Tíminn - 06.03.1993, Qupperneq 3
Laugardagur 6. mars 1993
Tíminn 11
FRÁ EINANGRUN TIL
DOKTORSNAFN BÓTAR
TÍMAMÓVAFRÁSÖGN feíNHVERFRAR KONU
TEMPLE Grandin
OG MARGARET M. SCAHíANO
Saga einhverfrar konu
Út er komin bókin Dymar opnast —
frá einhverfu til doktorsnafnbótar
eftir dr. Temple Grandin. Þetta er
fyrsta bókin þar sem einhverfu er lýst
frá sjónarhomi einhverfrar manneskju.
Fáir hafa verið til frásagnar um þá
sérstæðu fötlun sem einhverfa er, enda
er eitt af einkennum hennar erfiðleikar
í tjáskiptum. Ýmsar kenningar hafa
verið á kreiki um orsakir einhverfunn-
ar, margar byggðar á vanþekkingu og
sveipaðar dulúð. Á undanfömum ár-
um hafa miklar framfarir átt sér stað í
skilningi á einhverfu og er hin banda-
ríska Temple Grandin ein þeirra sem
hafa lagt drýgstan skerf á þær vogar-
skálar. Hún var greind einhverf sem
bam, en tókst að yfirvinna helstu sam-
skiptatálma þessarar fötlunar og er nú
doktor í dýrasálfræði og mikils metin
á því sviði. Henni hefur tekist að
koma til skila reynslu sinni af ein-
hverfu, bæði í formi fyrirlestra og í
bók sinni Dymar opnast — frá ein-
hverfu til doktorsnafnbótar, sem Um-
sjónarfélag einhverfra hefur nú gefið
út. Þetta er fyrsta bókin þar sem þess-
ari reynslu er lýst. Bókin hefur vakið
mikla athygli víða um lönd og er talin
lykilbók að skilningi manna á þessari
fötlun.
Fyrir þá íslendinga, sem tengjast ein-
hverfu á einn eða annan hátt, markar
þessi bók einnig tímamót fyrir þá sök
að þetta er fyrsta bókin sem kemur út
á íslensku og fjallar um þessa fötlun.
Eins og titillinn ber með sér lýsir bók-
in leið Temple Grandin frá einangrun
einhverfunnar til doktorsnafnbótar.
Skringileg uppátæki, furðuleg fram-
koma, misskilningur og rangtúlkanir,
þrá eftir ást, innri barátta í flóknum og
yfirþyrmandi heimi. Bókin lýsir því er
undarleg áhugamál og þráhyggja
breytast í þrautseigju er knýr fram sig-
ur.
Þessi bók er ekki aðeins einstök fýrir
þá sök að þar er einhverfu 1 fyrsta sinn
lýst ítarlega frá sjónarhomi einhverfr-
'ar manneskju, heldur má einnig segja
að hún varpi nýju Ijósi á styrk mann-
eskjunnar frammi fyrir erfiðleikum
sínum.
Ragnheiður Óladóttir þýddi og Hvíta
húsið auglýsingastofa stýrkti útgáfu
bókarinnar og gaf m.a. vinnu við
hönnun bókarkápu. Dreifingu annast
Óm og Örlygur. Bókin er 160 bls. og
kostar 1.980 kr. Umsjónarfélag ein-
hverfra gefur bókina út og tileinkar
þessa íslensku útgáfu öllum þeim ís-
lendingum sem hafa trú á manneskj-
unni og möguleikum hennar.
Heimur í hnotskum
Út i hönd nefnist skáldsaga sem út-
gáfufyrirtækið Fróði hf. hefur nú gef-
ið út. Bókin er eftir dönsku skáldkon-
una Synnöve Söe og er í íslenskri
þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar.
Þetta er önnur bók Söe, sem kemur út
á íslensku, en í fyrra gaf Fróði hf. út
bókina í tætlum.
Synnöve Söe er tæplega þrítug. Þeg-
ar fyrsta bók hennar kom út í Dan-
mörku fyrir nokkrum árum, vakti
hún gífurlega athygli og seldist í
stærra upplagi en títt er um bækur
þarlendis. Bókin Út í hönd, sem heit-
ir á frummálinu „No Credit", varð
einnig metsölubók og hefur verið
þýdd á mörg tungumál.
