. sú, að Ríkisútvarpið Rás 1 standi að mestu leyti undir lagabókstafn- um, er kveður á um rækt við ís- lenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Bolli spyr ekki um markaðssetningu þess- ara verðmæta. Hann virðist að- hyllast verðmætin skilmálalaust. í annarri grein segir höfundur um Sjónvarpið: „Ég tel að hér eigi að vera til staðar í íslenskri VETTyANGUR v_______________________y menningarpólitík marksækin og drífandi ríkisstöð." Síðan bætir hann við: „Eigi mikilvægi hennar ekki að hverfa á næstu árum, væri því nær að hlúa betur að rík- issjónvarpinu fjárhagslega frekar en vera með hugmyndir um að selja það.“ Blessunarleg eru þessi orð. Bolli R. Valgarðsson talar um „íslenska menningarpólitík", og minnist ekki á, að markaðurinn eigi að ráða ferðinni. „íslensk menning- arpólitík", — ég staldra við þessi orð og gæði mér á þeim, svo munntöm eru þau og bragðgóð. Ég þakka fyrir ungan mann, sem er nógu stórhuga til að hefja á loft hugsjón, „íslenska menning- arpólitík", og draga hugsjónina að húni í hafróti hugstola mark- aðshyggju, sem starir blindum og ópersónulegum augum fram um vegleysu. Þar með er ekki sagt, að ég sé Bolla R. Valgarðssyni sammála í öllum efnum, enda ekki ástæða til. Menn, sem eiga samleið, þurfa ekki að ganga hver í annars spor, og eiga ekki að gera það, enda er þess háttar og taglhnýtingsháttur leiðinlegur, þótt ekki sé hann jafn leiðinlegur og sauðsvört og sálar- laus markaðshyggjan. Nú er svo fyrir að þakka, að Bolli R. Valgarðsson er ekki einn á báti, talar hvorki utan af þekju né út í hött. Hann er formaður öflugra samtaka, félags eins í Reykjavík. Hér er þá komið að mér sem út- varpsstjóra að þakka þessu félagi liðveisluna, og það geri ég heils hugar. í sveit og við sjó Sjálfur heiti ég nú á aðra þá, er ekki hafa tjáð sig um málefni Rík- isútvarpsins. Ég skora á stuðn- ingsmenn Ríkisútvarpsins að Iáta til sín heyra og styrkja vel inn- rætta menn í góðum ásetningi. Ég varpa orðum á allan almenn- ing í byggðum landsins, ég skýt máli Ríkisútvarpsins til ung- mennafélaganna, kvenfélaganna, sveitarfélaga, verkalýðsfélaga, sjómannafélaga og búnaðarfé- laga, lionsklúbba, rotarysamtaka, og safnaða þjóðkirkjunnar og annarra kirkna og hvers konar samtaka af öðrum toga. Látið nú til ykkar heyra næstu daga, vikur og mánuði. Skoðið hug ykkar. Er það vilji ykkar að framvegis verði rekið á Islandi Ríkisútvarp, sem leggja skal rækt við íslenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð? Já eða nei. Ef þið játið, látið þá skoðun ykk- ar í Ijós í ræðu og riti, með fund- arsamþykktum og undirskrifta- söfnunum. Dragið nú fram hug- sjónir, hugmyndir, sem búa við hjartarætur og eru frjálsar eins og fuglinn, óháðar framboði og eftirspurn og færar um að marka Iandi og þjóð stefnu, íslenska menningarpólitík. Enginn skyldi ætla, að ég telji Ríkisútvarpið gallalaust. Öðru nær. Ég er þess albúinn að heyra þungar ádrepur fyrir það, hve illa við stöndum við lagabókstafinn, kröfuna um að leggja rækt við ís- lenska tungu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. En ég vísa því á bug, að þessi lagabókstafur heiðríkjunnar verði látinn víkja fyrir glórulausum moldarmekki, þar sem engan vilja er að finna og engin stefnumið, en allir fálma í blindu persónulausra og alsljórra markaðslögmála. Forherðing Blöðin hafa á snærum sínum menn, er daglega skrifa stutta pistla um ljósvakamiðlana. Oftar en ekki eru hér á ferð þekkilegar ritgerðaragnir, þótt hinu sé ekki að leyna, að lítið fari löngum fyr- ir samkvæmni í málflutningi að ekki sé nú talað um markvísa heildarstefnu eða skýran vilja. í byrjun febrúar sendi Ríkisút- varpið út afhendingu íslensku bókmenntaverðlaunanna 1992, er fram fór í Listasafni íslands við Fríkirkjuveg. Ég fullyrði, að þarna var á boðstólum menning- arefni, sem flestu tók fram. Ræðumenn voru hver