Tíminn - 29.04.1993, Blaðsíða 1
DBRra
29. apríl 1993
78. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 110.-
Viðræður um heildarkjarasamninga úr sögunni. Formaður VMSÍ segir að rík-
isstjómin hljóti að bregðast við atvinnuleysinu óháð gerð kjarasamninga:
Rætt um að fram-
lengja núver-
andi samninga
Tilraunir til að ná kjarasamningum á grundvelli yfirlýsingar ríkis-
stjómarínnar frá síðustu viku virðast endanlega famar út um þúf-
ur. Fulltrúar vinnuveitenda höfnuðu í gær að gera kjarasamning
nema að öll félög ASÍ stæðu að slíkum samningi. Dagsbrún er ekki
tilbúin til að gera samning á þessum grundvelli. Samflot ASÍ-félaga
er þar með faríð út um þúfur og hvert félag mun freista þess að ná
samningum viö sína viðsemjendur.
Bjöm Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands íslands,
sagði að að mati verkalýðshreyfing-
arinnar hefði vantað ýmislegt inn í
pakka ríkisstjómarinnar. Engu að
síður hefðu mörg félög viljað gang-
ast inn á hann með smávægilegum
breytingum. Bjöm Grétar sagðist
hafa metið það svo að eðlilegt væri
að láta reyna á þetta fyrir hönd þess-
ara félaga. Þessi leið hefði hins vegar
reynst ófær vegna afstöðu vinnu-
veitenda.
Bjöm Grétar sagði að félögin og
sambönd þeirra myndu athuga mál-
in á næstu dögum. Þau myndu
Netabátur fórst á Faxaflóa í fyrrakvöld;
w m ■ ■■
en tveggja
er enn saknað
Þremur mönnum var bjargað en tveggja ungra manna er
saknaö eftir að 10 tonna netabátur, Sæberg AK frá Akranesi,
sökk á Faxaflóa í fyrrakvöld.
væntanlega athuga þann möguleika
að framlengja á einhvem hátt nú-
gildandi samninga með það að
markmiði að ná orlofsuppbótinni og
launabótunum.
Aðspurður um hvort til greina
kæmi að fara út í aðgerðir til að
þrýsta á um gerð samninga sagði
Bjöm Grétar að það væri mat
margra í verkalýðshreyfingunni að
það væri rétt að athuga síðar á árinu
upp á nýtt hina efnahagslegu stöðu
og vígstöðu hreyfingarinnar.
Bjöm Grétar sagði að það hefði
þurft að þrýsta fast á ríkisstjómina
til að setja á blað tillögur í atvinnu-
málum. Hann sagðist hins vegar
ekki líta svo á að sú niðurstaða sem
nú er orðin þýddi að ekkert yrði gert
til að berjast gegn atvinnuleysinu af
hálfu ríkisstjómarinnar.
„Það sem hefur verið fjallað hvað
mest um í þessu samningaferli em
atvinnumálin. Ég lít svo á að ríkis-
stjómin geti ekki undanskilið sig frá
því að bera ábyrgð í þessum mála-
flokki burtséð frá kjarasamningum.
Það væri mjög einkennileg staða ef
stjórnvöld gætu einfaldlega hengt
öll vandamál sem þau ættu að leysa
á einhvem kjarasamning. Það er að
mínu mati óábyrg afstaða," sagði
Bjöm Grétar.
-EÓ
Óbreytt lög um
stjórn fiskveiða
Þeir eru stórir og fallegir fiskamir sem landað er á Höfn í
Homafirði þessa dagana. Þrátt fyrír góöan afla eru erfiðleik-
amir miklir í sjávarútveginum. Erfiöleikamir voru ræddir á
Alþingi í gær. Ekki em horfur á að þaðan komi neytt hjálp-
ræði á næstunni fiskvinnslu eða útgerð til handa. Þaö síö-
asta sem er að frétta af afskiptum (afskiptaleysi) Alþingis af
sjávarútvegsmálum er að stjómarflokkamir ná ekki sam-
komulagi um endurskoðun laga um stjóm fiskveiða.
Sjá nánar í frétt á blaðsíðu 3.
Báturinn var á netaveiðum er
slysiö varð norðvestur af svo-
nefndum Hraunhólum á Faxa-
flóa. Er verið var að draga inn
net reið *tór sjófylla yfir bátinn
og lagði hann á hliöina á Ör-
skotsstund en talsvcrður afli var
um borð.
Strax í fyrrakvöld hófst feit af
landi og sjó þar sem báturinn
haföi ekki tilkynnt sig tíl tilkyxm-
ingaskyldunnar. Jafnframt varð
vart við neyðarmerítí sem erfift-
iega gekk aft staðsetja en tókst
þó að Jokum. Skömmu sfftar efta
um kl. tvö í fyrrinótt fundu skip-
verjar á Freyju björgunarbát meft
þremur skipverjum innan borðs
og var komift meft þá tii Njarft-
víkur í gærmorgun.
f gær stóft yfir lelt á sjó og úr
lofti aft þeim tveimur sem sakn-
aft er. Báftlr björgunarbátar Sæ-
bergs AK fundust, svo og björg-
unarhringir. Lítift brak fannst úr
bátnum. Skílyrði til leitar vora
erfift og gekk yfir dimmt skúra-
veður með um sjö vindstigum.