Sögusvið Ut í hönd er lítið veitinga-
hús í New York þar sem lífið gengirr
sinn vanagang, en eigi að síður er
veitingahúsið heimurinn í hnotskum.
Aðalsöguhetjan er gengilbeinan
Coco, sem dreymir um að verða leik-
kona.
Út í hönd er 152 blaðsíður. Bókin er
prentunnin i Prentsmiðjunni Odda
hf. Kápuhönmm annaðist Helgi Sig-
urðsson. Verð bókarinnar er kr. 1.890.
Fríða og Dýrið í
tveim bókum
Sagan um Fríðu og Dýrið er þekkt sí-
gilt ævintýri, sem Walt Disney-fyrir-
tækið hefur fært í ógleymanlegan
búrúng og kemur nú út hjá Vöku-
Helgafelli. Kvikmyndin eftir sögunni
hefur farið sigurför um heiminn, m.a.
hlotið Óskarsverðlaunin og er nú
sýnd hér á landi.
Ævintýrið um Fríðu og Dýrið kem-
ur út í tveim útgáfum: í innbundinrú
bók í stóru broti og einnig f styttri út-
gáfu í ódýru kiljuformi. Stærri bókina
þýðir Þrándur Thoroddsen, en hina
minni Sigrún Ámadóttir.
Sagan segir frá ungum, spilltum og
ofdekmðum prins, sem neitar að
hjálpa betlarakerlingu er knýr dyra
hjá honum. Þessi kona er í raun töfra-
dís og til að hefna sín breytir hún
prinsinum í ófreskju — E)ýrið. Hún
leggur svo á prinsinn að hann losni
ekki úr álögrnn fyrr en hann sýni ein-
hverjum ástúð og fái hana endur-
goldna. Öðrum íbúum kastalans
breytir hún í mismunandi húsbúnað!
Verð innbundin bók kr. 1.280. Kilju-
útgáfa kr. 395.
Ævintýri í páskafríi
Háskaleikur er ný spennusaga eftir
verðlaunahöfundinn Heiði Baldurs-
dóttur, sem Vaka-Helgafell gefur út.
Sagan segir frá fjórum krökkum úr
Reykjavflc, sem fara í sumarbústað um
páska. í fyrstu er allt með felldu, ekkert
bendir til þess að ævintýri sé í vænd-
um, en þá fara hlutímir að gerast. Þau
lenda í æsispennandi atburðarás þar
sem ekki er allt sem sýnist. Þau rekast á
kynlega náunga, sem eru æði grunsam-
legir. En það eru fleiri á ferli. Hver var
konan í svarta kjólnum? Hvað var á
seyði á eyðibýlinu? Forvitnin rekur þau
áfram þeu til ekki verður aftur snúið.
Og þá ríður á að fara ekki á taugum!
A bókarkápu segir: „Háskaleikur er
mögnuð íslensk spennusaga úr sam-
tímanum fyrir böm og unglinga þar
sem fjórir krakkar takast á við dular-
fullt mál. Heiður Baldursdóttir hefur í
fyrri bókum sínum sýnt að hún kann
að skrifa spennandi sögu fyrir böm og
unglinga. — Háskaleikur er tvímæla-
laust hennar besta bók."
Heiður hlaut íslensku bamabókaverð-
launin árið 1989 fyrir sögu sína Álaga-
dalinn.
Halldór Baldursson gerði kápuna, en
Prentstofa G. Ben. annaðist prent-
vinnslu. Háskaleikur er 149 blaðsíður
að lengd.
Spennandinótt
Ken Follett, sem nefndur hefur verið
konungur spennusagnanna, er nú á
ferð með nýja skáldsögu, sem farið
hefur sigurför um heiminn, Nótt yfir
hafi. Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Nótt yfír hafi segir frá farþegum
um borð í flugskipi Póm American
flugfélagsins í siðustu ferð þess yfir
Atlantshafið áður en heimsstyrjöldin
síðari skellur á. Hver og einn hefur
ríka ástæðu til fararinnar: sumir em
að flýja fortíð sína til að hefja nýtt líf í
Ameríku, aðrir verða að hafa hraðan
á tíl að bjarga eigin skinrú. Og einnig
eru þeir með í för sem einskis svífast
tíl að ná fram vafasömum markmið-
um sínum.
