Tíminn - 06.03.1993, Side 4
12 Tíminn
Laugardagur 6. mars 1993
Samvinnuháskólinn
— rekstrarfræði
Rekstrarfræðadeild
Samvinnuháskólapróf i rekstrarfræðum miðar að því
að rekstrarfræöingar séu undirbúnir til forystu-,
ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eða viðskipta-
brautum eða lokapróf í frumgreinum við Samvinnuháskól-
ann eða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórn-
unar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn, starfsmannastjórn,
stefnumótun, lögfræði, félagsmál, samvinnumál o.fl.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Námið er
lánshæft hjá LÍN.
Frumgreinadeild
til undirbúnings rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskólastigi án
tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, ís-
lenska, stærðfræði, lögfræði og félagsmálafræði. Einn vet-
ur.
Aðstaða: Nemendavist og Ijölskyldubústaðir á Bifröst í
Borgarfiröi ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.fl.
Barnaheimili og grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluö um 38.000
kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bif-
röst. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar
um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er innganga umsækj-
endum af öllu landinu. Þeir umsækjendur ganga fyrir, sem
orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í at-
vinnulifinu. Námið hentar jafnt konum sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem
skólarými leyfir.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi — sími 93-50000.
A
Kópavogsbær
Sumarstörf 1993
Eftirfarandi sumarstörf hjá Kópavogskaupstað fyrir sumar-
ið 1993 eru laus til umsóknar:
Almenn störf:
1 Verkamenn i almenn störf garöyrkju, malbikun, gangstéttar-
gerö, almenna jarðvinnu, hreinsun, ýmis viöhaldsstörf og á
íþróttavelli.
2. Vinnuvélastjórnendur til afleysinga (réttindi áskilin).
3. Flokksstjórar við garöyrkjustörf og á iþróttavelli.
4. Forstööumaöur og leiöbeinendur í skólagarða og á starfs-
velli.
5. Aöstoðarmenn á leikvelli (hlutastarf).
6. Afleysingamenn viö Sundlaug Kópavogs.
7. Önnur afleysingastörf.
Vinnuskólinn:
Ráöningartimi júni-júli.
1. Yfirflokksstjórar.
2. Flokksstjórar.
Væntanlegur ráöningarsamningur viö lausráðna sumarstarfs-
menn í almennum störfum mun miöast viö 8 stunda dagvinnu,
eftirvinna veröur tilfallandi.
Umsóknareyöublöö liggja frammi i afgreiöslu Félagsmálastofn-
unar i Fannborg 4, sími 45700.
Umsóknum skal skila á sama staö fyrir 22. mars 1993.
Starfsmannastjóri.
Þeir eru kampakátir í HM-myndveri enda á leið til Svíþjóðar þar sem þeir ætla aö flytja þjóöinni fréttir
og fróðleik um HM í handknattleik. Amar Bjömsson t.v. sér um hljóðvarpið en Samúel Óm Eriingsson
um sjónvarpsútsendingar. Tímamynd Árni BJama
íþróttadeild Ríkisútvarpsins:
Dagskrá sjónvarpsins hef-
ur aldrei veriö viðameiri
íþróttadeild Ríkissútvarpsins mun
næsta hálfan mánuð standa fyrir
viðamikilli dagskrá vegna Heims-
meistaramótsins í handknattleik og
mun sjónvarpið sýna alla leiki ís-
lenska liðsins beint, auk þess sem
upptökur á tveimur öðrum leikjum
annarra liða verður sýnd. Enn
fremur verður lýst beint í útvarp-
inu. Ingólfur Hannesson, deildar-
stjóri íþróttadeildar, sagði í samtaU
við Tímann að dagskrá deildarinnar
hefði aldrei verið viðameiri.
Það verða þeir Samúel Örn Er-
lingsson og Arnar Björnsson sem sjá
um að skila leikjunum til þjóðarinn-
ar, Samúel í sjónvarpinu og Amar í
útvarpinu. Fyrsta útsending er á
þriðjudag þegar sýndur verður opn-
unarleikur. Útsendingar hefjast
stundaríjórðungi fyrir leik. Munu
fréttamenn í myndveri fá góða gesti
sem munu spá í spilin og verða þá
rifjaðir upp gamlir leikir milli ís-
lendinga og þeirra þjóða sem þeir
leika við hverju sinni.
„Ég held að ég geti lofað því að það
verði viðameiri umfjöllun um þetta
mót og meira í kringum það hvað
okkur varðar heldur en nokkurn
tímann áður. Það á að verða mikið
líf í kringum þetta nú,“ sagði Ingólf-
ur Hannesson. Þeir sjónvarpsmenn
hafa sett upp sérstakt HM-myndver í
æfingamyndveri í kjallara sjónvarps-
hússins og verður það einungis not-
að undir HM-útsendingar. I kvöld-
fréttum Sjónvarps verður ávallt
skipt niður í myndver þegar sagðar
verða fréttir af keppninni.
Eins og áður sagði verða allir leikir
íslenska liðsins í undankeppni og
milliriðlum sýndir beint. Að auki, ef
ísland leikur um eitt af sjö efstu sæt-
unum, verður sýnt beint frá úrslita-
leik, það er að segja ef ísland leikur
ekki úrslitaleikinn.
Eins og áður sagði verður öllum
leikjum íslenska liðsins lýst á Rás 2 í
umsjón Amars Bjömssonar, sem
fær gesti með sér í útsendingu. Að
auki sér Amar um HM-homið, sem
verður sent út kl. 10.30 á morgnana,
þar sem daglega verða fluttar fréttir
af liðinu, af umfiöllun í fjölmiðlum
erlendis og fleira.
-PS
HM-dagskrá sjónvarpsins
9. mars Ísland-Svlþjóö kl. 17.45 (bein útsending)
10. mars Danmörk-Þýskaland kl. 23.10 (upptaka)
11. mars Ísland-Ungverjaland kl. 16.45 (bein útsending)
13. mars Ísland-Bandaríkin kl. 12.45 (bein útsending)
15. mars Milliriöill kl. 16.45 (líklegast)
16. mars Milliriöill ki. 16.45 (liklegast)
17. mars Milliriöill kl. 16.45 (líklegast)
20. mars Úrslitaleikur (bein útsending)
20. mars Ef ísland kemst ekki (úrslit veröur einnig sýndur leikur ís-
lands um sæti.
7-8.sæti kl. 10.45
5-6.sæti kl. 12.45
3-4.sæti kl. 14.45
|J| ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Skólaskrifstofu Reykjavikur,
óskar eftir tilboðum i klæðningu, viöhald og viðgeröir á ca. 600 stál-
skólastólum fyrir skóla borgarinnar.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vom, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriðjudaginn 23. mars 1993, kl.
11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚUMFERÐAR
RÁÐ
Endurskins
merki
á alla!