Tíminn - 06.03.1993, Page 2
10 Tfminn
Laugardagur 6. mars 1993
Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknattleik:
ENGIN SVÍAGRÝLATIL
Heimsmeistarakeppnin í handbolta hefst í Svíþjóð í næstu viku og
að þessu sinni verður fyrsti leikur íslenska liðsins gegn sjálfum
heimsmeisturum Svía þriðjudaginn 9. mars og er leikurinn
jafnframt opnunarleikur mótsins. í keppnum sem þessum
eru að jafnaði gerðar miklar kröfur til íslenska liðsins og
miklar vonir bundnar við árangur þess. Viðbúið er að liðið
muni þurfa að leika nánast með „þjóðina á bakinu“ í
beinni útsendingu.
Þrátt fyrir bága Qárhagsstöðu HSÍ er engan bilbug að
fínna á forráðamönnum sambandsins, sem gera sér
góðar vonir um að landinn verði rausnarlegur í
áheitum og í öðrum fjárhagslegum stuðningi sín-
um þegar á hólminn er komið. Bæði forystu-
menn HSÍ og leikmenn telja samskiptin þeirra
á milli vera í góðu lagi og vísa því algjörlega
á bug að einhveijar misfellur sé þar að
fínna og þaðan af síður að deilur séu þeirra
á milli um greiðslur vegna vinnutaps leik-
manna.
Til að forvitnast um undirbúning
liðsins, markmið þess, andstæð-
ingana, sálfræðina og hina marg-
frægu Svíagrýlu, og hvernig
mótið almennt leggst í Þorberg
Aðalsteinsson landsliðsþjálfara,
var Þorbergur tekinn tali eftir að
hann hafði tilkynnt val sitt á
þeim 16 leikmönnum sem leggja
í ‘ann til Svíþjóðar á sunnudag-
inn.
Á blaðamannafundinum sagði
Þorbergur að stefnan væri tekin
á að vera meðal Jæirra átta bestu.
Besti árangur Islendinga á HM
var sjötta sætið í Sviss árið 1986,
sællar minningar, að ógleymdu
4. sætinu á sfðustu ólympíuleik-
um. Hinsvegar telur Geir Sveins-
son landsliðsfyrirliði að 5.-6.
sætið sé ekki óraunhæft mark-
mið.
„Það er nokkuð raunhæft að
stefna að því að verða meðal
þeirra átta bestu. Það sem ég hef
fyrir mér í því er einfaldlega ár-
angur liðsins í undanförnum
leikjum.“
Þorbergur segist vera nokkuð
ánægður með undirbúning liðs-
ins og telur hann hafa verið góð-
an, sem og stuðning HSÍ við
landsliðið:
„Við hefðum kannski þurft að
hafa einhverjar vikur til viðbótar,
en það er alltaf hægt að þrasa um
eitthvað smávegis. Við lékum
átta leiki á ellefu dögum og stóð-
umst þá raun mjög vel. Þá hefur
ekkert staðið á HSI hvað viðkem-
ur undirbúningi liðsins og við
höfum fengið þann tíma og ann-
að sem við höfum þurft.“
Svíar rúlla okkur
ekki upp
Á sínum tíma lék Þorbergur
með sænsku liði, auk þess sem
hann var þjálfari þar ytra og sótti
þangað sína þjálfaramenntun áð-
ur en hann var ráðinn landsliðs-
þjálfari. Hann þekkir því vel til
þeirra sænsku og
einnig er viðbúið að
töluverður metn-
aður sé hjá þjálf-
aranum að sýna
sig og sanna
þegar á
h ó 1 m i n n
er komið í
Svíþjóð.
„Svíarnir
rúlla okk-
ur ekkert
upp. Það
eru alveg
h r e i n a r
1 í n u r .
Hins veg-
ar býst ég
við að þetta verði jafn leikur. Að
sama skapi er þó ekki hægt að
líta framhjá því að Svíarnir hafa
geysimikla reynslu og það þarf
helvíti mikið til að koma þeim úr
jafnvægi."
En hvað um hina margfrægu
Svíagrýlu? Þú óttast hana ekk-
ert, eða hvað?
„Það er engin Svíagrýla til og
þar af leiðandi óttast ég ekki
þessa margnefndu grýlu. Eg veit
hvernig Svíar hugsa og hvernig
þeir eru. Eins og er eru þeir betri
en við, en því þurfum við að fara
að breyta."