Meðal fyrri metsölubóka Kens Fol-
lett má nefna Lykilinn að Rebekku
og Nálarauga. Geir Svansson og Þór-
bergur Þórsson þýddu á íslensku.
Nótt yfir hafi er 411 blaðsíður að
lengd. Hún er prentuð í Prentbæ hf.
og bundin í Félagsbókbandinu-Bók-
felli hf. Verð kr. 1.990.
Fullhugar
Útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur sent
frá sér bókina Fullhugar á fímbul-
slóðum — Þættir úr Grænlandsflug-
inu ef tir Svein Sæmundsson.
Bókin hefur að geyma frásagnir af
merkum þættí íslenskrar flugsögu.
Um langt árabil hafa íslendingar
stundað flug til Grænlands og áttu
þar með ríkan þátt f að rjúfa einangr-
un þessa granna okkar í vestri. Oft
voru aðstæður í Grænlandsfluginu
ótrúlega erfiðar, ekki síst í sjúkraflug-
inu þegar teflt var á tæpasta vað,
enda oft líf að veði.
FuIIhugar á fimbulslóðum skiptist í
fimm meginkafla. í fyrsta kaflanum
er fjallað um þá miklu einangrun sem
Grænlendingar bjuggu við í aldir og
þá miklu breytingu sem varð þegar
farið var að fljúga þangað. í öðrum
kaflanum er m.a. sagt frá upphafi
Grænlandsflugs íslendinga og hvem-
ig það þróaðist smátt og smátt. í
þriðja kaflanum er síðan fjallað um
aukningu Grænlandsflugsins frá ís-
landi og hvernig það varð stór þáttur
f flugmálum íslendinga. Þar er sagt
frá ævintýraferðum, m.a. alla leið tíl
Pearylands. Fjórði kaflinn fjallar um
skíðaflugið, en yfir því hvfldi mikill
ævintýraljómi, og fimmtí kaflinn
fjallar sfðan um mjög sögulegar flug-
ferðir, m.a. þegar flogið var upp á líf
og dauða til þess að bjarga sjúkum og
særðum. Margar frásagnanna í bók-
inrú taka öllum spennusögum fram,
enda má með sanni segja að íslensku
flugmennimir hafi verið fullhugar,
sem létu sér það ekki fyrir brjóstí
brenna að fljúga á fimbulslóðir, jafn-
vel í niðamyrkri heimskautanætur-
innar. Oft hékk lff þeirra á bláþræði,
en auðna réði að alltaf komu þeir
heilir heim.
Sveinn Sæmundsson hefur ritað
margar bækur. Hann er þrautkunn-
ugur því efni, sem hann fjallar um í
bókinni, enda var hann um langt ára-
bil blaðafulltrúi Flugfélags íslands og
sfðar Flugleiða.
Bókin Fullhugar á fímbulslóðum er
212 blaðsíður. Hún er í allstóru broti
og prýdd fjölda ljósmynda. Bókin er
prentunnin hjá G. Ben. Prentstofu.
Kápuhönnim annaðist Helgi Sigurðs-
son. Verð bókarinnar er kr. 2.980.
Strákur sem stækk-
ar og stækkar
Útgáfufyrirtækið Fróði hf., hefur nú
gefið út bókina Lalli ljósastaur eftir
Þorgrím Þráinsson. Er þetta fyrsta
bamabók höfundar, sem er kunnur
fyrir unglingabækur sínar.
Aðalsöguhetja bókarinnar, Lalli
ljósastaur, er ellefu ára, ósköp venju-
legur strákur, sem tekur þátt í prakk-
arastrikum með félögum sínum og
vinum. Veröld hans breytist síðan allt
f einu þegar hann tekur að stækka og
verður rúmir þrír metrar á hæð. Það
er hreint ekki svo auðvelt, m.a. vegna
þess að það er ekkert auðvelt að fá
skó númer 48 og föt á slikan risa eru
tæpast tíl.
Þorgrímur Þráinsson hefur áður
sent frá sér þrjár unglingabækur, sem
hlotið hafa mjög góðar viðtökur.
Hlaut Þorgrímur bama- og imglinga-
bókaverðlaun Reykjavíkurborgar ár-
ið 1990 fyrir bók sína, Tár, bros og
takkaskór, og nú f haust hlaut hann
menningarverðlaim VISA.
