Tíminn - 26.03.1993, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur 26. mars 1993
Efni fyrir 4.300 kr. í kransakökur sem kosta um 9.800 til 15.800 kr. í bakaríum í Reykjavík:
Upp í 6.000 kr. verðmunur
milli bakara borgarinnar
Allt að 80% verðmunur, kom í ljós milli bakaría í verðkönnun sem Neyt-
endasamtökin gerðu á kransakökum í 25 bakaríum á höfuðborgarsvæðinu.
Til dæmis munaði alit að 6.000 krónum á verði einnar 24ra hringja kran-
saköku, sem kostaði rúmar 9.800 kr. í Breiðholtsbakam en rúmar 15.800
kr. í bakaríinu Austurveri.
Þeir sem eru að undirbúa ferming-
arveislur geta því sparað sér mörg
þúsund krónur með því að bera
saman verð áður en þeir ákveða
kaup. Allra mestur er þó sparnaður
þeirra sem baka sjálfir. Efni í 24ra
hringja kransaköku kostar aðeins
um 4.300 kr., með styttu, konfekti,
rafmagni og öllu saman, þ.e. frá
5.500 kr. til 11.500 kr. minna heldur
en slík kaka kostar í bakaríi.
Könnunin leiddi líka í Ijós að það
reyndist erfitt, m.a.s. fýrir Neyt-
endasamtökin, að bera saman verð á
kransakökum miðað við magn. Fæst
bakaríin gátu sagt um hvað kökurn-
ar þeirra voru þungar. Þau gátu
samt sagt hvað þær voru fyrir marga
gesti. Sú viðmiðun virtist þó afar
mismunandi. Þannig var 20 hringja
kaka t.d. gefin upp sem 30 manna
kaka í einu bakarí. í öðrum bakar-
íum átti hún að duga fleirum og
jafnvel dæmi um að þetta væri sögð
55 manna kaka í einu bakaríinu.
Samanburður Neytendasamtakanna
miðast við fjölda hringja.
Þeim sem gera vilja verðsaman-
burð á kransakökum er þó bent á að
það er oft ekki nóg að spyrja um
verð, heldur er þar margt sem þarf
að athuga. í sumum tilvikum gefa
bakarí upp verð án styttu sem
skreytir kökuna. Einnig er bent á, að
vissara er að spyrja um útfærslu á
skreytingu, sem getur verið mjög
mismunandi frá einu bakaríi til ann-
ars. í sumum tilvikum fylgir t.d.
konfekt með á bakkanum en í öðr-
um aðeins það sem notað er til
skrauts á kökuna sjálfa. í sumum til-
vikum er líka akstur á kökunni heim
til kaupenda innifalinn í verði og
einnig kransakökubitar í nokkrum
tilfellum.
Kransakökur reyndust til í öllum
stærðum, frá 12 hringja og upp í 27
hringja. Algengustu stærðirnar
virðast þó; 16,18, 20 og 24 hringja.
Hæsta og lægsta verð, og hlutfalls-
legur verðmunur þeirra reyndist
sem hér segir:
Hringin Lægsta Hæsta Munur
verð kr. verð kr. %
16 5.120 kr. 7.975 kr. 56%
18 6.170 “ 11.100 " 80%
20 7.760 “ 13.015 “ 68%
24 9.840 “ 15.815 “ 61%
Samkvæmt útreikningum Neyt-
endasamtakanna kostar hráefni í 16
hringja köku með öllu tilheyrandi
u.þ.b. 2.200 kr„ í 20 hringja köku
um 3.350 kr. og í 24ra hringja um
4.300 krónur.
Breiðholtsbakarí átti lægsta verðið
á þeim fjórum stærðum sem þar
fengust; 14, 17, 20 og 24 hringja á
verði frá 3.930 kr. til 9.840 kr. Nýja
kökuhúsið var hins vegar með
hæsta verðið á öllum sínum stærð-
um; 14, 17, 19, 21 og 23ja hringja,
frá 7.110 kr. og upp í 15.260 kr.
Athygli vekur, að 18 og 19 hringja
kökur eru í mörgum tilfellum dýrari
heldur en 22ja hringja kökur. Þá má
geta þess, að Árbæjarbakarí, Borgar-
bakarí, Kökubankinn og Myllan
neituðu að veita Neytendasamtök-
unum umbeðnar verðupplýsingar.
-HEI
Nefnd um bætta rekstrarstöðu ferðaþjónustu skilar ekki
áliti vegna ágreinings:
Ekki ný lög um
ferðaþjónustu
Halldór Blöndal . samgönguráð-
herra sagði á Alþingi að ekki væri
von á frumvarpi frá sér um ferða-
mál. Ástæðan sé meðal annars
ágreiningur milli sín og fjármála-
ráðherra um tekjuöflun til ferða-
mála.
Halldór upplýsti ennfremur að
engar líkur séu á að nefnd sem
hann skipaði fyrir rúmu ári, til að
Aðalfundur Gigtarfélags íslands:
Framtíðarstefna
Aðalfundur Gigtarfélags íslands
verður haldinn í Borgartúni 6 laug-
ardaginn 27. mars næstkomandi.
Meðal dagskráratriða verður mál-
þing um framtíðarstefnu Gigtarfé-
lags íslands og verður það öllum op-
ið. Aðalfundurinn verður haldinn í
framhaldi af málþinginu.