öðrum snjallari í meðferð íslenskrar tungu og var hin besta ræðan fá- gæt gersemi. Tónlist var orðum ofar. Ég var einkar þakklátur fyrir þessa athöfn. Hún sýndi mér ann- ars vegar þá einföldu staðreynd, sem menn e.t.v. hía sér við að nefna, að íslensk menning lifir góðu lífi á sterkri rót og djúpri. Hins vegar leiddi hún í Ijós, hve gjöfull miðill Ríkisútvarpið getur verið, þegar það gerist farvegur hins besta í samtíð okkar. Varla hafði útsendingin þó hljóðnað, þegar fjölmiðlarýnir í dagblaði nokkru hafði sett saman pistil svo afkáralegan, að engu tali tekur. Afhendingu íslensku bókmenntaverðlaunanna 1992 var þar líkt við jarðarför, — án þess þó að í nokkru væri tekið fram, hvers jarðarfarir áttu hér að gjalda, enda voru þær oft hið fróðlegasta útvarpsefni á árum áður og eru stöku sinnum enn þann dag í dag. Ég get ekki neitað því, að þessi ritsmíðarforsmán olli mér hryggð. Lágkúran var svo tak- markalaus. Vanþakklætið og fyr- irlitningin á því, sem gott er, voru slík, að upp rifjuðust orð úr Helgakveri, þar sem talað er um blygðunarlausan mann, er kemst af engu við og lætur sér af engu segjast, heldur er forhertur „og er þá ásigkomulag hans hið háska- legasta, sem hugsast getur". Sjónvarpið í sókn Áður en ég slæ botn í þetta sendi- bréf, bregð ég upp miklu ánægju- efni, er hlustendum Ríkisútvarps- ins var kynnt fyrir fáum vikum. Um var að ræða nýja niðurstöðu Gallupkönnunar varðandi sjón- varpsnotkun íslendinga. Könnun- in fór fram með þeim hætti, að engin brögð voru í tafli af hálfu þeirra, sem kannaðir voru. Niðurstaðan var sérlega ánægju- leg fyrir fréttastofu Ríkisútvarps- ins — Sjónvarps. í ljós kom, að 43 af hverjum 100 íslendingum horfa að staðaldri á fréttir þessarar vönduðu stofu. Svo langt bar fréttastofa Sjónvarps af öðrum miðlum, að allur samanburður er að þessu sinni óþarfur. Fleiri gleðiefni var þarna að finna, og ber hæst kvöldvöku Her- manns Gunnarssonar, en hennar nutu 60 af hverjum 100 íslending- um, sem er hreint ótrúlegur ár- angur. Ég árna Ríkisútvarpinu Sjónvarpi heilla með þennan glæsilega sigur og vænti góðs af komandi dögum. Höfundur er útvarpsstjóri. FERÐAFLAKK OG FYLLERÍ Birt hefír verift skrá yfír kostnaö ríkissjóðs vegna risnu, ferfta og aksturs 1991. Þessir liftir nema samtals kr. 2.042 mil|j. Við þá tölu bætist rekstur á eigin bílum ríkis- ins kr. 1.022 millj. Verftur heiidar- upphæðin þá kr. 3.064 mil|j. Hún er hrikaleg og nánast óhugnanleg í svo fámennu landi sem okkar. Ekki kemur fram, hvort ofangreind heildartala felur í sér vexti af verði bílaflotans í eigu ríkisins og eðlileg- ir afskriftir skv. bókhaldsreglum. Þeir póstar gætu tvöfaldað töluna, sem þá yrði sem næst jöfn halla á ríkissjóði í ár skv. áætlun fjármála- ráðherra. Þetta er skattfrjáls lúxus stjórn- enda, sem þjóðin verður að standa undir. Ætlunin er, að sögn Friðriks Sophussonar og Karls Steinars, að lækka kostnaðinn um nokkur pró- sentustig. Þeir eru í óða önn að reyta tryggingabætur af sjúkum og ( ~ \ Lesendur skrifa v_________________________; öldruðum, sem hefir að sjálfsögðu forgang. En þolinmæði landsmanna er að bresta. Við höfum látið sífulla kjaft- fora í ráðherrastólum villa okkur sýn og leiða í ógöngur — bæði í ut- anríkismálum og velferðarmálum. Einasta von íslenskrar alþýðu er sú, að launþegasamtökin nái að knýja fram gerbreytta stefnu í skattamál- um, vaxtamálum og atvinnumálum. Morgunblaðið ræðst í forustugrein 23. þ.m. á ASÍ fyrir að vilja taka hóf- Iegt erlent lán (kr. 5 milljarða) til að ráða bót á atvinnuleysi þúsunda manna og kvenna. Þetta sama blað hreyfði ekki andmælum gegn tug- milljarða erlendri lántöku ár hvert í óðaverðbólgu 9. áratugarins, þegar reka átti ríkissjóð með tekjuafgangi. Lýsir þetta fákunnáttu og um leið siðblindu stjórnarmálgagnsins. Eldri borgarí

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.