Stefán Kjartansson teiknaði mynd-
imar í bókinni Lalli Ijósastaur og
myndskreytti einrúg kápu hennar.
Bókin er prentunnin hjá G. Ben.
Prentstofu hf. Hún er 118 bls. Verð
bókarinnar er kr. 1.190.
Dularfullt
næturflug
Fróði hf. hefur gefið út bókina Furðu-
flug eftir bandaríska rithöfundinn
Stephen King. Bókina, sem nefnist
„The Langoliers" á frummálinu,
þýddu þeir Karl Birgisson og Guðni
Jóhannesson. Þetta er áttimda bókin
eftir Stephen King, sem út kemur á
íslensku.
Stephen King er tvímælalaust einn
vinsælasti spennusagnahöfundur f
heimi um þessar mundir og bækur
hans seljast jafnan í risavöxnum upp-
lögum og em á metsölulistum viku
eftír viku þegar þær koma út. Kvik-
myndir hafa verið gerðar eftir mörg-
um sagna hans og má minna á sem
dæmi myndina Duld, sem nýlega var
sýnd á Stöð 2, og Óskarsverðlauna-
myndina Eymd sem sýnd var hér-
lendis eigi alls fyrir löngu.
Söguþráður bókarinnar Furðuflug
er í örstuttu máli á þá Ieið að stór far-
þegaþota hefur sig tíl flugs af flug-
vellinum f Los Angeles og framund-
an er næturflug til Boston. Meðal far-
þega í flugvélinni er Brian Engle
flugstjóri, sem er nýkominn úr erfiðu
flugi frá Tókýó. Flugvélin er naumast
komin í loftíð, þegar hann sofnar og
hann veit ekki hversu lengi hann hef-
ur sofið þegar hann vaknar við neyð-
aróp. Hann áttar sig fljótt á þvf að
ástandið um borð í flugvélinrú er í
senn furðulegt og ógnvænlegt. Við
tekur barátta upp á líf og dauða. Les-
endur bókariruiar taka þátt í þvf að
leysa óráðnar gátur og kynnast sálar-
llfi og viðhorfum söguhetjanna. Og
að venju kann Stephen King þá list,
öðrum höfundum fremirr, að halda
lesendum í mikilli spennu og óvissu
og koma þeim f sffellu á óvart.
Bókin Furðuflug er 247 blaðsíður.
Bókin er prentunnin í Prentsmiðjunni
Odda hf. Kápu hannaði Stefán Kjart-
ansson. Verð bókarinnar er kr. 1.980.
Saga EM-keppn-
innar í knattspyrnu
Útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur sent
frá sér bókina EM — Saga Evrópu-
keppni landsliða í knattspymu
1958-1992 eftir Sigmund O. Steinars-
son blaðamann.
Evrópukepprú landsliða í knatt-
spymu hefur nú farið fram alls níu
sinnum. Kepprún hófst árið 1958 og
fyrsta úrslitakeppnin fór fram f
Frakklandi árið 1960. Síðast fór úr-
slitakeppnin fram í Svíþjóð á liðnu
sumri og lyktaði þá með óvæntum
og eftirminnilegum sigri Dana, sem
komust „bakdyramegin" inn í úr-
slitakeppnina.
í bókinirú fjallar Sigmundur Ó.
Steinarsson ítarlega um sögu þessar-
ar keppni, en margt sögulégt hefur
borið við frá því að hún hófst. Sig-
mundur rekur sérstaklega gang mála
f úrslitakeppninni hverju sinni, en
greinir frá úrslitum leikja og minnis-
verðum atburðum í undankeppninni
og fjallar þá sérstaklega um aðal-
stjömur hverrar keppni.
Bókin EM — Saga Evrópukeppni
landsliða í knattspymu 1958-1992 er
160 blaðsíður og er mikill fjöldi Ijós-
mynda í bókinrú. Bókin er prentunn-
in f Prentsmiðjunni Odda hf., en höf-
undur annaðist uppsetrúngu hennar,
svo og kápuhönnun. Verð bókarinnar
er kr. 1.980.
Af frændum okkar
Út er komin hjá Æskunni Bókin um
simpansana eftir Jane Goodall.
Guðni Kolbeinsson íslenskaði.
Bókin hlaut fyrstu verðlaun alþjóð-
legs verðlaunasjóðs bamabóka 1989.