Á málþinginu flytja níu frummæl-
endur erindi þar sem þeir segja álit
sitt á því hver meginstefna og verk-
efni félagsins eigi að vera á komandi
Irum, en þeir eru Júlíus Valsson
gigtarsérfræðingur, Kristján Steins-
son gigtarsérfræðingur, Sigrún
Baldursdóttir sjúkraþjálfari, Gauti
Grétarsson sjúkraþjálfari, Jóhanna
Ingólfsdóttir, ÞóraÁmadóttirhjúkr-
unarfræðingur, Ingibjörg Sveins-
dóttir, Þórarinn Sigurjónsson og
Svavar Kristinsson, framkvæmdar-
stjóri félagsins.
Málþingið verður eins og áður
sagði haldið á morgun, Iaugardag-
inn 27. mars og hefst klukkan 14.
-PS
Verkamannafélagið Hlíf
Sumarorlof
Þeir félagsmenn Hlífar, sem hug hafa á að dveljast I sum-
arhúsum eða orlofsíbúðum félagsins næsta sumar, eru
beðnir að sækja um það fyrir 15. apríl nk.
Félagið á eitt sumarhús í Ölfusborgum og þrjú við Húsa-
fell í Borgarfirði. Þá á félagið tvær orlofsíbúðir á Akureyri.
Eins og undanfarin sumur er gert ráð fyrir vikudvöl.
Ef fleiri umsóknir berast en hægt verður að sinna, munu
þeir ganga fyrir sem sækja um í fyrsta sinn.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Hlífar, Reykjavíkur-
vegi 64. Símar 50987 og 50944.
gera tillögu um bætt rekstrarskil-
yrði fyrir ferðaþjónustu á íslandi,
skili sameiginlegu nefndaráliti.
Þessar upplýsingar komu fram í
svari ráðherra við fyrirspurn frá
Steingrími J. Sigfússyni (Alb.) um
ferðamál.
Sú nefnd sem skipuð var til að
gera tillögu um bætt rekstrarskil-
yrði ferðaþjónustu á íslandi tók til
starfa áður en ríkisstjórnin og
meirihluti Alþingis ákvað að leggja
14% virðisaukaskatt á íslenska
ferðaþjónustu. í nefndinni á m.a.
sæti Steingrímur Ari Arason, að-
stoðarrnaður fjármálaráðherra, en
hann hefur verið talsmaður þess
að ferðaþjónustan greiði virðis-
aukaskatt.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
greinilegt að ráðherra hafi verið
borinn ofurliði í ríkisstjórninni.
Það sé ömurleg niðurstaða að ekk-
ert eigi að gera til að bæta stöðu
ferðaþjónustunnar, en samgöngu-
ráðherra hafi í upphafi ferils síns
lýst því yfir að hans helsta mark-
mið væri að bæta stöðu hennar. -
EÓ
Bjöm Ágúst Einarsson lögreglumaöur t.v. ásamt Hannesi Guö-
mundssyni frá Securitas (i miðið) og Hannesí Guðmundssyni
frá Vara. Tímamynd Amí BJama
Tvö öryggisgæslufyrirtæki og
Reykjavíkurlögreglan:
Þjófavarnir
fyrir heimili
Öryggisgæslufyrírtækin Varí og
Securitas hafa afhent forvama-
deild ReykjavikuriÖgreglunnar
sýnishom af algengasta búnaði
fyrir heimili til að verjast innbrot-
um.
Framvegis gefst fólki því kostur
i að skoða búnaðinn og kynna sér
möguieika á því að veija heimili
sín fyrir innbrotafófld. Búnaðin-
um hefur verið komið upp hjá for-
vamadefld lögregiunnar í lög-
reglustöðinni við Hiemm.
Fjárhagsáætlun Selfossbæjar samþykkt:
Fjárfestingar og viðhald
upp á hálfan milljarð kr.
Fjárhagsáætlun Selfossbæjar fyrir
þetta ár einkennist af framkvæmda-
vflja bæjarstjómar, þrátt fyrir nei-
kvæð áhrif aðgerða ríkisvaldsins á
rekstrarafkomu bæjarins, sagði
Karl Björasson, bæjarstjóri á Sel-
fossi, efnislega þegar hann fylgdi
fiárhagsáætlun bæjarins úr hlaði.
Aætlunin var samþykkt á fundi bæj-
arstjómar nýverið.
Heildartekjur bæjarsjóðs fyrir þetta
ár eru áætlaðar 381,6 milljónir kr.
Að teknu tilliti til rekstrarútgjalda,
fjármagnsgjalda og -tekna sem og
nettó afborgana af lánum, er tekju-
afgangur til fjárfestinga í kringum
72,6 milljónir kr. Nettó fjárfestingar
eru áætlaðar 88,9 milljónir kr. þann-
ig að rekstrarafkoma bæjarins verð-
ur neikvæð um 12,7 milljónir kr.
Ráð er fyrir gert að skuldir bæjar-
sjóðs aukist um 44 milljónir kr. á ár-
inu en bæjarstjóri telur að þar sé
engin hætta á ferðum hvað varðar
áframhaldandi góða fjárhagsstöðu
bæjarins.
Bæjarsjóður Seifoss áætlar að veita
224,2 milljónum kr. til fjárfestinga
og viðhaldsframkvæmda en ef bætt
er við hlut bæjarins í íbúðum fyrir
aldraða sem verið er að byggja, við-
byggingu við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands og væntanlegum sorphaug-
um í landi Kirkjuferju í Ölfusi, nema
heildaríjárfestingar bæjarins og við-
hald tæpum hálfum milljarði á
þessu ári. Þrjú fyrrnefnd sérverkefni
verða fjármögnuð með sérstökum
lánum. -SBS Selfossi