Hefur liðið fengið einhverja
sálfræöiaðstoð í sínum undir-
búningi?
„Nei, ekki neina beina og ég tel
enga þörf á því.“
Fyrir utan Svíana eru íslend-
ingar í riðli með Ungverjum og
Bandaríkjamönnum. Hvað með
þessi lið?
„Ungverjana unnum við á
ólympíuleikunum og okkur gekk
þá mjög vel gegn þeim. Ég ætla
að þeir séu búnir að bæta einum
til tveimur leikmönnum við
þann hóp frá því við lékum síðast
við þá. Það höfum við einnig
gert, þannig að ég á von á mjög
jöfnum leik, sem verður kannski
okkur lykilleikur í riðlinum.
Bandaríkjamennina eigum við að
klára og í þeim leik verður það
aðeins spurning um einbeitingu.
Við höfum að vísu oft tapað fyrir
þeim í æfinga- og vináttuleikj-
um, en aldrei í keppni sem þess-
ari sem framundan er.“
Hvað með milliriðilinn, Rússa,
Þjóðverja og Dani?
„Ég býst við því að Rússarnir
verði mjög sterkir, en þeir eru í
sama gæðaflokki og Svíar. Hvað
hina andstæðingana varðar,
Þjóðverja og Dani, þá verða þeir
leikir mjög jafnir.“
Treystirðu þér til að spá fyrir
um úrslit í þeim viðureignum?
„Nei, það er mjög erfitt. Það fer
mikið eftir því hvernig þetta þró-
ast allt saman.“
Kemur það ekki íslenska liðinu
til góða að það verða líklega
margir landar í höllinni í Gauta-
borg, sem munu væntanlega
styðja við bakið á liðinu?
„Jú, ég á von á því að þarna
verði fullt af íslendingum. En
einhverjir tvö til þrjú hundruð
íslendingar sjást nú illa í ellefu
þúsund manna hóp.“
Alltaf sama spennan
En verður ekki erfitt að taka
þátt í HM-keppninni með nán-
ast alla þjóðina á bakinu?
„Þetta er líklega níunda skipt-
ið sem ég er að fara út í keppni
sem þessa, þannig að þetta
kemst upp í vana og er nánast
alltaf eins; alltaf er sami að-
dragandinn, alltaf sama spenn-
an og alltaf sama eftirvænting-
in. Þannig að persónulega hef
ég bara gaman af þessu. Það
verður enginn endir á mínu lffi,
þótt við bíðum eitthvert skip-
brot.“
Verður þér kannski sparkað,
ef illa gengur?
„Það gæti alveg eins orðið og
einhverjar skiptingar í þeim
efnum, en lífið heldur áfram.
Það er alveg ljóst.“
En eru einhver ákvæði í þín-
um ráðningarsamningi, sem
taka mið af árangri liðsins á
HM?
„Nei, það er ekkert svoleiðis,
en samningurinn gildir til
1995.“
Hverjir eru helstu kostir ís-
lenska liðsins?
„Það er fyrst og fremst varnar-
leikurinn, sterkur mórall og
gott sjálfstraust. Þá er jafnframt
meiri léttleiki yfir liðinu en oft
áður og svo hefur verið frá því
ég tók við liðinu. Þessi léttleiki
hefur síðan verið að þróast
meira og meira og þeir, sem
fylgdust með ólympíuleikunum,
sáu hversu mikill léttleiki var
yfir liðinu. Við erum félagsverur
og erum að þroskast sem hóp-
ur.“
Hver er veikleiki liðsins?
„Það er kannski sóknarleikur-
inn, ef ég á að benda á einhvern
einn þátt. En á móti kemur að
hinar þjóðirnar hafa á að skipa
geysisterkum vörnum og því er
þetta oft erfitt."
Hvað með dómara? Vita menn
hverjir koma til með að dæma?
„Já, það vissum við fyrir mörg-
um mánuðum."
Hverjir dæma fyrsta leikinn?
„Það vitum við ekki og kemur
ekki í ljós fyrr en í keppnina er
komið."
En hvað með þessar sveiflur,
sem einatt hafa einkennt leiki
íslenska liðsins: gott í dag, lé-
legt á morgun?
„Það er aldrei hægt að koma í
veg fyrir þetta. Það eru mann-
eskjur sem eiga í hlut og það er
alveg sama hvernig unnið er:
það er aldrei hægt að koma í veg
fyrir svona lagað.“ grh