Leit var hætt síðdegis og á að
meta í dag hvort áfram verði leit-
að.
-HÞ
Það virðist erfitt fyrir skóla að verjast ágengni markaðsaflanna:
Gert út á skólanema
Skólanemendur virðast vera mjög
eftirsóttur hópur markaðsafla. Ný-
lega fréttist af nemendum í eldri bekk
í einum af grunnskóla höfuðborgar-
svæðisins sem heimsóttu gos-
drykkjaverksmiðju og fengu að
drekka þar gosdiykki að vild og voru
ieystir út með gjöfum að lnkinni
heimsókninni.
Slysahætta af veitingasölu
Stjóm Ungmennafélagsins Fjölnls mótmælir staðsetningu veit-
ingasölu og bensínstöóvar við Gagnveg og telur að henni fylgi
aukin slysahætta. Bent er á að um 500 metrar séu í næstu bensín-
stöö. Eigandl veitingasölunnar er framkvæmdastjórí þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
í borgarráði í gær var lagt fram bréf
Fjölnis stfiað til borgarstjóra. Þar seg-
ir að aukin þjónusta sé af hinu góða en
hún megi ekki skapa aukna slysa-
hættu fyrir bömin í hverfinu.
Þá er talað um að það hafi komið
stjómarmönnum á óvart að borgarráð
skyldi hafa samþykkt staðsetningu á
veitingasölu ofan við Gagnveg fyrir of-
an íþróttasvæði félagsins þar sem gert
var ráð fyrir 75 bílastæðum fyrir
íþróttamiðstöð og íþróttasvæði félags-
ins.
,J>að kom einna mest á óvart að
skipulagi á svæði sem tengdist
íþróttasvæðinu væri breytt án sam-
ráðs við stjóm félagsins og að ekki
hefði farið fram grenndarkynning á
fyrirhugaðri breytingu," segir í bréf-
inu. Þá er vakin athygli á því að sum-
arið 1992 hafi félagið óskað eftir
hraðahindmn á Fjallkonuveg við
gatnamótin á Fannafold til að draga
úr slysahættu fyrir böm. „Með til-
komu væntanlegrar veitingasölu við
Gagnveg mun umferð um þessi gatna-
mót aukast enn frekar," segir í bréfinu
og bent er á að það leiði til aukinnar
slysahættufyrirböminfhverfinu. HÞ
„Það á ekki að fara bara til að fara
eitthvað, „segir Unnur Halldórsdótt-
ir, tormaður Samfoks sem eru sam-
tök foreldra grunnskólanemenda,
og vitnar til samþykktar skólamála-
ráðs þar sem kveðið er á um að
halda auglýsendum sem mest frá
skólanemum.
Hún tekur undir þá skoðun að
kynnisferðir nemenda í fyrirtæki
eigi að taka mið af námi þeirra og
verjast verði dulbúnum auglýsing-
um.
„Það er skylda skólans að ýta undir
hollustu og heilbrigða lifnaðar-
hætti. Það eru allir sammála um að
gosþambið sé of mikið,“ segir Unn-
ur.
Hún vitnar til samþykktar skóla-
málaráðs þar sem kveðið er á um að
halda auglýsendum sem mest frá
skólanemum. „Það er til dæmis al-
menn regla að ekki megi dreifa aug-
lýsingum inn í skólastofur," segir
Unnur.
Hún tekur undir sjónarmið um að
efla beri tengsl atvinnulífs og skóla
en finnst að alltaf verði að meta þær
forsendur sem búa að baki. „Við
þurfum alltaf að halda vöku okkar
fyrir því að slíkar kynningar séu í
samhengi við nám og kennslu," seg-
ir Unnur og telur að það þurfi einn-
ig að vera í samhengi við kynningu á
öðrum vinnustöðum.
Unnur er þeirrar skoðunar að að
það þurfi að fara varlega í þessum
samskiptum og ýmis álitamál komi
oft upp. „Við höfum t.d. ekkert sagt
þó að Mjólkurdagsnefnd bjóði skól-
um í heimsóknir í Mjólkursamsöl-
una. Þar hefúr bömunum verið gef-
in Kókómjólk og þau leidd í gegn
um fyrirtækið," segir Unnur en tel-
ur þó að það sé réttlætanlegt þar
sem mjólkurvinnsla tengist náms-
efni ákveðins aldurshóps.
„Þá kom það upp að Mjólkursam-
salan vildi koma af stað mjólkur-
þambskeppni þar sem sigurvegarinn
yrði mjólkurkóngur skólans. Þessu
var hafnað í skólamálaráði," segir
Unnur.
-HÞ