Hún er í flokki bóka sem fjalla um
fjölskyldur dýra, einkiun tengsl móð-
ur og afkvæmis.
Konrad Lorenz, sem hlaut Nóbels-
verðlaun 1973 fyrir rannsókrúr sínar
á einstaklings- og hópatferli dýra,
segir um bókina:
„Til þess að geta boðið bömum bók
um dýr og mælt skilyrðislaust með
henni verður maður að vera fullviss
um að höfundurinn hafi til að bera
staðgóða og trausta þekkingu á efn-
inu. Enginn í heiminum skilur simp-
ansa betur en Jane Goodall. Þar við
bætist að hún lýsir þeim með hlýju
og gamansemi, svo að umfjöllun vfs-
indamannsins verður bæði bömum
og fullorðmun sannur skemmtileshu’.
Myndir bókarinnar tala lfka skýru
máli og sýna glöggt að enginn hefur
kynnst hópi villtra dýra betur en Jane
Goodall simpönsunum sfnum."
Bókin er 68 blaðsíður. Myndir eru á
hverri síðu. Flestar þeirra tók Micha-
el Neugebauer.
Offsetþjónustan hf. annaðist filmu-
vinnu texta. Bókin er prentuð í Slóv-
eníu á vegum rétthafa, Neugebauer-
útgáfunnar í Aushuríki, jafnframt
prenhm fyrir fjölda annarra landa.
Ný spurningabók
Hörpuútgáfan hefur gefið út nýja ís-
lenska spumingabók, Gettu nú.
Ragnheiður Erla Bjamadóttir tók
saman.
f þessari nýju bók em um 700
spumingar, framsettar og flokkaðar
með s vipuðum hætti og í spuminga-
þáttum framhaldsskólanna. Þær em í
þremur þyngdarflokkum og henta
því öllum, bömum og fullorðnum. Á
bókarkápu segir: „Ert þú búinn að
læra allar spumingamar f Trivial
Pursuit utanað? Finnst þér gaman að
sjá virú þína engjast af óþolinmæði í
spumingaleikjum? Eða hefur þú bara
einfaldlega svo gaman af spuming-
um að þú þreytíst aldrei á þeim? Ef
svo er, á þessi bók erindi við þig."
Höfundurinn, Ragnheiður Erla
Bjamadóttir, er Iöngu landskunn úr
hinni sívinsælu spumingakeppni.
Bókin Gettu nú er 133 bls., prentuð
og bundin f Odda hf. Káputeikningu
gerði Brian Pilkington.
Afbrotamaður í
hefndarhug
Útgáfufyrirtækið Fróði hf. hefur sent
frá sér bókina Taugastríðið eftir
breska rithöfrmdinn Ruth Rendell í
fslenskrí þýðingu Jónfnu Leósdóttur.
Þetta er önnur skáldsagan eftir Ruth
Rendell, sem kemur út á íslensku, en
Fróði hf. gaf út bókina Dauðadúkkan
í fyrra.
Ruth Rendell er einn kunnastí
spennusagnahöfundur Breta og hefur
henni verið lfkt við hinn fræga höf-
und Agöthu Christíe. Fjölmargar
kvikmyndir og sjónvarpsmyndir hafa
verið gerðar eftir sögum hennar og
hafa m.a. verið sýndar í íslensku
sjónvarpsstöðvunum.
Bókin Taugastríðið fjallar um af-
brotamanninn Victor Jenner, sem er
nýsloppinn úr langri fangelsisvist
sem hann er dæmdur f fyrir að skjóta
lögreglumann og slasa hann svo al-
Vculega að hann verður lamaður fyrir
Ufstíð. Jenner kennir lögreglumann-
inum um ófarir sfnar og það verður
að þráhyggju hjá honum að ná kynn-
um hans og vinna traust hans. Hon-
um tekst það ætlunarverk sitt, en til
sögunnar kemur einnig unnusta Iög-
reglumannsins sem Jenner verður
ástfanginn af og ákveður að hún
verði sín. Spenna milli söguhetjanna
magnast stöðugt, tekur óvænta
stefnu og sögulok munu koma les-
endum verulega á óvart.
Bókin Taugastríðið er 253 blaðsfður.
Bókin er prentunrún í Prentsmiðjunni
Odda hf., en kápuhönnun annaðist
Helgi Sigurðsson. Verð bókarinnar er
kr. 1.980.